Morgunblaðið - 07.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980
Flugliðar hjá Flugleiðum
íhuga stofnun flugfélags
FLUGLIÐAR hjá Flugleiðum
h.f. íhuga nú stofnun nýs flug-
félags, verði Atlantshafsflug
Flugleiða lagt niður eða það
flutt úr landi. Að undanförnu
hefur verið safnað undirskrift-
um undir áskorun til sam-
gönguráðherra, um að hann
veiti flugliðum eða flugfélagi
er þeir kunni að stofna, leyfi til
flugrekstrar á Atlantshafsleið-
inni, fari svo að grundvallar-
breytingar verði á núverandi
fyrirkomulagi flugs á þeirri
leið.
Að undirskriftasöfnun þessari
standa flugliðar hjá Flugleiðum,
en öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins stendur til boða að
skrifa undir. Morgunblaðið
sneri sér í gær til þeirra Baldurs
Oddssonar, formanns og Inga
Olsens, stjórnarmanns, í Félagi
Loftleiðaflugmanna, en þeir
kváðu undirskriftasöfnun þessa
ekki vera á vegum félagsins eða
annarra stéttarfélaga starfs-
manna Flugleiða, hér væri um
að ræða framtak einstaklinga í
hópi starfsmanna.
Samkvæmt uppiýsingum er
Morgunblaðið hefur aflað sér,
hafa undirtektir við undir-
skriftasöfnuna verið góðar með-
al flugliða, en dræmari meðal
annarra starfsmanna Flugleiða.
Aðstandendur undirskriftasöfn-
unarinnar segja, að verði Atl-
antshafsflugið lagt niður, muni
tuttugu tlugáhöfnum verða sagt
upp. Á DC-8 þotunum er átta
manna áhöfn, fimm flugfreyjur,
tveir flugmenn og einn flugvél-
stjóri. Samtals misstu því um
160 flugliðar vinnu sína, yrði 20
áhöfnum sagt upp. Þá segja
aðstandendur undirskriftasöfn-
unarinnar, að óhjákvæmilega
yrði að segja upp flugvirkjum,
starfsfólki á skrifstofum og í
afgreiðslu og um samdrátt yrði
að ræða í bílaleigu og hótel-
rekstri, erfiðleikar yrðu á
rekstri dýrra bókunartalva og
svo framvegis. Þá myndi niður-
felling Atlantshafsflugsins
einnig þýða samdrátt í starf-
semi margvíslegra
þjónustufyrirtækja víða um
land, er byggja á ferðamönnum,
svo sem hótela, matsölustaða og
3
verslana, einnig minni flugfé-
laga, langferðabíla og fleiri að-
ila. Hér sé um svo stórt þjóð-
hagslegt spursmál að ræða, auk
hagsmuna flugliðanna sjálfra er
missa myndu vinnu sína, að ekki
sé unnt að horfa aðgerðarlaus á.
Heimildarmenn Morgun-
blaðsins segja, að undirskrifta-
söfnunin eigi að sýna ráða-
mönnum og stjórnendum Flug-
leiða, hve alvarlegum augum
starfsfólk fyrirtækisins líti á
málið, auk þess sem full aivara
sé að baki um stofnun flugfé-
lags, reynist það nauðsynlegt.
Um rekstur slíks félags eru
þegar sagðar hafa farið fram
viðræður við fjársterka ein-
staklinga og fyrirtæki, jafnvel
hafi verið rætt við skipafélög í
þessu sambandi.
„Þegar þú þarft að kippa í gang hjá vini þínum"
SHELL SUPER PUJS
Olían,sem ereins og sniðin fyrir
íslenskar aðstæður!
Nýja fjölþykktarolían frá Shell tekur langt
fram þeim kröfum, sem bifreiöaframleið-
endur hafa sett um gæði og endingu olíu
fyrir nýjustu gerðir bílvéla.
Shell Super Plus myndar níðsterka húð,
sem verndar slitfleti vélarinnar allan eðli-
legan notkunartíma olíunnar. Vél varin
með Super Plus endist lengur og þarfn-
ast síður viðhalds.
Eiginleikar Shell Super Plus hæfa tíðum
hitasveiflum íslenskrar veðráttu. Fjöl-
þykktareiginleikar Super Plus gera
gangsetningu auðvelda í kulda, og veita
hámarksvernd við mesta álag, t.d. þegar
Einkaumboð fyrir „SHELL" vörur
kippa þarf í gang hjá kunningja.
Sérstök bætiefni Shell Super Plus gefa
olíunni styrk og þol til þess að standast
mikinn þrýsting og hita, sem myndast í
nýjustu bílvélum. Super Plus vinnur verk
sitt betur og lengur en nokkur önnur
Shell olía hefur áður gert.
Olíufélagið Skeljungur h.f.