Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 2

Morgunblaðið - 01.10.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1980 Atlantshafsflugið í vetur: Um 15 flugfreyjur ráðnar í viðbót _VIÐ reiknum með að þurfa að ráða um 15 flugfreyjur í viðbót í vetur við þær 68 sem gert cr ráð fyrir að endurráða ef Norður- AtiantshafsfluKÍð heldur áfram,“ sagði Erling Aspeiund fram- kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Flugleiða í samtali við Mhl. í gær, en ef full áætlun verður á flugleið- inni næsta sumar þarf að ráða mikinn fjölda í það verkefni. Erling sagði að Flugleiðir hefðu farið fram á það á tveimur fundum með stjórn Flugfreyjufélagsins að félagið yrði í ráðum með viðbótar- ráðningar við þær 68 sem kynntar Samningaviðræður við Sovétmenn um sölu á saltsild ÞESSA dagana standa yfir í Moskvu viðræður Islendinga og Sov- étmanna um sölu á saltsíld til Sovétríkjanna. Fjórir fulltrúar taka þátt í viðræðunum af Islands hálfu undir forystu Gunnars Flóvenz, framkvæmdastjóra Síldarútvegs- nefndar. Þegar hafa verið gerðir samningar um fyrirframsölu á síld til Finnlands og Svíþjóðar. hafa verið og einnig hefði verið boðið upp á viðræður um hlutastörf, en félagið hefði ekki ennþá viljað ræða þessi mál. Gréta Önundardóttir varaformað- ur Flugfreyjufélagsins sagði í sam- tali við Mbl. í gær að Flugfreyjufé- lagið hefði haldið fjölsóttan fund sl. mánudagskvöld þar sem liðlega 50 flugfreyjur hefðu mætt, en um 70 flugfreyjur væru nú erlendis og þar hefði ríkt mikill einhugur um starfs- aldurslistamálið þar sem félags- fundur ítrekaði þá kröfu að endur- ráðið yrði eftir starfsaldri. Kvað Gréta fundinn hafa verið haldinn til þess að kynna félags- mönnum stöðuna og þróun mála að undanförnu. Kvað hún m.a. hafa verið rætt um möguleg hlutastörf, en samþykkt hefði verið að fresta umræðum um þau mál þar til búið væri að endurráða flugfreyjur til félagsins. Þá kvaðst Gréta vilja taka það fram að stjórn Flugfreyjufélagsins hafði ekki haft hönd í bagga varð- andi þá ákvörðun Flugleiða að velja ekki til endurráðningar flugfreyjur úr hópi þeirra 40 sem hætta störfum 1. október, enda legði Flugfreyjufé- lagið áherzlu á endurráðningu eftir starfsaldri. Vigdís Finnbogadóttir forseti fslands er nú i Hamborg vegna frumsýn- ingar myndarinnar Paradisarheimtar. Þessi mynd er tekin fyrir frumsýninguna. Ida Ehre leikhússtjóri i Hamborg og Dieter Meichsner deildarstjóri í norður-þýska sjónvarpinu heilsa forsetanum. AP-símamynd. Júgóslavarnir hættir við Boeing-þoturnar „Möguleikarnir á því að selja Júgóslitvum Boeing-727 þoturnar tvær eru nú afskrif- aðir að mestu leyti og það er neikvætt fyrir okkur,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða í samtali við Mbl. i gærkvöldi en júgóslavneska flugfélagið Air Adría gat ekki staðið við þann samning sem það hafði gert með fyrirvara / um kaup á velunum tveimur. Samkvæmt upplýsingum Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða kom forstjóri Air Adría hingað til lands sl. föstudag og kannaði þá möguleika á að leigja aðra Boeing-727 vélina í a.m.k. mánuð með tveimur flugáhöfnum í stjórnklefa, en eftir helgina kom skeyti frá Air Adría þar sem farið var fram á lægra leigugjald, en því höfnuðu Flugleiðir. Til hafði stað- ið að Boeing-þotan færi utan í dag, en nú hafa Flugleiðir tilkynnt að það þurfi tveggja sólarhringa fyrirvara á að senda vél til Júgóslavíu ef Air Adría vill leigja vélina. Sagði Sveinn að áfram yrði unnið að því að selja vélarnar og afla þeim verkefna á meðan sala gengi ekki. Walter Mondale varaforseti Bandaríkjanna og Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra á fundi sínum í Hvíta húsinu í Washington um helgina. AP-símamynd. Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra: Hitti Carter, Mondale og öldungardeildarþingmenn ÓLAFUR Jóhannesson, utan- ríkisráðherra, dvaldi í gær i Norfolk í Bandarikjunum. að- alstöðvum yfirmanns Atlants- hafsflotastjórnar NATO, en undir hans stjórn heyrir m.a. varnarliðið á Keflavíkurflug- velli og framkvæmdir í tengsl- um við það. í gær fór Ólafur í INNLENT siglingu með herskipi og á eftir var honum boðið í þyrluflug yfir herstöðvarsvæðið. Síðar í gær voru svo á dagskrá viðræð- ur við yfirmenn í Norfolk, en þaðan fer Ólafur í dag til New York. Ólafur Jóhannesson kom í fyrradag til Norfolk frá Wash- ington, en þangað kom hann á föstudag og að sögn Sverris Hauks Gunnlaugssonar, sendiráðunauts í Washington, hitti Ólafur þá um morguninn Carter Bandaríkjafor- seta aðeins að máli og ræddi við Mondale varaforseta. Síðan ræddi Ólafur við Warren Christopher, aðstoðarutanríkisráðherra, og fleiri starfsmenn utanríkisráðu- neytisins og snæddi hádegisverð í boði þess. Einnig ræddi Ólafur við Claytor, aðstoðarvarnamálaráð- herra og starfsmenn hans ráðu- neytis. Á laugardaginn heimsótti utan- ríkisráðherra m.a. þinghúsið í Washington og skoðaði húsakynni beggja þingdeilda og sat hádegis- verðarboð öldungadeildarinnar. Haukur Helgason ráðinn aðstoðarrit- stjóri Dagblaðsins HAUKUR Helgason hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri Dag- blaðsins, en hann hefur verið ritstjórnarfulltrúi blaðsins frá stofnun þess fyrir fimm árum og verið annar aðalleiðarahöfund- ur þess. Áður var Haukur á dagblaðinu Visi. Haukur er fjörutíu og þriggja ára að aldri. Hann lauk við- skiptafræðiprófi frá Háskóla ís- lands og síðar hagfræðiprófi við Chicagoháskóla. Haukur Helgason. Eimskip fær lóð við Sundahöfn Hafskip flytur starfsemi sína í austurhöfnina Sigríöur Erlends- dóttir látin SIGRÍÐUR Erlendsdóttir verka- kona lést í Hafnarfirði laugardag- inn 27. september, 88 ára að aldri. Sigríður fæddist á Merkinesi í Höfnum 17. júlí 1892 og foreldrar hennar voru þau Erlendur Marteins- son og Sigurveig Einarsdóttir. Sig- ríður fluttist til Hafnarfjarðar 10 ára að aldri og bjó hún þar síðan. Hún fór ung í fiskvinnu, en einnig lagði hún stund á útsaum. Hún tók mikinn þátt í félagsmálum, aðallega í verkakvennafélaginu Framtíðin, en þar var hún lengi í forystu. Hún átti frumkvæði að því að dagheimili verkakvennafélagsins var stofnað og var hún þar í stjórn í 30 ár. Einnig vann Sigríður í kvenfélagi Alþýðu- flokksins frá stofnun þess og var gjaldkeri félagsins lengi. Sigríður bjó að Kirkjuvegi 10, en síðustu tvö árin dvaldist hún á Sólvangi. Hún verður jörðuð frá Hafnar- fjarðarkirkju á föstudaginn og hefst athöfnin kl. 14.00. BORGARYFIRVÖLD ákváðu ný- lega að úthluta Eimskipafélagi Is- lands lóð á Kleppsskafti við Sunda- höfn og er þar um að ræða viðbótar- lóð við það svæði sem félagið hefur áður haft, en þessi nýja lóð er 5,5 hektarar að stærð. Samkvæmt þessu hefur Eimskipafélagió nú fengið næstum allar þær hygging- arlóðir sem búið er að gera hafnar- bakka við á þessu svæði. Eimskipafélagið mun greiða af þessu gatnagerðargjald að upphæð 495 milljónir króna. Þá hefur verið ákveðið að Reykjavíkurhöfn kaupi Faxaskála af Eimskipafélaginu sem er við austurhöfnina en kaupverðið er 1.6 milljarðar króna og greiðist það á fimm árum. Jafnframt rýmir Eimskipafélagið svokallaðan A- skála í austurhöfninni, jarðhæð Hafnarhússins og jarðhæð Toll- stöðvarhússins um næstkomandi áramót. Einnig mun Eimskipafélag- ið rýma hálfan Faxaskála á tímabil- inu 1. júní til 31. ágúst 1981 og hinn helminginn á tímabilinu 1. maí til 31. júlí 1982. Hafskip, sem einnig sótti um þá lóð sem Eimskipafélagið nú fékk, fær til afnota um næstkomandi áramót landsvæði undir og umhverf- is A-skálann, sem verður rifinn, en það svæði er 11330 fm að stærð. Á sama tíma fær Hafskip jarðhæð Hafnarhússins og hafnarstjórn mun hlutast til um að Hafskip fái vöru- geymsluaðstöðu í Tollstöðvarhúsinu frá sama tíma. Þá fær Hafskip á leigu heiming Faxaskála, á þeim tíma sem Eimskip rýmir þann hluta hans, þ.e. á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 1981, og á tímabilinu 1. maí til 31. júlí 1982 fær Hafskip hinn helming hússins. Þá hefur hafnarstjórn lýst því yfir að unnið verði áfram að lausn umferðarmála að og frá hafnar- svæðinu, í samræmi við tillögur sem gerðar hafa verið um lausn á umferðarmálum við gömlu höfnina. Einnig mun Reykjavíkurhöfn breikka austurbakkann til þess að auka rými á hafnarbakkanum og á sú breikkun að hefjast haustið 1981. Þessi ákvörðun borgarinnar hefur það í för með sér að Eimskipafélagið mun flytja alla starfsemi sína inn í Sundahöfn, en Hafskip sína starf- semi í austurhöfnina. Sigríður Erlendsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.