Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 17 Erindi um umhverfismál VIÐ verkfræði- og raunvísinda- deild Háskóla íslands verða á næstu vikum flutt 10 erindi um umhverfismál. Til þeirra er stofnað fyrir nemendur i deiid- inni. en aðgangur er öllum frjáls, eins þeim. sem ekki eru nemend- ur i Háskólanum. Gert er ráð fyrir nokkrum umræðum á eftir hverju erindi. Umsjón hefur Ein- ar B. Pálsson. prófessor. og veitir hann upplýsingar. Erindin verða flutt á mánudög- um kl. 17:15 í stofu 158 í húsi verkfræði- og raunvísindadeildar, Hjarðarhaga 6. Þau eru ráðgerð svo sem hér segir: 29. september: Eysteinn Jóns- son, fyrrv. ráðherra: Maður og umhverfi. 6. október: Agnar Ingólfsson, prófessor í vistfræði: Ýmis undir- stöðuatriði í vistfræði. 13. október: Þorleifur Einars- son, prófessor í jarðfræði: Jarð- rask við mannvirkjagerð. 20. október: Ingvi Þorsteinsson MS, Rannsóknastofnun landbún- aðarins: Eyðing gróðurs og endur- heimt landgæða. 27. október: Arnþór Garðarsson, prófessor í líffræði: Rannsóknir á röskun lífríkis. 3. nóvember: Unnsteinn Stef- ánsson, prófessor í haffræði: Sjór- inn sem umhverfi. 10. nóvember: Jakob Björnsson, verkfræðingur, orkumálastjóri: Orkumál og umhverfi. 17. nóvember: Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, Hafrannsókna- stofnun: Auðlindir sjávar og nýt- ing þeirra. 24. nóvember: Árni Reynisson, framkvæmdastjóri Náttúruvernd- arráðs: Náttúruvernd í fram- kvæmd. 8. desember: Vilhjálmur Lúð- víksson, verkfræðingur, fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins: Verkfræðilegar áætlanir og valkostir. (Fréttatilkynning) Meira smygl finnst í Goðafossi VIÐ frekari leit tollvarða I ms. Goðafossi fundust 600 vodka- flöskur til viðbótar s.l. föstudag þegar skipið var komið til Reykja- vikur. Áður höfðu fundizt 460 flöskur af vodka i skipinu þegar leitað var i Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn eftir að Goðafoss kom að utan í siðustu viku. Að sögn Kristins ólafssonar tollgæslu- stjóra er verðmæti smyglvarnings- ins kringum 16,2 milljónir króna. Skipverjar, sem hafa viðurkennt að eiga smyglið eru þrír hásetar, matsveinn vélstjóri og bátsmaður. Þá sagði tollgæslustjóri það sér- stakt við þetta smyglmál, að þær 600 flöskur, sem fundust í skipinu í Reykjavíkurhöfn, hefðu verið faldar í mastri þess. Gat hafði verið rofið á mastrið og varningnum komið þar fyrir. Kvað hann með þessu öryggi hafa verið skert, en mastrið á að geta þolað ákveðinn þunga við átak bómunnar, en það væri mál skipafé- lagsins hvað gert yrði í sambandi við þetta atriði. Lítil ásókn í Ássókn RUNNINN er út umsóknarfrestur um prestsembættið í Ássókn í Reykjavík. Umsækjandi er einn, sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sóknarprestur í Ólafsvík. Árni Bergur er 39 ára gamall, sonur biskupshjónanna frú Magneu Þorkelsdóttur og dr. Sigurbjörns Einarssonar. VERKSMIDJU- SALA SAMBANDSVERKSMIÐJANNA SÝNINGAHÖLLINNIBÍLDSHÖFÐA 1.-11. OKTÓBER opnar í dag 0PIÐ FRÁ KL. 1-6. Strætisvagnaferðir fra Hlemmi meö leiö 10. Ullarteppi, teppi, teppabútar, áklæöi, gluggatjöld, buxnaefni, kjólaefni, ullarefni, sængurveraefni, Frá Torginu: Dömu-, herra- og barnafatnaður. Frá Fatav.sm. Heklu: Ulpur, gallabuxur, peysur, samfestingar, treflar og Tískuvörur úr ull, peysur, fóöraöir jakkar, prjónakápur, pils, vesti og ofnar Frá verskm. Skinnu: Mokkakápur, mokkajakkar, mokkahúfur, mokkalúffur. Einnig lítiö gallaðar vörur. Frá Ylrúnu: Sængur, eppi. koddar, svefnpokar, Frá skóverksm. Idunni: Karlaskór, kvenskór, unglingaskór og fóðraðir kuldaskór.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.