Morgunblaðið - 07.08.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 07.08.1980, Síða 1
32 SÍÐUR 175. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 66 hafa látizt í fellibylnum Mannfjöldinn á aðaltorKÍnu í Bologna í gær þegar gerð var útför fórnarlamha sprenginRarinnar á dögunum. Handtaka í Nizza í Bologna-málinu Kingston, Jamaica, 6. ágúst AP. FELLIBYLURINN Allen æddi fram hjá Cayman-eyjum og stefndi á Kúbu og Mexíkóflóa í dag eftir að hafa gert mikinn usla á Jamaica þar sem flóðbylgj- ur urðu nokkrum að bana. Vind- hraðinn var 160 km á klst. og vitað er að minnst 66 hafa týnt lifi við Karíbahaf. Vegir lokuðust i fellibylnum, brýr hrundu. fjarskiptalínur rofnuðu og norðurströndin ein- angraðist frá Kingston. Blaðið „Daily Gleaner" segir að flóðbylgjan hafi skolað milli tíu og tuttugu manns frá heimilum sín- um nálægt Port Maria á norður- ströndinni og minnst fimm hafi týnt lifi. Strandhótel nálægt Port Antonio á norðurströndinni hrundi. Einangraður skagi syðst á Haiti varð hart úti og sagt er, að vitað sé að 41 hafi farizt á Haiti. Um 40% húsa mun hafa eyðilagzt á skaganum. Bandarískir embættismenn segja, að staðfest sé að minnst 30 hafi beðið bana í Port-au-Prince á Haiti og á svæðinu sunnan við höfuðborgina. Bandaríska veðurstofan segir að Iægðarmiðjan hafi verið nálægt 20,2 norðlægrar breiddar og 80,2 SalÍNbury, 6. ágúst. AP. RÁÐHERRA i ríkisstjórn Zim- bahwe, Edgar Tekere, var hand- tekinn i dag, ákærður fyrir morð á hvítum bónda, að sögn yfir- valda. Tekere var yfirheyrður fjórum sinnum eftir dauða bóndans, Ger- ald William Adams, á mánudag á Stamford-býli 32 km vestur af Salisbury. Nokkrir aðrir menn hafa verið handteknir. vestlægrar lengdar kl. 1900 gmt. Fellibylurinn stefndi í vest-norð- vestur með 32 tii 40 km hraða, og búizt var við að hann gengi yfir vestasta hluta Kúbu með stefnu út á Mexíkóflóa í kvöld og nótt. Rændi til að deyja í steininum Galveston, Texas, 6. ágúst. AP SANTOS Casarez Rios, 74 ára einstæðingur, rændi banka og beið síðan eftir lögreglunni svo að hann gæti dáið í alrikisfangelsi, þar sem að minnsta kosti yrði tekið eftir andláti hans. „Hann segir að hann eigi engan að,“ sagði starfsmaður fangelsisins í Galveston í dag. „Hann sagði mér, að hann hefði flakkað um Texas að undanförnu og reynt að fremja glæp, svo að hann yrði handtekinn. Hann vildi deyja í fangelsi og þess vegna rændi hann bankann." Tekere er atvinnumálaráðherra og auk þess aðalritari ZANU, flokks Robert Mugabe forsætis- ráðherra. Hann er þriðji valda- mesti maður flokksins. Ástæðurnar til morðsins liggja ekki ljóst fyrir. Nágranni hins myrta segir að Tekere hafi reynt að semja um kaup á býli bóndans. Morðið hefur vakið ugg meðal hvítra landsmanna. Nizza, 6. á^úst. AP FRANSKA lögreglan handtók í dag landflótta italskan hægri- öfgamann og lögreglan segir að hann samsvari í útliti lýsingu á manni, sem sást með ferðatösku i iárnbrautarstöðinni i Bologna á Italíu fyrir sprenginguna er varð 76 manns að bana. Tugþúsundir tóku þátt í minningarathöfn um fórnarlömbin i Bologna i dag. Þrír eða fjórir aðrir meintir hægriöfgamenn voru handteknir um leið og ítalinn Marco Affati- gato, sem er 24 ára gamall. Ekki er vitað hvort þeir voru viðriðnir sprenginguna í Bologna. Affatigato var handtekinn undir því yfirskini, að hann bæri fölsk skilríki og settur í varðhald á grundvelli handtökutilskipunar frá ítölskum yfirvöldum að sögn lögreglunnar. Verið getur að frönsk yfirvöld framselji Affati- gato innan eins sólarhrings. Dómstóll í Pisa dæmdi Affati- gato fjarverandi í síðasta mánuði í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hjálpa við flótta Mario Tuti, hægriöfgamanns, sem var sakaður um að myrða lögreglumann. Tuti var seinna handtekinn í Frakk- landi og dæmur á laugardaginn fyrir sprengjutilræði í járnbraut- arlest milli Flórens og Bologna 1974. Tólf biðu bana. í Bologna sóttu rúmlega 200.000 manns hvaðanæva að af Ítalíu opinbera útför fórnarlamba sprengingarinnar og útförin sner- ist upp í mótmæli gegn hryðju- bondon. 6. ágúst — AP. SJÖTÍU íranir, sem voru hand- teknir i London eftir mótmæli gegn Bandarikjamönnum, hófu hungurverkfall i dag, nokkrum klukkustundum eftir að löndum þeirra var sleppt i Washington og New York. Hinir siðustu þeirra tæplega 200 írana sem voru í haldi i 10 daga eftir mótmæli i Washington fóru aftur til Washington i dag til að efna til annarra mótmæla við Hvita húsið. Teheran-útvarpið kvað það ósig- ur fyrir Bandaríkin, að Iranirnir voru látnir lausir í Bandaríkjunum og segir að miskunnarlaus lögregla hafi gefizt upp fyrir hetjulegri baráttu fanganna. Útvarpið sagði að yfirvöld hefðu neyðzt til að sleppa Irönunum, þar sem „öngþveiti" hefði skapazt í fangelsinu í Otisville, New York, þegar einn fanganna, sem var í hungurverkfalli, hefði verið „að dauða kominn" og hinir hefðu „fagnað yfirvofandi píslarvætti hans“. Yfirvöld segja að andar- dráttur eins þeirra hafi stöðvazt og verkum. Athöfnin var að nafninu til ópólitísk, en virtist eiga að sýna mátt kommúnista, sem hafa stjórnað borginni frá stríðslokum. Reanto Zangheri borgarstjóri gagnrýndi stjórnina fyrir að hafa ekki t.ekið harðar á árásum hægri- manna á Italíu á síðustu árum. Á eftir ræðu hans hrópuðu vinstri- öfgamenn „Cossiga böðull" og gerðu hróp að sósíalistaleiðtogan- um Bettio Craxi. Jóhannes Páll páfi II sagði í ávarpi á St. Péturstorgi, að hann ætti ekki nógu sterk orð til að lýsa „sársauka sínum, viðbjóði og hryll- ingi“ þegar slíkur glæpur væri drýgður. lífga hafi orðið hann við með munnaðferð. Teheran-útvarpið ítrekaði einnig staðhæfingar írana um að fang- arnir hefðu sætt illri meðferð, þótt Bandaríkjamenn hafi vísað slíku á bug. Fangelsun írananna og meint ill meðferð þeirra hafði leitt til áskor- ana í íran um hefndaraðgerðir gegn bandarísku gíslunum í Teher- an. Þingið hefur frestað umræðum um gíslana og yfirvöld verða beðin að hefja undirbúning réttarhalda gegn þeim að sögn Teheran út- varpsins. Morð á Sikiley Palermo, 6. ágúst. AP. VOPNAÐUR maður, sennilega at- vinnuglæpamaður, skaut aðal- saksóknarann í Palermo á Sikiley til bana í kvöld og fórnarlambið lézt skömmu síðar. Yfirvöld telja að saksóknarinn hafi verið myrtur til að hræða embættismenn sem rannsaka eit- urlyfjasmygl til Bandaríkjanna. Ráðherra tekinn f astur f yrir morð Benzínskortur gerir vart við sig í Kabul Nýju Delhi, 6. ágúst. AP. SKORTUR á henzíni og lifsnauð- synjum hefur gert vart við sig i Kabul og hafin er ný sókn sovézkra herflugvéla norður af Gardez í Paktiya-héraði 120 km suður af höfuðborginni sam- kvæmt vestrænum fréttum sem bárust frá Afghanistan i dag. Undanfarna daga hefur ekki verið hægt að kaupa meira en fimm lítra af benzíni í einu. Betri flokkar hrísgrjóna og hveitis eru horfnir af markaðnum í Kabul, en nóg er af verri flokkum af hveiti og einnig ávöxtum og grænmeti. Fallbyssuþyrlur hafa verið sendar til þorpa milli Gardez og Pul-I-Alam í Logar-héraði í norðri. Tugir stríðsvagna hafa snúið aftur frá Logar til bæki- stöðvar nálægt Kabul. ’ Fréttir hafa borizt af bardög- um í borginni Herat og skærulið- ar réðu af dögum yfirmann lög- reglustöðvar og embættismann. Sovézkri sókn í Wardak-héraði suður af Kabul virðist lokið og skriðdrekar og herflutningabílar hafa snúið aftur til stöðva nálægt Kabul. Hundruð hafa fallið fyrir víg- vélum Rússa í Wardak og fjöldi þorpsbúa hefur týnzt eða flúið. Fyrri fréttir hermdu að Rússar hefðu sent 2.000 hermenn og 400 skriðdreka og stríðsvagna gegn skæruliðum sem hefðu tekið afghanska herstöð í Wardak og tekið hermennina til fanga ásamt hergögnum. Kabul-útvarpið segir að 25 er- lendir útsendarar, undirróðurs- menn og hryðjuverkamenn hafi verið teknir til fanga í bardögum í Herat. í fylkinu Baghlat segir útvarpið að felldir hafi verið 14 hryðjuverkamenn, glæpamenn og morðingjar. Benzínskorturinn hefur vakið mikla gremju í Kabul þar sem Rússar hafa nóg benzín. Áfghanir eru algerlega háðir Rússum um olíu. í Washington er sagt að 80.000 til 90.000 Afghanir hafa flúið til Pakistan í hverjum mánuði og þeir séu nú alls rúm ein milljón. Hungurverkfall Irana í London

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.