Morgunblaðið - 24.08.1980, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1980
Svíþjóðarfarar — athugiö
Til sölu og útflutnings er Ford Granada Station 1977 ekinn nær eingöngu á
sænskum vegum. Er á sænsku númerl og selst ótollaöur til utanfarar á 2.5
millj. (6 Mkr. viröi hérlendis) Hugsanleg skipti á minni bíl. Elnstakt tækifæri
fyrir þig sem ert á leið til dvalar aö taka meö þér bíl. Uppl. í síma 18492.
Sýningin stendur yfir frá 23. ág. — 7. sept.
Glæsilegar ítalskar
eldhúsinnréttingar
Höfum opnaö sýningu á ítölskum eldhúsinnréttingum
og allskonar húsgögnum í verzlun okkar aö Skaftahlíö 24.
Opið í dag kl. 1—7.
Komiö og skoöiö glæsilega hönnun í húsgagnagerö.
Húsgagnamiðstöðin
Skaftahlíð 24, sími 31633.
Rússnesk kona um Afganistanmálið:
„Þetta verður
einsog
stríðið
í Víetnam“
ÞRÁTT fyrir tilraunir sov-
éskra yfirvalda til þess að
leyna sovésku þjóðina hrak-
förum rússneska hersins í
Afganistan, er nú aö renna
upp fyrir yfirvöldum í
Kreml, að stríðsreksturinn
hefur valdið talsverðum
óróleika heimafyrir. Engar
áreiðanlegar tölur liggja
fyrir um mannfall, en and-
ófsmaðurinn Andrei Sak-
arov hefur sagt að „þúsund-
ir“ sovéskra hermanna hafi
Iútið lifið. Ættingjar og vin-
ir hermanna hafa einnig
orðið óþægilega varir við
mannskaðann og Ijóst er að
fjöldi fallinna er mikill.
Starfsmenn í sendiráðum
Evrópuríkja í Moskvu segja,
að fallnir hermenn fái ekki
lengur heiðursútför, eins og
tíðkast hefur hingað til.
Þetta er gert að því er virðist
til þess að dylja fyrir al-
menningi hve mannskaðinn
er mikill. Særðir hermenn
eru einnig fluttir í stórum
hópum til Austur-Þýska-
lands, í sama tilgangi, að því
er talið er.
„Um alla Moskvuborg
heyrir maður nú í fyrsta
skipti íbúana hvísla og
spyrja hvern annan um hvað
sé í ráun og veru á seyði í
Afganistan," segir kaup-
sýslumaður frá Evrópu.
Margir Vesturlandabúar,
sem komu til Moskvu meðan
Ólympíuleikarnir stóðu yfir,
sögðust hafa heyrt fólk
kvarta og lýsa yfir óánægju
sinni með stríðsreksturinn í
Afganistan og oftast hóf
fólkið máls á þessu að fyrra
bragði.
Blaðamaður varð vitni að
einu slíku samtali og sagðist
hann hafa hlustað á hóp
fólks ræða Afganistan málið
mjög opinskátt og hefði fólk-
ið verið áhyggjufullt og því
verið mikið niðri fyrir. Fyrst
talaði ung kona og eftir
stutta vangaveltu um hunds-
un Vesturlanda á Ólympíu-
leikunum sagði hún: „Við
hefðum aldrei átt að leggja
út í stríðið í Afganistan.
Aldrei. Það á eftir að dragast
á langinn í mörg ár og þetta
voru mistök frá upphafi.
Þetta stríð verður eins og
stríðið í Víetnam." Þegar
einhver benti á, að bráðum
færu að koma þúsundir lík-
kistna með föllnum her-
mönnum heim til Sovétríkj-
anna, sagði hún með „titr-
andi rödd“. „Bráðum — hvað
átt þú við? Þúsundir her-
manna hafa þegar verið
sendir heim í líkkistum og
þetta er aðeins byrjunin."
Blaðamaðurinn átti einnig
samtal við mann, sem starf-
aði við öryggisgæslu á
Ólympíuleikunum: „Tveir
vinir mínir hafa verið drepn-
ir í Afganistan,“ sagði hann.
„Annan þeirra hafði ég þekkt
frá barnæsku og hann átti
unga dóttur eins og ég. Þegar
ég lít á dóttur mína verður
mér hugsað til vinar míns og
þá velti ég því fyrir mér
hvort það hafi verið rétt af
okkur að eignast börn. Það er
ægilegt fyrir lítil börn að
vita, að feður þeirra þurfi ef
til vill að vera sendir í stríð."
„Röddin var reiðileg og
orðunum fylgdi fyrirlitning
og viðbjóður," sagði blaða-
maðurinn. Maðurinn sagði,
að hingað til hefði verið
skráð á legsteina fallinna
hermanna: FÉLL FYRIR
FÖÐURLANDIÐ, en nú fyrir
þá sem falla í Afganistan,
væri skrifað: FÉLL FYRIR
ALÞJÓÐA HEILL. „Hvað
meina þeir með alþjóða
heill? Ekki veit ég það. En
þetta skrifa þeir á legstein-
ana.“ Fyrirlitningarsvipur-
inn kom aftur fram á andlit
hans. (The Times).
Loksins hefur okkur tekist að finna fullkomió, nýtískulegt og
vandaö litsjónvarpstæki á lægra verði en aðrir geta boöið.
STÆRÐ VERO STAÐGR.VERÐ STRAUMTAKA
20 t. 670.000,- 636.500.- 85 wött
22 t. 730.000,- 693.500,- 85 wött
26 t. 850.000.- 807.500,- 95 wött
BORGARTÚN118
REYKJAVÍK SlMI 27099
SJÓNVARPSBÚÐIN
model 1980