Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.10.1980, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 f Folk og fréttir í máli og myndum AC TORINO á í mestu vandræó- um með Paolo Pulici einn af sínum bestu leikmönnum. hann er alltaf í útistöðum við þjálfara liðsins. en aftur á móti einn vinsælasti leikmaður liðsins hjá stuðningsmönnunum. Hann er nefnilejta mesti markaskorari liðsins hefur skorað 120 mörk síðastliðin 10 keppnistímahil með liðinu. NÚ ER ákveðið að Nottinjjham Forest Evrópumeistararnir í knattspyrnu leiki um heims- meistaratitilinn á móti Suður- Ameríku-meisturunum Nacional Montevideo 14. okt í Nottingham og 25. okt í Montevideo. Allan Clarke sem nýtekin er við framkvæmdastjórn hjá Leeds er 30 ára gamall ok xjórþekkir allar aðstæður hjá félaginu. Ilann lék 273 leiki með Leeds á sínum tíma ok skoraði 110 mörk. 70 ár frá stofnun HSK Á ÞESSU ári cru liðin 70 ár síðan Iléraðssamhandið Skarphéðinn var stofnað. í því tilefni mun samhandið KanKast fyrir spurn- inKakeppni. milli aðildarfélaua. UM SÍÐUSTU helj?i lék Péle með liði Cosmos í tilefni þess að verið var að kveðja Frans keisara Beckenhauer, sem nú heldur til Ilambor)? S.V. i V-Þýskalandi. Péle sýndi snilldartakta í leikn- um ojí var hvað eftir annað klappað lof í lófa fyrir frammi- stöðu sína. Hann sýndi að það lifir len*?i í Kömlum Klæðum. BRASILÍUMAÐURINN Zico sem leikur með Flamen)?o, hefur óskað eftir sölu og hyKKst leika i Evrópu næsta keppnistímabil. Mor)? fra-K félöK eru nú þe»?ar á eftir honum, oj? liklegt þykir að spánskt eða italskt félag hreppi hann þar sem þau bjóða oftast bestu kjörin. RÚSSNESKI handknattleiks- þjálfarinn hjá Val, leggur mikla áherslu á góðan árangur hjá Val í Islandsmótinu og er hann með séræfingar fyrir leikmenn í há- deginu í Valsheimilinu. Þar eru æfðar skotæfingar og markmenn liðsins teknir vel í gegn. Keppni þessi fer fram víðsveg- ar um sambandssvæðið sem er Árnes- og Rangárvallasýslur. Nú er vitað að öll félögin. samtals 29, munu taka þátt i spurninga- keppninni. Auk spurningakeppn- innar verður spilað bingó, starf- semi héraðssambandsins kynnt. ýmis skemmtiatriði og dans að lokum. • ítalinn Chinaglia varð lang- markahæsti leikmaður i banda- risku knattspyrnunni i ár. Hann setti lika markamet i einum leik, skoraði sjö mörk. gamla metið var fimm mörk. Metið setti Chin- aglia í leik Cosmos á móti Tulsa. en með Tulsa leikur Jóhannes Eðvaldsson. Cosmos sigraði í Keppnin verður haldin í októ- ber og nóvcmber. Núverandi stjórn: Form. Einar Magnússon, Litlagerði 1, Hvols- velli, ritari. Ilelgi Stefánsson. Vorsabæ II. Gaulverjaba-jarhr. gjaldk., Kjartan Lárusson. Laug- arvatni. • Giorgio Chinaglia fagnar sjöunda marki sínu i leiknum á móti Tulsa. Hann hefur leikið á markmann Tulsa, Gene Ducha- teau ok leikmann no. 4. Jóhannes Eðvaldsson. leiknum. 8—1. Á myndinni hér að ofan fagna Beckenbauer og Van Der Elst kappanum eftir eitt markið. um, hlið við hlið, í Cheshunt, úthverfi London. Ardiles hefur lagt stund á lögfræði með knatt- spyrnunni og hefur lokið fjórum árum af sex í náminu. Faðir hans er lögfræðingur að mennt og rekur stóra lögfræðiskrifstofu í Buenos Aires. Þá er Ardiles mjög góður skákmaður og þykir slyngur að brjótast í gegn um varnir and- stæðinganna á skákborðinu ekki síður en á knattspyrnuvellinum. Sjálfur telur Ardiles ekki ólíklegt að hann snúi sér alfarið að pólitík þegar hann hættir að leika knatt- spvmu. Ardiles er að læra lögfræði Hann er af mörgum talinn einn besti leikmaðurinn í ensku deild- arkeppninni i knattspyrnu, og hann hefur sýnt að hann nær árangri bæði innan og utan vallar. Osvaldo Ardiles var keyptur til Tottenham frá Argen- tínu, hann bjó i Buenos Aires og lék með River Plate og var einn af lykilmonnum i sigri Argentínu í síðustu heimsmeistarakeppni i knattspyrnu. Nú býr hann í úthverfi London ásamt konu sinni og tveimur sonum. Þar kann hann vel við sig og fellur mjög vel inn í ensku knattspyrn- una. Ardiles og vinur hans Villa gerðu samning við Tottenham árið 1978 strax eftir að HM- keppninni lauk. Tottenham greiddi 750 þúsund pund fyrir hvorn þeirra. Og vist er að framkvæmdastjóri Tottenham gerði þar g(W) kaup. Keith Burk- inshaw hefur látið þau orð falla að þeir félagar séu ómetanlegir fyrir Tottenham liðið. Ardiles leikur áferðarfallega knattspyrnu, það er mýkt í öllum hans hreyfingum á vellinum og knattmeðferð hans er frábær, eins og hjá svo mörgum Suður-Amer- íku-leikmönnum. Þá Ardiles leikinn vel sem miðvaliarspilari og upphafsmaður að mörgum sóknar- lotum. Ardiles varð að hugsa sig lengi um áður en hann tók boði Tottenham. Hann hugsaði til um- mæla er Sir Alf Ramsey lét falla í heimsmeistarakeppninni 1966 um Argentínumenn, að þeir væru villimenn á leikvanginum. Og að það væri löng leið á milli knatt- spyrnunnar sem leikin væri í Suður Ameríku og Englandi. En hann lét undan eftir miklar fortöl- ur og skrifaði undir samning og sér ekki eftir því. Ardiles skrifaði í sumar undir nýjan samning við Tottenham til þriggja ára. Hann veit að landslið Argentínu þarf á honum að halda árið 1982 í heimsmeistarakeppninni á Spáni. Og Menotti þjálfari argentínska landsliðsins bæði á Villa og Ardil-* es að halda í þeirri keppni. Menotti hefur notað Villa og Ardiles í öllum landsleikjum Arg- entínu síðan HM-keppnin fór fram. I janúar á næsta ári fá þeir báðir frí til þess að fara til Argentínu og taka þar þátt í litlu HM-keppninni svokölluðu. En í henni leika Ítalía, V-Þýskaland,og Holland ásamt heimamönnum. Villa og Ardiles eru góðir félagar og búa í glæsilegum einbýlishús- • íþróttir eru vel til þess fallnar að hressa upp á hugann og likamann um leið. Fregnir herma að Caroline prinsessa hafi snúið sér að tennisleik af miklum krafti, til þess að dreifa huganum frá skilnaðarmáli þvi er hún stendur i. Og það eru ekki kempur af lakari endanum sem veita tilsögn. Á efri myndinni má sjá Vitas Gerulaitis með prinsessunni og á neðri myndinni er sjálfur Björn Borg i samrseðum við hana, væntanlega er verið að ræða tennis. Ekki er hægt að sjá annað en að vel liggi á prinsessunni. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 27 Brasiliski markvörðurinn Emer- son Leao hefur sannarlega átt stormasaman feril. Þessi kunni markvörður stóð i marki lands- liðs Brasilíu i iokakeppni HM bæði árin 1974 og 1978. í bæði skiptin var hann talinn i hópi fremstu markvarða heims. Ileima fyrir lék hann með Vasco Da Gama og gerði það gott. En siðan slettist upp á vinskapinn miili hans og nánast allra forráða- manna sem hann lék undir. Hann var settur út úr landsliðinu er Claudio Coutinho hætti og Tele Santana tók við. Ilann var einnig settur út úr liði Vasco. Auk þess neitaði félagið að greiða honum laun með þeim orðum að hann væri uppreisnarseggur og ætti ekki laun skilið. Það, sem var enn verra fyrir Leao, var að Vasco neitaði einnig að selja hann til annars félags. Var Emerson Leao þá fljótur að sækja sér lögfræðing og fara fyrir rétt með allt saman. Þar er rimman þreytt þessa dagana og Leao stendur eins og klettur á sannfær- ingu 3Ínni að Vasco geti alls ekki bannað sér að vinna fyrir sér. Þetta endar líklega með því að Vasco Da Gama selur Leao og þegar eru bandarísku félögin kom- in í biðröð, Los Angeles Aztecs, Washington Diplomats og fleiri. • Knattspyrnudeild KR-inga hefur að undanförnu gengist fyrir firmakeppni og tóku 40 lið þátt i keppninni. Það þurfti þvi mikinn fjölda starfsmanna til að allt gengi vel fyrir sig. Hér á myndinni sjást nokkrir sem lögðu hönd á plóginn. Og þar má greina Ileimi Guðjónsson fyrrum stórmarkvörð KR. og Guðmund Pétursson markvörð með KR og landsliðinu. Ilauk Iljaltason veitingamann og Kristinn Jónsson formann knattspyrnudeildar KR. Kínverskur þjálfari ÍSLENSKA karlalandsliðið i blaki keppir um næstu helgi i Norðurlandameistaramótinu i Finnlandi. íslenska karlalandsliðið, sem æft hefur undanfarið undir stjórn hins kínverska þjálfara síns, Ni Fe'nggou, hélt utan til Svíþjóðar 26. sept. sl„ en þar mun liðið dvelja í æfingabúðum til 2. okt., en heldur þá til Áhtári í Finnlandi. þar sem NM-mótið fer fram. ísland leikur við Danmörku og Finnland á föstudeginum 3. okt., en við Noreg og Svíþjóð á laugardeginum 4. okt. íslenska landsliðið er þannig skipað: Nafn: Félag: Landsl. Guðmundur E. Pálsson Þrótti 31 Gunnar Árnason Þrótti 29 Indriði Arnórsson ÍS 18 Tómas Jónsson KFUM/Oslo 16 Leifur Harðarson Þrótti 16 Ilaraldur G. Hlöðversson UMFL 14 Jason ívarsson Þrótti 10 Böðvar H. Sigurðsson USG Kaupmh. 9 Hreinn Þorkelsson UMFL 1 Kristján Oddsson Þrótti 0 Sigurður Þráinsson ÍS 0 Sigurður Guðmundsson Vikingi 0 Sveinn Hreinsson Þrótti 0 Fararstjóri liðsins er Friðbert Traustason formaður landsliðsnefndar, en aðstoðarfararstj. er Kjartan Páll Einarsson fyrrverandi formaður mótanefndar BLÍ. íslendingar hafa leikið 31 landsleik í blaki í mfl. karla 21 leikur hfur tapast en 10 unnist, allir á móti Færeyjum. Úrslit NM-móta í mfl. karla hafa verið eins frá því að keppni hófst á þessum vettvangi. Finnar eru sterkastir, en síðan koma Svíar, Danir, Norðmenn og íslendingar. Þetta er í fjórða sinn sem íslendingar taka þátt í NM-mótinu sem leikið er annað hvert ár fyrstu helgi í október til skiptist í löndunum. Ráðgert er að keppa á íslandi 1986. Besti árangur Islendinga í þessu móti var í Bergen 1976, en þá töpuðu þeir 3—1 á móti Norðmönnum, 12/15 5/15 15/13 9/15. í Danmörku 1978 unnu Norðmenn 3—0,15/10 15/10 15/6. Haustmótið 24.-26. okt. íþróttafélag stúdenta sér um Haustmót BLÍ í ár. Mótið fer fram um síðustu helgi í október að venju og ber að tilkynna þátttöku til ÍS sem fyrst, en leikið verður í mfl. karla og kvenna og 2. og 3. flokki karla. • Þrátt fyrir að Pele, konungur knattspyrnunnar. hafi hætt að leika knattspyrnu fyrir þremur árum, hefur hann ekki setið auðum höndum. Hann vinnur mikið og gott kynningarstarf á vegum Cosmos i Bandaríkjunum varðandi knattspyrnu. Á myndinni er hann með Ahmet Ertegun, forseta Cosmos, er verið var að heiðra Pele sem íþróttamann aldarinnar. Pele er geysivinsæll i Bandarikjunum og gerir mikið af þvi að koma fram og flytja ræður við ýmis tækifæri. Nú nýlega völdu stuðningsmenn Cosmos 21 leikmann sem að þeirra dómi komu næst úrvalsliði Bandarikjanna eftir að tímabilinu lauk. Leikmenn Cosmos máttu ekki velja i kjöri þessu. Hér á eftir fara nöfnin, sem mörg eru vel kunnug úr knattspyrnuheimi Evrópu, og félag viðkomandi leikmanns: Jack Brand (Seattle Sounders) og Phil Parkes (Chicago Sting), Lazslo Harsanyi (Rochester Lanc- ers), Jim Holton (Detroit Ex- press), Ruud Krol (Vancouver Whitecaps), Peter Nogly (Ed- monton Drillers), Björn Nordqvist (Minnesota Kicks), Wim Suurbier (Los Angeles), Teofilio Cubillas (Fort Lauderdale Strikers), Francisco Marinho (Fort Lauder- dale Strikers), Leonardo Cuellar (San Diego Sockers), Jergen Kristensen (Tulsa Roughnecks), • Á síðasta keppnistímabiii i knattspyrnu tók Mbl upp nýjan hátt i einkunnagjöf blaðsins. Gefið var frá 0 og upp i 10. Aðeins einn leikmaður hlaut einkunnina 9 fyrir leik og það var hinn snjalli markvörður í A Bjarni Sigurðssun. Hér svifur Bjarni á eftir boltanum. Wolfgang Rausch (Dallas Tornad- os), Jomo Sono (Toronto Blizzard), Jan van der Veen (Tampa Bay Rowdies), Gerd M-ller (Fort Lauderdale Strikers), Roger Davi- es (Seattle Sounders), George Best Knattspyrna (San José Eartquakes), Oscar Fabbiani (Tampa Bay Rowdies), Karl-Heinz Granitza (Chicago Sting) og Salif Keita (New Eng- land Teamen). RONNIE Hellströmm sænski markvörðurinn sem leikið hefur um langt árabil með Kaiserslaut- ern hefur nú ákveðið að hætta að leika með félaginu árið 1982 þegar samningur hans rennur út. Og hefur hann mikinn hug á að leika með liði i Bandarikjunum. Hann segir það alveg víst að hann leiki ekki með iiði heima i Sviþjóð. Runnie sem nú er 31 árs á þá ósk heitasta að verða v-þýsk- ur meistari í knattspyrnu með liði sinu. Lið hans er nú i þriðja sæti i deildinni og hefur gengið vel. í siðustu heimsmeistara- keppni i Argentinu var Ilell- ström kjörinn besti markvörður heimsins. Vel heppnuð fjölbátakeppni LAUGARDAGINN 27. sept. var haldin siðasta fjölbátakeppni sumarsins. Keppt var á Skerja- firði. Veður var mjög gott og framan af keppninni var algjört logn en mikið útfall og rak bátana út fjörðinn. Þegar líða tók á keppnina fór að kula af norð-vestri og var vindur vax- andi þegar liða tók á daginn, orðinn 3 vindstig þegar keppni lauk. Tveir bátar, Auðbjörg og Skýja- borg, þjófstörtuðu og urðu þar af leiðandi nokkuð á eftir hinum bátunum í upphafi keppninnar. í upphafi tók Bjarni Hannesson á nýjum microtonner Gem forystu og hélt henni þar til á síðasta legg en þá fór Skýjaborg fram úr. Keppninni lauk þannig að áhöfnin á Gem vann keppnina með um- reiknuðum tíma, skipstjóri á Gem var Bjarni Hannesson, í öðru sæti var Skýjaborg, skipstjóri Hlynur Ingimarsson, í þriðja sæti Auð- björg, skipstjóri Jóhann H. Níels- son, í fjórða sæti Inga, skipstjóri Kristján Hermannsson. Síðasta siglingamót sumarsins á vegum S.Í.L. verður nk. laugar- dag á kænum, á Skerjafirði, en að lokinni keppni verður haldið loka- hóf í Þinghól í Kópavogi og eru allir siglingamenn velkomnir. • Það hlýtur að þurfa mikið jafnvægi til þess að hjóla á hjólum sem þessum. Hjólin eru um tveir metrar á hæð. og eru vinsæl hjá unglingum i Banda- rikjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.