Morgunblaðið - 07.08.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.08.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 11 Kvennréttindaráðstefna SÞ NÚ ER lokið ráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Kaupmannahöfn, um réttinda- og hagsmunamál kvenna. Þar átti að gera grein fyrir úttekt á því hvernig réttindamálum kvenna hefur miðað síð&n á kvennaráðstefnunni í Mexíkó 1975. í fréttatilkynningu frá ís- lensku sendinefndinni segir að það sé einróma álit hennar að við afgreiðslu framkvæmda- áætlunarinnar og í miklum hluta umræðna á ráðstefn- unni, hafi málefni kvenna beð- ið lægri hlut fyrir ofurkappi þeirra þjóða, sem — eins og í Mexíkó — voru fyrirfram ákveðnar í að gera hana að vettvangi ágreiningsmála, sem aðrir telja að beri að leysa á öðrum vettvangi. Fyrir ráðstefnuna tóku Norðurlöndin upp samstarf sin í milli og fjölluðu um drög að framkvæmdaáætluninni sem undirbúningsnefnd SÞ lagði misrétti, „apartheid" og aðrar undirokunarstefnur. Hitt er í grein um aðstoð við Palestínu- konur, sem þingheimur hefði tvímælalaust stutt, ef ekki hefði jafnframt verið þar gert ráð fyrir „pólitískum" stuðn- ingi við PLO. ísland greiddi atkvæði gegn fyrrnefnda at- riðinu, en sat hjá við af- greiðslu þess síðarnefnda," segir í fréttatilkynningunni. Töluverðar deilur urðu um afgreiðslu þessara mála. Margar tilraunir voru gerðar til þess að samstaða næðist, „en fundarsköp voru misnot- uð,“ eins og Lise Östergárd, Málefni kvenna biðu lægri hlut fyrir pólitísku málþófi Sendinefndir arabarikjanna og fleiri landa ganga hér af fundi ráðstefnu SÞ um kvenréttinda- mál, þegar Jihar, eiginkona Sadats forseta Egyptalands, hóf mál sitt á fyrsta degi ráðstefn- unnar. fram. Á meðan á ráðstefnunni stóð voru starfandi tvær nefndir sem unnu að samræm- ingu tillagna á þinginu, þannig að sem best samstaða næðist. „Um tvö atriði náðist þó ekki samkomulag. Hið fyrra er í inngangi framkvæmdaáætl- unarinnar, þar sem zíonismi, frelsishreyfing gyðinga, er lögð að jöfnu við kynþátta- ráðherra og forseti ráðstefn- unnar komst að orði, svo að úrslitin hlutu að verða þau sem PLO og aðrir fulltrúar arabaþjóða stefndu að. Var áætlunin afgreidd með 94 at- kvæðum gegn 4, en 22 ríki sátu hjá, þar á meðal ísland. í sérstakri bókun þar sem ísland gerði grein fyrir afstöðu sinni segir m.a. „Sendinefnd íslands þykir leitt að sjá að í annað sinn, fyrst í Mexíkó og nú í Kaupmannahöfn, er verið að nota kvennaráðstefnu Sam- einuðu Þjóðanna á pólitískan hátt með því að taka fyrir mál, sem að okkar mati ber að fjalla um á allsherjarþingi SÞ.“ Þá er harmað að ekki skuli hafa verið hægt að sam- þykkja framkvæmdaáætlun- ina einróma og látinn er í ljós efi um að ástæða sé til að sækja þriðju ráðstefnuna af þessari tegund. Auk framkvæmdaáætlunar- innar voru samþykktar fjöl- margar ályktanir um einstök mál og málefni einstakra þjóða, sem ættu að létta bar- áttuna gegn misrétti því, sem konur eru víða beittar. Við setningu ráðstefnunnar afhentu konur frá Norðurlönd- unum Kurt Waldheim, fram- kvæmdastjóra SÞ, ákall um frið, undirritað af sjö þúsund konum. Á meðan ráðstefnunni stóð undirritaði Einar Ágústs- son, fyrir Islands hönd, sátt- mála SÞ um afnám hverskyns misréttis gagnvart konum. Samnorræn könnun á samgöngum í dreifbýli í FRÉTT frá samgönguráðu- neytinu segir, að unnið sé að könnun á vegum Norrænu emb- ættisnefndarinnar, um sam- göngur í dreifbýli á Norður- löndunum. Verkefni nefndar- innar er að finna leiðir til þess að bæta samgöngur á dreifbýl- issvæðum og hefur nefndin sett sér það markmið að kanna ólíkar samgöngulausnir í fyrir- fram ákveðnu samfélagsformi og reyna slíkar lausnir á til- raunasvæðum á Norðurlöndun- um fimm. Valin hafa verið fimm tilraunasvæði, eitt i hverju Norðurlandanna. ís- lenska tilraunasvæðið er Norður-Þingeyjarsýsla. Áður en hægt verður að gera þá samgöngutilraun sem til stendur þarf að afla upplýsinga um ferðaþarfir íbúa tilrauna- svæðisins, og stóð sú könnun vikuna 27. júlí til 2. ágúst. Ferðakönnun þessari er skipt í tvo meginhluta. Annars vegar er um að ræða ferðadagbók, þar sem þátttakendur eru beðnir að skrá niður ferðir sínar umrædda viku og hins vegar upplýsinga- öflun, þar sem leitað er álits íbúa viðkomandi svæðis á þeirri samgönguþjónustu, sem fyrir hendi er, bæði innan svæðisins og til og frá því. Af þessu tilefni hafa verið sendir könnunarseðl- ar á hvert heimili í N-Þingeyj- arsýslu. Formaður íslenska vinnu- hópsins er Sigtryggur Þorláks- son, bóndi Svalbarði í Þistilfirði. ÚTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66- Karnabær Glæsibæ Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði -Eplið Akranesi - Eplið Isafirði -Cesar Akureyri Component Car Stereo • ■ kilometrum a undan W: I r" ?■ Þegar kemur að hljomgæðum hafa PIONEER bíltækin þá yfirburði, að við getum fullyrt að þau eru mörgL... kílómetrum á undan öðrum bíltækjum. W120 ÖfÖPIONCECEn loiniMmrnl Iar Slrmi HLJÓMTÆKJADEILD KARNABÆR LAUGAVEG 66 SÍMI 25999

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.