Morgunblaðið - 24.08.1980, Page 20

Morgunblaðið - 24.08.1980, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980 Bilgreinasambandið 10 ára: Brenglað verðlagskerfið er að gera útaf við bílaverkstæðin — segir Ingimundur Sigíússon, formaður sambandsins, m.a. i samtali við Mbl. Bilaverkstæði heyra „ALLT tal um að bilainn- flutningur fari úr hömlu á þessu ári. á ekki við rök að styðjast,“ sagði Ingimundur Sigfússon, formaður Bil- greinasambandsins i samtali við Mbl„ en i gær var aðal- fundur sambandsins haldinn og á honum var þess minnst, að 10 ár eru liðin frá stofnun þess. „Til þss, að eðlileg endur- nýjun fari fram á bílaflota landsmanna þarf að flytja inn á bilinu 8—10 þúsund bíla og það er einmitt í þá tölu, sem innflutningurinn stefnir á þessu ári. I»á má ennfremur geta þess, að i dag eyðum við um 10% minna i bíla heldur en árið 1972. Það er m.a. vegna þess að samsetning innflutningsins er önnur. I dag eru keyptir minni, spar- neytnari og ódýrari bílar heídur en áður gerðist. Afskipti ríkisins af hinu verra Afskipti ríkisins af þessum málum, eins og reyndar flest- um málum í viðskiptalífinu, verða til þess eins að skekkja stöðuna til óhagræðis fyrir alla aðila, þegar til lengri tíma er litið. Það hefur til að mynda lítið upp á sig að setja á innflutningshömlur, því þá kemur einfaldlega flóðbylgja í kjölfarið. Þá má nefna það, að tekjur ríkissjóðs af bílum og umferð fara auðvitað hlutfallslega lækkandi ef um fækkun er að ræða. Hlutur tekna af bílum og umferð í heildartekjum ríkisins árið 1974 var um 18.7%, en þá var innflutning- urinn með'allra mesta móti. Strax árið eftir lækkar þetta hlutfall verulega, eða niður í 15.3%. Það fer síðan stighækk- andi næstu árin þar á eftir, eða 15.7% árið 1976, 16.8% árið 1977 og 18.8% árið 1978. Þessar tekjur ríkisins eru toll- ur, söluskattur og vörugjald af bílum, varahlutum, bensíni, olíu og viðgerðum auk þunga- skatts og skráningargjalds," sagði Ingimundur. fortíðinni til á Austurlandi Hver er staða bílaverkstæð- anna? — „Hún er vægast sagt heldur slök. Það er hreinlega ekki hægt að reka bílaverk- stæði við þetta brenglaða verð- lagskerfi, sem við búum við í dag, enda hafa fjölmörg bíla- verkstæði, ekki síst úti um land, lagt upp laupana. Það má reyndar segja, að bílaverk- stæði heyri fortíðinni til á Austurlandi og ástandið er mjög slæmt í Borgarfirði, því er bílskúrsmenningin orðin nær allsráðandi og hún hefur stóraukist hér á Stór-Reykja- víkursvæðinu. Það virðast allir reyna að losna við að borga söluskattinn, sem er orðinn óhóflega hár og það er kannski Bílar Umsjón: JÓHANNES TÓMASSON OG SIG- HYATUR BLÖNDAHL ekki svo óeðlilegt, en þegar til lengri tíma er litið hlýtur þetta að koma niður á neyt- endunum sjálfum. Það tekur lengri tíma að framkvæma viðgerðir og allar aðstæður til að framkvæma eru í engu sambærilegar við það sem þekkist á almennu verkstæð- unum. Þá er ókleift að keppa við verkstæði og áhaldahús ríkis og sveitarfélaga, sem ekki borga neinn söluskatt. Nú fyrst ég er farinn að tala um verðlagskerfið þá er ekki úr vegi að nefna það, að það er hreinlega ekki hægt að halda úti neinum varahlutalager við þessar aðstæður. Það hefur enginn maður efni á því að liggja með varahluti lengur og því verður að sérpanta þá í mjög mörgum tilfellum og verða þeir því mun dýrari fyrir bragðið, auk þess sem tækin stoppa, sem er það dýrasta. Það er mín skoðun, að ekkert nema frjáls verðmyndun geti komið þarna til, enda er það hagur allra,“ sagði Ingimund- ur ennfremur. Þá kom það fram hjá Ingi- mundi, að hagnaður fyrir skatt af bílaviðgerðum hefur verið breytilegur frá 1970, en þá var hann tæplea 4%. Þetta er vergur hagnaður fyrir skatt í hlutfalli við vergar tekjur fyrirtækjanna. Hann var svo á bilinu 3—5% á árunum 1971-1977, en árið 1978 gerð- ist það í fyrsta sinn, að hann var neikvæður um tæplea 2% og á síðasta ári og þessu verður þetta hlutfall væntan- lega enn lakara. Bílaskoðun aðalmál fundarins Aðalfundur Bílgreinasam- bandsins er eins og áður sagði haldinn í dag að Laugarvatni, og því þótti ekki úr vegi að spyrja Ingimund hver yrðu helztu mál aðalfundarins. — „Það má segja, að fyrir utan sérgreinafundi, þar sem vandamál hverrar greinar fyrir sig verða rædd, verða umræður um bílaskoðun aðal- mál fundarins. Steingrímur Hermannsson þáverandi dómsmálaráðherra skipaði á sínum tíma starfshóp til að gera tillögur í þessum efnum og hefur hann skilað áliti. Þar kemur m.a. fram sú tillaga að framvegis verði fólki sett það í sjálfsvald hvort það lætur skoða bíla sína í Bifreiðaeftir- litinu eða hvort skoðunin fari fram hjá hinum almennu verk- stæðum. Það er þó gert ráð fyrir því, að fólk mæti með ibíla sína til skoðunar hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins eftir fjögur ár og eftir átta ár og á hverju ári þaðaní frá. Þetta mál er nú í höndum Friðjóns Þórðarsonar, dómsmálaráð- herra, sem hefur sýnt málinu mikinn áhuga. Ég geri nú fastlega ráð fyrir því, að hann leggi fram frumvarp á Alþingi þegar í haust um málið og það nái fram að ganga í vetur," sagði Ingimundur. Að síðustu kom það fram hjá Ingimundi, að í Bílgreina- sambandinu eru nú um 170 félagsmenn, bílainnflytjendur, verkstæði og hjólbarðaverk- stæði svo eitthvað sé nefnt. Stjórn sambandsins skipa níu menn og hefur Ingimundur verið formaður þess sl. tvö ár, en setið í stjórn þess frá upphafi. Hann hyggst ekki gefa kost á sér til endurkjörs að þessu sinni. Aðrir í stjórn á síðasta kjörtímabili voru: Þór- ir Jónsson, varaformaður, Jón Hákon Magnússon, Sigurður Hansson, . Eysteinn Guð- mundsson, Brynjar Pálsson, Gunnsteinn Skúlason, Matthí- as Guðmundsson og Gísli Guð- mundsson. Innfluttir bilar standast ekki bandariskar öryggiskröfur: Japanskir bílar fá sér- staklega lélega einkunn BANDARÍSKA samgönguráðu- neytið sendi i vikunni frá sér skýrslu um öryggi fólksbíla á Bandaríkjamarkaði. Það at- hyglisverðasta i niðurstöðum skýrslunnar er, að 10 af 11 smábilum, sem athugaðir voru og eru framleiddir ýmist i Evrópu eða Japan. standast ekki öryggiskröfur Bandarikja- manna. Það kom hins vegar fram, að bandarisku milli- og smábilarnir standast þessar kröfur nær undantekninga- laust. Á fundi með fréttamönnum, þar sem skýrslan var kynnt var Joan Claybroook, ráðuneytis- stjóri, mjög harðorð i garð framleiðendanna frá Japan. — „Þeir hugsa greinilega bara um útlitið, en láta öryggismálin lönd og leið“. Ráðuneytisstjórinn sagði það alveg ljóst, að dauðaslysum í umferðinni í Bandaríkjunum myndi fjölga verulega á næst- unni með stöðugt auknum inn- flutningi smábíla, sem ekki stæðust lágmarksöryggiskröfur. Hún nefndi sem dæmi, að væru lagðir 5 til 15 dollarar í endur- bætur á öryggisbúnaði margra innfluttu bílanna, myndu þeir strax verða öruggari. Við athugunina var bílunum ekið á 56 kílómetra hraða á steinvegg og eini erlendi bíllinn sem stóðst kröfurnar var Fiat Strada. Þeir, sem ekki stóðust voru Honda Civic, Toyota Cor- olla Tercel, Datsun 310, Subaru GLF, Honda Prelude, Toyota Corolla, VW Rabbit, Audi 4000, Mazda 626 og Datsun 200 SX. í skýrslunni segir, að ökumenn þessarra bíla hefðu hlotið mjög alvarleg meiðsl við þessar að- stæður, en við athugunina voru notaðar sérsmíðaðar dúkkur. Þeir bandarísku bílar, sem prófaðir voru og stóðust, voru allir af 1980 árgerðinni eins og innfluttu bílarnir. Þeir voru: Chevrolet Citation, Pontiac Phoenix, Oldsmobile Omega, Bu- ick Skylark, Ford Mustang, Mercury Capri, Plymouth Horiz- on og Dodge Omni. Ráðuneytisstjórinn sagði, að með mjög litlum tilkostnaði mætti bjarga 10—13 þúsund mannslífa á ári, bara ef áhugi væri fyrir hendi hjá framleið- endum þessara bíla. w KAUPMENN- VERSLUNARSTJORAR AVEXTIR IKUNHAR Appelsínur — Sítrónur — Greipaldin — Epli, græn — Bananar — Melónur gular — Vatnsmelónur — Plómur — Ferskjur —> Vínber græn EGGERT KRISTJANSSON HF Sundagörðum 4, simí 85300 Verkfall hjá Times London, 22. ásúst. AP. BLAÐAMENN við Lundúnar- blaðið Times hófu i dag verkfall til stuðnings kröfum sinum um 21% launahækkun. Framkvæmdastjóri blaðsins sagði í dag að ákvörðun blaða- manna um að hefja vinnustöðvun væri „rothögg" fyrir útgáfu blaðs- ins. Stjórn blaðsins hefur boðið blaðamönnum 18% kauphækkun, en blaðamenn ákváðu á fundi fyrr í dag með 117 atkvæðum gegn 54 að hafna boðinu og hefja verkfall. Stjórn blaðsins mun koma saman til fundar á sunnudag og ræða það ástand sem nú hefur skapast. Formaður brezka blaðamannafé- lagsins sagði í dag, að allt tal um að útgáfu blaðsins yrði endanlega hætt væru „innantómar hótanir".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.