Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.08.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1980 vl MORÖdK/ KArFINÚ @ (5f?i Ég hef aldrei áður séð krana með sultardropa. I*ú þarft ekki að leita að lykla- kippunni — mamma opnar! Er þetta nú ekki fulllangt genKÍð — fyrir veiðimann? Ósannindum vísað á bug BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Að setja sig í spor félaxa síns ok hjálpa honum í vörninni er án alls vafa eitt besta heilræði, sem ha'Kt er að Kefa áhuKasömum spilurum. Enda þótti það á sínum tima besta ábendinKÍn, sem fram kom i heilræðasamkeppni Bols- fyrirtækisins á sinum tima. Ilér er K<>tt dæmi. Norður gaf, a—v á hættu. Norður S. KDG102 H. ÁG62 T. K42 L. D Austur S. Á973 H. 107 T. 7 L. Á86432 i. 84 I. KD984 '. G9863 ,. K Norður hóf sagnir með 1 spaða, austur saKði pass, suður 2 hjörtu, sem norður hækkaði beint í 4 hjörtu. Útspil laufgosi. Fyrsta slaginn tók austur með ásnum og hann sá í hvelli, að vestur varð að eiga tígulásinn. Hann spilaði því einspilinu og vonaðist til að fá að trompa í næsta slag. Reyndar gat vestur hæglega tekið á ásinn og spilað aftur tígli. En dæmið var bara ekki svo einfalt. Þegar suður lét áttuna var alveg eins líklegt, að austur hefði spilað hærra spilinu af tveim tíglum. Hann var sem sé í vafa, vissi ekki hvor var betri, brúnn eða rauður og valdi vitlaust. I von um að austur ætti hjartak- óng valdi vestur að láta tíuna. Hefði sú verið raunin gat austur spilað aftur tígli og síðan trompað þriðja tígulinn. En þegar austur fékk seinna á spaðaásinn átti hann hvorki tígul né tromp og sagnhafi gat ómögulega komist hjá að vinna sitt spil. Eftir spilið var austur ekki sáttur við, að vestur skyldi ekki leyfa tígultrompunina. En hann sá brátt og skildi aðstöðu vesturs. Og stuttu seinna var málið komið á hreint. Austur hefði betur tekið á spaðaásinn áður en hann spilaði einspilinu. Þá gat vestur ekki verið í vafa. Fjórði slagurinn varð að fást með tígultrompun. Vestur S. 65 H. 53 T. ÁD105 L. G10975 COSPER Svanlaug Löve skrifar: „Ósæmilegar árásir á íslenska dýralækna hafa um allangt skeið tíðkast í dagblöðunum. í það er látið skína, að þeir annist sín störf ekki nema að takmörkuðu leyti, þannig að smádýrin verði þar mjög útundan og lítið annað sé gert en að deyða þau, þegar þau verða veik. Slík sé þjónusta dýra- lækna í þeim efnum. • Daninn bjargaði í neyð Grein af þessu tagi birtist í Þjóðviljanum nú í byrjun ágúst- mánaðar, eftir Jórunni Sörensen. Er framangreindum/ullyrðingum haldið þar fram. Hins vegar er farið mjög lofsamlegum orðum um danskan dýralækni, sem nú starfar við Dýraspítala Watsons. Er getið allmargra atvika varð- andi smádýrin, þar sem þessi sami læknir hafi bjargað í neyðartil- fellum og þannig komið í veg fyrir að lóga þyrfti dýrunum. Er að sjálfsögðu gott eitt um þetta að segja. • íslenskir dýra- læknar ávallt reiðubúnir En það eru ósannindi, sem ég vil ekki láta ómótmælt, að íslenskir dýralæknar séu lítt eða ekki fáan- legir til að sinna smádýrunum í veikindatilfellum og leggi vart annað til slíkra mála en að dýrin séu deydd. Sem formanni Katta- vinafélagsins er mér mál þetta allvel kunnugt, því að ég hef verið svo lánsöm að njóta læknisþjón- ustu og velvildar þessara manna. Þar sem kettir hafa jafnan fylgt mér um ævina, hef ég um áratugi notið hjálpar íslenskra dýralækna og er reynsla mín af þeim slík, að ekki verður á betra kosið. Hvort sem ég hef þurft að leita til þeirra á nóttu eða degi, hafa þeir jafnan verið reiðubúnir til hjálpar smá- dýrunum. Og reynsla mín er sú, að þeir séu mjög vel færir í sínu starfi og leysi vel af hendi hvers Ljóðabók Þorsteins Sveinssonar Nýkomin er út falleg ljóða- bók eftir Þorstein Sveinsson lögmann, sem hann nefnir Gengin spor. í bók þessari kennir margra grasa, því að þarna er að finna sýnishorn af ljóðum hans frá því að hann var unglingur og allt til þessa dags. Þarna er að finna ástaróð hins unga manns, gamanvísur, afmælisljóð og brot af trúarreynslu þrosk- aðs hugar, svo að eitthvað sé nefnt. Bókin er öll mjög læsileg, Ijóðin auðskilin, ekki hjúpuð í neinn myrkvið, eins og sumum skáldum er títt að búa ljóð sín í, heldur hrein og tær. Oft er slegið á létta strengi, en þar er jafnan græskulaust gaman á ferð. Já, yrkisefnin eru marg- vísleg. Ég kem niður á ljóð, sem heitir Borgin mín, ef til vill er nafn bókarinnar tengt þessu ljóði. „Þú borg, sem geymir gleymdu sporin mín og grófst í strætin gleði mína og sorg. Þitt barn er ég. já, barn sem leitar þin þótt baði regn og sól þin slitnu torg.“ Það er mér gleðiefni að finna, hve ylur trúarinnar er vermandi í þeim ljóðum, sem Þorsteinn slær á þá strengi í. í ljóði, sem nefnist Jólin 1972 er þetta stef: Já, bænir minar blessar þú i kvöld og berð mér Ijós og yl frá þinni sól, sem meinin læknar manna öld af öld þvi marga huggar ljóssins dýrðar jól.“ Þorsteinn er mikill félags- hyggjumaður og hefir tekið þátt í margvíslegum félags- störfum. Bera Ijóð hans því vitni. En það, sem einkennir ljóð hans ef til vill allra mest er það, að góður andi og göfugur svífur þar yfir vötn- Þorsteinn Sveinsson um, og óhætt er að segja, að mörg ljóðanna byggja upp, en éngin rífa niður. Að ytra útliti er ljóðabókin einkar vel úr garði gerð, raunar óvenju- lega smekkleg. Rósa Ingólfs- dóttir hefur hannað hana og myndskreytt. Bókin er ekki seld í bókabúðum, en fáein eintök eru enn til hjá höf- undi. Ragnar Fjalar Lárusson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.