Morgunblaðið - 01.06.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
19
„Hef yndi af veiðiskap, hvort
sem um er að ræða fugl eða
fisk,“ segir Skarphéðinn.
Sjósókn er baktería. Þrettán ára
byrjaði ég á sjó og hef alltaf verið
sjóveikur. Var á sjónum í 25 ár og
fór síðan að vinna í Sementsverk-
smiðjunni og er núna í þessu.
— Af hverju sækir sjóveikur
maður sjó?
„Ég hef oft spurt sjálfan mig
þess sama. Ég held að skýringar-
innar sé að leita í veiðináttúru
mannsins. Ég hef aldrei tollað í
neinni vinnu nema veiðiskap. Hef
Að taka tæknina
í sína þjónustu...
yndi af veiðum, hvort sem um er
að ræða fugl eða fisk. En ég veiði
aldrei að þarflausu, það finnst
mér ömurlegt og lítilfjörlegt.
Meira að segja greiði ég krabbann
úr netinu. Það er aldrei að vita
nema við verðum að veiða hann
seinna."
Ertu hjátrúarfullur?
„Allir veiðimenn eru hjátrúar-
fullir. Byrja aldrei veiðar á mánu-
dögum eða miðvikudögum. Síðast
liðin fimm ár hef ég ekki verið
með trossu númer 13. Þrjú árin
þar á undan tapaði ég henni
alltaf."
„Sóknin hefur aukist gífurlega í
grásleppuna á síðustu árum. Og þó
að það sé kaldhæðnislegt að segja
það, að þá var eins og það gerðist
þegar stjórnvöld fóru að auglýsa
takmarkanir og leyfisveitingar.
Þá sótti fjöldinn um og allir leggja
sín 80 net. Jafnframt hefur verð-
lagning hrogna breyst mikið.
Fyrir tíu árum fengum við 2 tonn
af þorski fyrir eina tunnu af
hrognum, en nú þurfum við tæp-
lega 4 tunnur af hrognum fyrir 2
tonn af þorski. Þetta er alvarlegt
mál með verðið á heimsmarkaði
og ég held að við ættum að hætta
að veiða í eitt ár, til að ná því upp.
Útlitið fyrir okkur smábátaeig-
endur er ekki gott um þessar
mundir. Þó að við getum verið á
grásleppu hluta ársins, þá verðum
við að hafa möguleika á fleiru.
Afstaða stjórnvalda er óskiljan-
leg, að leyfðar skuli auknar veiðar
með snurvoð hér í flóanum.
Snurvoðarveiðar eyðileggja alla
möguleika á handfæraveiðum til
dæmis. Tilraunaveiðar hafa verið
leyfðar í Garðsjó og nú ríkir
algjör ördeyða þar. Snurvoðin
eyðileggur botninn og lífsskilyrðin
þar. Röksemdin fyrir því að leyfa
þessar veiðar er að kolastofninn er
ónýttur. En ég spyr hvort það sé
réttlætanlegt að skrapa upp botn-
inn og eyðileggja þar með aðra
möguleika, sem gefa meira af sér,
fyrir lítt verðmætan kola.“
Rætt við
Skarphéðinn
Árnason,
grásleppukarl
„Ég fer síðastur og kem fyrst-
ur að landi,“ sagði Skarphéðinn
Árnason, grásleppukarl á Akra-
nesi, þegar hann var inntur eftir
hvernig veiðarnar gengju.
„Ástæðan er sú, að ég var að
láta smíða nýjan 5 tonna plastbát
fyrir mig með góðum útbúnaði og
þetta er allt annað líf. í bátnum er
74 hö vél, þeim finnst sumum hún
vera alltof stór, en ég byggi það á
reynslu minni sem vélstjóra. Þá
þarf aldrei að keyra vélina á fullu
og þar af leiðandi er slitið miklu
minna. Menn eru alltof mikið
gefnir fyrir að keyra vélar í botn,
en það hefur í för með sér
hlutfallslega miklu meiri olíu-
notkun. Báturinn er útbúinn með
spili til að draga netin. Þetta er
algjör nýjung og fyrsta spil sinnar
gerðar, sem sett er í íslenzkan bát.
Aðstaðan hjá okkur um borð hefur
gjörbreyst við þetta og mikill
sparnaður á tíma og vinnuafli.
Mér er nær að halda að þetta verði
komið í flesta litlu bátana eftir
tvö til þrjú ár. Það þýðir ekki
annað en að taka tæknina í sína
þjónustu.
Síðastliðin 15 ár hef ég stundað
grásleppuveiðar og síðustu sjö
árin verið við þetta meira og
minna. Þó að veiðitíminn sjálfur
sé ekki langur þá fer drjúgur tími
í að útbúa veiðarfæri. Það sem
gildir í veiðiskap er að hafa góð
veiðarfæri og spara ekki við sig í
þeim efnum. Grásleppuveiðarnar
hafa breyst mikið á þessum tíma.
Þetta var voðaleg vinna fyrstu
árin. Árabáturinn, sem ég byrjaði
á er nú orðinn 46 ára og enn í
notkun. Hann var smíðaður af
Gísla bátasmið á Bíldudal.
Lagt af stað í róður í fyrstu geislum morgunsólarinnar.
MYNDAMOT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI 6 SlMAR: 17152-17355
Uppþvottavélin
| a n w • Vandvirk.
I • Sparneytin.
SIEMENS
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
TOPP
Litsjonvarpstæki
á veröi sem á sér ekki hliðstæöu
Engir milliliðir.
Árt ábyrgð
— 3 ár á myndlampa.
taakin koma í gámum beint
trá Iramleiðanda.
Ekta viðarkassi
Paliaander- Teck- Hnota
SJÚNVARPSVIRKINN
ARNARBAKKA 2
Ur ^ 71640
Verzlið beint við tagmanninn,
það tryggir örugga þjónustu.
22“ 642.000,-
Staðgr. 609.000
26“ 718.500.-
Staögr. 685.500
X-.
BYGGINGAVORUVERSLUN
KÓPAV0GS ^
mn
TiWfflíf— ..
aðsetu«s^iptl
—XXXXXX^ __^,irnaösetvai
AUGLYSINGASTOFA KRlSTlNAR 10 34
¥