Morgunblaðið - 01.06.1980, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
Rætt við Magnús
Sævar
Bjarnason
skipstjóra
„Fiskeríið hefur verið ágætt i
heild hjá bátunum hér í vetur,“
sagði Magnús Sævar Bjarnason
skipstjóri á Sæbirni ÁR 15, þegar
Mbl. hitti hann við Keflavíkur-
höfn fyrir skömmu.
„Ég byrjaði sjálfur í mars og er
ekki ánægður með minn hlut, en
þetta er fyrsta vertíðin mín sem
skipstjóri. Við fengum 218 tonn
fram til mánaðamóta og hefðum
auðvitað viljað fá meira. Það var
níu daga stopp hjá okkur um
hafði veðrið verið misjafnt,“ sagði
Magnús.
„Mér finnst það alger óþarfi að
' ráðast á þessa einu stétt í landinu,
sem er sjómenn og segja henni að
hypja sig heim í stoppum og
launalausa að auki. Mér finnst
þetta ómennskt, eins og raunar
kerfið í heild. Launin hjá okkur
eru afar léleg, tryggingin er ekki
til að lifa af henni. Það lifir
enginn af hundrað þúsundum á
viku,“ sagði Magnús.
„Hvað varðar fiskverðið þá er
það þannig að við fáum ekki nóg
út úr því. Það hefur aldrei komið
nein raunhæf hækkun til sjó-
manna undanfarin ár, við höfum
aldrei fengið sömu hækkanir og
landfólkið. Þó að fiskverðið hækki
þá virðist svo vera að matið sé um
leið gert stífara, fiskurinn metinn
verr en efni standa til, og sjómað-
urinn fær því ekki það sem hann á
að fá, samkvæmt fiskverðinu,"
Höfum aldrei fengið sömu
hækkanir og landfólkið
síðustu mánaðamót og kom það
sér illa. Mér finnst óþarfi að
stoppa minni bátana, þeir hafa
svo litla möguleika á að veiða í
janúar og febrúar. Þegar veiðarn-
ar voru stöðvaðar um síðustu
mánaðamót þá breyttist veðrið
auðvitað, það kom gott veður um
leið og við hífðum upp, en áður
sagði Magnús. „Að vísu fáum við
eðlilegt verð út úr fiskinum sem
slíkum, en við fáum ekki það verð
sem við eigum að fá. við sjáum
hækkanir allt í kringum okkur,
t.d. á skreið og finnst okkur við fá
óeðlilega lítið í okkar hlut.“
„Einnig er félagsleg samstaða
sjómanna bágborin sem endranær
og gengur því ekki of vel að fá
kjörin bætt. Það er nefnilega lítill
hluti sem stundar sjóinn að stað-
aldri og kemur slíkt niður á
félagssamstöðunni. Sjómenn gera
ekki nóg sjálfir til að ná fram
kjarabótum."
„Það er að vísu frekar bjart
framundan hjá okkur nú, en við
erum að fara á humar á næstunni.
Við verðum á þeim veiðum þar til
búið er að veiða upp í kvótann, en
hanner 2500 tonn. Við erum nú að
skipta af fiskitrolli og yfir í
humarinn, en við sækjum hann
austur undir Hornafjörð og á
Eldeyjarsvæðið," sagði Magnús
Sævar Bjarnason.
Karlalíö frystihússins á kappróðraræfingu.
Ljósm. Mbl. Einar.
Sjómannalíf á Höfn í Hornafirði
Veiðarnar
eru
stöðvaðar
af
handahófi
— segir Árni
Vígkarsson
skipstjóri
„Ég er ánægður með aflann í
vetur og held að menn séu
almennt ánægðir á þessu svæði,“
sagði Árni Vígkarsson skipstjóri
á Hvalsnesi KE 121, i samtali við
Mbl.
„Við vorum á línu í janúar og
febrúar, á netum í mars og apríl
og trolli í þessum mánuði. Nú
erum við að fara á humar og erum
að gera bátinn kláran á þær
veiðar. Aflinn hjá okkur í vetur
var þokkalegur, var 416 tonn fjóra
fyrstu mánuði ársins, en í þessum
mánuði höfum við fengið um 50
tonn í tveimur róðrum," sagði
Árni. „Við urðum fyrir því óhappi
fyrir stuttu að slíta aftan úr okkur
helminginn af veiðarfærunum og
notum við því tækifærið til að
skipta yfir á humarveiðarnar."
„Ég held að kjör manna á minni
bátunum séu orðin þokkaleg, það
eru fremur fáir á og því skiptast
launin í færri staði. Það sem menn
hafa mestar áhyggjur af um
þessar mundir eru þessi eilífu
stopp, þau gera mönnum erfitt
fyrir. Stoppin koma yfirleitt á
versta tíma, það virðist sem svo að
veiðarnar séu stöðvaðar af handa-
hófi og stoppin koma á óheppi-
legasta tíma. Það virðist heldur
ekki tekið tillit til þess hvort
fiskurinn sé kominn á hrygn-
ingarstig, ég held að það sé bara
stoppað eftir dagatali. Ég get
nefnt sem dæmi stöðvunina um
páskana. Þá var fiskurinn ekki
kominn í hrygningu. Hins vegar
átti stöðvunin um mánaðamótin
apríl/maí rétt á sér, vegna þess að
þá var fiskurinn í hrygningu.
Þessar eilífu stöðvanir eru auðvit-
að erfiðar fyrir mennina á minni
bátunum, einnig getur þetta verið
hættulegt á marga lund. Menn eru
að fara á sjó rétt fyrir lokun í
slæmum veðrum til að ná inn
veiðarfærunum, það gæti ein-
hverntíma farið illa,“ sagði Árni
Vígkarsson.