Morgunblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 17 Frá því að við komum hér saman fyrir ári síðan, hefur svo sannarlega sigið á ógæfuhliðina í rekstri og afkomu hraðfrystiiðn- aðarins. Er hart til þess að vita, vegna þess að á sama tíma sem þessi neikvæða þróun í afkomu á sér stað, hefur aukning i fram- leiðslu frystra sjávarafurða aldrei verið meiri og verðlag afurðanna í stórum dráttum verið stöðugt. Orsakanna fyrir erfiðleikunum er ekki að leita í sjálfum iðnaðinum, heldur í innri og ytri aðstæðum, sem eru frystihúsamönnum og starfsmönnum okkar óvið- ráðanlegar. Mikil fram- leiðsluaukning Heildarþorskaflinn árið 1979 var 563.000 smálestir og hafði aukizt um 15,8% frá árinu á undan. Af þessum afla fóru 349.000 smálestir í frystingu. Var það 16,5% aukning frá árinu 1978. Þegar hér er talað um heildar- þorskaflann er notað sama hug- takið og Fiskifélag Islands gerir. Með heildarþorskaflanum er því átt við þorsk, ýsu, ufsa, löngu, keilu, steinbít, karfa, skötusel og spærling í aflanum. Meginhluti þess afla, sem fer í frystingu er frystur í hraðfrystihúsum sem eru annað hvort innan vébanda S.H., rúmlega 70 hraðfrystihús, eða Sjávarafurðadeildar SÍS, um 35 frystihús. Heildarframleiðsla þessara aðila árið 1979 var 143.602 smálestir og hafði aukizt um 29.432 smálestir eða 25,8% frá árinu á undan. Af þessu magni voru 114.342 smálestir fryst fisk- flök og blokkir. Aukning frá fyrra ári var 17,9%. Þá er vert að vekja athygli á því, að það er í fyrsta skiptið í sögu íslenzks hraðfrysti- iðnaðar sem framleiðsla fiskflaka og fiskblokka fer yfir 100.000 smálestir. Hér er vissulega um mikla framleiðslu að ræða, sem krefst góðra markaða, ef unnt á að vera að selja og afsetja framleiðsluna með þeim hætti að viðunandi sé. í þeim efnum koma mörg atriði til greina, sem óþarft er að tíunda hér, þótt það geti verið gott til upprifjunar og skýringa fyrir aðra, svo sem atriði eins og fiskveiðistefnan með þar af leið- andi áhrifum á samsetningu framleiðslunnar; gæði vörunnar; markaðsverð; samkeppni o.s.frv. Áhrif fisk- veiðistefnu Vegna margnefndra erfiðleika er rétt að vekja athygli á því, að fiskveiðistefna undanfarandi ára hefur m.a. haft það í för með sér, að frysting verðminni fiskteg- unda, sem mun erfiðara er að selja heldur en þorsk og ýsu, hefur stórlega aukist með þar af leið- andi erfiðleikum í birgðamyndun og sölu. Svo dæmi sé nefnt, þá jókst framleiðsla SH og SÍS á karfaflökum og blokkum úr 8.595 smálestum árið 1978 í 15.503 smálestir 1979 eða um 80,4%. Miðað við árið 1977 er um rúmlega 100% aukningu að ræða. Þá jókst frysting ufsa um 30% og grálúðu- flaka og blokka um 87%. Framleiðsla þorskflaka og blokka fór í 64.080 smálestir og jókst um 4,2%. Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um framleiðsluna vegna þess að ég held, að mörgum utan okkar raða sé ekki alveg ljóst, að þegar stór stökk eiga sér stað í framleiðsl- unni, svo ekki sé talað um fram- leiðslu einstakra tegunda, getur það haft ákveðna erfiðleika í för með sér, sem erfitt er undan að víkja. Á þetta ekki síður við, þegar við bætist, að efnahagserfiðleikar hrjá þau lönd, sem við eigum helzt viðskipti við. íslendingar og ekki hvað sízt SH og fyrirtæki hennar erlendis, eru orðnir allstórir aðilar í sölu frystra sjávarafurða á helztu fisk- mörkuðum heims, einkum þó í Bandaríkjunum. Heildarútflutn- ingur landsmanna á frystum sjáv- arafurðum árið 1979 var 142.111 smálestir að verðmæti 108 millj- arðar króna. Miðað við verðmæti var hlutdeild frystra sjávarafurða 38,8% í heildarútflutningnum, en hafði verið 37,7% árið áður. Útflutningur S.H. 1979 var 100.243 smálestir, að verðmæti 76,6 milljarðar króna. Skaðsemi verðbólgu Þrátt fyrir mikla framleiðslu, aukinn útflutning og tiltölulega góð markaðsverð, hefur hrað- frystiiðnaðurinn líklegast aldrei staðið frammi fyrir jafnmiklum erfiðleikum og nú. Þetta er vissu- lega furðuleg staða, en öllum skiljanleg er til þekkja. Hinsvegar eru þeir alltof margir sem skilja ekki í hverju þessi hryggilega niðurstaða er fólgin. Er því rétt að rekja orsakir þessa. Fyrst er til að taka hinar innlendu. Verðbólgan. Þessi ógn- valdur sem stöðugt vofir yfir Frá aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í gær. Við stjórnarborðið sitja frá vinstri: Guðmundur H. Garðarson, biaðafulltrúi, Ágúst Flygenring, Gunnar Guðjónsson, stjórnarformaður, Jón Páil Halldórsson fundarstjóri. í ræðustól er Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, forstjóri. Versnandi staða í sölu frystra sjávarafurða Ræða Gunnars Guðjónssonar formanns stjórn- ar Sölumiðstöðv- ar Hraðfrysti- húsanna á aðal- fundinum í gær íslenzku efnahags- og atvinnulífi, hefur nú færzt á það stig, að illviðráðanlegt er. Það gildir at- vinnureksturinn einu, hvort stjórnmálamenn þrátta um það, hvort framreiknuð verðbólga í ár er 52%, 63% eða yfir 70%. Það, sem skiptir máli að menn geri sér grein fyrir er, að verðbólga sem er tvöfalt, þrefalt og fjórfalt meiri, svo ekki sé talað um hærra margfeldi en verðbólga eða verð- þróun helztu viðskiptaríkja, hlýt- ur að koma útflutningsatvinnu- vegum landsmanna á kaldan klaka fyrr en síðar. Gengissig eða gengisbreytingar eru skammgóður vermir í landi víxlhækkana kaupgjalds og verð- lags, þriðja hvern mánuð, þar sem verbólgan er komin í 50—70% á ári. í þessu felst m.a. vandi útflutn- ingsatvinnuveganna. Aukinn afli og meiri framleiðsla getur gert stöðuna enn verri vegna þess að góðir markaðir fyrir sjávarafurðir eru ekki ótakmarkaðir og útilokað er að erlend söluverð geti hækkað í takt við innlenda verðbólgu. Auk þéss sem aukin framleiðsla og framboð annars staðar frá krefst breyttrar samsetningar sem er íslenzkum hraðfrystiiðnaði óhagstæðari og hefur í reynd sömu áhrif og um verðhækkanir væri að ræða. Þar við bætist að mikil hætta er á, að áður hagstæð- ir markaðir kunni að lokast. Mættum við því þakka fyrir að núverandi verð haldist, svo ekki sé meira sagt. Ríkisstyrktir keppinautar Islendingar eiga við ramman reip að draga í samkeppninni á helstu fiskmörkuðum heims vegna framboðs fisks annars staðar frá, auk þess sem sjávarútvegur og fiskiðnaður helztu keppinauta okkar er styrktur með opinberum fjárframlögum er nema milljörð- um króna. Samkvæmt norskum upplýsingum mun ríkisframlag til norsks sjávarútvegs og fiskiðnað- ar verða um 1.350 milljónir norskra króna eða um 123 millj- arðar íslenzkra króna í ár. Ríkis- stjórnir fleiri Evrópulanda styrkja þessar atvinnugreinar með háum fjárframlögum, beint eða óbeint. Þá er með aðgerðum stjórnvalda í Kanada unnið skipu- lega að því að endurreisa útgerð og fiskiðnað á austurströnd Norður-Ameríku. Þetta eru þeir aðilar, sem eru hörðustu keppi- nautar íslendinga á fiskmörkuð- um Evrópu og Ameríku. í þessu sambandi kemur upp í huga minn, að stundum heyrast þær raddir sem segja, að íslendingar þurfi að losa sig við markaðina í Austur- Evrópu, sérstaklega Sovétríkin. Þetta er á miklum miskilningi byggt. Staðreyndin er sú, að íslendingar þurfa á öllum þeim mörkuðum að halda, sem þeir hafa nú, ef atvinna og lífskjör eiga að haldast á núverandi stigi. Versnandi staða í Banda- ríkjunum Miklir efnahagsörðugleikar eru í ýmsum helztu markaðslöndum okkar fyrir frystar sjávarafurðir. Hefur það þegar haft neikvæð áhrif á útflutning frysts fisks frá íslandi. Árið 1979 var verðbólgan í Bandaríkjunum 13,3%, sem er talið mikið þar í landi, þar sem árlegar verðbreytingar hafa verið á bilinu 3—8% í áraraðir. Af opinberum bandarískum stofnun- um er álitið, að þessi 13% verð- bólga sl. ár, hafi haft í för með sér rúmlega 5% kaupmáttarsamdrátt hjá almenningi. í ár er útlitið enn verra. í upphafi ársins var áætlað að verðbólgan gæti farið í 18% við óbreyttar aðstæður. Staða dollar- ans hefur verið veik undanfarin ár og er enn óstöðug. Forvextir hafa því hækkað mikið í Bandaríkjun- um og voru komnir í yfir 20% um tíma, en hafa lækkað nokkuð að undanförnu. Meiriháttar samdráttar hefur því gætt víða í bandarísku at- vinnulífi með þar af leiðandi minni framleiðslu og sölum s.s. í bifreiðaiðnaðinum og byggingar- iðnaðinum, sem eru meðal stærstu atvinnugreina þar í landi. At- vinnuleysi eykst. Þá eru miklir erfiðleikar í bandarískum fiskiðnaði og veit- ingahúsarekstri. Á síðustu mán- uðum hefur mörgum fiskiðnaðar- verksmiðjum verið lokað og aðrar unnið með hálfum afköstum. Áhrif vaxtakjara eru mjög snar þáttur í þeim erfiðleikum sem bandarískt atvinnulíf á við að glíma. Og gildir hið sama um fyrirtæki íslendinga í Bandaríkj- unum. Ég ræði þetta svona ítarlega nú vegna þess, að nauðsynlegt er að það komi sem skýrast fram, að söluerfiðleikar okkar í Bandaríkj- unum síðustu mánuði, er ekkert einangrað fyrirbæri. Þetta er hluti í almennri samdráttarþróun „rec- ession", sem erfitt er að segja fyrir um, hvenær muni ná há- marki sínu. Á öðrum mikilvægum markaði, Bretlandi, er nú 22% verðbólga. Afleiðingar hennar eru mjög neikvæðar á kaupgetu fólks og kemur fram í minnkaðri neyzlu m.a. á fiski. Þetta hefur sín áhrif á okkar stöðu, auk þess sem mikið framboð hefur verið á ferskum fiski frá nálægari fiskimiðum. Verðbólga og verðhækkanir á matvælum í fyrrgreindum löndum og víðar koma með fullum þunga á allan almenning m.a. vegna þess að í þessum löndum er ekki stuðzt við kaupgjaldsvísitölur til að mæta slíku. Enda er slíkt afar hæpið með tilliti til neikvæðra áhrifa víxlhækkana kaupgjalds og verðlags eins og við íslendingar höfum bitra reynslu af. Laun og hráefni 80% útgjalda Að lokum vil ég víkja nokkrum orðum að stöðu hraðfrystiiðnaðar- ins í dag. í byrjun árs var frystingin rekin með tapi, séu allir kostnaðarliðir teknir inn í mynd- ina eins og þeir raunverulega eru. Á ég þar m.a. við, að vextir séu reiknaðir að fullu inn í reksturs- grundvöllinn. Þrátt fyrir ákveðið gengissig síðustu mánuði er um verulegan halla að ræða í fryst- ingunni. Nú stöndum við hinn 1. júní n.k. frammi fyrir 11.6% hækkun á öllu kaupgjaldi og sjómenn krefjast 16% fiskverðshækkunar. Þessir tveir útgjaldaliðir, laun og hráefni, eru um 80% af heildar- kostnaði framleiðslunnar. Lágt áætlað eru vaxtaútgjöld frystihúsanna um um 10%. Þá eru eftir um 10% fyrir umbúðum og nauðsynlegri framlegð. Umbúða- kostnaður er um 3%. Þá eru eftir 7% upp í framlegð, sem talið er nauðsynlegt að þurfi að vera yfir 22% svo viðunandi sé, ef ekki á að ganga á þessa atvinnugrein og eyðileggja hana á örfáum árum. Af þessum helztu atriðum um útgjöld frystihúsanna sem dregin eru fram með þeim hætti, að öllum ætti að vera auðskiljanlegt sézt, að það er enginn grundvöllur fyrir launa- og hráefnishækkanir, né neinar aðrar hækkanir á út- gjöldum hraðfrystiiðnaðarins. Þeir aðilar, sem knýja þessar kostnaðarhækkanir í gegn eða hleypa þeim athugasemdalaust áfram, eru annað hvort að fram- kalla stöðvun í fiskvinnslu eða verulega gengisfellingu. Það er harmsefni, að þeir sem ábyrgð bera í þessum atvinnurekstri skuli þurfa mörgum sinnum á ári að vara við því, að því eru takmörk sett, hvað unnt er að leggja á íslenzka atvinnuvegi. Því miður hafa menn látið þetta sem vind um eyru þjóta. Er því nú komið sem komið er. Verðbólgan er á svo háu stigi, að bjáti eitthvað verulega á á helztu mörkuðum, hlýtur stöðvun í út- gerð og fiskiðnaði að blasa við. Það gleymist ýmsum stundum, að eftir því sem verðbólgan eykst, verður hraði viðskiptanna að aukast. Ytri skilyrði eru ekki lengur fyrir hendi til að mæta þessu, svo sem fyrr hefur verið rakið í þessari ræðu. Sölur erlend- is eru hægari og kaupendur hafa kippt að sér hendinni. I þessari stöðu verður ekki lengur undan því vikizt, að útflutningsatvinnu- vegirnir fái að fullu bættar allar kostnaðarhækkanir, bæði þær sem þegar eru komnar, óbættar, og þær sem framundan eru. Verði það ekki gert, verður ekki við framleiðendur að sakast, ef illa fer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.