Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 218. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. íranskar þotur ráðast á kjarnorkustöð Iraka Bagdad. 30. septeraber. — AP. PHANTOM ÞOTUR íranska flughersins réðust í dag á kjarnorkurannsóknarstöð. sem Frakkar reka í Bagdad. en hæfðu ekki kjarnaofn íraka. sem þeir hafa fengið frá Frökkum að sögn franska sendiráðsins. Lítið tjón varð í árásinni og engan Frakka sakaði. Eldsneytisgeymar raforkuvers Bagdads urðu einnig fyrir árás og þykkan reykjarmökk Iagði yfir suðvestur- úthverfi borgarinnar eftir árásina. Sjónarvottar sáu nokkrar ír- anskar þotur skotnar niður með loftvarnaeldflaugum í árásunum á Ragdad í dag. Sagt var að 10 hefðu fallið og 85 særzt í loftárás á orkuver borgarinnar. íranir hafa ekki ráðizt á írösku kjarnorkumiðstöðina í stríðinu þar til nú. Jafnframt sögðu írakar að þeir hefðu hrundið gagnárásum í vesturhluta Irans, sem er á þeirra valdi, og íranska stjórnin hótaði sjóhernaði gegn öðrum þjóðum við Persaflóa. Iranska þingið hóf aftur umræður um gíslamálið og skipaði sjö manna nefnd til að kanna það. Iranska herstjórnin sagði, að sex íröskum skriðdrekum hefði verið grandað í Vestur-íran í dag. Hún sagði einnig, að 140 íröskum skriðdrekum hefði verið grandað í gær og fyrradag í hörðum átökum á norðurhluta vígstöðvanna ná- lægt Qasr-E-Shirin og 21 í viðbót á suðurhlutanum. írakar sögðu, að þeir hefðu tekið útvarpsstöðina í Ahvaz, höfuðborg Khuzestan, en íranar neituðu því að írakar hefðu náð sjálfri borg- inni. írakar sögðu, að þeir hefðu misst sex hermenn fallna, 15 særða og fimm týnda síðasta sólarhring. Loftárásin á Bagdad í dag var hin fyrsta síðan á laugardag og beindist að suðvesturborgarhlut- anum þar sem háskólinn er. Ráð- izt var á Dora-hreinsunarstöðina og nálægar herbúðir. Mannfjöldi fagnaði Mohammed Zia Ul-Haq Pakistansforseta þeg- ar Saddam Hussein ók honum um borgina. Zia kvaðst vongóður um friðsamlega lausn að lokinni ferð sinni til íraks og írans. ÍRAKSKUR hermaður ber slasaðan mann frá orkuveri sem eldur kom upp í eftir íranska loftárás í gær. Að minnsta kosti 10 Írakar biðu bana og 85 slösuðust. Sakar verkamenn um samningsbrot VarHjá. 30. september. — AP. KAZIMIERZ Barcikowski vara- forsætisráðherra sakaði leiðtoga óháðra pólskra verkalýðsfélaga í sjónvarpi i dag um brot á samn- ingunum um lausn verkfallanna fyrir mánuði með áskoruninni um allsherjarverkfall i einn klukkutima á föstudaginn og „óhóflegum launakröfum’*. Hann sagði. að þeir hefðu tilkynnt þetta erlendum áróðurs- miðstöðvum án þess að hafa fyrir þvi að láta fulltrúa stjórnarinnar vita. bessi ummæli eru hið fyrsta sem fram kemur i pólskum fjöl- miðlum um vinnustöðvunina. „Samstaða", verkalýðssamband Lech Walesa, ákvað að boða til stöðvunarinnar til að sýna mátt samtakanna og leggja áherzlu á kröfur um launahækkun og aðgang að fjölmiðlum. Walesa og stuðnings- menn hans sögðu, að þeir myndu hætta við verkfallið, ef háttsettur ráðamaður kæmi fram í sjónvarpi og héti því, að samningunum um lausn verkfallsins yrði framfylgt í hví- vetna. Barcikowski sagði, án þess að minnast á þetta skilyrði, að stjórn- völd væru staðráðin í að hrinda samkomulaginu í framkvæmd. Hann sagði þó, að Pólverjar ættu að spyrja hvort höfundar Gdansk- samkomulagsins hefðu „raunveru- lega áhuga á eðlilegu efnahagslífi og kjarabótum". Hann sagði, að verk- föllum „fylgdi alltaf tap og röskun í efnahags- og þjóðfélagslífi", en sam- félagið þyrfti skipulegt efnahagslíf og innanlandsreglu. „Því miður verð ég að segja, að ýmsir verkfallsleið- togar taka þessi sannindi ekki alvar- lega,“ sagði hann. Skömmu áður sagði ríkisútvarpið, að framkvæmdastjórn kommúnista- flokksins hefði boðað til allsherjar- fundar flokksleiðtoga hvaðanæfa að af landinu á laugardag til að ræða viðhorfin í lar.dsmálum. Því hefur verið spáð, að slíkur fundur muni kalla saman flokksþing síðar í ár til að fjalla um hinar víðtæku ákvarð- anir flokksforystunnar í kjölfar verkfallanna. Slíkt þing gæfi Stanislaw Kania flokksleiðtoga færi á að endurskoða forgangsröð aðkallandi mála og skipa stuningsmenn sína í trúnað- arstöður í stað stuðningsmanna Edvard Giereks. Jafnframt hófst nýtt háskólaár í dag, en námsmenn hafa hvatt til lýðræðislegra umbóta og valddreif- ingar í pólskum háskólum í anda baráttu verkfallsmanna. Kania hef- ur rætt við leiðtoga stúdenta. Svíar leita enn að kafbátnum Stokkholmi. 30. september. — AP. SÆNSKI sjóherinn hélt áfram leit sinni að erlenda kjarnorku- kafbátnum i skerjagarðinum nálægt Stokkhólmi i dag og hafði tiltækar djúpsprengjur til að varpa á hann. Nítján 50 til 100 kílóa viðvör- unar djúpsprengjum hefur verið varpað nálægt bátnum í þau fimm skipti sem hans hefur orðið vart síðan 18. september. Um 20 skip, þar á meðal tundurspillirinn Halland, og fjórar Vertol-þyrlur taka þátt í leitinni að kafbátnum, sem er annað hvort sovézkur eða pólsk- ur, en hann var ófundinn síðdeg- is í dag. Hans varð síðast vart á sunnudaginn. Erik Kornmark landvarnar- ráðherra samþykkti í gær, að djúpsprengjum skyldi beitt gegn kafbátnum og kallaði atferli hans „alvarlegasta brot á sænskri landhelgi“ frá stríðslok- um. Kafbáturinn mun leynast á 30 til 90 metra dýpi og reynt verður að varpa djúpsprengju í aðeins um 15 metra fjarlægð frá hon- um, þannig að hann verði fyrir svo miklu tjóni að hann neyðist til að koma upp á yfirborðið. Játað er, að áhættan sé mikil og djúpsprengjan geti farið of ná- lægt kafbátnum þannig að hann sökkvi. Bandarískar flugvélar til Saudi-Arabíu WashinKton. 30. septembor. — AP. Bandariska landvarnaraðu- neytið tilkynnti í dag. að fjórar bandariskar A W ACS-rats jár- flugvélar yrðu sendar til Saudi- Arabiu að beiðni stjórnarinnar þar. til að efla varnir landsins. Flugvélunum fylgja urn 300 bandarískir hermenn og flutn- ingavélar. Edmund Muskie utan- ríkisráðherra ræddi í dag við utanríkisráðherra íraks og lagði áherzlu á þann ásetning Banda- ríkjamanna að verja vini sína í Miðausturlöndum og hindra stig- mögnun stíðs íraks og írans. Utanríkisráðherra Egypta sagði á Allsherjarþinginu, að Egyptar væru reiðubúnir að verja ríki við Persaflóa gegn ógnunum við fullveldi þeirra. ísrael hótað New ^ork. 30. september. — AP. SÝRLENDINGAR hvöttu AIls- herjarþing SÞ í dag til að svipta ísrael sæti hjá samtokunum. en fulltrúar Araba, Bandaríkja- manna og tsraels sögðu að lítil líkindi væru til þess að tillagan yrði samþykkt. Jimmy Carter Bandaríkjaforseti varaði við því í gær, að hvers konar tilraun til að reka ísrael gæti stefnt framtíðaraðild Bandaríkjanna að SÞ í hættu. Utanríkisráðherra Sýrlands, Abd- ul Halim Khaddam, skoraði á Alls- herjarþingið í ræðu að endurskoða aðild Israels að samtökunum, þar sem landið hefði brotið sí og æ í bága við ákvarðanir þingsins og samtakanna, „skipulega og með þrákelkni“. Arabískur fulltrúi kvaðst ekki telja, að Sýrlendingar fengju nógu mörg atkvæði ríkja Þriðja heimsins til að útiloka Israel frá þinginu. Aðalfulltrúi Bandarikjanna, Donald McHenry og utanríkisráðherra Eg- ypta, Kamal Hassan Ali, tóku í sama streng. Ali sagði, að brottvís- un ísrael mundi stríða gegn friðar- þróuninni. Neyddir í herinn Nýju I>t*lhi. 30. soptoraber. — AP. UM 1200 afghanskir námsmenn hafa verið teknir með valdi i herinn siðustu daga samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Þriðjungurinn var tekinn úr Habibiya-gagnfræðaskólanum í Kabul. Þúsundir nemenda hróp- uðu vígorð þegar félagar þeirra voru skráðir til herþjónustu í skólanum. Þeir hrópuðu m.a.: „Dauði yfir Brezhnev”, „Dauði yfir Babrak Karmal" og „Dauði yfir Carter, sem selur Rússum Afgh- anistan".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.