Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 25

Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 25 fclk í fréttum + Fregnir sunnan frá Rómaborg herma að leikstjórinn og rithöfundurinn Dario Fo og kona hans, leikkonan Franca Rame, hafi ekki fengið vegabréfsáritun í sendiráði Bandaríkjanna þar í borg. Ástæðan er sögð vera sú að „dregið hefði til tíðinda í sendiráðinu“, er þar bar á góma aðild hjónanna að samtökunum „Rauða hjálpin“. + Tvö heimskunn tennispör kepptu um daginn í London, að viðstöddum 3000 áhorfendum, til ágóða fyrir góðgerðarstarfsemi. Pörin sem leiddu saman hesta sína, en íþróttaprcssan hafði sagt að þessi keppni skipti hreint engu máli voru Svíinn Björn Borg og unnusta hans, hin rúm- enska Mariana Simonescu og brezk bandariska tennisparið John Lloyd og kona hans Chris. — Þau báru sigurorð af hinum frækna Birni Borg, með all- nokkrum yfirburðum. — Voru John og Chris svo ánægð með árangurinn að þau töldu sig örugg um að vera meðal þátttak- cnda á Wimbledon-tennismóti á næsta ári. — Kærasta Björns var sögð hafa verið í einhverju áber- andi óstuði, en Björn er aftur á móti kunnastur fyrir tennissigra sína í einliðaleik. Myndin er af John þar sem hann kyssir konu sína, í fögnuði yfir sigrinum yfir tennis-jötninum sænska. Þau bökuðu Björn og Mariönu Yrkisefnið er sambúð- in við Lee + Michelle Triola Marvin, er fyrrum sambýliskona kvik- myndaleikarans Lee Marvin. Skilnaðarmál þeirra var mjög í fréttum á síðasta ári. Hún er aftur komin í fréttirnar í blöð- um vestra. Hún hefur „fundið nýjan flöt“ á sjálfri sér. — Því nú kemur i ljós, að hún mun ekki eiga neitt bágt með að skrifa eða halda fyrirlestra. — „Yrkisefnið“ er reynslan, sem hún hlaut i sambúðinni við hinn fræga kvikmyndaleikara. Hún tekur málið þeim tökum að leggja út af því sambandi við jafnréttisbaráttu banda- riskra kvenna. Michelle Triola er nú 47 ára. Hún er fyrrum söngvari. Hún bjó með Lee kallinum i sex ár og tók þá ættarnafn hans, með löglegum hætti. — Þegar upp úr sambúðinni slitnaði gerði hún fjárkröfur á hendur Lee Marvin að upphæð nær tvær milljónir dollara. Hún fékk 104 þús. dali í sinn hlut. Lafði Evrópakeppnin + Vera má að um það sé almennt vitneskja, að hafinn sé undirbúningur að fegurðar- samkeppni suður i Frakklandi í septembermánuði n.k. Sú fegurðarsamkeppni er ekki háð „i lambakjöts-aldursflokk- unum“, heldur mæta þar til keppni giftar konur, sem keppa um titilinn „Lafði Evr- ópa“. — Hér er ein væntan- legra þátttakenda. franska leikkonan Christine Haydar, sem kjörin hefur verið „Lafði Frakkland 1980“, — svo sem reyndar má sjá af borðanum. — Evrópukeppnin á að fara fram í franska bænum Cham- onix. Ómannúðlegar hrefnuveiðar stöðvaðar? FYRIR fundi Alþjóðahval- veiðiráðsins í Brighton i sumar liggur tillaga um að banna hrefnuveiðar með þeim aðferðum sem íslendingar nota, vegna þess að þær þykja of grimmiiegar og ómannúð- legar. Þetta kemur m.a. fram í viðtali við dr. Sidney Holt á bls. Alltí helgar- matinn allar vörur á vörumarkaðsverði, opið til kl. 20 föstud. og 9—12 laugard. Vörumarkaðurinn hl. Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-112 4 í blaðinu í dag. En hann á sæti í vísindanefnd Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Þá kemur fram í viðtali við hann og dr. Sylvíu Earle, að íslendingar hafa engar nýjar upplýsingar lagt fram um hvali á fundum ráðsins síðan 1974, þrátt fyrir ítarlegar beiðnir um það, sagst ekkert nýtt hafa fram að færa. Ög hafa ráðs- menn því ákveðið að hér eftir verði að vera um vísindalegar rannsóknir að ræða hér eða engar, sem teknar eru til greina. Dagur trésins í Reykjavík 31. maí Reykvíkingar eru hvattir til að koma til gróðursetningar á trjáplöntum laugardaginn 31. maíkl. 13.15. Hver og einn komi á þann stað sem næstur er heimili hans. Sérstök athygli er vakin á því að ennfremur vantar fólk til gróðursetningar við Suðurlandsveg austan Rauðavatns. Hver og einn hafi með sér verkfæri eftir getu, skóflur, haka, fötur og hjólbörur. Svæðin sem plantað verður á eru þessi: í Árbæjarhverfi: a. Milli Bæjarháls og Hraunbæjar, b. viö Árbæjarkirkju og c. svæði íþróttafélagsins Fylkis. f Fella- og Hólahverfi: Svonefnd Grænagróf í hlíðinni austan við Suðurfell og Keilufell. f Seljahverfi: Svonefnd Bláskógasvæði upp af Stekkjarbakka við gróðrarstöð Alaska. Vogar, Kleppsholt og Langholt: a. Viö Steinahlíð meðfram Elliða- vogi. b. svæöið milli Elliðavogar og Njörvasunds og c. Þróttarsvæóið viö Holtaveg. í Laugarneshverfi: a. Meðfram Sundlaugavegi milli Laugalækjar og Dalbrautar, b. við Laugarneskirkju og c. við hús öryrkjabandalagsins meðfram Kringlumýrarbraut. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.