Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ19Í80 g®| ripgoæ msm m &g00Si ■M mwi :■-*.'■• -'U-Ý |gp fli|i pál IS H m$m& w 1É|é A ÉÉÉH f|§| ÍÍt.'/ílí'.VÍ- 'imm Sífj3?.?í cSiSÍí ®w| » Ipi® 'f ' '■ f *v: mfmsí HtÉ smM # M gi? S'4w jÆgií £|? &S£ í#i fSgs :• í’.^V^ « 'vf ■’ ?ír3^ iMi IÉ I Hornstrandir og Arnarfjörður á Vestfjörð- um voru aðalheimkynni fordæðuskapar, þeg- ar galdra- og forynjutrú íslendinga var hvað mest og harðvítugustu galdramenn sendu þaðan mögnuðustu sendingar sem um getur. Þessi staðreynd verður mönnum vel skiljanleg, þegar stórbrotið og hrikalegt lands- lag þessara héraða er skoðað og haft er í huga válynt veðurfar lengst norður við Dumbshaf. í Landnámu segir frá því, að Geirmundur heljarskinn hafi leitaö úr Dölunum norður á Hornstrandir eftir auknu landrými. Nam hann þar land og reisti nokkur bú, sem hann fól þrælum sínum umsjón með. Ástæða þess, að Geirmundur leitaði þessa landnáms var sú, að gott var þar til fanga. Veiðiskapur í sjó og björgum var mikill, hvala- og viðarreki umfangsmikill, sem ýmis heiti og staðarnöfn bera með sér. Sagan segir enda, að Geir- mundur hafi efnast vel og átt digra sjóði. Margar kynslóðir hafa frá tímum Geir- mundar háð lífsbaráttu sína einangraðar í hrikaleik landslagsins og hafa válynd veður og miskunnarlaus náttúruöflin oft leikið íbúana grátt. Náttúran var þó gjöful en að sama skapi kostaði hún margar fórnirnar og óteljandi eru manntjónin, sem oröið hafa á sjó og landi, er unnið var við að draga björg í bú. Búseta lagöist alfarið niður á Ströndum fyrir tæpum 30 árum. í dag eru Hornstrandir friðland og helst leggja þangað leið sína náttúruunnendur og einnig fer í vöxt, að fólk sæki í að reisa þar sumarbústaði og dvelja þar um sumartímann. Enn er þó leitað fanga á sjó og landi en náttúruöflin halda sínu striki og leika þar margan hildarleikinn og hafa skipstjón og töp verið tíð á þessum slóðum. Slysavarnafélag íslands hefur þess vegna lagt áherslu á að reisa vönduð björgunarskýli sem víðast með ströndum. Eftirlitsmaður skýla S.V.F.Í. er Jósep Vernharðsson rafvirki í Hnífsdal og er hann einnig eftirlitsmaður friðlandsins fyrir Náttúru- verndarráð. í byrjun þessarar viku fór hann, ásamt varðskipsmönnum í reglubundna eft- irlitsferð í skýlin og bauð blaðamanni Mbl. með í förina. Farið var á varöskipinu Óðni, undir stjórn Helga Hallvarðssonar skipherra og verður förinni gerð skil í máli og myndum í þremur þáttum. Birtist hér fyrsti hlutinn. í Sæbóli í Aðalvík er slysavarnaskýlið í gömlum skóla staðarins. Inni í skýlinu eru enn púltin og kennaraborðið sem notuð voru þegar kennt var í húsinu. Breitt er úr svefnpokum til að þeir saggi síður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.