Morgunblaðið - 01.06.1980, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1980
37
Þetta gerðist
1* *
. juni______
1978 — Sýrlendingar gera innrás í
Líbanon.
1973 — Konungdæmi afnumið í
Grikklandi.
1958 — Charles de Gaulle hershöfð-
ingi verður forsætisráðherra
Frakklands.
1943 — Enski leikarinn Leslie How-
ard ferst í árás þýzkrar flugvélar,
1932 — Franz von Papen myndar
ríkisstjórn í Þýzkalandi.
1883 — Frakkar hefja stríð gegn
Madagaskar.
1879 — Franski keisaraprinsinn
fellur í herferð gegn Zulumönnum.
1857 — Brezki sjóherinn eyðir
kínverskum flota á Kínahafi.
1835 — Otto I tekur við völdum í
Grikklandi.
1794 — Sigur Breta á Frökkum í
sjóorrustunni við Ushant („Glorious
First of June“).
1733 — Danir fá yfirráð yfir St.
Croix (Santa Cruz), V-Indíum.
1695 — Glæsilegur sigur pólska
hersins á Tartörum.
1694 — Frakkar gera innrás í Spán;
brezkur floti til Barcelona.
1671 — Tyrkir segja Pólverjum stríð
á hendur.
1664 — Stríð brýzt út milli Englend-
inga og Hollendinga.
1562 — Ferdinand keisari I og
Suleiman I Tyrkjasoldán semja
vopnahlé.
1533 — Anna Boleyn krýnd drottn-
ing af Englandi.
1524 — Bændauppreisnin í Suður-
Þýzkalandi hefst.
Afmæli — John Drinkwater, brezkt
skáld (1882—1937) — John Masef-
ield, enskt skáld (1878—1967) —
Brigham Young, bandarískur mor-
mónaleiðtogi (1801—1877) — Mik-
hail Glunka, rússneskt tónskáld
(1804—1857) — Ottó I Grikkjakon-
ungur (1815-1867)
Andlát - 1968 Helen Keller.
Innlent — 1976 Óslóarsamningurinn
— 1479 Hafnarháskóli vígður —
1822 Timburgjaldi aflétt — 1850
Þjóðfundi frestað árlangt — 1861
Auglýsing konungs um lausn fjár-
hagsmálsins — 1862 f. Þorgils gjall-
andi — 1880 Búnaðarskóli tekur til
starfa í Ólafsdal — 1962 Lög um
launajafnrétti — 1974 Samningar
um veiðitakmarkanir Belga taka
gildi — 1974 Fjórir fórust í lítilli
flugvél í Dölum.
Orð dagsins — Sá sem kann gerir,
sá sem kann ekki kennir — George
Bernard Shaw, írskættaður rithöf-
undur (1856—1950).
Þetta geróist
2. júní
1979 — Heimsókn Jóhannesar Páls
páfa II til Póllands; fyrsta heimsókn
páfa til kommúnistaríkis.
1969 — Arekstur ástralska flugvéla-
móðurskipsins „Melbourne" og
bandaríska tundurspillisins „Frank
E. Evans"; 74 fórust.
1966 — Fyrsta mjúka lending
bandarísks geimfars á tunglinu —
Fimm ára átökum Indónesíu og
Malaysíu lýkur.
1896 — Marconi fær einkaleyfi á
þráðlausum síma.
1895 — Japanir fá Formósu frá
Kínverjum.
1864 — Grikkir fá Korfu.
1815 — Napoleon gefur út frjáls-
lynda stjórnarskrá í Frakklandi.
1771 — Rússar leggja undir sig
Krím.
1675 — Stjórnarbylting á Spáni og
Don Juan fær völdin.
1622 — Gústaf Adolf af Svíþjóð og
Sigismund af Póllandi semja vopna-
hlé.
1567 — Irski uppreisnarmaðurinn
Shane 0‘Neil, jarl af Tyrone, ráðinn
af dögum.
Afmæli. Jóhann Sobieski, konungur
af Póllandi (1624-1698) - Thomas
Hardy, enskur rithöfundur (1840—
1928) — Edward Elgar, enskt tón-
skáld (1857—1934) — Konstantín fv.
Grikkjakonungur (1940—) — Charl-
es Conrad bandarískur geimfari
(1930).
Andlát. 1882 Giuseppe Garibaldi,
frelsisleiðtogi.
Innlent. 1934 Jarðskjálftinn mikli á
Dalvík — 1957 Hrafnista afhent til
afnota. — 1975 Stjórnmálasamband
við Breta aftur tekið upp.
Orð dagsins. Ef við hefðum ekki
ríkisstjórnina, hefðum við ekkert til
að hlæja að í Frakklandi — Nicholas
Chamfort, franskur rithöfundur
(1741-1794).
Einar Hálfdánarson
Skiptaprósentan á að
vera sú sama hjá öllum
„Það hefur gengið vel hjá
okkur í vetur. Meðalhluturinn er
um 400 þúsund eftir túrinn,“
sagði Einar Hálfdánarson stýri-
maður á skuttogaranum Dag-
stjörnunni Ke 9, en Dagstjarnan
var ný lögst að, þegar blm. kom
um borð.
„Kjörin hjá okkur eru góð, en
maður er samt ekki ánægður með
fiskverðið. Það hækkar ekki í
samræmi við laun landfólksins,
við höfum dregist aftur úr í því
efni,“ sagði Einar.
„Við höfum verið á skrapi
síðustu tvær veiðiferðir og verðum
það trúlega mestan part sumars-
ins. Við fiskuðum ágætlega í
— segir Einar
Hálfdánarson
þessum túr og erum nú að fara í
2ja sólarhringa frí. Yfirleitt eru
fríin ekki nema 30 tímar en við
fáum 36 tíma hér vegna sjávar-
fallanna."
„Helsta áhyggjuefni mitt, hvað
kjaramál varðar, eru lífeyris-
sjóðsmálin. Mér finnst allt of lítið
tekið af okkur í lífeyrissjóð og þyí
hljótum við að fá lítið þegar við
hættum. Eina leiðin til að ráða bót
á þessu er að hækka greiðslur
okkar og jafnframt útgerðarinnar.
Fyrirkomulagið hjá okkur er
þannig að við greiðum vissa upp-
hæð á hvern skráðan dag. Ég heíd
að það sé heppilegra fyrirkomulag
eins og er á stóru togurunum, en
þar er greidd viss upphæð af allri
þénustunni í lífeyrissjóð," sagði
Einar. „Mér finnst þetta brýnt
mál, það verður að hugsa eitthvað
fram í tímann."
„Ég held að sjómenn verði að
fara að gera eitthvað í kjaramál-
unum og finnst mér það brýnt að
við fáum sömu skiptaprósentu og
Vestfirðingar. Hún á að vera sú
sama hjá öllum,“ sagði Einar
Hálfdánarson.
kr. 69.500.
kr. 159.500.
FISHER
toppurinn i dag
í wm
V t! y
MT-6360
TR-3000
EQ-3000
FM-2331
CC-3000
BA-6000
CR-4170
Samtals
MT-6225
TR-3000
EQ-3000
FM-2121
CA-2030
CR-4120
Samtals
Plötuspilari
Timer
Tónsviðsjafnari
Tuner
Formagnari
Kraftmagnari
Kassettutæki
Plötuspilari
Timer
Tónsviðsjafnari
Tuner
Magnari
Kassettutæki
BORGARTÚN118
REYKJAVÍK SlMI 27099
Þetta eru aðeins tvö dæmi
Að sjálfsögðu eru möguleikarnir miklu fleiri frá FISHER