Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 37
n\n / j r i p /, nTTT r/ f ’ T'íJ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 37 fclk í fréttum Jarðýtustjórinn og menn hans + Hér eru þeir, sem stóðu fyrir uppreisninni á Nýju-Hebridis- eyjum, eyjaklasa norðaustur af Astralíu — um siðustu mánaða- mót. Foringi uppreisnarmanna, Jimmy Stevens, 58 ára gamall jarðýtustjóri, er hér til vinstri handar. Blökkumennirnir fimm, sem sitja við stjórnarborðið, eru ráðherrar hinna nýju valdhafa eyjanna. Krafist er fulls sjálf- stæðis nú þegar. Eyjaklasinn, sem telur alls um 100.000 íbúa, hefur lotið brezk-franskri stjórn um nær 100 ár, átti að öðlast fullt sjálfstæði hinn 30. júlí næstkomandi. Valdaránið, ef hægt er að komast svo að orði, var ekki framið í krafti nýtízku vopnabúnaðar, því innfæddir á eyjunum eru aðeins búnir spjót- um og bogum. Enn hafa hvorki brezk né frönsk yfirvöld svarað uppreisnarmönnum. Strax eftir uppreisn Jimmys jarðýtustjóra og manna hans, útilokuðu tals- menn brezkra yfirvalda ekki að herliði yrði beitt. Stærsta eyjan í eyjaklasanum er Espiritu Santo og þar eru þessar myndir teknar. + Sjálfur Hua Kuo-feng, forseti Kínverska alþýðulýðveldisins, fór fyrir skömmu í opinbera heimsókn til Japan. Þetta þótti tímamótaheimsókn, því hinn 58 ára gamli forseti er fyrsti kínverski valdamaðurinn sem kemur í opinbera heimsókn til Japan.— Fréttamyndin er frá því er forsetinn kom fram í svonefndri NHK-höll í Tokyo. Þar var forsetanum færður stór blómvöndur.— Maðurinn að baki Hua forseta er túlkur hans. Fótaaðgerðir Annast allar fótaaðgeröir. Tímapantanir í síma 43986. Kristín Gunnarsdóttir, fótasérfræðingur, Hrauntungu 2, Kópavogi. Tískusýning aö Hótel Loftleiðum alla föstudaga kl. 12.30—13.00 Það nýjasta á hverjum tfma af hinum glassilega íslenska ullar- og skinnafatnaöi ásamt fögrum skartgripum verður kynnt í Blómasal á vegum íslensks heimilisiönaöar og Rammageröarinnar. Modelsamtökin sýna. Víkingaskipið vinsæla bíöur ykkar hlaöiö gómsætum réttum kalda borösins auk úrvals heitra rétta. Guöni Þ. Guömundsson flytur alþjóölega tónlist, gestum til ánægju. m heimilistæki hf T/EKNIDEILD — S/ETÚNI 8 — SÍMI 24000 Gjallarhorn í mörgum stærðum og geröum jr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.