Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 11

Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980 11 Listamaðurinn i vinnustofu sinni. Sigurjón Ólafsson myndhöggvari sýnir í FÍM-salnum í TILEFNI Listahátíðar mun Fé- lag íslenskra mundlistarmanna efna til sýningar á verkum Sigur- jóns Ólafssonar myndhöggvara í FIM-salnum, að Laugarnesvegi 112. í salnum verða sýnd smærri myndverk Sigurjóns, en í tengsl- um við sýninguna verða stærri verk til sýnis fyrir utan heimili og vinnustofu listamannsins á Laug- arnestanga. Sýningin er styrkt af Lista- hátíð, sem leggur til eina milljón króna, og Reykjavíkurborg. í tilefni þessarar sýningar gefur FÍM út nokkur póstkort með myndum af verkum listamannsins og verða þau til sölu á sýningunni. Á sýningunni verða nýleg verk Sigurjóns, en hann vinnur mest í tré. Sýningin verður opnuð miðviku- daginn 4. júní kl. 18 og verður opin kl. 16—22 virka daga, en 14—22 um helgar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 22. iúní. Sigurjón og torsetinn. Kvenréttindafé- lagið í skógarf erð Kvenréttindafélag íslands á af- markaðan reit í Heiðmörk og á fyrstu árum skógræktar þar fóru félagsmenn og plöntuðu trjám og er nú allstór trjálundur i reit félags- ins. Vorið 1978 var farið i skógar- ferð á vegum félagsins og nú er ráðgert að fara aðra slika ferð á sunnudag, 1. júní. Lagt verður af stað klukkan 10 f.h. frá Hallveigar- stöðum við Túngötu. Rangæingar gróður- setja í Heiðmörk og undir Eyjaf jöllum Kjálka- bein úr skíðishval SIGURVIN Pálsson í Keflavík hafði í gær samband við Morgun- blaðið vegna baksíðumyndar blaðsins í gær, þar sem skýrt var frá hvalbeini, sem Haukafell SF 111 fékk í humartroll. I mynda- texta var sagt, að líklegast væri beinið rifbein úr stórum hval, en Sigurvin fullyrðir að um sé að ræða kjálkabein úr skíðishval. Segist hann minnast þess að á árunum 1920 til 1930 hafi rekið mikið af slíkum beinum í Hösk- uldsey, en Norðmenn munu þá hafa stundað hvalveiðar þar eigi langt frá. Flugdreka- sala til ágóða fyrir líknarmál LIONSKLÚBBURINN Týr mun hafa flugdrekasölu í Reykjavík á föstudag og laugardag við helstu verslunarstaði og á götum borg- arinnar. Klúbburinn hefur áður staðið fyrir slíkri flugdrekasölu og gefist vel. Nú verða seldir nýir flugdrek- ar, sem ekki hafa sést áður á íslandi. Þeir eru í fuglslíki, eru klæddir nylondúk, og eru sérlega vandaðir. Um 3 stærðir er að ræða. Allur ágóði sölunnar renn- ur til líknarmála. VAN GILS býður upp á smekklegastar nýjungar í efnum, litum og sniðum. Peysufötin t.d. eru sérstaklega samvalin úr tweedjakka, flannelsbuxum og peysum sem bera aðskiljanleg munstur. Svo eru það COMBIsettin glœsilegu aukfata ífjölbreyttu úrvati, með eða án vestis. Nú heilsum við sumri í VAN GILS. RANGÆINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík fer í sína árlegu gróður- setningarferð í Heiðmörk mánu- daginn 2. júní næstkomandi og verður lagt af stað frá Nesti við Ártúnshöfða klukkan 20. Skóg- ræktarfélag Rangæinga og Rang- æingafélagið í Reykjavík efna síðan til sameiginlegrar gróður- setningarferðar að Hamragörðum undir Eyjafjöllum um aðra helgi, dagana 7. og 8. júní nk. Upphaf- lega var þessi ferð ráðgerð um næstu helgi, en af sérstökum ástæðum hefur henni verið frestað um eina viku. A.A.-samtökin: Kynningarfund- ur á ísafirði A.A.-SAMTÖKIN halda kynningar- fund í Góðtemplarahúsinu á ísafirði laugardaginn 31. maí kl. 15.00. A.A.-menn að sunnan mæta á fund- inn. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. ...hér er rétti sta&unnn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.