Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980
11
*
Verslunarráð Islands:
Alþingi taki til end-
urskoðunar lög um
tekju- og eignaskatt
Á almennum fundi Verzlunarráðs
íslands. sem haldinn var sl. mánu-
daij á Hótel Söku í Reykjavík. var
samþykkt svohljóöandi tillaga.
áskorun á alþingismenn:
„Almennur félagsfundur í Versl-
unarráði Islands, haldinn að Hótel
Sögu þann 20. október 1980, skorar á
Alþingi Islendinga að taka til endur-
skoðunar gildandi lög um tekju- og
eignaskatt á grundvelli tillagna
Verslunarráðs Islands. í tillögum
þessum felast breytingar á lögum
um tekju- og eignaskatt, byggðar á
reynslu þeirri er þegar hefur fengist.
Þingmenn allra flokka ættu að geta
sameinast um þær, og þar með
stuðlað að traustu atvinnulífi í
landinu og réttlátari skiptingu tekna
af atvinnurekstri."
Ný bók, Æskan að tafli
RÍKISÚTGÁFÁ námsbóka mun á
næstunni gefa út kennslubók í skák
og mun hún bera heitið Æskan að
tafli. Bók þessi er gefin út í
samvinnu við Skáksamband Islands,
og mun hún væntanlega verða notuð
í kennslu í sambandi við skólaskák.
Próf tengd kennslubók þessari verða
fáanleg á skrifstofu Skáksambands
íslands fljótlega. Þráinn Guð-
mundsson skólastjóri hefur haft veg
og vanda af þýðingu bókarinnar.
Ljósm. Mbl. (luófinnur.
Hrafn GK 12 kom til Grindavíkur fyrir siðustu helgi, en
miklar endurbætur og breytingar hafa verið gerðar á skipinu
hjá Slippstoðinni á Akureyri. Meðal annars var skipt um vél í
Hrafni. Ætlunin var að báturinn héldi á loðnuveiðar eins fljótt
og mögulegt væri.
Reytingsafli
á handfæri hjá
Grímseyingum
Grímsey 19. uktóber
VEÐURFAR hefur verið heldur
leiðinlegt undanfarið og sjósókn
því stopul. Afli hefur verið held-
ur tregur í net. en reytingur hjá
minni bátunum. sem eru á hand-
færum. Ilafa þeir komið inn með
4-500 kíló þegar gefið hefur, en
einn er á hverjum báti.
Mikið hefur verið hengt upp í
skreið undanfarið, en einnig salt-
að. Talsvert er um aðkomufólk hér
í Grímsey núna og hefur fólki
verið bætt við eftir að unga fólkið
okkar fór í haust. Auk aðkomu-
fólks í fiskvinnu er nokkuð ura
iðnaðarmenn hér við vinnu í
þriggja íbúða raðhúsi og einbýlis-
húsi, sem hér er í byggingu. Hefur
þessu aðkomufólki aðallega verið
dreift á heimili hér í eynni.
Alfreð
CITROÉN
Okkur tókst það
Ekki bara 1.000.000.-
Heldur 1.500.000-
Eftir samninga við CITROEN verksmiðjurnar getum við boðið takmarkað magn af
hinum glæsilegu CITROEN-GSA á stórlækkuðu verði
Samkvæmt opinberum sænskum skýrslum er CITROfiN einn af fjórum endingarbestu
bílum þar í landi. Framhjóladrifin. Aðeins CITROfiN er búinn vökvafjöðrun, sama hæð
frá jörðu, óháð hleðslu,3 hæðarstillingar, sem gerir bílinn sérstaklega hagstæðan í snjó og
öðrum torfærum. — Þó Hvellspringi á mikilli ferð heldur bíllinn sinni rás á þremur
hjoium. Óviðjafnanlegir aksturseiginleikar
Grípið tækifærið
meðan það gefst
G/obusi
LAGMtlLI 5, SIMI 81555
CITROÉN*