Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980
Tony Benn ekki
fram að sinni
I»ndon, 21. okt. AP.
TONY Benn, fyrrv. orkuráð-
herra og helsti leiðtogi vinstri
arms breska Verkamannaflokks-
ins, sagði í dag. að hann ætlaði
sér að keppa að formannsstöð-
unni þegar flokkurinn hefði
ákveðið nýjar reglur um íor-
mannskjör. Y firlýsing Benns
bendir til. að hann ætli ekki að
taka þátt i kapphlaupinu um
formannsstöðuna að þessu sinni
en i næsta mánuði munu 268
þingmenn Verkamannaflokksins
velja eftirmann Callaghans.
Tveir framámenn úr vinstri
arminum, Michael Foot og Peter
Shore, hafa þegar ákveðið að
berjast um leiðtogastöðuna við
Dennis Healey, sem er úr hægri
arminum, og sá fjórði er John
Silkin, sem er hófsamur vinstri-
maður. Benn hefur gert það lýðum
Ijóst, að hann ætlar að bíða eftir
Larsen efstur
í Buenos Aires
Buenos Aires. 21. okt. AP.
VLASTIMIL Ilort vann í
líar sijíur á landa sínum
fyrrverandi, Lubomir Kav-
alek, ok er nú í öðru sæti á
alþjóðlejía skákmótinu í
Buenos Aires eftir fjórar
umferðir. Bent Larsen er
nú efstur með 2,5 vinninga
og biðskák.
Ljubomir Ljubojevic, Júgó-
slavíu, og Miguel Quinteros,
Argentínu, sömdu um jafntefli
eftir 18 leiki í mjög flóknu tafli.
Aðrar skákir frá því í gær fóru í
bið og verða tefldar nk. laugar-
dag. Allt virtist stefna í jafntefli
í skák Karpovs og Oscar Pannos
frá Argentinu og sömu sögu var
að segja um skák þeirra Friðriks
Ólafssonar og Ulfs Anderson og
Jan Timmans og Balashovs frá
Sovétríkjunum. í skák þeirra
Larsens og Brownes hafa þeir
þrjú peð hvor, drottningu, hrók
og biskup, en Larsen þykir hafa
betri stöðu.
Staðan á mótinu er nú þessi:
1. Larsen 2,5 v. og biðskák; 2.-6.
Anderson (biðskák), Timman
(biðskák), Kavalek, Ljubojevic
og Hort 2 v.; 7.—10. Karpov,
Balashov, Panno og Giardelli 1,5
v. og allir með biðskák.
ráðstefnu Verkamannaflokksins
24. jan. nk. sem mun ákveða hvort
reglum um formannskjör verður
breytt á þann hátt, að verkalýðs-
félögin og flokksdeildirnar taki
þátt í því.
Ákvörðun Benns hefur styrkt
menn í þeirri trú, að þegar að
lokinni ráðstefnunni muni koma
til mikils uppgjörs í flokknum
milli hægri og vinstri manna, sem
greinir mjög á, bæði um formann-
inn, kjarnorkuvopn og aðild Breta
að Efnahagsbandalaginu.
Veður
víða um heim
Akureyrí -7 hálfskýjað
Amsterdam 13 rigníng
Aþena 21 rigning
Berlín 7 skýjaó
Brúsael 10 heióskírt
Chicago 15 heiðskfrt
Feneyjar 13 heióskírt
Franklurt 9 heióskírt
Faereyjar s skýjaó
Genf 13 heiðskírt
Helainki vantsr
Hong Kong vantsr
Jerúsalem 20 skýjaó
Jóhannesarborg 22 skýjaó
Kairo vantar
Kaupmannahöfn 9 skýjaó
Las Palmas 23 léttskýjaó
Lissabon 20 heióskírt
London 16 heiðskírt
Los Angeles 33 heíðskírt
Madrid 19 heiðskírt
Malaga 20 lóttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Miami 31 skýjaó
Moskva 13 skýjað
New York 15 akýjað
Nýja Delhi vantar
Osló 8 heiðskírt
París 15 skýjaó
Reykjavík 3 skýjaó
Ríó de Janeiro 39 skýjaó
Rómaborg 20 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heióskirt
Tel Avív 27 skýjaó
Tókýó 18 skýjaó
Vancouver 18 skýjaó
Vínarborg 14 heióskírt
Þetta geróist__________________22. okt.
1975 — Peking-ferð Henry Kiss-
ingers lýkur — Juan Carlos
verður konungur Spánar.
1970 — Tveir bandarískir hers-
höfðingjar, sem villtust á flugi
yfir Tyrklandi, lenda í sovézku
Armeníu og eru sakaðir um
njósnir.
1967 — Tundurspillinum „El-
ath“ sökkt með egypzkum flug-
skeytum og 48 ísraelskir sjóliðar
farast.
1%2 — Kennedy forseti fyrir-
skipar hafnbann á Kúbu vegna
sovézkra eldflaugastöðva á
eynni.
1956 — Lýðræðislegs stjórnar-
fars krafizt í mótmælaaðgerðum
í Ungverjalandi.
1953 — Frakkar veita Laos
sjálfstæði.
1952 — íran slítur stjórnmála-
sambandi við Breta vegna olíu-
deilu.
1910 — Crippen læknir dæmdur
fyrir morð á konu sinni.
1883 — Metropolitan-óperan í
New York opnuð.
1873 — Þríkeisarabandalag
Þýzkalands, Rússlands og Aust-
urríkis-Ungverjalands stofnað.
1862 — Setuliðið í Aþenu gerir
uppreisn og neyðir Otto I til að
leggja niður völd.
1859 — Spánverjar segja Már-
um í Marokkó stríð á hendur.
1721 — Pétur mikli tekur sér
nafnbótina Zar alls Rússlands.
1492 - Hinrik VII af Englandi
sezt um Boulogne í Frakklandi.
Afmæli. Franz Liszt, ungverskt
tónskáld (1811-1886) - Sara
Bernhardt, frönsk leikkona
(1845—1923) —Benjamin Britt-
en, brezkt tónskáld (1913— ) —
Joan Fontaine, bandarísk leik-
kona (1917-----) — Catherine
Deneuve, frönsk leikkona
(1943---) — Bao Dai, fv. víet-
namskur keisari (1913---).
Andlát. 1859 Ludwig Spohr,
tónskáld — 1935 Sir Edward
Carson, stjórnmálaleiðtogi —
1973 Pablo Casals, sellóleikari
— 1976 Arnold Toynbee, sagn-
fræðingur.
Innlent. 1253 Flugumýrar
brenna — 1769 f. Jón Espólín —
1974 Nýr samningur um varn-
arliðið — 1975 Sjómannaverk-
fall — 1979 Barnadagur í út-
varpinu.
Orð dagsins. Hjónaband er
ævintýri, eins og að fara í stríð
— G.K. Chesterton, enskur rit-
höfundur (1874-1936).
Ferðamönnum fækkar
í Austur-Þýskalandi
Tony Benn, einn helsti leiðtogi
vinstrimanna i breska Verka-
mannaflokknum.
Bonn 21. okt. AP.
FERÐAMÖNNUM frá Vest-
urlöndum til Austur-Þýska-
lands hefur fækkað til muna
síðan austur-þýska stjórnin
ákvað að hækka lágmarks-
upphæð ferðamannagjaldeyr-
is þeirra, að því er fréttir frá
Vestur-Þýskalandi herma.
Skýrslur sýna að fækkunin
er mest á landamærastöðvum
í Berlín. Fimm landamæra-
stöðvar í Vestur-Berlín hafa
skráð 58% færri ferðamenn á
Dennis Healey, sem nú keppir
að formannsstöðu í Verkamanna-
flokknum, sagði, að atvinnuleys-
ingjar yrðu brátt þrjár milljónir
talsins og að ríkisstjórn Margrét-
ar Thatchers yrði að hverfa frá
peningamálastefnu sinni eða horf-
ast ellegar í augu við „uppreisn"
breskrar alþýðu. James Prior,
atvinnumálaráðherra stjórnar-
innar, sagði að erfiðleikarnir væru
því að kenna að Bretar kynnu ekki
að framleiða réttar vörur á réttum
leið austur eftir í sl. viku en á
sama tíma í fyrra.
Atvinnuleysi vex
enn í Bretlandi
London. 21. okt. AP.
ATVINNULEYSINGJUM í Bretlandi, sem ekki hafa
verið fleiri síðan í krepppunni um 1930, fjölgaði í
október um 23.000 manns og eru nú 2.062.866 eða 8,5%
af vinnufærum mönnum. Þessar tölur eru hafðar eftir
atvinnumálaráðuneytinu breska í dag.
tíma. Hann sagði þó, að ýmislegt
benti til að mönnum væri nú að
verða það ljóst, að nauðsynlegt
væri að auka framleiðni og sam-
keppnishæfni.
Atvinnuleysi í Bretlandi er nú
8,5% eins og fyrr segir, í Banda-
ríkjunum er það 7,5%, í Frakk-
landi 7,8%, í Belgíu 12,6%, í
Vestur-Þýskalandi 4,1% og aðeins
2,2% í Japan.
Þrír teknir
fyrir njósnir
Karlsruhe, Vestur-Þýskalandi,
21. okt. AP.
TVEIR karlmenn og ein
kona hafa verið handtekin
í Vestur-Þýskalandi og
grunuð um að hafa stund-
að njósnir í þágu Austur-
Þýskalands, að sögn tals-
manns saksóknaraembætt-
is Vestur-Þýskalands.
Annar maðurinn er grunaður
um að vera starfsmaður leyni-
þjónustu Austur-Þýskalands.
Hinn maðurinn og konan, hjón frá
Múnchen, eru grunuð um að hafa
hjálpað honum við starf sitt í
Vestur-Þýskalandi.
Er þetta í annað skipti á ekki
viku sem fólk er handtekið í
Vestur-Þýskalandi og grunað um
njósnir í þágu Austur-Þýskalands.
Fyrir nokkrum dögum voru tveir
menn handteknir í suðurhluta
Vestur-Þýskalands er þeir reyndu
að fá forstjóra iðnfyrirtækis til
starfa fyrir leyniþjónustu Aust-
ur-Þýskalands.
ERLENT
HEIMSÓKN LOKIÐ
Valery Giscard d'Estaing Frakklandsforseti, sem situr hér að snæðingi með Zhao Ziyang, hinum nýja
forsætisráðherra Kina, fór heimleiðis frá Kína í gær eftir vikulanga heimsókn sína. Hann hvatti til
„samtöðu mannkyns" og lagði til að Frakkar reistu tæknistofnun i Kína. Honum var ákaft fagnað
þegar hann sagði 1.500 stúdentum i Shanghai að kynslóð þeirra „mundi hafa meiri áhrif á framtiðina
þvi að 600 milljónir Kinverja væru undir þritugu". Áður var opnuð frönsk ræðismannsskrifstofa i
Shanghai, hin fyrsta i 30 ár.
Finnsku sveitarstjórnarkosningarnar:
Mest fylgisaukning
hjá Hægri flokknum
Ilelsinki, 21. okt. AP.
HÆGRI flokkurinn er óumdeil-
anlegur sigurvegari í sveitar-
stjórnarkosningunum, sem fram
fóru i Finnlandi á sunnudag og
mánudag. Kommúnistar biðu
hins vegar ósigur en jafnaðar-
menn og miðflokksmenn unnu
nokkuð á.
Finnski Hægri flokkurinn, sem
hefur verið i stjórnarandstöðu um
14 ára skeið, fékk 23,1% atkvæða,
eða 2,1% meira en í síðustu
sveitarstjórnarkosningum og
1,3% meira en þegar síðast var
kosið til þings. Jafnaðarmenn
fengu 25,6%, sem er 0,7% meira
en í síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum, og miðflokksmenn 18,7%
eða 0,2% fylgisaukningu.
Aarne Saarinen, formaður
finnska kommúnistaflokksins,
sagði að flokkurinn hefði goldið
þess að sitja í samsteypustjórn
fjögurra flokka, sem gerði ekki
meira en teljast vinstra megin við
miðju. Kommúnistar fengu nú
16,7% atkvæða, sem er 1,8%
minna en í síðustu kosningum.
Stjórnmálaskýrendur halda því þó
fram, að atburðirnir í Póllandi
hafi ráðið meiru um ósigur komm-
únista en aðgerðir stjórnarinnar.