Morgunblaðið - 30.05.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 30.05.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980 ' Lars Andrén röntgenlæknir frá Svíþjóð: Hópleitarrannsóknir á brjóstkrabba- meini hafa gefið mjög góða raun - ein af hverjum tíu, eldri en 45 ára, á á hættu að fá brjóstkrabbamein Hérlendis er staddur þessa dagana á vegum Læknafélags- ins Lars Andrén röntgenlæknir og dósent við Háskólann í Lundi. Var honum boðið til landsins til að halda fyrirlestur um árangur hópleitarrann- sókna á brjóstkrabbameini, sem gerðar hafa verið í Málmey í Svíþjóð. í rannsóknum þessum eru teknar röntgenmyndir af brjóstum kvenna á aldrinum frá 45 ára og notað til þess sérstakt tæki (mammografi) og hafa rannsóknirnar gefið mjög góða raun. Hérlendis hafa verið fram- kvæmdar á vegum Krabba- meinsfélagsins hópleitarrann- sóknir á legkrabbameini, sem gefið hafa góða raun. Konum hefur einnig boðist svokölluð brjóstaþreifing í þeim tilgangi að uppgötva krabbamein i brjósti, en hópleit hefur ekki verið framkvæmd og aðeins er til eitt slíkt tæki hérlendis. Það er á Landspítalanum og orðið nokkuð gamalt og úr sér geng- ið. Mbl. hitti Lars Andrén að máli s.l. fimmtudag og spurðum við hann fyrst, hvernig staðið væri að leitarrannsóknum í Málmey. „Við kölluðum til rannsókna helming allra kvenna á aldrinum 45—70 ára og fundum um 118 tilfelli, flest á algjöru byrjunar- stigi, um 60% tilfellanna voru það lítil, að ekki var unnt að finna þau með þreifingu. Konur á þessum „Þetta hefur verið meðal aðalbar- áttumála sænskra kvennasam- taka um nokkurra ára skeið,“ sagði Lars Andrén röntgenlækn- ir um hópleitarrannsóknir á brjóstkrabbameini í Sviþjóð. Ljósm. Mbl. Kristián Einarsson. 7Vœrgóðarfrá GOÐA Tjaldsalat Tillaga að matreiðslu. Sósa: Þegar farið er í útilegu, er gott að geta undirbúið nestið sem best heima. Þetta er næringarríkt pylsusalat, sem búa má til, áður en lagt eraf stað.og geymist vel til næsta dags í kælitösku eða matar- kælibrúsa. 400—500 g. GOÐApylsa 5—6 soðnar kaldar kartöflur 5—6 sneiðar rauðrófur (sýrðar) 2 harðsoðin egg 1 dl. sneiddar púrrur eða Vi dl. saxaðurlaukur 1 msk. vínedik 1 — vatn 2 — matarolía örlítið salt og pipar steinselja (söxuð) Skerið pylsu, kartöflur og egg í sneiðar og rauðrófurnar í ræmur.Hristið sósuna saman í hristiglasi. Blandið öllu saman í plastboxi eða matarkælibrúsa, kælið vel, áður en lok er sett á. Ljúffengt með grófu brauði og smjöri. Berið kaffi, te eða heita súpu með. Goðapylsurá grillið. ^ Kjötiönaöarstöö Sambandsins Kirkjusandi sími:86366 aldri í Málmey eru um 40.000, þannig að úrtakið var 20.000, um 75% þeirra komu til rannsóknar- innar, enda tvísendum við bréf til þeirra sem ekki komu.“ Brjóstkrabbi aukist gífurlega Þá sagði Lars að brjóstkrabba- mein hefði aukizt gífurlega á síðustu árum og skv. upplýsingum íslenzkra sérfræðinga hefði ísland ekki farið varhluta af því. „Talið er,“ sagði hann, „að ein af hverjum 10 konum, sem eldri eru en 45 ára, eigi á hættu að fá brjóstkrabba- mein. Hver ástæðan er vitum við ekki, en eina leiðin til að uppgötva örugglega meinvörpin í tíma er slík myndataka." — Er engin hætta samfara þessum myndatökum? „Hún er það lítil, að ekki er orð á gerandi. Geislunin er það lítil, að ég myndi áætla að það væri samsvarandi hætta þessu samfara og að reykja eina sígarettu mán- aðarlega." Þá sagði Lars, að smæsta mein- varpið, sem þeir hefðu fundið í hópleitarrannsóknunum í Málm- ey, hefði verið 2mm í þvermál, en um einn cm hefði verið algengasta stærðin. Venjulega væri þau orðin 2—4 cm þegar þau fyndust við þreifingu. Hversu lengi hafið þið stundað þessar hópleitarrannsóknir og hver er árangurinn? „Við hófumst handa 1976, mörg lönd hafa framkvæmt sams konar rannsóknir lengur t.a.m. Hollend- ingar og Bandaríkjamenn. Það er of snemmt að dæma um árangur- inn hjá okkur, tíminn er það stuttur. Skýrslur frá Bandaríkj- unum sýna að árangur hefur orðið mjög góður hjá þeim, enda líkurn- ar til að hægt sé að ná fullum bata yfirgnæfandi meiri, þegar tekst að uppgötva meinvörpin á frumstigi. Þetta er áreiðanlega það sem koma skal.“ Lars Andrén hefur kynnt sér aðstæður hérlendis og við spurðum hann álits á því, hvort okkur væri unnt að standa að svipuðum rannsóknum. Tækjabúnaður hér lélegur „Þið eigið aðeins eitt slíkt tæki og það er orðið nokkuð gamalt. En þessi tæki eru mjög ódýr, miðað við aðrar gerðir röntgentækja og tilheyrandi búnaður s.s. filmur o.fl. einnig ódýr. Húsnæðið sem þarf til undir tækin og móttöku kvennanna er ekki stórt þannig að þetta er alls ekki kostnaðarsamt. Þegar litið er á árangurinn þá verður kostnaðarhliðin lítilvæg, því sjúkrahúsvist og stórar skurð- aðgerðir eru kostnaðarsamar og reyndar er aldrei hægt að meta mannslíf til peninga, ef út í það er farið.“ — Hversu margar konur er hægt að rannsaka daglega með einu slíku tæki? U.þ.b. 50 á dag, það þýðir um 250 á viku hverri. Þá sagði Lars í lokin að sænsk kvennasamtök ýmiss konar hefðu haft það meðal aðalbaráttumála sinna um nokkra ára skeið, að slíkum hópleitarrannsóknum yrði komið á í Svíþjóð og að allar konur, eldri en 45 ára, yrðu rannsakaðar reglulega. Hann sagði nægilegt að hver kona færi í slíka myndatöku á tveggja ára fresti, ekki væri ástæða til að óttast krabbamein í brjósti fyrir 45 ára aldurinn, skýrslur og rann- sóknir sýndu að tilfelli væru mjög sjaldgæf hjá yngri konum. F.P. Stjórn Verkfræöingafélags íslands. Talið frá vinstri: Dr. Oddur B. Björnsson. Jónas Matthíasson. Sigurður Þórðarson. varaform., Ragnar S. Halldórsson, form., Hinrik Guðmundsson. framkvæmda- stjóri, Óskar Mariusson og Jón Birgir Jónsson. 80 verkfræðing- ar starfa erlendis AÐALFUNDUR Verkfræð- ingafélags íslands var haldinn síðastliðinn þriðjudag og var Ragnar S. Halldórsson kjörinn formaður félagsins til næstu tveggja ára. Fráfarandi formað- ur var Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri. í félaginu eru nú 746 félags- menn og þar af starfa 80-erlend- is. Eftir starfsgreinum skiptast verkfræðingarnir þannig, að 345 eru bygginga- og mælingaverk- fræðingar, 98 eru efnafræðingar, rafmagns- og rafeindaverkfræð- ingar eru 128, skipa- og vélaverk- fræðingar eru 126 og í öðrum greinum eru 49 verkfræðingar. Á síðasta ári gekk 41 nýr félags- maður í Verkfræðingafélag Islands, en innan þess er starfað í átta deildum. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.