Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 12
12 * - - ■ MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 Minning: Gísli M. Gíslason stórkaupmaður Vestmannaeyjum Fæddur 22. nóvember 1917. Dáinn 9. október 1980. Gísli Gíslason, vararæðismaður, Vestmannaeyjum, varð bráð- kvaddur í Hamborg 9. þessa mán- aðar, tæplega 63 ára að aldri. Gísli átti vini og kunningja í Þýska- landi og þangað fannst honum ávallt gott að koma. Hann var skipaður vararæðismaður fyrir V-Þýskaland árið 1974. Hann naut með auknum kynnum mikils og vaxandi trausts Þjóðverja. I ág- ústmánuði sl. veitti forseti v-þýska sambandslýðveldisins Gísla heiðursmerki, sem viður- kenningu fyrir hans þátt í að efla vináttutengsl milli íslands og V-Þýskalands. Störf Gísla voru mikil og margþætt og er nánar minnst á þau af öðrum hér í blaðinu í dag. Gísli var fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Þar átti hann alltaf rætur sem ekki gátu slitnað. Tryggð hans við Eyjarnar og það fólk sem þar bjó var óbilandi. Kom það oft fram á áþreifanlegan hátt. Gísli var hjálpsamur ef til hans var leitað og þeir voru margir sem fengu hjá honum góð ráð og aðstoð, þegar vanda bar að höndum. í gosinu í Vestmannaeyjum 1973 reyndi mjög á manndóm og þrek Vestmanneyinga. Þeir voru vanir glímunni við Ægi og þekktu erfiða lífsbaráttu, margir af eigin reynslu, sérstaklega eldri kynslóð- in, en aðrir af skráðum heimildum eða frásögnum foreldra og ann- arra manna. Má vera að þar sé að finna að nokkru leyti skýringu á því andlega þreki sem íbúar Vest- mannaeyja sýndu þegar mest á reyndi meðan gosið stóð yfir. I náttúruhamförunum í Vest- mannaeyjum varð ekkert mann- tjón og var það mildi og heppni. Eigi að síður var það mikil raun allra Eyjamanna að sjá heima- byggð sína brenna og eyðast, að horfa á það að eignir manna og margra ára erfiði varð að engu. Margir óttuðust að Heimaey yrði ekki byggileg eftir gosið, en úr því rættist á undursamlegan hátt. Mannlegur máttur er lítils megn- ugur gegn eldumsbrotum og nátt- úruhamförum, en mönnum kom til hugar að komið gæti að gagni að dæla sjó á logandi hraunið. Telja margir að það hafi komið að nokkru gagni til varnar bænum. Gísli útvegaði kraftmiklar dælur í þessu skyni með aðstoð sendiherra Bandarikjanna hér á landi. Sýnir þetta m.a. að Gísli vildi gera allt sem mögulegt var i björgunar- starfinu. Þegar menn horfðu á hraunrennslið austan við höfnina í átt að Heimakletti og sáu hvernig állinn milli klettsins og hraunsins þrengdist með degi hverjum, munu flestir hafa talið litla von um að Vestmannaeyja- höfn yrði nothæf eftirleiðis. En undrið gerðist, hraunrennslið stöðvaðist og bilið milli Heima- kletts og hraunjaðarsins er nægi- lega breitt til þess að leiðin inn í höfnina og út úr henni sé fær, ekki aðeins fiskibátum, heldur einnig stærri skipum. Segja margir að höfnin sé nú alls ekki lakari en hún áður var. Hús Gísla Gíslasonar var eitt af mörgum húsum sem fóru undir hraun. Heimili Gísla og konu hans, Guðrúnar Sveinbjarnardótt- ur, var í stóru húsi. Heimili þeirra hjóna var glæsilegt og bar vott um myndarskap húsmóður og hús- bónda. Þar voru margir verðmætir munir, sem ekki varð bjargað. Þar fór einnig prentsmiðjan og allt sem henni fylgdi, vélar og tæki. Ég minnist þess að ég hitti Gísla og hans ágætu konu daginn eftir að heimili þeirra og eignir eyði- lögðust. Það var þá sem ógnir eldanna voru sem mestar og log- andi hraun rann yfir Vestmanna- eyjabæ. Þá óttuðust margir að mestur hluti bæjarins ásamt höfninni yrði eyðileggingunni að bráð. Gísli var oft glaður í góðra vina hópi, en gat einnig verið dulur og alvörugefinn. Hann hafði gott vald á skapi sinu og tilfinningum. Samtal okkar Gísla umræddan dag var með öðrum hætti en venjulega, þegar við tókum tal saman. Hann var, þrátt fyrir allt er hafði gerst, bjartsýnn og taldi vonir á að Vestmannaeyjar yrðu áfram í byggð, en hraunrennslið myndi bráðlega stöðvað og að eignum manna og mannvirkjum yrði forðað frá frekari eyðilegg- ingu. Þá minntist Gísli á Skaftár- elda, þegar hraunið virtist ætla að renna yfir kirkjuna á Kirkjubæj- arklaustri. „Var það vegna bænar og andagiftar sr. Jóns Stein- grímssonar að hraunrennslið stöðvaðist? Hafi gerst kraftaverk þá, gat það einnig gerst nú.“ Gísla varð að von sinni, meiri hluta íbúðarhúsa og mikilvægustu mannvirkjum var bjargað frá eyðileggingu. Heimaey varð bygg- ileg að nýju og hélt sínu aðdrátt- arafli, þrátt fyrir eldsumbrotin og allar þær skemmdir sem orðið höfðu. Gísli taldi ekki ástæðu til þess að vandræðast yfir því þótt hann og hans fólk hefði orðið fyrir miklu tjóni. Hann og fjölskylda hans gætu komist yfir erfiðleik- ana, en það væru mjög margir aðrir sem væru ver settir og sérstök ástæða væri til að hjálpa og aðstoða á ýmsan hátt. Gísli hafði mikla samúð með þeim sem voru hjálparþurfi og vildi gera allt sem i hans valdi stóð til þess að hjálpa þegar þess gerðist þörf. Hann tók sæti í stjórn Viðlaga- sjóðs og beitti áhrifum sinum þar til góðs fyrir Vestmanneyinga og uppbyggingu í Eyjum eftir að gosið var um garð gengið. Gísli var mikill athafnamaður og áhug- amaður um allt sem til framfara horfði. Hann starfaði mikið fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Fyrst sem ungur maður í Heimdalli á skóla- árunum og síðar í Sjálfstæðisfé- lagi Vestmannaeyja, sem stjórn- armaður og formaður þess félags í mörg ár. Það þótti ávallt mikils virði að hafa Gísla á framboðsl- ista Sjálfstæðisflokksins við Al- þingiskosningar vegna almennra vinsælda hans. Við þetta tækifæri vil ég sér- staklega þakka honum fyrir gott og drengilegt samstarf, fyrir vin- áttu hans sem aldrei bar skugga á. Gísli byggði nýtt hús í Vest- mannaeyjum og flutti þangað aft- ur eins fljótt og við var komið ásamt konu sinni. Öll börn þeirra hjóna eru gift og búsett í Eyjum, þrjár dætur og einn sonur. Hafa þau öll lagt góðan skerf til upp- byggingar starfs í Vestmannaeyj- um. Gísli var forsjóninni þakklátur fyrir margt sem honum hafði hlotnast á lífsleiðinni. Hann var þakklátur fyrir að hafa átt gott heimili frá bernskudögum og allt- af síðan. Hann var þakklátur fyrir að hafa eignast góða konu og mannvænleg börn, tengdabörn og barnabörn sem glöddu hann sér- staklega. Vinur er kvaddur með þakklæti í huga fyrir öll árin sem leiðir lágu saman. Konu Gisla Gislasonar og fjölskyldunni aliri votta ég og kona mín fyllstu samúð. Ingólfur Jónsson í dag verður gerð frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum útför Gísla M. Gíslasonar, stórkaup- manns. Gísli var fæddur í Vestmanna- eyjum 22. nóvember árið 1917, sonur hjónanna Rannveigar Vil- hjálmsdóttur og Gísla Þórðarson- ar vélstjóra, en missti föður sinn þriggja ára að aldri. Móðir hans giftist aftur Haraldi Viggó Björnssyni bankastjóra í Vest- mannaeyjum, sem reyndist Gísla sem bezti faðir. Gísli markaði víða ákveðin spor á lífshlaupi sínu, einkum á sviði verzlunar, viðskipta og í félags- málum, sem mér fróðari menn munu gera skil, því hann gekk heill og óskiptur að hverju verki. Hann stofnsetti og starfrækti fjölda fyrirtækja bæði í Vest- mannaeyjum og í Reykjavík og var mjög virkur í félagsmálum Vestmannaeyinga. Einkum var honum kært starfið í Oddfellow- reglunni, en hann var einn af burðarásum þess starfs í Vest- mannaeyjum. Gísli gekk ungur í Sjálfstæðis- flokkinn og var sannur flokksmað- ur síðan. Hann varð formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæð- ismanna í Vestmannaeyjum, formaður Sjálfstæðisfélags Vest- mannaeyja, sat í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna, sat í bæjar- stjórn Vestmannaeyja og var for- seti bæjarstjórnar á annan áratug og um tíma settur bæjarstjóri, þá var hann varaþingmaður fyrir Sjáifstæðisflokkinn. Siðast en ekki sízt var Gísli í fjölda ára formaður fjáröflunarnefnd fyrir sjálfstæðismenn í Vestmannaeyj- um. Öll þessi störf rækti hann af einstökum áhuga og dugnaði og þökkum við sjálfstæðismenn hon- um fyrir unnin störf. Gísli kvæntist jafnöldru sinni úr Vestmannaeyjum og eftirlif- andi konu, Guðrúnu Sveinbjarnar- dóttur, árið 1941. Guðrún reyndist manni sinum einstaklega tryggur og góður lífsförunautur og bjó manni sínum og börnum þeirra fjórum, Haraldi, framkvæmda- stjóra, Rannveigu, Kristínu og Helgu, húsfreyjum í Vestmanna- eyjum, fyrirmyndar- og rausnar- heimili. Ég vil þakka Gísla góð kynni og góða vináttu og sendi konu hans Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, börnum og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Guðmundur Karlsson. Hinn 9. október sl. varð Gísli Gíslason, stórkaupmaður í Vest- mannaeyjum, bráðkvaddur. Hann var þá staddur erlendis í verzlun- arerindum. Gísli var fæddur í Vestmanna- eyjum 22. nóvember 1917. Foreldrar hans voru hjónin Rannveig Vilhjálmsdóttir, ættuð af Borgarfirði eystra, og Gísii Þórðarson frá Tjörnum í Vestur- Eyjafjallahreppi. Systir Rannveigar, Hildur, bjó hér í Eyjum. Hún var gift Eyþóri Þórarinssyni, verkstjóra frá Oddstöðum. Sömuleiðis bjó Björgvin bróðir hennar hér í all mörg ár. Foreldrar Gísla Þórðarsonar hjónin Kristólína Gísladóttir og Þórður Loftsson, bjuggu að Tjörn- um og eignuðust 13 eða 14 börn. 7 af börnunum fluttu hingað til Eyja. Sennilega til þess að taka þátt í ævintýrinu mikla, þegar vélbátaútgerðin hófst hér í byrjun aldarinnar, eins og hópar ungs fólks af Suðurlandsundirlendinu gerðu um þær mundir. Systkinin frá Tjörnum, sem hingað fluttu, voru: Kristín, sem giftist Sigurjóni Högnasyni, forstjóra í Borg. Jó- hanna, sem giftist Bernótusi Sig- urðssyni, formanni og útvegs- manni í Vestra-Stakkagerði. Guð- björg, sem giftist Árna Þórarins- syni, skipstjóra og hafnsögu- manni, frá Oddstöðum. Guðbjörg er enn á lífi. Elínborg, hún var ógift og átti hér heima í mörg ár, en flutti svo á Akranes. Gísli Þórðarson, faðir Gísla Gíslasonar. Ágúst Þórðarson, yfirfiskmats- maður á Aðalbóli, vinsæll og virtur borgari í þessum bæ. Hann lést fyrir fáum árum. Magnús Þórðarson, formaður og útvegs- maður í Dal. Hann var einn af brautryðjendunum, þegar vélbát- aútgerðin hófst hér í Eyjum. Hann keypti, ásamt félögum sín- um, vélbátinn Bergþóru, sem kom hingað um vorið 1906 og hóf þá strax veiðar og varð því þriðji vélbáturinn ,sem héðan gekk. Magnús var talinn einn mesti aflamaður hér í Eyjum um sína daga. Sem dæmi um aflasæld Magnúsar, var talið að þeir félag- ar hefðu fengið bátinn borgaðann á þessari fyrstu vorvertíð. Gísla Þórðarsonar naut ekki lengi við. Hann drukknaði í febrú- ar 1920, þegar vélbáturinn Már fórst í fiskiróðri með allri áhöfn. Formaður með bátinn var þá mágur hans, Bernótus Sigurðsson frá Vestra-Stakkagerði, þekktur aflamaður og sjósóknari. Gísli var því aðeins rúmlega tveggja ára, þegar hann missti föður sinn. Rannveig móðir hans lá á sæng, þegar hún missti mann sinn og hafði þá fætt honum dóttur, sem skírð var Berta Gísl- ína. Hún var tekin í fóstur af vinafólki Rannveigar, þeim Em- ilíu og Eyjólfi Ottesen, en þau voru barnlaus. Rannveig giftist svo Haraldi Viggó Björnssyni, bankastjóra hér í Eyjum. Gekk hann Gísla í föður stað og varð mikið ástríki milli þeirra. Gísli var alla tíð glaðsinna og átti hlýtt og gott hjartalag, eins og svo margt af hans ættfólki. Gísli stundaði nám við Verzlun- arskóla íslands. Að því loknu hóf hann störf í Útvegsbankanum hér, en var þar aðeins í nokkur ár. Þá fór hann til Bretlands og stundaði þar framhaldsnárn í verzlunar- fræðum. Skömmu eftir heimkomuna stofnaði hann umboðs- og heild- verzlun hér í Eyjum, sem hann rak framundir gos. Gísli var hörkuduglegur verzlunarmaður og fljótur að átta sig á hlutunum. Gísli hafði, að vonum, mörg járn í eldinum. Svo stiklað sé á stóru má geta þess, að hann beitti sér fyrir stofnun nýrrar prent- smiðju hér og varð þá Prentsmiðj- an Éyrún til, sem enn starfar. Hann eignaðist stóran hluta í Prentsmiðjunni Odda hf. í Reykja- vík. Hann var einn af stofnendum Hafskip hf. og varð seinna stjórn- arformaður þess í mörg ár. Gísli hefur um langt árabil verið vara- ræðismaður fyrir V-Þýzkaland hér í Eyjum. Sæmdu V-Þjóðverjar hann orðu fyrir vel unnin störf. Gísli hafði ætíð mikil afskipti af stjórnmálum og átti lengi sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja á vegum Sjálfstæðisflokksins og um tíma var hann forseti bæjar- stjórnar. Hann var alla tíð mikill Vestmanneyingjur og vildi á öll- um sviðum gera hlut þessa byggð- arlags sem mestan. Hjálpsemi var Gísla í blóð borin. Ótrúlegur fjöldi manna leitaði til hans með vandræði sín, enda tók hann þessu fólki með sinni meðfæddu ljúfmennsku. Sparaði hann þá hvorki fé né fyrirhöfn, til þess að reyna að leysa vanda þessara meðborgara sinna. Árið 1941 kvæntist Gísli eftirlif- andi konu sinni, Guðrúnu Svein- björnsdóttur. Guðrún er mikilhæf kona, sem alla tíð stóð dyggilega við hlið manns síns, en hann átti við vanheilsu að stríða mörg síðustu árin. Þau eignuðust fallegt og notalegt heimili. Þangað var gott að koma, enda voru þau hjónin samtaka um gestrisni og alúð. Þau Gísli og Guðrún eignuðust fjögur börn: Harald, sem kvæntur er Ólöfu Óskarsdóttur, Rannveigu, sem gift er Hirti Hermannssyni, Kristínu, sem gift er Gunnlaugi Ólafssyni og Helgu, sem gift er Geir Sigurlássyni. Eru þau öll búsett í Vestmanna- eyjum. Barnabörnin eru nú orðin tíu. Gisli var trygglyndur og gott að eiga hann að vini. Við eigum nú á bak að sjá einum af beztu sonum Eyjanna og kveðjum hann með virðingu og þakklæti. Ég sendi fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur, en huggun er að eiga dýrmætar minningar um góðan dreng. Guðlaugur Stefánsson Ég sendi vini mínum, Gísla Gíslasyni, á hinstu kveðjustund, innilega þökk fyrir allt í nær 63 ár. Sem uppeldisbræður og frænd- ur höfum við unnið og starfað saman allan þennan tíma. Ekki reyni ég að telja upp öll þau margvíslegu störf sem hann hefur haft með höndum um ævina. Ég stikla aðeins á stóru og minn- ist þess er okkur báða snertir. Ber þar hæst samstarf okkar í Prentsmiðjunni Odda. Gísli átti vissulega mikinn og góðan hlut að vexti og viðgangi þess fyrirtækis. Þar unnum við saman eins og einn maður svo að aldrei bar skugga á. Betri drengur en hann fyrir- finnst ekki. Hann var öllum hjálp- samari og vildi öllum gott gera. Nú, þegar Gísli er horfinn sjónum, reynum við að feta okkur áfram án hans, uns við hittumst aftur. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti honum, af móður, föður og öllum okkar nánu skyld- mennum, sem farin eru á undan yfir móðuna miklu. Ég kveð vin minn og þakka honum alla hjálpina fyrr og síðar og geymi í minni ánægjustundirn- ar, sem við áttum saman. Það var alltaf gaman og indælt að vera í návist hans. Guð varðveiti Gísla. Ég veit að hann heldur áfram að styðja við bakið á mér. Baldur Eyþórsson Hvl varst þú. dauði. bát vinar mlns aA fylla. báict átt þú enn heljarafl þitt aA stilla. Þegar ég heyrði um lát vinar míns, Gísla Gíslasonar, varð ég hljóður, og á sjónskerm minn- inganna komu fram margar myndir frá ánægjulegum kynnum okkar og samverustundum í ára- tuga samstarfi. Þegar vinur minn og bróðir er kvaddur og hefir leyst landfestar og hafið siglingu og ferðalag út á haf hins óþekkta, er mér efst í huga að þakka honum fyrir ógleymanlega velvild og vin- áttu sem hann sýndi mér. Gísli Gíslason var drengskapar- maður og ógleymanlegur persónu- leiki í sjón og reynd. Á víðförlum lífsvegi beindi hann starfsorku sinni og þrótti að framfara- og velferðarmálum, bæði fyrir byggð- arlag sitt og samferðarmenn. Ungur að árum haslaði Gísli sér völl við þjónustu- og viðskipta- störf. Hann var kappsamur og ruddi braut mörgum nýjungum, sem hann sá af glöggskyggni sinni að voru til heilla og framfara fyrir meðborgara hans. Gísli einskorð- aði sig ekki við hans eigin verk- efni, heldur tók mikinn þátt í störfum og starfsemi fyrir heima- byggð sínar, Eyjarnar, sem hann unni af heilindum. Ilann var um tíma í forsvari fyrir okkur í sveitarstjórninni og átti í áraraðir setu þar sem fulltrúi og stjórnandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.