Morgunblaðið - 07.08.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 07.08.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 PLO gengur á milli í Líbanon Beirut 6. átníst AP. SKÆRULIÐAR Palestínumanna sögðust i dag ætla aö gripa i taumana í stríðinu, sem geisar á milli fylgismanna íraka og Irana í Libanon. Tilkynningin kom i kjölfar frétta um brottnám og morð á klerki úr röðum shita í Khomeini úthrópaður sem villu- trúarmaður Rahat. Marokkó 6. ágúst — AP ÆÐSTARÁÐ marokkanskra presta og guðfræðinga úthrópaði i dag Ayatollah Khomeini sem villutrúarmann og guðiastara. Ráðið hvatti alla múhameðstrú- armenn til að „rísa sem einn maður gegn Khomeini, sem hefði drýgt þá höfuðsynd að rugla saman guði almáttugum og dauð- legum manni og taka sér, i krafti þess, völd sem skaparanum ein- um bæru“. Klerkarnir vísuðu til yfirlýs- ingar, sem Khomeini á að hafa látið frá sér fara nýlega, þar sem hann segir, að „öllum spámönnun- um, að Múhameð ekki undanskild- um, hafi mistekist ætlunarverk sitt vegna þess að þeir hafi ekki komið á alheimsfriði. Það megi þó enn takast, en aðeins spámanni sem enn er ókominn". Suður-Líbanon og sprengingar á skrifstofum dagblaðs í Beirut. Sameiginleg nefnd Frelsissam- taka Palestínumanna og vinstri- sinnaðra stuðningsmanna þeirra í Líbanon kom saman í gærkvöldi til að ræða versnandi ástand í þeim hluta Líbanons, sem mú- hameðstrúarmenn byggja. Ákveð- ið var að koma á fót herafla til að halda aftur af fylgismönnum íraka og írana og gefa þeim tækifæri til að leggja niður vopn. 150 manns hafa fallið í átökum þessara fylkinga og ráðist hefur verið á sendiráð ríkjanna og skrifstofur flugfélaga. PLO-samtökin, sem eiga vingott við hvorutveggja, íraka og Irani, óttast að vaxandi ókyrrð í Líban- on, sem er þeirra helsta bækistöð, verði vatn á myllu kristinna fal- angista, sem hafa lýst yfir stríði á hendur Palestínumönnum í Líban- on. Siles myndar útlagastjórn La Paz, Bóliviu 6. ágúst AP. FYRRVERANDI forseti Bólivíu, Hernan Siles Zuazo, tilkynnti i dag myndun útlagastjórnar og lýsti þvi yfir að hann væri rétt- kjörinn forseti þjóðarinnar. Herstjórnin í Bólivíu kom í dag í veg fyrir öll fjarskipti við umheim- inn í gegnum fjarrita og gervitungl og innanríkisráðherrann sagði frá því að tveir fréttamenn hefðu verið handteknir, gefið að sök að hafa sent „falskar fréttir" úr landi. Ungfrú ísland, Unnur Steinsson, ásamt ungfrú Hawaii, Simone Rerere Overman, í skoðunarferð í Manila þar sem þær keppa i fegurðarsamkeppninni Miss Young Interna- tional 17. ágúst. Reyndi að synda yfir Ermarsund — í f jötrum Dover, Enjflandi 6. ágúst — AP AMERISKUR ofurhugi, sem gerði sér vonir um að verða fyrstur manna til að synda yfir Ermasund bundinn á höndum og fót- um varð að gefast upp í dag eftir aðeins fjögurra mílna sund. Sundmaðurinn, sem tilraunina gerði, heitir Alan Jones og er frá San Diego í Kaliforníu. Áður en hann lagði í hann, sagði hann, að hann vonaðist til að geta, með þessu uppátæki sínu, hvatt aðra unga Bandaríkjamenn til dáða og „aukið þeim trú á mannlegum mætti". Ermarsundssundfélagið lét sér þó fátt um finnast og taldi að hér væri aðeins um ódýra auglýsingabrellu að ræða. Herstjórnin herðir tökin i Suður-Kóreu Kínverjar hætta við opinbera heimsókn Nýju-Delhi 6. ágúst AP KÍNVERSKI utanríkisráðherr- ann, Huang Hua, hefur frestað um óákveðinn tima heimsókn sinni til Indlands, sem ráðgerð var síðar á þessu ári. í tilkynn- ingu kinversku stjórnarinnar segir að ástæðan sé sú, að ráð- herrann sé „önnum kafinn“. í indversku dagblaði segir hins vegar, að Kínverjar vilji á þennan hátt láta i ljós óánægju sina með viðurkenningu Indverja á stjórn Heng Samrins í Kambódíu, sem þeir segja að muni skaða stöðu Indverja meðal hlutlausra ríkja. Seoul, 6. ágúst, AP. TALSMAÐUR Suður-Kóreu- stjórnar sagði í dag, að hand- teknir hefðu verið 16,599 manns, sem hann lýsti sem glæpa- mönnum, lausingjalýð og fjár- hættuspilurum. i sérstökum að- gerðum stjórnvalda til að „upp- ræta þjóðfélagsmein“. Talsmaður þjóðaröryggisnefnd- ar herstjórnarinnar sagði, að mál hinna handteknu færu fyrir her- dómstól. Flestir yrðu látnir sæta fjögurra vikna „endurhæfingu" en aðrir yrðu sendir í nauðungar- vinnu í sex mánuði, allt eftir því hve afbrotin væru alvarleg. Þjóð- aröryggisnefndin var sett á lagg- irnar í júní sl. eftir uppþotin sem urðu í Kwangju þar sem 189 manns biðu bana. Suður-kóreanskur herdómstóll dæmdi í dag 30 námumenn í fangelsi, allt frá hálfu öðru ári til fimm ára, vegna verkfallsóeirða í apríl sl. í óeirðunum féll einn lögreglumaður og 60 aðrir særðust þegar verkfallsmenn réðust á lögreglustöð og bækistöðvar námafyrirtækisins. Amnesty International, sem hefur verið meinað að kanna sannleiksgildi frétta um miklar handtökur og pyntingar á pólitísk- um föngum, skoraði í dag á s-kóreönsku stjórnina að reka af sér slyðruorðið og leysa úr haldi alla samviskufanga. Talsmaður samtakanna sagði að þetta væri í fyrsta sinn um „margra, margra ára skeið" sem sendinefnd frá samtökunum hefði verið meinað að koma til einhvers ríkis. Diplómatar handteknir Litmyndir eru okkar sérgrein! UMBOÐSMENN UM ALLT LAND ':■/ HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 GLÆSIBÆ S: 82S90 AUSTURVERI S: 36161 Berlin 5. áxúst. AP. VESTUR þýzkur dómstóll gaf í dag út handtökuskipun á hendur tveimur diplómötum frá írak. sem grunaðir eru um morðtil- ræði, og fyrir að hafa i fórum sínum án leyfis sprengjuefni og skotvopn. Lögreglan skýrði frá því að hér ættu í hlut fyrsti sendiráðsritari við sendiráð íraks í Berlín og bifreiðastjóri þess. Þeir voru handteknir til bráðabirgða skömmu fyrir helgi eftir að hafa afhent þriðja aðila tösku með mjög hættulegu sprengiefni og byssum. Segir lögreglan að þeir hafi ætlað að varpa sprengju inn á fund hjá kúrdískum stúdentum og hefðu getað orsakað dauða 35 manna. Skákmenn stof na nefnd til stuðn- ings Korchnoi Amsterdam, 6. ágúst — AP. STÓRMEISTARAR I skák og baráttumenn fyrir auknum mannréttindum hafa stofnað alþjóðlega nefnd til stuðnings sovéska stórmeistaranum Viktor Korchnoi sem hefur barist fyrir því að kona hans og sonur fái að fara frá Sovétríkjunum, að þvi er haft er eftir hollenskum félaga i nefndinni. Hella Rottenberg, ritari hol- lensku deildarinnar, sagði að nefndin hygðist krefjast þess við sovésk stjórnvöld með hjálp skáksambanda um allan heim, stjórnmálamanna og þinga, að þau leystu Igor, son Korchnois, úr fangelsi og leyfðu honum og móður hans að yfirgefa Sovét- ríkin. Korchnoi bað um hæli á Vest- urlöndum á árinu 1976 og býr nú í Sviss. Bellu konu hans og syni hans hefur verið neitað um brottfararleyfi og því borið við, að hann ætti eftir að gegna herþjónustu. Igor, sonur Korch- nois, fór í felur til að sleppa við herþjónustuna en var handtek- inn á siðasta ári og sendur í fangabúðir. „Mál Korchnoi-fjölskyldunnar er einkennandi fyrir hefndarað- gerðir rússneskra stjórnvalda gegn skyldmennum þeirra sem lúta ekki vilja yfirvaldanna í einu og öllu,“ sagði frú Rotten- berg. Hella Rottenberg sagði, að frumkvæðið að nefndinni hefðu haft ýmsir þekktir skákmenn, þ.á m. fyrrv. heimsmeistari, Max Euwe frá Hollandi, tékkneski stórmeistarinn Ludek Pachman, sem er í útlegð, og bandariski stórmeistarinn Walter S. Browne. Fyrir bandarísku deild- inni er Michael Sztein og þeirri vestur-þýsku Evgeny Gabovich, sovéskur stærðfræðingur sem er í útlegð og býr nú í Múnchen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.