Morgunblaðið - 30.05.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980
15
Begin í mótbyr
í stjórn sinni
Tel Aviv. 29. maí. AP.
TVEIR valdamiklir ráð-
herrar í ríkisstjórn Men-
achem Begin forsætisráð-
herra sögðu í dag að þeir
mundu greiða atkvæði
gegn því að Begin skipi
tvo harðlínumenn í stöð-
ur sem losnuðu í stjórn-
inni þegar Ezer Weizman
landvarnaráðherra sagði
af sér.
Ariel Sharon lanbúnaðar-
ráðherra sagði í útvarpsvið-
tali að hann mundi greiða
atkvæði gegn því að Yitzhak
Shamir utanríkisráðherra
yrði skipaður landvarnaráð-
herra. Shamir er eindreginn
stuðningsmaður landnáms
Gyðinga á arabískum svæð-
um.
Yagael Yadin varaforsæt-
isráðherra sagði að Lýðræð-
ishreyfing hans mundi halda
áfram andstöðu sinni gegn
því að Yitzhak Modai orku-
ráðherra tæki við embætti
landvarnaráðherra. Modai
hefur lýst því yfir að hann sé
fylgjandi innlimun arabískra
landsvæða ef samkomulag
næst ekki um heimastjórn
Palestínumanna í viðræðum
við Egypta.
Begin átti í dag fund með
Lýðræðishreyfingu Yadins
og öðrum ráðherrum stjórn-
arinnar til að reyna að fá þá
til að fallast á breytingarnar
á stjórninni.
Hann sagði nokkrum ráð-
herrum sínum að stjórnin
gæti fallið ef breytingarnar
yrðu ekki samþykktar og
forsætisráðherrann virðist
ákveðinn í að fresta at-
kvæðagreiðslu á þingi þar til
tryggt verði að þær verði
samþykktar.
Veður
víða um heim
Akureyrí 6 léttskýjað
Amsterdam 17 skýjaó
Aþena 28 skýjaö
Barcelona 18 léttskýjaó
Berlín 24 rigning
BrUssel 18 rigning
Chicago 29 rigning
Feneyjar 18 léttskýjaö
Frankfurt 22 rigning
Genf 16 rigning
Helsinki 16 heióakírt
Jerúsalem 32 heióskírt
Jóhannesarborg 16 heiöskírt Kaupmannahöfn 21 rigning
Las Palmas 20 skýjaó
Lissabon 19 heiðskýrt
London 13 skýjaó
Loa Angeles 19 skýjaö
Madríd 20 haióskýrt
Malaga 25 skýjaö
Mallorca 22 skýjað
Miami 26 akýjaó
Moskva 17 skýjaö
New York 25 skýjað
Ósló 11 rigning
París 16 skýjaó
Reykjavík 10 léttskýjaö
Rio de Janeiro 30 heiðskirt
Róm 21 heióskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Tel Aviv 29 heiðskírt
Tókýó 30 heióskírt
Vancouver 17 skýjaó
Vínarborg 25 skýjaó
Tilræði
i Indiana
Fort Wayne. Indiana. 29. maí. AP.
VERNÓN E. Jordan. einn
kunnasti og virtasti leiðtogi
blökkumanna í Bandaríkjun-
um, varð fyrir tveimur skot-
um í dag þegar hann steig út
úr bíl við hótel sitt.
Kynþáttahatur er ekki talin
ástæðan til verknaðarins og eng-
inn er grunaður um árásina. Kona
sem ók bílnum og virðist hafa séð
þegar árásin var gerð á Jordan var
færð til yfirheyrslu, enJiún liggur
ekki undir grun.
Jordan er framkvæmdastjóri
samtakanna National Urban
League. Líðan hans er alvarleg og
læknar eru ekki vissir um áð hann
muni ná sér.
23 fórust
í árekstri
Swift Gurrcnt. kanada. 29. maí. AP.
TUTTUGU og þrír létu lífið í dag í
árekstri hópferðabíls, bifreiðar og
benzínbíls rétt vestan við bæinn
Swift Current í vesturhluta fylkis-
ins Saskatchewan í Kanada. Ell-
efu slösuðust. Mikil sprenging
varð og eldur læsti sig um flök
bifreiðanna.
8 aldraðir létust
^ Achern. Vestur-býzkalandi. 29. maí. AP.
ÁTTA aldraðir sjúklingar létu
lífið og nokkrir aðrir slösuðust
þegar eldur kom upp í sex hæða
sjúkrahúsi í bænum Achern ná-
lægt Svörtuskógum í Suðvestur-
Þýzkalandi. Sjúklingarnir virðast
hafa dáið úr reykeitrun.
Um 350 brunaliðsmenn reyndu að
bjarga um 200 sjúklingum sem voru
í byggingunni auk 250 sjálfboðaliða
Rauða krossins og þýzkra her-
manna. Nokkrir sjúklingar komust
út um neyðarútganga, en nota varð
brunastiga til að bjarga um 70
rúmföstum og alvarlega veikum
sjúklingum af efri hæðum hússins.
Ókunnugt er um eldsupptök. Eld-
urinn kom upp í aðalrafkerfi bygg-
ingarinnar.
Átök í SKóreu
Seoul. 29. maí, AP.
MÓTMÆLAAÐGERÐIR halda
áfram þriðja daginn í röð i borg-
inni Mokpo í suðurhluta Suður-
Kóreu þrátt fyrir návist herliðs og
nálægð borgarinnar við fylkishöf-
uðborgina Kwangju sem er undir
hernámi.
Ferðamenn segja að 20.000
námsmenn og borgarar hafi tekið
þátt í mótmælum 1 gærkvöldi og
samkvæmt óstaðfestum fréttum
áttu önnur mótmæli sér stað í dag.
Borgin er nánast einangruð.
í Seoul eru herforingjar að koma á
fót ríkisráði örfárra háttsettra emb-
ættismanna og hershöfðingja til að
stjórna landinu samkvæmt herlög-
um. Raunveruleg völd verða í hönd-
um Chun Doo-Hwan hershöfðingja,
valdamesta manns hersins, og ann-
arra herforingja.
Þingið verður gert allt að því
valdalaust samkvæmt áreiðanlegum
heimildum, jafnvel valdaminna en í
tíð Park Chung-Hee heitins forseta.
Þingið fær ekki að koma saman í
nokkurn tíma.
1973 — Vestur-Þjóðverjar og
Tékkar taka upp eðlilegt stjórn-
málasamband.
1968 — Charles de Gaulle rýfur
þing, boðar til kosninga og neitar
að fara frá völdum.
1961 — Rafael Trujillo, einræðis-
herra Dóminikanska lýðveldisins,
ráðinn af dögum.
1932 — Franz von Papen myndar
stjórn í Þýzkalandi.
1913 — Friðarsamningur Tyrkja-
veldis og Balkanríkjanna undir-
ritaður í Lundúnum.
1904 — Japanir taka Darien í
ófriónum við Rússa.
1876 — Abdul Azis Tyrkjasoldáni
steypt og Murad V tekur við.
1814 — Parísarfriður fyrri; Frakk-
ar viðurkenna landamærin frá
1792 og sjálfstæði Niðurlanda og
ítalskra og þýzkra ríkja.
1808 — Napoleon Bonaparte inn-
limar Toscana á Ítalíu.
1772 — Karolina Matthildur
drottning fer frá Danmörku eftir
aftöku Struense greifa.
1588 — Flotinn ósigrandi siglir frá
Lissabon til Englands.
1534 - Hinrik VIII af Englandi
kvænist Jane Seymour.
1431 — Jóhanna frá örk brennd á
báli í Rúðuborg, Frakklandi.
Afmæli. Pétur mikli Rússakeisari
(1672-1725) - Henry Addington,
enskur forsætisráðherra (1754—
1844) — Benny Goodman, banda-
rískur tóplistarmaður (1909--).
Andlát. 1640 Rubens, myndlistar-
maður — 1744 Alexander Pope,
skáld — 1778 Voltaire, rithöfund-
ur.
Innlent. 1919 Fyrsti íslenzki ríkis-
ráðsfundurinn í Fredensborgarhöll
— 1768 d. Eggert Ólafsson — 1287
d. Ormr Klængsson — 1679
„Stríðshjálp" aukaskattur Krist-
jáns V — 1776 Nýr verzlunartaxti
— 1836 Vísindaleiðangur Paul
Gaimard kemur til Reykjavíkur —
1851 Jón Sigurðsson kosinn forseti
bókmenntafélagsins — 1875 34
fórust af hákarlaskipum norðan-
lands — 1893 Hjalti Jónsson klífur
Eldey — 1940 30 handteknir við
knattspyrnukeppni — 1947 Flug-
slysið í Héðinsfirði er 25 fórust —
1962 Efnahagsstofnun tekur til
starfa — 1975 Brezk herskip fara
úr landhelginni.
Orð dagsins. Skoðanir geta ekki
lifað ef menn hafa ekkert tækifæri
til að berjast fyrir þeim — Thomas
Mann, þýzkur rithöfundur (1875—
!955).
„Peysuföt“ í miklu úrvali.
Bankastræti 7
Aóalstræti4
...hér er rétti sta&urínn!