Morgunblaðið - 30.05.1980, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980
Um 5000 manns viöriðnir almannavarna-
æfingu á Keflavíkurflugvelli:
150 manns bjargað úr
brennandi farþegaþotu
UM þrjúleytið í gærdag barst
slökkviliðinu á Keflavíkur-
flugvelli kall um að farþexa-
þotu með 150 manns innan-
borðs hefði hlekkst á í iendingu
á brautarcnda. begar voru
Kerðar nauðsynlegar ráðstafan-
ir og slökkviliðsmenn fóru á
staðinn. Auk þeirra var svo allt
tiltækt sjúkralið og þeir sem
falla undir hjálparstarf sam-
kvæmt almannavarnaplani fyr-
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað-
arins samþykkti i síðustu viku að
hækka gjald af innveginni mjólk
til verðjöfnunarsjóðs um 6 krón-
ur á lítra frá 1. maí síðastliðnum.
Ennfremur var ákveðið að út-
flutningsgjald, sem tekið hefur
verið af innveginni mjólk hækki
frá 1. júní úr 16 krónum í 28
krónur á lítra. Þá var jafnframt
samþykkt að verja 500 milljónum
króna af láni, sem Framleiðsluráð
fékk til að greiða með útfluttum
mjólkurafurðum, þannig að ekki
ir flugvöllinn kallaðir til. Þeg-
ar til átti að taka var þarna um
að ræða æfingu á hcildarplani
Almannavarna ríkisins fyrir
Keflavíkurflugvöll, en eigi að
síður var haidið áfram eins og
um venjulegt slys væri að ræða.
Til gamans má geta þess að alls
munu um 5000 manns hafa tengst
æfingunni á einhvern hátt.
Hjálparlið fór þegar inn í vélina
til að aðstoða þá slösuðu og koma
þurfi að koma til frekari inn-
heimtu í útflutningssjóð af mjólk
en nú hefur verið ákveðið.
Gert er ráð fyrir að að 28 króna
gjaldið skerði útborgunarhlutfall
bænda frá 1. júní. Þá er þess
einnig að geta að Framleiðsluráð
ákvað að undanþiggja eftirtalin
mjólkursamlög framleiðslukvóta á
mjólk á árinu 1980: Mjólkursam-
lagi Patreksfjarðar, Mjólkursam-
lagi Þórshafnar, Mjólkursamlagi
Djúpavogs, Mjólkursamlagi ísa-
fjarðar og Mjólkursamlagi Kaup-
félagsins Fram á Norðfirði.
þeim út. í millitíðinni var svo haft
samband við Almannavarnir Suð-
urnesja* og óskað eftir aðstoð
þeirra. Þær höfðu síðan samband
við lögreglu og slökkvilið á nær-
liggjandi svæðum, auk þess sem
beðið var um sjúkrabifreiðar allra
björgunarsveita á svæðinu.
Þegar hinir slösuðu komust
undir bert loft var þeim fyrst í
skyndingu komið um 30 metra frá
vélinni til að koma í veg fyrir slys.
Þaðan voru þeir svo fluttir í um
150 metra fjarlægð þar sem frum-
greining á þeim fór fram og voru
þar að verki sjúkraliðar frá
sjúkrahúsinu á Keflavíkurflug-
velli. Eftir frumgreiningu voru
þeir fluttir í forgangsröð í slökkvi-
stöðina, þar sem lokagreining og
umbúnaður fór fram, áður en þeir
voru fluttir á hin aðskiljanlegu
sjúkrahús í Reykjavík og Keflavík,
en um þá greiningu sáu læknar frá
sjúkrahúsinu á flugvellinum með
aðstoð lækna frá Keflavík og
Reykjavík, sem komu fljótlega á
staðinn.
Að sögn þeirra sem að æfing-
unni stóðu, þ.e. Varnarliðsins og
Almannavarna ríkisins, tókst hún
vonum framar, sérstaklega þegar
það er haft í huga, að þetta var í
fyrsta sinn sem allt planið var
prófað. Einu verulegu vandkvæðin
voru þau að sjúkrabílarnir sem
fluttu síðustu sjúklingana lentu í
miklum umferðarerfiðleikum
milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur. Nánar verður skýrt frá
æfingunni síðar.
Ú tf lutningsgjald
af m jólk hækkað
úr 16 í 28 krónur
500 milljónir til að lækka út-
flutningsgjald af kindakjöti
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað-
arins hefur ákveðið að verja 500
milljón krónum af láni, sem það
fékk til þess að greiða með
útfluttu kindakjöti. Þannig er
hægt. segir í fréttabréfi upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins. að
lakka gjaldið, sem innhcimt
verður hjá bændum. Innheimtar
verða 200 krónur af hverju kg af
dilkakjöti á þessu verðlagsári og
100 krónur af ær- og hrútakjöti.
Þá hefur Framleiðsluráðið
ákveðið að aðskilja uppgjör á
kvóta fyrir mjólk, nautgripakjöt
og sauðfjárafurðir. Þurfa bændur
nú að tilkynna fyrir 1. september
óski þeir tilfærslu á framleiðslu
milli búgreina umfram 10%.
Framleiðsla á nautgripakjöti
skerðir ekki kvóta fyrir mjólk og
kindakjöt, ef hún fer ekki umfram
20% af meðalframleiðslu naut-
gripakjöts viðmiðunarárin 1976 til
1978 hjá hverjum framleiðanda.
Þegar ákveðið var að setja kvóta
á framleiðsluna, þá var gert ráð
fyrir að kvóti fyrir mjólk myndi
miðast við almanaksárið 1980, en
aftur á móti yrði kvótinn reikn-
aður á sauðfjárafurðum í haust.
Nú hefur Framleiðsluráðið ákveð-
ið að láta fara fram athugun á því,
hvort hagkvæmt sé að miða lok
hvers kvótatímabils við 31. ágúst,
þannig að nýtt kvótatímabil í
mjólkurframleiðslu hefjist 1. sept-
ember 1980.
Fjórir góðir að vestan, aliir fæddir í Ilnífsdal og allir eru þcir stjórnarformenn í frystihúsum,
frá vinstri: Guðmundur M. Jónsson Ilraðfrystihúsinu Norðurtanga á ísafirði, Guðmundur
Guðmundsson íshúsfélagi ísfirðinga. Guðfinnur Einarsson, Hraðfrystihúsi Holungarvíkur og
Jóakim Pálsson Ilraðfrystihúsi Ilnífsdals. (Ljósm. ói. K. Mag.)
Albert Guðmundsson á fundi með framkvæmdanefnd stuðnings-
manna sinna á Dalvík. Talið frá vinstri: Hallgrímur Antonsson,
Símon J. Ellertsson, Steingrímur Þorsteinsson, María Snorradóttir
og Sigga Georgsdóttir.
Guðlaugur með
fundi á Akureyri og
víðar norðan lands
STUÐNINGSMENN Guðlaugs
Þorvaldssonar héldu fund í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri á
sunnudaginn.
Tryggvi Gíslason, skólameist-
ari, flutti ávarp á fundinum.
Gunnar Ragnars, forstjóri
Slippstöðvarinnar, var fundar-
stjóri. Aðrir, sem ávörp fluttu,
voru Jón Helgason, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar, frú
Guðríður Eiríksdóttir og Stein-
dór Steindórsson fyrrum skóla-
meistari.
í ræðu sinni rakti Guðlaugur
fyrst för sína daginn áður um
Suður-Þingeyjarsýslu. Þar hélt
hann alls átta fundi sama daginn.
Síðan voru tveir fundir haldnir í
Mývatnssveit, í Hafralækjarskóla
og loks var haldinn fundur á
laugardagskvöldið á Hótel Húsa-
vík.
— Forseti íslands þarf að vera
eins konar sameiningartákn þjóð-
arinnar, sagði Guðlaugur. Hann á
að hamla gegn innbyrðis sundr-
ungu meðal landsmanna og efla
samkennd þeirra. Hann á að
stuðla eftir mætti að því að
þjóðin sé ein heild en skiptist
ekki í stríðandi hópa.
Fundinum lauk með því að allir
stóðu á fætur og sungu ættjarð-
arljóð.
(Úr fréttatilkynningu).
Guðlaugur Þorvaldsson og Kristin við komuna til Akureyrar.
Pétur á fundi
í Hafnarfirði
PÉTUR J. Thorsteinsson og
stuðningsfólk hans héldu al-
mennan kynningarfund i Bæj-
arbíói í Hafnarfirði í gær-
kvöldi, miðvikudagskvöld. Um
300 manns sóttu fundinn.
Fundarstjóri var Stefán Jóns-
son, fyrrverandi forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar.
Pétur J. Thorsteinsson flutti
ávarp í upphafi fundarins og
skýrði viðhorf sín til forsetaemb-
ættisins og sagði jafnframt frá
starfsferli sínum í stórum drátt-
um.
Skýrði Pétur þá einnig frá
skyldum sendiherra, kynnum
sínum af embættismönnum ann-
arra þjóða, og víðtæku starfssviði
í þágu íslensku þjóðarinnar.
Á eftir Pétri flutti Eiríkur
Pálsson forstjóri ræðu.
Oddný Thorsteinsson flutti því
næst ávarp. Hún rakti að nokkru
starfssvið sendiherrafrúar og
skýrði viðhorf sín til starfans, en
Oddný hefur staðið við hlið
manns síns í fjórum þjóðlöndum,
Sovétríkjunum, Frakklandi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Hún lagði áherslu á mikilvægi
landkynningarþáttar starfans, og
nefndi dæmi þar að lútandi.
Guðrún Egilson blaðamaður
flutti ræðu og síðastur ræðu-
manna var séra Sigurður H.
Guðmundsson.
I lok fundarins svaraði Pétur
Thorsteinsson fjölmörgum
spurningum af ýmsu tagi.
(Úr fréttatilkynningu).
Stuðningsmenn Vigdísar:
Opið hús í Lindarbæ
STUÐNINGSMENN Vigdís- Greint verður frá kosninga-
ar Finnbogadóttur í starfinu og fulltrúar starfshópa
Reykjavík hafa ákveðið að veita upplýsingar og skrá sjálf-
hafa opið hús í Lindarbæ á boðaliða til ýmissa starfa. Veit-
sjómannadaginn 1. júní og ingar verða á staðnum.
næstu sunnudaga á eftir milli
klukkan 3 og 6 síðdegis. (Ur fréttatilkynningu).