Morgunblaðið - 24.08.1980, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980
Strandið við Kópasker:
Sjópróf á Húsa-
vík á þrið judag
SKOÐUN á saltskipinu Paciíic
River í Kópaskershöfn i fyrra-
kvöid leiddi i ljós, að skipið er
„anzi beyglað i botninn en ekki
Ieki“, eins og Pétur Sigurðsson
forstjóri LandhelgisKtczlunnar
orðaði það i samtali við Mbl. i
ííar. Axel Gislason, forstöðumað-
ur skipadeildar SÍS sagði að
skemmdir virtust minni, en menn
hefðu átt von á, en frekari
skoðun myndi fara fram i Húsa-
vikurhöfn og eftir hana yrði
ákveðið, hvort skipið þyrfti i
slipp eða ekki.
Axel sagði, að losað yrði úr
skipinu á Kópaskeri á mánudag og
síðan á Húsavík á þriðjudag og
reyndist svo, að skipið þyrfti í
slipp, færi það til þess á Akureyri.
Að öðrum kosti myndi skipið fara
ál Hvammstanga og losa þar.
Sjópróf vegna strandsins við
Kópasker fara fram á Húsavík á
þriðjudaginn. Skipið náðist á flot
aftur, þegar varðskipið Ægir var
komið á staðinn. Skipherra á Ægi
er Bjarni Helgason og heiðurs-
gestur um borð er Eiríkur Krist-
ófersson, fyrrum skipherra.
Akureyri:
Fagnaðarsamkoma
fyrir Jónas Þórisson
JÓNAS Þórisson kristniboði
er nýkominn heim frá kristni-
boðsstörfum í Eþíópíu eins og
sagt hefur verið frá í Morgun-
blaðinu. Á morgun, mánudag,
verður fagnaðarsamkoma
fyrir Jónas og fjölskyldu hans
í kristniboðshúsinu Zíon á
Akureyri, en Jónas er einmitt
frá Akureyri. Hefst samkom-
an kl. 20.30 og mun Jónas
segja fréttir frá kristniboðs-
starfinu í Afríku og segja frá
starfi sínu þar.
13 arnar-
ungar
á flögri
ÞRETTÁN hafarnarungar
eru um þessar mundir að
verða fleygir úr niu hreiðrum,
en varp misfórst hins vegar
hjá tólf arnarhjónum.
Hræ af einum erni fannst.
Var það ungur fugl 2—3 ára
gamall. Hafði hann lent í grút
í fjöru.
Ekki var unnt að gera kerfis-
bundna könnun á þessu ári á
arnarstofninum en tala full-
orðinna arna mun vera tæpir
áttatíu fuglar. Vitað er um
ellefu unga erni sem sáust það
sem af er þessu ári og síðan
þeir þrettán sem upp komust í
ár.
Þess má geta að 13. ágúst sl.
sást örn á flugi yfir Skjerja-
firði og flaug í austurátt.
Eins og sl. 16 ár hefur
Fuglaverndunarfélag íslands í
samvinnu við Náttúrufræði-
stofnunina haft eftirlit með
íslenzka hafarnarstofninum.
Ljósm. Mbl. Ágúst Ásgeirsson.
Borgarfjarðarbrúin ekki
vígð fyrr en á næsta ári
— VIÐ höfum lagt til að
Borgarfjarðarbrúin verði ekki
vigð formlega fyrr en hún
verður fullbúin næsta ár og
slitlag verður komið á vegina
að henni, sagði Snæbjörn Jón-
asson vegamálastjóri i gær.
— Það má heita að umferð sé
komin á brúna allan sólar-
hringinn. Við erum ennþá að
vinna við brúna en þeim fram-
kvæmdum lýkur innan
skamms. Eftir það verður um-
ferð um brúna alveg án hindr-
ana, sagði Snæbjörn.
Ráðinn hag-
fræðiráðu-
nautur for-
sætisráðherra
ÞÓRÐUR Friðjónsson hagfræð-
ingur hefur verið ráðinn til
starfa i forsætisráðuneytinu og
fengiö ótimabundið leyfi frá
störfum hjá Félagi islenzkra
iðnrekenda.
Þórður mun hefja starf sem
hagfræðiráðunautur forsætis-
ráðuneytisins í októbermánuði
næstkomandi.
16 ára, ölvaður
og á stolnum bíl
LÖGREGLAN í Reykjavík elti
síðastliðna nótt uppi 16 ára
gamlan pilt á stolnum bíl.
Pilturinn var ölvaður og öku-
réttindalaus. Hann náðist er
til áreksturs kom milli lög-
reglubíls og bílsins, sem pilt-
urinn hafði tekið traustataki.
Skemmdir urðu ekki miklar á
bílunum og meiðsli engin.
Ljósm: Kristinn ólafsson.
Einn hinna átta rallbíla, sem enn eru eftir i keppninni. Honum aka
þeir Bragi Guðmundsson og Matthias Sverrisson, og voru þeir i 4. sæti
en þeir voru ræstir frá Sauðárkróki i gærmorgun.
Ljómarallið:
Aðeins 8 af 17 bíl-
um eftir i keppninni
LJÓMARALLINU lýkur í dag, er kvöld. Bílarnir munu aka þangað í
Skoðanaskipti
í Reykjavík um
Madríd-fundinn
Á ÞRIÐJUDAG fara fram i
Reykjavik skoðanaskipti is-
lenzkra embættismanna undir
forystu Níels P. Sigurðssonar,
sendiherra og Roger Harrison,
fulltrúa bandariska utanrikis-
ráðuneytisins. Skoðanaskipti
verða um Madridfundina i vetur
en þeir eru framhaldsfundir um
framkvæmd Helsinkisamkomu-
lagsins.
Undirbúningsfundur undir
Madrídfundina hefst 9. september
en aðalfundahöldin hefjast 11.
nóvember. Væntanlega mun utan-
ríkisráðherra sitja aðalfundahöld-
in.
þátttakendur koma að Straums-
vik eftir langa og stranga ferð
um landið.
Síðar munu bílarnir svo aka að
Austurbæjarskólanum í Reykja-
vík, og verða þar um klukkan 18 í
röð, sá síðasti verður fyrstur, og
sigurvegararnir koma síðastir.
Alls fóru 17 bílar af stað í rallið,
en í gærmorgun klukkan níu, er
þeir voru ræstir frá Sauðárkróki,
voru 8 eftir.
Heimilissýningin í Laugardal:
4000 manns komu fyrsta daginn
ALLS komu um 4000 manns á
sýningu Kaupstefnunnar. Heimilið
'80, fyrsta dag sýningarinnar,
föstudag. t gær %r svo einnig
stöðugt fólksstreymi, og i dag
verður sýningin opin milii klukkan
13 og 23. Fjöldamörg fyrirtæki og
samtök sýna þarna framleiðslu
sina og þjónustu, tivóli er starf-
rækt fyrir yngri kynslóðina, á
svæðinu eru matsölustaðir og kaffi-
stofur, og mikið um að vera allan
timann.
Bjarni Ólafsson framkvæmda-
stjóri Kaupstefnunnar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
sýningin liti vel út að sínum dómi og
athygli vekti, að á þessari sýningu
væri fjölmargt sem ekki hefði áður
verið. Hér væri því alls ekki um
endurtekningu á fyrri sýningum að
ræða.
t tfvoli i Laugardal.
Að sögn Bjarna kostar eitt þúsund
krónur inn á sýninguna fyrir börn,
og þrjú þúsund krónur fyrir full-
orðna. Kostnaður við leiktækin í
tívolíinu er frá 300 krónum upp í
1700 krónur. Dýrust sagði Bjarni að
bílabrautin væri, þar kostar 1700
krónur fyrir hverjar 3 mínútur, en
tvö börn geta verið fyrir það gjald í
sama bílnum. í hringekjurnar kost-
ar 1500 krónur fyrir manninn í
svipaðan tíma, 800 krónur kostar í
flugvélabrautina, 500 krónur í
hestaekju, síðan minna í skotbakka
og önnur leiktæki. Bjarni sagði, að
tíminn i leiktækjunum væri miðað-
ur við venjur í Danmörku, en þó
væri hann rýmri hér. Alltaf er
miðað við lágmarkstíma, en stund-
um er unnt að fá að vera lengur,
sérstaklega ef minna er að gera.
Allt fyrir
öryggið
Hann Óli Þórðar hjá Um-
ferðarráði hlýtur að vera
ánægður með öryggisútbún-
aðinn hjá þessum knáa
kappa, sem Kristján Einars-
son ljósm. Mbl. rakst á á
förnum vegi i gær, enda
útbúnaðurinn allsráðandi svo
vart sér i ökutækin.
Nafn féll niður
í frétt í Mbl. í gær um falleg-
ustu garðana í Hafnarfirði féll
niður nafn Báru Magnúsdóttur,
sem er eigandi garðsins að Skers-
eyrarvegi 3c ásamt manni sínum
Jóni Gíslasyni. Garðurinn hlaut
viðurkenningu fyrir skrúðgarð.