Morgunblaðið - 30.05.1980, Page 30
X
\
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980
Undankeppni HM í knattspyrnu
Island mætir Wales
á mánudag í fyrsta
leik sínum í 3. riðli
Á blaðamannafundi sem KSÍ boðaði til í gærdag var landslið Geirsson, Sigurður Halldórsson,
Islands sem leikur á móti Wales á mánudag tilkynnt. Er 16 manna Trausti Haraldsson. Á miðjunni
hópurinn skipaður eftirtóldum landsleikjafjöldi viðkomandi): i leikmönnum (fyrir aftan er landsleikir leika Atli Eðvaldsson, Guðmundur Þorbjörnsson, Karl Þórðarson og Janus Guðlaugsson. Framlínu-
Þorsteinn Ólafsson IFK Göteborg 13 menn verða þeir Pétur Pétursson
Guðmundur Baldursson Fram 0 og Arnór Guðjohnsen. Við útilok-
Atli Eðvaldsson Valur 17 urn ekki þann möguleika að Janus
Arnór Guðjohnsen Lokeren 2 verði bakvörður og að Ólafur
Árni Sveinsson ÍA 25 Júlíusson leiki á miðjunni.
Dýri Guðmundsson Valur 4 Leikurinn á mánudag verður
Janus Guðlaugsson Fortuna Köln 14 fyrsti leikur íslands í undan-
Karl Þórðarson La Louviere 9 keppni heimsmeistarakeppninnar
Guðmundur Þorbjörnsson Valur 17 1982. Islendingar eru með í undan-
Pétur Pétursson Feyenoord 9 keppninni í fjórða sinn og sem
Ólafur Júlíusson IBK 15 fyrr eru andstæðingarnir ekki af
Marteinn Geirsson Fram 45 lakari taginu. Ísland er í þriðja
Sævar Jónsson Valur 0 riðli ásamt Tékkum, Sovét-
Pétur Ormslev Fram 1 mönnum, Tyrkjum og Wales.
Sigurður Ilalldórsson í A 0 Forsala aðgöngumiða á lands-
Trausti Haraldsson Fram 4 leiknum verður í dag við Útvegs-
Guðni Kjartansson landsliðs-
þjálfari sagði jafnframt að leikað-
ferðin 4—4—2 yrði notuð. Ekki
var byrjunarliðið tilkynnt en
líklegustu 11 eru þessir leikmenn
að mati Mbl: Þorsteinn Ólafsson
verður í markinu. Öftustu vörn
skipa Sævar Jónsson, Marteinn
íslands (í sölutjaldinu
góða) frá kl. 12.00 til 18.00. Og á
mánudag frá kl. 9.00 á Laugar-
dalsvellinum. - ÞR.
„Bjartsýnn á góðan
árangur í leiknum"
- segir Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari
- Ég er bjartsýnn á góðan
árangur í leiknum á móti Wales
sagði Guðni Kjartansson lands-
liðsþjálfari er Mbl. ræddi við
hann í gærdag. Við erum með
allgott lið núna sem er svipað að
styrkleika og undanfarin ár. Eitt
aðalatriðið er að leikmenn nái
allir sem einn að vinna vel saman
og berjist vel. Atvinnumennirnir
sem verða með í leiknum ná ekki
að vinna leikinn upp á eigin
spýtur. Nái liðið góðri samvinnu
er ég sannfærður um að viðun-
andi úrslit fást í leiknum.
Leikmenn verða að vera mjög
vakandi fyrir því í leiknum að
reyna að nýta sér innköst og
hornspyrnur til marktækifæra
líkt og gerðist í landsleiknum á
móti Noregi. Okkur hefur ekki
gengið alltof vel að skora mörk og
verðum því að nýta þannig mögu-
leika. Liðið mun leika 4—4—2 en
ég mun leggja á það ríka áherslu
að leika opinn og skemmtilegan
leik. Ekki varnarleik, nema að
vissu marki þegar þeir eru með
boltann en um leið og við höfum
hann verður sótt af kappi, sagði
Guðni. Ég hef ekki fengið miklar
upplýsingar um lið Wales, en
skoða af því filmu í dag. Mér
sýnist í fljótu bragði að íslenska
landsliðið eigi að hafa góða mögu-
leika í leiknum á mánudag. Og það
er von mín að áhorfendur komi til
með að styðja vel við bakið á
okkur með hvatningarhrópum,
það hjálpar ávallt mikið, sagði
landsliðsþjálfarinn að lokum.
• Karl Þórðarson hcfur sýnt
hörkugóða leiki með liði sínu La
Louviere í Belgíu að sögn kunn-
ugra og aldrei verið betri. Verður
fróðlegt að sjá hvort að honum
tekst að hrella Walesbúa með
leikni sinni og yfirferð.
Leikir íslands
gegn Wales
Samskipti milli íslands og Wales á knattspyrnusviðinu hafa
verið lítil í gegnum árin. Á árinu 1977 léku þjóðirnar tvo
landsleiki í undankeppni Evrópukeppni unglingalandsliða
(16 — 18 ára) og lauk þeim þannig að jafntefli varð í Reykjavik
1 —1, en í Wales sigraði Island með 1—0.
Árið 1966 kom hingað til lands til landsleiks, áhugamanna-
landslið Wales og léku þjóðirnar landsleik á Laugardalsvellinum
15. ágúst. Lauk leiknum með jafntefli 3—3 og voru það þeir
Hermann Gunnarsson, Val, Jón Jóhannsson ÍBK, sem skoruðu
mörkin, en þeir voru báðir að leika sinn fyrsta landsleik. Þá
skoraði núverandi formaður KSÍ, Ellert B. Schram eitt
markanna, en þetta var hans 13. landsleikur.
Annars var það athyglisvert með þennan leik, að í liði íslands
voru átta nýliðar, en liðið var þannig skipað og er talan í sviga
fyrir aftan nafn hvers leikmanns landsleikjafjöldi hans fyrir
leikinn: Einar Guðleifsson ÍA (0), Ársæll Kjartansson KR (0),
Árni Njálsson Val (17) fyrirliði á íeikvelli, Magnús Torfason ÍBK
(0), Sigurður Albertsson ÍBK (0), Anton Bjarnason Fram (0),
Reynir Jónasson Val (0), Hermann Gunnarsson Val (0), Jón
Jóhannsson ÍBK (0), Ellert B. Schram KR (12) og Gunnar
Felixson KR (6).
Að þessu sinni mættum við atvinnumönnum Wales, en þeir eru
allir brautreyndir knattspyrnumenn sem velflestir leika með
sterkum liðum á Englandi. ísland stillir líka upp sterku liði og
ólíkt reynslumeira, en árið 1966. Nú eru í liði Islands nokkrir
atvinnuknattspýrnumenn sem hafa getið sér gott orð í Evrópskri
knattspyrnu og vakið þar á sér verðskuldaða athygli. Við hlið
þeirra eru svo okkar sterkustu og reyndustu áhugamenn. Það er
því ekki af ástæðulausu, sem við bíðum spenntir úrslitanna í
leiknum á mánudag.
• Þessir fjórir verða í sviðsljósinu gegn Walcs. Mynd þessi er annars
tekin á leikvanginum í Bern í Sviss á síðasta ári. Þetta eru þeir
Guðmundur Þorbjörnsson, Arnór Guðjohnsen, sem leikur sinn þriðja
landsleik. Marteinn Geirsson, sem setur nýtt landsleikjamet og loks
Þorsteinn Ólafsson, AÍK Gautaborg.
ísland tekur þátt
í HM-keppninni í
fjórða skipti
ÍSLENDINGAR taka nú i fjórða skipti þátt í heimsmeistarakeppninni
i knattspyrnu. en þetta er í 12. skiptið, sem slík keppni fer fram. Það
var íranskur maður. Hcnri Delaunay, sem átti hugmyndina að þessari
keppni og bar fram tillögu um hana á stjórnarfundi FÍFA árið 1927.
Tillagan var samþykkt á stjórnarfundi FÍFA sem haldinn var í
Amsterdam árið 1928 með 25 atkvæðum gegn 5.
Hcimsmeistarakeppnin fór fyrst fram í Uruguay árið 1930 og síðan
á fjögra ára fresti til 1938. Næstu ár fer keppnin ekki fram vegna
heimsstyrjaldarinnar, en aítur er hún haldin árið 1950 og áfram
siðan.
Þessar þjóðir hafa orðið heimsmeistarar í knattspyrnu frá byrjun:
1930 Uruguay 1958 Brasilía
1934 Ítalía 1962 Brasilía
1938 Ítalía 1966 England
1950 Uraguay 1970 Brasilía
1954 V-Þýskaland 1974 V-Þýskaland
1978 Argentína
íslendingar tóku fyrst þátt í heimsmeistarakeppninni árið 1957 og
léku þá í riðli með Belgum og Frökkum.
Úrslit einstakra leikja urðu sem hér segir:
ísland — Belgía 3—8 í Brússel ísland — Belgía 2—5 í Rvík
ísland — Frakkland 0—8 í Nantes ísland — Frakkland 1—5
Næst eru íslendingar með í undankeppninni vegna keppninnar árið
1974 og fóru leikirriir fram á árunum 1972 og 1973, en þá var leikið í riðli
með Belgum, Hollendingum og Norðmönnum.
Úrslit einstakra leikja urðu sem hér segir:
ísland — Belgía 0—4 í Liege ísland — Noregur 0—4 í Rvík
ísland — Belgía 0—4 í Brúgge ísland — Holland 0—4 í Amsterd.
Island — Noregur 1—4 í Stavanger ísland — Holland 1—8 í Deventer
í þriðja sinn eru íslendingar með í undankeppninni vegna keppninnar
sem fram fór í Argentínu árið 1978 og fóru leikirnir fram á árunum 1976
og 1977 og aftur erum við í riðli með Belgum og Hollendingum auk
Norður Ira.
Úrslit leikja okkar urðu sem hér segir:
ísland — Belgía 0—1 í Rvík ísland — Holland 1—4 í Nijmegen
|sland — Holland 0—1 í Rvík ísland — Belgía 0—4 í Brússel
ísland — N. írland 1—0 í Rvík ísland — N. Irland 0—2 í Belfast.
ísland hefur því til þessa leikið alls 16 leiki í undankeppni HM. Unnið
einn leik, tapað 15 leikjum og skorað 10 mörk gegn 67.
• Janus Guðlaugsson mun vænt-
anlega leika stórt hlutverk með
landsliðinu. Ilann hefur náð sér
af þeim meiðslum sem hrjáðu
hann mikinn hluta vetrar. Janus
vakti athygli Þjóðverja þegar
hann lék með liði sínu á annað
borð, meira að segja Dusseldorf
gerði um hann fyrirspurnir.
• Markamaskínan mikla Pétur
Pétursson verður á fullri ferð, en
hlutvcrk hans verður erfitt. Pét-
ur er hins vegar orðinn svo
sleipur framherji, að bóka má
næstum að hann fái a.m.k. 1—3
tækifæri til þess að bomba knett-
inum i netið.