Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 119. tbl. 67. árg. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980 Prentsmiðja MorRunblaðsins Sakharov-ráð- stefna í Haag Haag. 29. maí. AR AÐ MINNSTA 10 Nóbelsverð- launahafar hafa samþykkt að taka þátt í ráðstefnu i Haag í september í haust vegna meðferð- ar sovéskra yfirvalda á sovéska andófsmanninum og Nóbelsverð- launahafanum Andrei Sakharov. Sovéski andófsmaðurinn Mikhail Stern skýrði frá þessu i Haag í dag. Hann sagði, að 22 Nóbels- verðlaunahafar hefðu samþykkt að vera í heiðursnefnd réttar- haldanna og að 10 þeirra að minnsta kosti yrðu viðstaddir ráðstefnuna. Fleiri vonuðust til að verða viðstaddir en óvíst er um þátttöku þeirra. Stern sagði að ráðstefnan Haag væri til að beina athygli umheimsins að meðferð sovéskra stjórnvalda á Andrei Sakharov. Hann var sendur í útlegð til sovésku borgarinnar Gorky án þess að nokkur dómur hefði failið í máli hans. Stern sagði að Ruth Bonner, tengdamóðir Sakharovs, hefði sagt honum, að heilsu Sakh- arovs hefði hrakað undanfarið. Hann á við hjartasjúkdóm að stríða. Honum er meinað að hlusta á útvarp og hann hefur verið einangraður frá vinum Frydenlund ætlar til Moskvu í haust — Ullsten kom til Moskvu í dag Ósló. 29. maí, AP. KNUT Frydenlund, utan- ríkisráðherra Noregs, til- kynnti í dag að hann myndi fara í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna í haust. Endan- legar dagsetningar hafa enn ekki verið ákveðnar. Fryden- lund mun fara í opinbera heimsókn til Póllands 8.—11. júní. Frydenlund sagði í dag, að hann færi til Moskvu til að halda uppi tengslum milli austurs og vesturs. Heimsókn Frydenlunds til Moskvu er fyrsta opinbera heim- sókn norsks utanríkisráðherra í 13 ár, er John Lyng fór til Moskvu 1967. Ákvörðun Frydenlunds mæltist misjafnlega fyrir í Noregi í dag. Norðmenn hafa ákveðið að senda ekki íþróttafólk sitt á Ól- ympíuleikana í Moskvu, vegna innrásar Sovétmanna í Afganist- an. Ola Ullsten, utanríkisráðherra Svíþjóðar, kom í dag í heimsókn til Moskvu, og er búist við að hann muni ræða um öryggismál Evr- ópu. Andrei Gromyko, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, tók á móti Ullsten á flugvellinum. Á æfingu fyrir sjómannadaginn Mynd Mhl. 01. K.l Sovéskur vísindamaður: Sovétmenn vinna að til- raunum með sýklahernað Washington, 29. maí. AP. SOVÉSKUR vísinda- maður, Mark Popovsky, sagði í dag fyrir leyniþjón- ustunefnd bandaríska þingsins, að 1000 manns að minnsta kosti hefðu beðið bana, þegar sýklaeit- urský barst yfir borgina Sverdlosk í Sovétríkjunum Umdeildur olíusamningur við Saudi-Araba: Skrifaöi undir án þess að lesa hann Danski orkumálaráðherrann sætir harðri gagnrýni Kaupmannahöfn, 29. maí. AP. STJÓRNARANDSTAÐAN í Danmörku hefur tilkynnt, að lögð verði fram vantrauststil- laga á Poul Nielsen, orkumála- ráðherra Danmerkur, vegna oliusamninga, sem hann gerði við Saudi-Arabíu. Nielson hefur verið gagnrýndur bæði i dönsk- um blöðum og meðal stjórnmála- manna fyrir að hafa skrifað undir oliusamning við Saudi- Araba en í samningnum er ákvæði, sem segir að geri Danir eitthvað, sem varpi rýrð á Saudi- Araba, þá geti Saudi-Arabar ógilt samninginn án nokkurra bóta. Nielson kom frá Saudi-Arabíu fyrir um mánuði síðan eftir að hafa skrifað undir samninginn um kaup danska ríkisolíufyrir- tækisins á olíu og gasi frá Saudi- Arabíu. Stóru alþjóðlegu olíufé- iögin koma ekkert nálægt þessum viðskiptum. Það var ekki fyrr en í fyrir- spurnatíma í danska þinginu að Nielson skýrði frá því, að Saudi- Arabar gætu ógilt samninginn ef Danir gerðu eitthvað til að varpa rýrð á þá. Nielson staðhæfði að slíkt ákvæði væri í öllum samn- ingum, sem Saudi-Arabar gerðu nú. Það kom hins vegar í ljós, að Finnar hafa skrifað undir svipað- an samning án nokkurra slíkra skuldbindinga. Nielson viður- kenndi síðar, að hann hefði skrif- að undir samninginn án þess að hafa lesið hann allan yfir og að honum hefði yfirsést ákvæðið um ógildingu. Það virðist vera i samningnum til þess eins að koma í veg fyrir sýningu „Dauða prins- essu“ í Danmörku. Miðflokkarnir í Danmörku hafa ásakað Nielson um að annað hvort reyna að villa um fyrir þinginu eða beinlínis ófæran um að gegna starfi sínu. Nielson er nú í Baghdad og Anker Jörgensen forsætisráðherra lagði sérstaka áherslu á, að Nielson væri ekki í Irak til að skrifa undir samninga um olíuviðskipti heldur aðeins til að ræða um olíumál við Iraka. í apríl 1979. Þingnefndin rannsakar staðhæfingar um, að Sovétmenn hafi unnið að tilraunum með sýklahernað og því brotið gegn sáttmála um bann við sýklahernaði frá 1975. Popovsky sagði að Sovét- menn hefðu unnið að til- raunum með sýklahernað um nokkurt skeið. Hann hefur upplýsingar frá vísindamönnum í Sov- étríkjunum og var þeim smyglað úr landi. „Eiturský fór yfir borgina og að minnsta kosti 1000 manns biðu bana, bæði í borginni og í úthverfum hennar. íbúar á stóru svæði við tilraunastöðina voru tvívegis fluttir á brott,“ sagði Popovsky. Hann hefur dvalið í Bandaríkjunum um tveggja ára skeið og starfar við Smithsoni- anstofnunina. Sovésk yfirvöld hafa viðurkennt, að fjölmargir hafi beðið bana á svæðinu en sagt, að það hafi stafað af heiftarlegri matareitrun. „Á grundvelli fjölmargra sönnunargagna, sem ég hef viðað að mér frá Sovétríkjunum, held ég því fram, að Sovétríkin hafi brotið gegn sáttmálanum um bann við tilraunum með sýkla- hernað," sagði Popovsky. Hann sagði að sérstakar deildir innan se um sovéska hersins væru þjálfaðar í sýklahernaði og að yfirmaður tilrauna með sýklahernað Ivanovich Smirnov, fyrrum heil brigðismálaráðherra Sovétríkj anna. Hann sagðist vita tilraunir með sýklahernað í Kirov, og þar til fyrir skömmu þegar hann hafði síðast spurnir af, þá hafi 125 vísindamenn unnið að tilraunum þar. Hann sagði að ströng öryggisgæzla væri um tilraunasvæðið. BNOC hækkar verð á olíu Lundúnum. 29. maí. AP. BREZKA ríkisolíufyrir- tækið, BNOC, hefur hækk- að verð á olíu um 2 dollara hverja tunnu. Verð á olíu- tunnunni frá BNOC er nú 36,25 dollarar samanborið við 28 dollara hjá Saudi- Aröbum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.