Morgunblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 32
7 Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 2M*rgunbInliit> Síminn á afgreiðslunm er 83033 JM*r0unblnbib FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1980 Rússlandsmarkaður: SH hættir fram- leiðslu á flökum ÁKVEÐIÐ var á stjórnaríundi SH í fyrradají, aó framleiðsla á fiokum fyrir rússneskan markað verði stöðvuð frá ojí með 1. júni eða næstu heltci. Astæðan fyrir þessu er, að sö>;n (iuðmunduar II. Garðarssonar. að þeKar er búið að framleiða á þriðja þúsund tonn af flokum í umhúðum um- fram samnin>;a á þennan mark- að. Soyézki markaðurinn hefur ver- ið mjö>; þýðin>;armikill í sölu frystra karfaflaka. 23. apríl síðastliðinn gerðu sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna og Sjávaraf- urðadeild Sambandsins Sovét- mönnum tilboð um 7500 tonna viðbótarsölu vegna framleiðslu þessa árs, en enn hafa ekki borizt svör frá Rússum við þessu tilboði. Með tilliti til þessa og allra aðstæðna taldi stjórn SH sig knúna til að taka þessa ákvörðun, sagði Guðmundur H. Garðarsson. Viðmiðunarvextir hækka um 4%: Vaxtaaukalán með 45% vöxtum SEÐLABANKINN hefur ákveðið hækkað viðmiðunarkjör vaxta um 4% þegar á heiidina er litið og heíur það í för með sér að verðbótaþáttur vaxta hækkar um 2,5 til 4% eftir tegund lána. Hæstu vextir eru nú af vaxta- aukareikningi. sem hundinn er til 12 mánaða 46%. Af vaxtaauka- lánum eru heildarvextir nú 45%. Samkvæmt fréttatilkynningu Seðlabankans frá í gær verða vextir frá og með 1. júni þannig: veltiinnlán 19%, almennt sparifé 35%, 6 mánaða reikningur 36%, 12 mánaða og 10 ára reikningar 37,5%, 3ja mánaða vaxtaauka- reikningar 40,5%, 12 mánaða vaxtaaukareikningar 46%. endur- kaupanleg afurðalán 29%, víxil- lán, forvextir 34%, hlaupareikn- ingslán, grunnvextir fyrirfram 36'; , almenn skuldabréf 38%, vaxtaaukalán 45% vísitölubundin skuldabréf 2% og vanskilavextir á mánuði 4,75%. í fréttatilkynningunni segir: „í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir, að opnaðir verði sparireikningar, þar sem sparifé njóti fullrar verðtrygg- ingar, samkvæmt nánari reglum og í samræmi við möguleika til útlána. í tilkynningu Seðlabank- ans, sem birt er í Lögbirtingar- blaðinu, er svo kveðið á, að höfuðstóll innlána þessara skuli fylgja lánskjaravísitölu. Hins veg- ar er tæknilegum undirbúningi þessara innlána enn ekki lokið, en miðað er við, að hægt verði að taka við innlánum á þessa reikn- inga ekki síðar en 1. júlí næstkom- andi.“ ALMANNAVARNAÆFING Á KEFLAVIKURFLUGVELLI Farþegaþotu með 150 manns innanborðs hlekktist á á Keflavíkurflugvelli og slösuðust um 120 þeirra þannig að flytja varð þá á sjúkrahús í Keflavík og Reykjavík. Þrátt fyrir að aðeins væri um æfingu að ræða tóku allir aðilar starf sitt mjög alvarlega og sjúklingarnir voru fluttir úr flugvélinni í greiningarstöð og þaðan áfram á sjúkrahús. Þessa mynd tók Kristinn Olafsson ljósmyndari Morgunblaðsins í greiningarstöðinni, sem var í slökkvistöðinni á Keflavíkurflugvelli í gærdag. Sjá nánar „150 manns bjargað úr brennandi farþegaþotu" bls. 18. Gunnar Guðjónsson í ræðu á aðalfundi SH: Sölur eru hægari og kaup- endur kippa að sér höndum FRAM kom á aðalfundi Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem hófst í Reykjavík í gær, að við mikla erfiðleika er að glíma í hraðfrystiiðnaði hérlendis. Gunn- Sáttanefnd skipuð GUNNAR Thoroddsen forsætisráð- herra skýrði Mbl. frá því í gær, að ríkisstjórnin hefði skipað fjögurra manna sáttanefnd til að vinna með sáttasemjara ríkisins að lausn kjaradeilu ASÍ og VSÍ, en ASÍ óskaði eftir skipan slíkrar nefndar. Sáttanefndina skipa; Geir Gunn- arsson alþingismaður, Gestur Jóns- son lögmaður, dr. Gunnar Schram, prófessor, og Jón Þorsteinsson hrl. ar Guðjónsson formaður stjórnar SH sagði m.a. að hart væri til þess að vita hversu mjög hefði sigið á ógæfuhliðina á síðastliðnu ári, á sama tíma og aukning i framleiðslu frystra sjávarafurða hefði aldrei verið meiri og verð- lag afurðanna verið tiltölulega stöðugt. Sagði Gunnar að orsak- anna væri ekki að Ieita i sjálfum iðnaðinum. heldur „í innri og ytri aðstæðum, sem eru frystihúsa- mönnum og starfsmönnum okkar óviðkomandi". Sagði Gunnar að íslendingar ættu við ramman reip að draga í samkeppni á helztu fiskmörkuðum heims vegna framboðs fisks ann- ars staðar frá, auk þess sem sjávarútvegur og fiskiðnaður helztu keppinauta væri ríkis- Samninganefnd ASÍ: Reiðubúin að ræða taxtaflokk- un en hafnar kjarnasamningi SAMNINGANEFND Alþýðusam- bands íslands lýsti sig í gær reiðubúna til viðræðna við vinnu- veitendur um heildartaxtaflokkun, enda tefji það ekki almenna sam- ningsgerð og nefndin tekur sér- staklega fram. að slíkar viðræður fari fram í samvinnu við sérsam- bönd og félög innan ASÍ. Hins vegar hafnar nefndin „alfarið" hugmyndum Vinnuveitendasam bands íslands um siðari hluta kjarnasamnings þess. sem VSÍ hef ur kynnt á þeim forsendum. að í honum felist stórskert félagsleg réttindi. í fréttatilkynningu frá ASÍ, sem Morgunblaðinu barst í gær, scgir m.a. um heildartaxtaflokkun: „Ljóst er, að slík flokkun getur ekki náð til allra starfshópa og afbrigða. Samn- inganefndin samþykkir að fela við- ræðunefnd ASI að fara með viðræð- ur við atvinnurekendur í samvinnu við sérsambönd og einstök félög um þetta efni, þannig að fulltrúar þeirra starfi með nefndinni eftir því sem þörf krefur. Jafnframt ítrekar samninganefndin, að samningsrétt- urinn um skipan fólks í launaflokka er hjá hinum einstöku félögum. Samninganefndin áréttar kröfur sambandsins um almenna kaup- hækkun og traustara og réttlátara vísitölukerfi." Síðan segir: „Samninganefndin vísar alfarið á bug þeim hugmynd- um VSÍ um stórskert félagsleg réttindi, sem fram koma í síðari hluta tillagna þeirra um kjarna- samning. Jafnframt ítrekar samn- inganefndin vilja sinn til þess að gera rammasamning um eftirtalin atriði á grundvelli þeirrar kröfu- gerðar, sem samþykkt var á kjaram- álaráðstefnu ASI 11.01.’80.“ Síðan er tíunduð eftirfarandi upptalning: at- vinnuleysistryggingar, fæðingarorl- of, orlof, innheimta í sjúkra- og orlofssjóði, afnám eftirvinnu, stjórn lífeyrissjóða, slysatryggingar, breytingar á ákvæðum laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá. störfum og til launa vegna sjúkdóms og slysaforfalla, trúnaðarmenn og farandverkafólk. styrktur. Þá nefndi Gunnar efna- hagsörðugleika í ýmsum helztu markaðslöndunum og nefndi sér- staklega verðbólgu í Bandaríkjun- um, sem hefði haft í för með sér meiri háttar samdrátt í banda- rísku atvinnulífi og sagði, að á síðustu mánuðum hefði mörgum fiskiðnaðarverksmiðjum verið lok- að og aðrar unnið með hálfum afköstum. Gunnar ræddi einnig um verð- bólgu hérlendis og sagði „að bjáti eitthvað verulega á á helztu mörk- uðum hlyti stöðvun í útgerð og fiskiðnaði að blasa við. Það gleym- ist ýmsum stundum, að eftir því sem verðbólgan eykst, verður hraði viðskiptanna að aukast. Ytri skilyrði eru ekki lengur fyrir hendi til að mæta þessu“. Síðan sagði Gunnar: „Sölur erlendis eru hægari og kaupendur hafa kippt að sér hendinni." Sjá nánar miðsíAu blaðsins þar sem ræða Gunnars Guðjónssonar er birt í heild. Finnsk kona forstjóri Norræna húsins? SAMKVÆMT upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, verður finnsk kona, Ann Sandelin, næsti forstjóri Norræna hússins. Enn hefur ekki verið gengið frá ráðningunni cnd- anlega, cn stjórn Norræna hússins mun hafa mælt með ráðningu Ann Sandelin. Hún er listfræðingur að mennt og er listráðunautur við menningar- miðstöðina á Haneholmen í Hels- inki. Undanfarið hefur hún verið settur forstöðumaður menningarmiðstöðvarinnar, þar sem forstjóri stofnunarinnar gegnir nú starfi menntamálaráðherra í Finn- landi. Ann Sandelin er gift Borgari Garðarssyni leikara. Fjármálaráðherra: Undirbýr nú gagn- tilboð til BSRB „ÉG er með gagntilboð í undirhún- ingi og mun leggja tillögur þar um fyrir ríkisstjórnina fljótlega," sagði Ragnar Arnalds. fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann í gær, hvort einhver hreyfing væri á viðræðum við BSRB um kaupliði samninga. Fjármálaráðherra neitaði að svara spurningum um efni þessa gagntil- boðs. „Það er stefna ríkisstjórnarinnar, að samningar takist við BSRB sem fyrst og helzt ekki síðar en í næsta mánuði,“ sagði fjármálaráðherra. Hann sagði það vafalaust að til samkomulags hefði þokazt í viðræð- um um ýms hagsmuna- og réttinda- mál, og nú þegar þingi væri lokið myndi hann beita sér fyrir því að samningaviðræður við BSRB færu fram af fullum krafti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.