Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 29 UmHORP UMSJÓN: JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Þann 27. júní 1930 komu nokkrir ungir sjálfstæðismenn saman á Þingvöllum og stofn- uðu með sér samtök ungra manna í Sjálfstæðisflokknum. Samtök þessi hlutu nafnið Samband ungra sjálfstæðis- manna og hafa þau í hálfa öld verið með öflugustu samtökum ungs fólks á íslandi. í tilefni af þessum tímamót- um sneri Umhorfssíðan sér til Sverris V. Bernhöft, annars varaformanns SUS og innti hann eftir því, hvernig ungir sjálfstæðismenn hygðust minnast þessara tímamóta. Afmælishátíð á Þingvöllum „Við munum minnast þessa merkisafmælis SUS með ýms- um hætti. Fyrst má nefna, að næst komandi laugardag, 14. júní, munum við halda afmæl- ishátíð á Þingvöllum en þar var sambandið stofnað fyrir 50 árum. Hátíðin fer fram í Hótel Valhöll og hefur mjög verið vandað til undirbúnings, enda væntum við þess að mikill fjöldi fyrrverandi forustu- manna sambandsins komi þar og eigi kvöldstund með þeim sem nú eru starfandi fyrir unga sjálfstæðismenn. Tilhög- unin verður í stuttu máli sú, að tekið verður á móti gestum kl. 17.00 í Valhöll. Síðan verður gengið að minnisvarðanum um Bjarna Benediktsson og konu hans, sem stendur þar rétt hjá. Að lokinni stuttri athöfn þar, Sverrir V. Bernhöft Viðfangsefni næstu mán- aða mörkuð Á sérstökum stjórnarfundi, sem haldinri verður á laugar- daginn, verður tekin endanleg ákvörðun um viðfangsefni SUS á næstu mánuðum. Ungir sjálf- stæðismenn hafa sem aðrir landsmenn miklar áhyggjur af stöðugum og miklum land- flótta íslendinga. Við álítum þetta eitt alvarlegasta sjúk- dómseinkenni íslensks þjóðfé- lags og viljum gera úttekt á þessu máli og reyna að gera okkur grein fyrir því, hvað til úrbóta er. Þetta mál tengist flestum þáttum þjóð- og menn- Samband ungra Sjálfstæðismanna verður móttaka á vegum stjórnar SUS í Valhöll. Um kl. 19.00 verður svo kvöldverður snæddur og ávörp flutt. Jón Magnússon, formaður SUS og Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem er einn fyrrverandi formanna sambandsins, munu þar flytja ávörp. Þá má nefna, að allir fyrrverandi formenn SUS, sem eru 11 að tölu og allir þjóð- þekktir menn, verða sæmdir gullmerki SUS, en hönnun þess og nýs merkis sambandsins er nýlokið. Ég vil taka það fram, að allir sjálfstæðismenn eru velkomnir til þessarar hátíðar. Rútuferð verður skipulögð frá Valhöll, húsi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að Valhöll á Þing- völlum. Farið verður úr Reykjavík kl. 16.00 og stefnt að 50ára — Afmælishátíð á Þingvöllum — Útgáfa tveggja rita því að fara frá Þingvöllum um kl. 23.00. Það auðveldar okkur mjög undirbúning, ef þátttöku- tilkynningar berast í tíma, og vil ég hvetja fólk til þess að hafa samband við skrifstofu Sjálfstæðisflokksins sem allra fyrst. ingarmála og er mjög flókið og viðamikið verkefni. Ef vel tekst til verður þetta sjálfsagt eitt viðamesta verkefni, sem ungir sjálfstæðismenn hafa glímt við á skipulegan hátt. Höfuðáherslan verður senni- lega lögð á atvinnumál en við teljum einhæfni atvinnulífsins hér og skort á tækifærum í nútímalegum atvinnugreinum eina helstu ástæðu þess, að ungt fólk með góða menntun og starfsvilja flykkist af landi brott. Þá teljum við upplausn- ina í íslenskum efnahagsmál- um vega þungt og sömuleiðis lítt spennandi menningar- og frístundalíf. Þá má ekki gleyma því, að stór hópur fólks hér á suðvesturhorninu telur hér tæpast vera eðlilegt lýð- ræðisfyrirkomulag lengur vegna grófrar mismununar á atkvæðisrétti borgaranna. Ég nefni þessi atriði hér til þess að undirstrika, að þetta verkefni okkar tengist flestum sviðum þjóðlífsins. Við viljum reyna að vinna skipulega að tillögugerð í þessum málum með því að nálgast vandamál þjóðarinnar frá þessu sjónarhorni. Við reynum þannig að líta á þetta frá sjónarhorni þeirra, sem eru búnir að fá nóg og hreinlega yfirgefa landið. Útgáfa tveggja rita I tilefni afmælisins höfum við ákveðið að gefa út tvö rit. Fyrst vil ég nefna útgáfu á ritgerðum og ræðum Birgis Kjaran. Við vonumst til þess að fá fyrstu eintökin úr prentsmiðju næstu daga en auk almennrar prentunar gef- um við út 100 tölusett eintök í vönduðu bandi. Einhver eintök munu óseld og vil ég hvetja þá sem áhuga hafa til þess að snúa sér strax til skrifstofu SUS. Birgir hefur áratugum saman verið talinn einn helsti hugmyndafræðingur flokksins og vöktu ritgerðir hans jafnan mikla athygli. Við teljum að þær séu enn í fullu gildi og hafi mikilvægan boðskap okkur sjálfstæðismönnum að flytja, ekki síður nú en þegar þær voru skrifaðar. Hannes Hólm- steinn Gissurarson hefur haft umsjón með þessari útgáfu og vandað mjög til verksins. I öðru lagi gefur SUS út afmæl- isrit í tilefni 50 ára afmælisins. í ritinu eru greinar eftir 12 menn, sem allir eru mjög ungir að árum og hafa fæstir þeirra skrifað mikið áður. Auk þess- ara greina verða sögu SUS gerð nokkur skil í ritinu. Um- sjón með þessari útgáfu hafa Björn Hermannsson og Jón Ormur Halldórsson. Vonast er til að þetta rit verði tilbúið til dreifingar í kringum sjálft afmælið, 27. júní. Stofnþing Kennarasambands íslands: Telur eðlilegt að ríkis- stjómin sýni frumkvæði STOFNÞING Kennarasam- bands íslands, haldið i Reykjavík 3.-5. júní s.l, sendi frá sér ályktun um kjaramál þar sem átalinn er harðlega sá seinagangur sem verið hefur á samningamál- um opinberra starfsmanna, eins og þar segir. Einnig skorar þingið á ríkisvaldið að ganga tafarlaust til samn- inga. Þá telur þingið eðlilegt að ríkisstjórnin sýni frumkvæði við að leysa þann hnút sem nú er í kjara- og samningamálum í landinu. Þá segir: „Þingið leggur mikla áherslu á afnám tveggja ára samningstímabils opinberra starfsmanna og kröfur B.S.R.B. um félagsleg réttindi t.d. varðandi stytt aldursmark til lífeyris, eftir- laun verði miðuð við full laun, atvinnuleysisbætur, endur- menntun og endurhæfingu, dagvistunarheimili, rétt for- eldra vegna veikinda barna, foreldraorlof, aukin trygg- ingarétt o.fl.“ Þá lýsir þingið yfir fullum stuðningi við stjórn og samninganefnd B.S.R.B. og telur tímabært að unnið verði hiklaust og ákveð- ið að undirbúningi verkfalls opinberra starfsmanna ef ekki verða gagnger straumhvörf í gangi samningamála. Þá segir í lok ályktunarinn- ar að þingið álíti stofnun verkfallsnefndar B.S.R.B. vera rétta og eðlilega ákvörðun og hvetur alla opinbera starfs- menn til órofa samstöðu um aðgerðir þær sem samtökin kunna að telja óhjákvæmilegt að grípa til. MYNDAMOT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRETI • - SlMAR: 17152- 17355 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi óskast Herbergi óskast Ungt og reglusamt par vantar tllflnnanlega rúmgott herbergl tll lelgu á stór-Reykjavíkursvæö- Inu. Uppl. í s. 19154, eftlr kl. 16.30 og fyrir kl. 15.00 á morg- un. Til sölu Fíat 132 GLS 1600 Árg. 1978. Keyptur nýr í mars 1979. Ekinn aöeins 23.700 km. (innanbæjarkeyrsla). Utur: dökkblár. Sanyo hátalarar og loftnet fylgir. Uppl. ( s. 85855 í Fíat sýningarsal. Ullarkápur til sölu frekar ( frúarlínum, sumt mjög ódýrt. Sklpti um fóöur í kápum. Kápusaumastofan Díana, Miötúni 78. sími 18481. Eignamiólun Suöursesja Keftavík — einbýlishús Tll sölu glæsilegt einbýlishús á besta staö (bænum. Uppl. ekki í slma. Hjá okkur er úrvaliö. Eignamiölun Suöurnesja, Hafnargötu 57, Kaflavfk. Gróöurmold til sölu Helmkeyrö í lóöir. Uppl. í síma 44582 og 40199. Electro Motion U.K. (Export) limlted, 161 Barkby Road, Leichester LE4 7 LX, England, sími 766341 (5 Knur). Telex: 341809 Elmotn G. Skeyti Elmotion Leichester. Þekktasta kjörverzlun veraldar á vélasviöinu leyfir sér aö tllkynna útgáfu nýrra birgöaskráa yflr ágæt notuö verkfæri, vlnnsluvél- ar, trésmíöavélar, virkjanavélar, prentvélar fyrir plast, rafmagns- vélar o.s.frv. Rennibekklr frá Colchester, Mitchell Edgwick, Harrlson, De- an, Smith & Grace, lóöréttar, láréttar og venjulegar mölunar vélar, almennar slípivélar. Allar stæröir af mótunarvélum. Heflar, borvélar, prentvélar frá Heidel- berg, Solna o.s.frv. Afhöggsvél- ar, pressur, plastmötunarvelar, dieselskiptibúnaöur, allskonar trévinnsluvélar. Góöfúslega skrifiö eftir Ijósmyndum og öllum birgöaskrám okkar. Áhugaefni okkar er aö veita þjónustu. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ____ ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11796 og 19533. 14.—17. júní, sögustaöir í Húna- þingl. Gist í húsi. Helgarferöir: 13,—15. júní. 1. Mýrdalur — Hafursey. Gist í húsi. 2. Þórsmörk. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. Feröafélag íslands. Fíladelfía Almenn vitnlsburöarsamkoma kl. 20.30. Alllr velkomnlr. Sálarrannsóknarfólg íslands Félagsfundur veröur í dag 12. júnf kl. 20.30 aö Hallveigar- stööum. Fundarefni: Klrllan Ijósmyndun af orkutengslum Ifk- amans. Hinn þekkti dularsál- fræöingur Douglas Dean heldur fyrlrlestur og sýnir lltskyggnur. Hjálpræöisherinn f kvöld kl. 20.30. Almenn sam- koma. Ræöumaöur sr. Lárus Halldórsson. Undirforingjar stjórna. Alllr velkomnir. Freeport klúbburinn Fundur f Bústaöakirkju í kvöld kl. 20.30. Stjórnln. Grensáskirkja í kvöld veröur almenn samkoma f safnaöarheimilinu kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Halldór S. Gröndal. Almenn samkoma aö Hverfis- götu 44 f kvöld kl. 20.30. Kvart- ettsöngur, vitnisburöir, ræöu- maöur Óli Ágústsson. Allir vel- komnir. Samhjálp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.