Morgunblaðið - 07.08.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980
17
Kvikmyndun á „Punktur punkt-
ur komma strik“ hálfnuð
„Þögn, upptakan er aö hefjast.“ Og snögglega komst
dauöaþögn á hópinn sem rétt áöur haföi ætlaö allt aö æra.
Blaöamaður Morgunblaösins er staddur á æfingu, þegar
verið er aö kvikmynda lokaatriöi í kvikmyndina „Punktur
punktur komma strik", sem gerö er eftir samnefndri sögu
Péturs Gunnassonar.
Þaö er þriðjudagskvöld, og æfingin fer fram á Strandgöt-
unni í Hafnarfirðinum. Sunnanverðri götunni hefur veriö
lokað og gamla sjoppan er full af tæknimönnum og leikurum,
sem í þetta skipti eiga aö vera unglingar hangandi í sjoppu.
Þaö er auöséö á klæðnaðinum aö þetta á aö gerast í þann
mund sem bítlaæðið fræga gekk yfir.
Eins og margir eflaust muna fjallar skáldsagan um dreng
aö nafni Andri og hans uppvaxtarár. Andri er áhrifagjörn og
feimin persóna, en gæti vel átt sér staö í raunveruleikanum í
dag. Eftir aö Punktur punktur komma strik kom út sendi
Pétur Gunnarsson frá sér aðra bók sem nefnist „Ég um mig
frá mér til mín“, og er hún framhald af Punkti punkti.
Pétur situr nú enn viö skriftir, og er von á þriöju bókinni
bráölega.
Gamall str»tisvagn haföi veriö fenginn og geröur allur upp, en aöeins þeim megin sem nota átti hann.
Því sem m.a. þurfti aö breyta var aö vagninn var hannaður fyrir hægri umferð, en í myndinni ó aö vera
vinstri umferö.
„Andri er ekki
ýkja ákveðinn
og kannski
hægt að kalla
hann rolu“
Andri, sem í rauninni heitir Hallur
Helgason, stóö fyrir utan sjopp-
una og var niöurlútur og dapur á
svlp.
Blaöamaöur vék sér aö honum
og spuröi af hverju hann væri svo
dapur.
— Ég verö aö lifa mig inn í
hlutverkiö og í augnablikinu er ég
aö reyna aö vera á barmi ör-
væntingarinnar. Vinstúlka mín í
myndinni er mikiö slösuö.
— Hvernig fékkst þú hlutverk-
iö?
— Þaö var prófaö í skólanum í
kvikmyndina og svo var ég bara
vallnn.
— Veistu af hverju þú varst
endilega valinn?
— Nei, segir Hallur og brosir,
en ég fæ aö vita þaö eftir
tökurnar.
— Hefuröu leikið eitthvaö áö-
ur?
— í Veiöiferöinni lék ég Jón,
og svo lék ég líka í rokkóperunni
Gulldrengirnir sem sýnd var hér í
Flensborg.
— Hvaða álit hefurðu á
Andra? Finnst þér þú þurfa aö
breyta þér mikið til aö geta verið
Andri?
— Andri er aö mínu áliti ósköp
venjulegur unglingur. Hann er
meö „komplexa" út af ýmsu sem
skiptir í raun og veru engu máli.
Hann er ekki ýkja ákveöinn og
kannski hægt aö kalla hann rolu,
en samt er þetta aöallega feimni
held ég. Sjálfur er ég ekki eins
feiminn og Andri. Hann er einnig
í allt ööruvísi aðstæðum hvaö
mig snertir, gagnvart foreldrum
og systkinum. Ég hugsa aö ég sé
alveg jafn sveitalegur og hann og
kannski meira.
— Ef þú mættir ráöa Andra,
myndiröu breyta honum?
— Já ég myndi setja Andra í
slipp, eða þ.e.a.s. láta hann í
allsherjar endurbætur.
— Hyggstu kannski leggja
leikarastörf fyrir þig í framtíö-
inni?
— Þaö er aldrei aö vita, þar
sem þetta hefur nú gengiö svo
vel fram til þessa. Til að byrja
meö stefni ég í stúdentinn.
— Er þessi myndataka
frábrugðin hinum myndunum
sem þú hefur leikiö í?
— Já, þaö er eiginlega hægt
Þaö er ekki hægt aö sjá á
svipnum á Andra aö hann sé á
barmi örvæntingarinnar
aö segja þaö. Tímasetningin er
allt ööruvísi og þaö kostar alls
konar aukavinnu, þ.e.a.s. myndin
gerist á svo mörgum árum.
Andrea Salomonsson leikur Betu,
sem á aö vera „ofboösleg pæja“
og bíða þess að einhver gæi komi
og „kássist upp á hana“.
„Myndi ekki
nenna að greiða
mér svona
að staðaldri“
Andrea Salomonsson sem er
fimmtán ára, leikur Betu, sem á
aö vera „ofboösleg pæja“ og
biöa eftir því í sjoppunni aö
einhver strákur komi og „kássist
upp á hana“.
Hvernig fékkst þú hlutverkiö,
Andrea?
— Ég var hjá vinkonu minni og
þar var fólk sem vildi endilega fá
mig í þetta. Annars bý ég í
Svíþjóö og er bara hérna í
sumarfrfi.
— Hvernig líst þér á hlutverk-
iö?
Bara vel, en aldrei myndi ég
nenna að greiða mér svona aö
staöaldri. Ef maöur heföi veriö
uppi á þessum tíma heföi maöur
ekkert gert annaö en aö greiöa
sér.
— En fötin, heldurðu aö þú
myndir vilja ganga svona dags
daglega?
— Nei, þaö held ég ekki.
Dýrasti liðurinn við myndina eru
launagreiöslurnar og kostnaður
við leikarana.
Áætlaður
kostnaður við
myndina nemur
100 millj. kr.
ÞORSTEINN Jónsson sem er
yfirmaöurinn á staönum sagði
aöspuröur aö kostnaöurinn við
myndina næmi um 100 milljónum
króna eöa þaö væri a.m.k. áætl-
aöur kostnaöur viö hana. Þessi
kvikmyndataka er hálfnuö og
hefur fram til þessa gengið mjög
vel, en í allt veröum viö í sjö vikur
aö kvikmynda.
— Hver er dýrasti liöurinn viö
myndina?
— Ætli þaö séu ekki launa-
greiöslurnar og kostnaöur leikar-
anna.
— Er miklu breytt í handritinu
frá bókinni?
— Já, töluveröu hefur veriö
breytt, en ég hef átt fulla sam-
vinnu viö Pétur í því sambandi.
Og eins og ég sagöi áöan,
hefur allt gengið mjög vel, og
leikararnir og starfsfólkiö veriö
mjög samvinnuþýtt.
Ég væri alveg til í að láta kalla mig
Dodda alltaf.
„Þar gat ég
alveg rifið
kjaft eins og
ég vildi“
EFTIR Strandgötunni kemur
strákur hjólandi á fullri ferö.
„Doddi er
miklu meiri
töffari en Andri“
Einar Hjaltason heitir sá sem
nú tekur viö hlutverki Dodda af
Hafsteini. Hann sagðist hafa ver-
iö aö skemmta sér um verzlun-
armannahelgina í Galtalæk, og
Þessi strákur heitir Hafsteinn
Ingimundarson og lék Dodda
þegar hann var lítill, en hans
hlutverki er nú lokið og stærri
eöa réttara sagt eldri strákur
tekinn viö.
— Hvernig er að leika
Dodda?
— Það er alveg ágætt. Hann
er dálítill prakkari og rífur ofsa-
legan kjaft. Hann er dálítið
skemmtileg persóna.
— Breytast krakkar eitthvaö
gagnvart þér þegar þú ert farinn
að leika í kvikmynd?
— Já sumir. Stundum er
hringt heim til mín og spurt hvort
Doddi sé heima. En ég væri alveg
til í aö láta kalla mig Dodda alltaf.
— Hvenær var skemmtilegast
aö leika Dodda?
— Þaö var lang skemmtileg-
ast þegar ég var í afmælinu. Þar
gat ég bara alveg rifiö kjaft eins
og ég vildi. Þaö var sko gaman.
— Saknaröu ekki fólksins
hérna?
— Jú dálítiö, en þaö er ágætt
aö koma svona í heimsókn.
— Fékkstu gott kaup fyrir
þetta?
— Já alveg ágætt. Ég ætla aö
láta þaö á vaxtaaukareikning
þegar ég fæ þaö.
— Gætiröu hugsað þér aö
gerast leikari í framtíðinni?
— Þaö getur vel verið aö ég
gæti hugsaö mér aö veröa leik-
ari.
þá heföi sér boöist hlutverkiö. Þó
hann heföi veriö í fastri vinnu
fyrir hjá kaupfélaginu í Hafnar-
firöi, heföi hann hætt þar strax,
því þetta væri svo spennandi.
— Hvernig er Doddi núna?
— Hann er góöur vinur Andra.
Doddi er hress og að sumu leyti
held ég betri karakter. Einnig er
hann miklu meiri töffari en Andri.
Texti Guðbjörg Guðmundsdóttir Ljósm. RAX
Doddi er hress og að sumu leyti betri „karakter“.