Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 5 Framboðslisti VÖKU Gerftur Thoroddsen. læknisfræfti: Gunnar Jóhann Birgisson. lögfræfti: Karitas Gunnarsdóttir. lögfræfti; Kristinn Andersen, verkfræfti; Lára Friftjónsdóttir. viftskiptafræfti; óskar Einarsson. læknisfræöi; Sveinn Guftmundsson. læknisfræfti. Fyrsta des. kosningar í Háskólanum: Háskólinn og lýðræði og tengslin við þjóðf élagið VAKA, félaK lýðræðissinnaðra stúdenta við Iláskóla íslands, hefur birt framboðslista sinn vegna kosnintia til undirbún- ings hátíðahaldanna á fullveld- isdagnnn, 1. desember. Kosninj? hátíðanefndarinnar fer fram á almennum fundi stúdenta i há- tíðarsal Háskólans i kvöld, mið- vikudatrinn 22. október. Stend- ur kosninKÍn frá klukkan 20 til 22.30, en fundurinn verður opinn allan tímann. Framboðslisti Vöku er þannig skipaður: Gerður Thoroddsen læknisfræðinemi, Gunnar Jó- hann Birgisson lögfræði, Karitas Gunnarsdóttir lögfræði, Krist- inn Andersen verkfræði, Lára Friðjónsdóttir viðskiptafræði, Óskar Einarsson læknisfræði og Sveinn Guðmundsson læknis- fræði. Hátíðanefndin skal skipuð sjö mönnum, er kosnir séu í leyni- legri listakosningu. Vökustúdentar bjóða að þessu sinni fram efnið „Háskólinn og lýðræði", þar sem meðal annars er velt upp eftirfarandi spurn- ingum: Hver eru tengsl Háskólans við þjóðfélagið? O Hvert er sjálfstæði Háskól- ans? O Hvernig er lýðræði innan Há- skólans háttað? í stúdentablaði Vöku segir, að Háskóli íslands hafi fyrr á öldinni tengst fullveldisbaráttu Islendinga, en mörgum þyki nú sem tengsl Háskólans við þjóð- félagið hafi rofnað. Því sé ofangreint efni vel til þess fallið að það sé rætt á fullveldisdegin- um. Uppboð í Hafnarfirði: Silfur og gull fyrir 5,3 milljónir króna í GÆRDAG. klukkan 16, var f jólmenni í húsakynnum ba’jarfóget- ans í Ilafnarfirði. I>á var í þann veginn að hefjast uppboð á nokkuð sérsta“ðum smyglvarningi. Ilundruð gullkrossa, silfur- krossa og eyrnalokka voru þá boðin hæstbjóöanda. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli tók þennan varning í sína vörslu skömmu fyrir árslok 1975, en þá reyndi maður nokkur að smygla þessu öllu inn i landið. Maðurinn átti þá lögheimili i umdæmi hæjarfógetans í Ilafnarfirði og því var málið tekið fyrir þar. Löngu er búið að dæma i málinu en uppboðið hefur aftur á móti dregist. Uppboðshaldari var Guðmund- ur L. Jóhannesson, og sagði hann í upphafi, að samkvæmt mati sér- fróðra manna, væri silfrið allt 925 „sterling" og gullið 8 karöt. Þegar Guðmundur hafði lesið venjulega uppboðsskilmála, lyfti hann upp poka númer eitt, sem í voru 48 gullkrossar og sagði þann poka 400 hundruð þúsund króna virði í útsölu. Svo byrjuðu menn í 10 þúsundum, en gerðust tregir þegar kom uppí 70 þúsund og með semingi enduðu þeir í hundrað. Fyrsti pokinn var semsé slegin á 100 þúsund, en alls voru númerin 53. Guðmundur L. Jóhannesson sagði, að allt hefði verið selt, og fyrir rúmar 5,3 milljónir í allt. Sé tekið mið af fyrsta númerinu er það réttur fjórðungur verðmætis alls varningsins í útsölu. Frá uppboðinu í Hafnarfirði i gær. Guömundur L. Jóhannesson situr fyrir miðju fremst. Snorri Halldórsson endurkjörinn AÐALFUNDUR Félags sjálfstæð- ismanna í Austurbæ og Norður- mýri var haldinn 16. okt. sl. Jón Magnússon, formaður SUS, flutti ræðu um stöðu og stefnu Sjálf- stæðisflokksins. I stjórn voru kjörin: Snorri Halldórsson form., Sigfinnur Sigurðsson varaform., Sigríður Ásgeirsdóttir ritari, Unnur Jónsdóttir gjaldkeri, og meðstjórnendur Sigríður Valdi- marsdóttir, Gústaf B. Einarsson, Páll Sigurðsson og Jóhann Gísla- son. %oss ^ Börn ganga í hús í dag Þannig verða börnin sem kveðja dyra á höfuöborgarsvæðinu í dag útbúin. en mörg þeirra og þar á meðal þessi tvö hafa beðið með óþreyju eftir að fá að hefjast handa við hjálparstarfið. t DAG ganga skólaborn i hús i Reykjavfk og nágrannabyggðar- lögunum með söfnunarfötur Rauða kross tslands til hjálpar hungruð- um i Afriku. Söfnunin verður í hámarki á timabilinu 17—20 i dag og er þess vænst að hornunum verði vel tekið. Öll börn, sem safna fyrir Rauða krossinn í dag eru sérstaklega auðkennd. Þau bera merki Afríku- hjálparinnar og hafa nafnspjöld, sem sérstaklega voru gerð í þessu tilefni. Föturnar eru allar eins, rauðar með hvítu loki, og þær eru líka með merki Afríkuhjálparinnar, auk þess sem þær eru númeraðar. Fólk er beðið að setja peningagjafir í föturnar í gegnum þar til gerðar rifur á lokunum og börnin afhenda þeim síðan límmiða frá Rauða krossinum í viðurkenningarskyni. Börnin verða yfirleitt tvö saman og í mörgum tilvikum verða einnig fullorðnir með þeim. Aðalskrifstofa Rauða kross ís- lands að Nóatúni 21 verður opin fram til miðnættis í kvöld, síminn þar er 26722. Unima 5 ára AÐALFUNDUR UNIMA (Fé- lags áhugafólks um brúðu- leikhús) verður haldinn mið- vikudaginn 5. nóvember kl. 16.00 i Leifsbúð að Hótel Loftleiðum. í tilefni 5 ára afmælis fé- lagsins sem er í ár verður þessi fundur með hátíðlegu sniði og snæða fundarmenn sameigin- lega kvöldverð að loknum aðal- fundarstörfum. I stjórn félags áhugamanna um brúðuleikhús eiga sæti: Jón E. Guðmundsson, Hallveig Thorlacius, Margrét Kolka, Sigfús Kristjánsson og Hólm- fríður Pálsdóttir. Mesum vi(5 kynna stretch-flannel buxur frá Terra. Stretch-flannel er nýjung, sem flæðir yfir alla Evrópu. Efnið hefur þá eiginleika að laga sig eftir líkamanum. Það gefur eftir og teygist án þess að pokar eða hrukkur myndist. Situr þétt og þægilega og heldur brotum mjög vel. Stretch-flannel buxur laga sig að öllum. n SNORRABRAUT 56 • SiMI 13505 L'tl 10 simi 272 ll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.