Tíminn - 07.07.1965, Side 2
2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 7. júlf 1965
Miðvikudagur 7. júlí.
NTB-París. — Frakkar eru
ákveðnir í að hindra öll störf
Efnahagsbandalags Evrópu
þangað til hin aðildarlöndin
fimm hafa fulinægt skyldum
sínum varðandi fjármálapólitík
landbúnaðarins. Haft er eftir
áreiðanlegum heimildum í
París síðdegis, að búizt sé við,
að stjómirnar í Bonn eða
Brussel geri fyrr en seinna rót-
tækar ráðstafanir til að hindra
algert hrun Efnahagsbandalags
ins.
NTB-Washington. — Banda-
riska utanríkisráðuneytið
skýrði frá því í dag, að innan
tíðar verði fullgerðar í N-Viet-
nam tvær stórar loftvarnastöðv
ar, búnar eldflaugum. Aðrar
tvær stöðvar munu einnig vera
í smíðum. Talsmaður utanríkis-
ráðuneylísins sagði á blaða-
mannafundi í dag, að Banda-
ríkjamenn hefðu fylgzt með
byggingu stöðvanna frá upp-
hafi og væru þær allar í ná-
grenni Hanoi.
NTB-Saigon. — Hersveitir
frá Ástralíu, ásamt bandarisk-
um og suður-víetnömskum her-
sveitum urðu í dag fyrir harðri
árás Vietcong-manna, er þær
vóru á leið inn í atialvíglínuna
um 65 km fyrir norðan Saigon.
Urðu hersveitimar að biðja um
liðstyrk í skyndingu, enda er
þetta mjög hættulegt og við-
sjált bardagasvæði rétt við
frumskógarjaðarinn, en Viet-
congmenn eru miklu þjálfaðri
í frumskógahernaði en and-
stæðingarnir.
NTB-Genf.* — U Thant, fram
kvæmdastjóri Sþ þáði í dag
boð brezka utanríkisráðherrans
um að koma til Bretl. til við
ræðna Um Vietnam-deiluna.
Framkvæmdastjórinn er nú í
Genf og mun koma við á leið
sinni til New York, sennilega
á fimmtudag.
NTB-Bonn. — Giuseppe
Saragat forseti Ítalíu er nú í
opinberri heimsókn í Vestur-
Þýzkalandi. í dag ræddi hann
við Heinrioh Liibke, forseta
en á morgun mun hann hitta
Ludwig Erhard. kanslara.
NTB-Washington. — í dag
viðurkenndu Bandaríkjamenn
formlega hina nýju stjórn
Houari Boumedienne, forseta í
Alsír og hétu því um leið að at-
huga möguleika á aðstoð og
samvinnu við Alsír.
NTB-Oxford. — Brezk her-
flugvél fórst í dag nálægt Ox-
ford og með henni 41 hermað-
ur. Var flugvélin á æfingaflugi
er hún hrapaði skyndilega og
splundraðist á jörðu.
NTB-Róm. — Hjúskaparmáli
ítalska leikstjórans Carlo Ponti
og leikkonunnar frægu Sophiu
Lóren var frestað enn einu
sinni í dag og verður ekki tek-
ið fyrir á ný fyrr en í haust.
Fánahylling á skáfamótinu. (Tímamynd GBK)
Skátamót í Vaglaskógi
GPK—Akureyri,
Dagana 2. til 4. júlí var hald
ið skátamót í Vaglaskógi, og
voru þátttakendur nálega 260
talsins, bæði stúlkur og piltar
frá 11 skátafélögum víðs vegar
að af landinu, en þar af voru
frá Akureyrarfélögunum tveim
ur um 160 unglingar.
Mótið var sett á föstudags
kvöld, 2. júlí, klukkan 21.30 og
gerði það Gísli Kr. Lórenzsoh,
mótsstjórí. Á laugardaginn var
byrjað með því að blása til
morgunverðar klukkan 7.30 en
síðan var unnið við tjaldbúðar
svæðið, sem var vel skreytt og
skemmtilega. Voru tjaldbúðir
pilta á árbakkanum en búðir
stúlkna í Stórarjóðri. Þá var
undirbúin flokkakeppni, sem
fram fór síðar um daginn.
Klukkan 20 var bæjarstjórn
arfulltrúum Akureyrar og ýms
um blaðamönnum boðið að
skoða tjaldbúðirnar og þiggja
veitingar og horfa á varðeld
skátanná, og • unötr i'þelr*"vlð‘
söng og leik fram eftir kvöldi.
Á sunnudaginn fóru fram víða
vangsleikir, sem allir þátttak
endur í mótinu voru með í.
En eftir hádegi var heimsóknar
tími, og kom þá mikill fjöldi
fólks, foreldrar og aðstandend
ur skátanna og margir fleíri.
son, aðstoðarmótsstjóri Brynj
ar Skaptason, Tómas Búi Böðv
Mótsstjóri var Gísli Kr. Lórenz
arsson og Elín Anna Kröyer
tjaldbúðastjórar og að auki
voru í mótsstjórninni Niels
Gíslason, Hallgrímur Indriða
son, Þorsteinn Pétursson, Krlst
björg Ólafsdóttir, Gunnar
Helgason og Valdimar Gunnars
son og eru þau öll frá Skáta
félögunum á Akureyri.
Auglýst eftir 27 starfsmönnum
JHM—Reykjavík, þriðjudag.
Eins og frá hefur verið skýrt í 21. flokki. Staða fulltrúa, lögfr.
fréttum, þá hefur að undanförnu eða viðskiptafr. laun samkv. 21.
Staða þýðanda, laun samk. 20. og un, loftskeytanám, eða símvirkjun,
samkv. 12. fl. Tvær stöður raf
verið unnið að undirbúningi launa
skrár fyrir veraðandi starfsmenn
íslenzka sjónvarpsins. Nú hefur
verið gengið frá þessum málum
og í kvöld þriðjudag, var auglýst
eftir 27 starfsmönnum fyrir sjón
varpið.
Stöður þessar eru sem hér seg-
ir: staða dagskrárstjóra frétta- og
fræðsludeildar, laun skv. 23.
launaflokki., dagskrárstj. skemmti
deildar 24. launafl., og fjórar stöð
ur stjórnenda dagskrárliða, laun
samkvæmt sérstökum samningi.
fl
Auglýsingastjóri, laun sam-
kvæmt 17. fl. Staða sviðs’tjóra,
laun samkv. 16. fl. Staða teikn-
ara, laun samkvæmt 15 fl.. Staða
vélritara, skjalavarðar, laun sam-
kvæmt 6. til 11. fl. Tvær stöður
verkfræðinga, laun samkvæmt 24.
og 22. fl. Þrjár stöður radíótækni
fræðinga, laun samkv. 18 fl.
Staða ljósmyndara, laun sam-
kvæmt 15. flokki. Kvikmyndatöku
maður, alun samkvæmt 18. flokki
Fimm stöður sjónvarpsvirkja eru
auglýstar, og kröfur um undir-
búningsmenntun eru útvarpsvirkj
Sæmilegt veður var á síldarmið
unum s.l. sólarhring, en síðari
hluta nætur fór veður heldur
versnandi.
Nýr hópur atvinnu-
flugmanna
Nýlega hefur hópur atvinnu-
flugnema lokið bóklegum prófum
frá flugskóla Flugsýnar á Reykja-
víkurflugvelli, og stóðust allir
prófið. Hæstu meðaleinkunn hlaut
, . . , _ Sigurður Elli Guðnason, Suður-
Skipin voru einkum að veiðum landsbrat 64; Reykjavík, 94,2 stig,
120 milur SAaS frá Gerpi. . . en hæst er gefið 100 stig.
Alls tilkynntu 12 skip um veiði j skólastjóri bóklega skóla Flug-
til Dalatangi, samtals 9.350 mál. sýnar er Jón Óskarsson, flugum-
Auðunn GK 750, Gulltoppur KE sjónarmaður, og kenndi hann sigl-
250, Guðbjörg GK 1000. Heimir jngafræði. Veðurfræði kenndi
SU 1300. Sólrún ÍS 700. Ásbjörn Jónas Jakobsson veðurfræðingur.
RE 750, Jón á Stapa SH 550, Ás- flugreglur kenndi Valdimar Ólafs-
Þór RE 1050, Þorsteinn RE 800, son, yfirflugumferðarstjóri, og
Björn Jónsson RE 600. Pétur Sig flugeðiis- og vélfræði kenndi
urðsson RE 700, Ólafur Friðberts Lárus Gunnarsson flugvirki.
son ÍS 900. I Framhald a l4. siðu.
virkja, laun samkv. 15. og 12. fl.
Umsóknir um ofangreindar stöður
eiga að sendast til Ríkisútvarpsins
en þær eiga að vera stílaðar á
Menntamálaráðuneytið, og eiga að
berast fyrir 5. ágúst 1965.
YFIRLÝSING
Vegna auglýsiilga Húsnæðis-
málastofnunar riklsiils dg yfirlýs-
ingar fasteigriaskrifstofu einnar
hér í borg í Morgunblaðinu í gær,
þar sem veitzt er, að því er virð-
ist, að auglýsingu til viðsklptavina
vorra, en þar vdrU þéjj: hváttir
til að sækja um ián tíl HÚshæðls-
málastjórnar fyrir síðustu mán-
aðamót, skal þetta tekið fram:
1. f 7. gr. laga nr. 19 frá 10.
maí 1965 um Húsnæðismálastofn-
un ríkisins segir:
„Útlánareglur húsnæðismáli-
stjórnar skulu vera þessar:
A. Lánin veitast aðeins til bygg
ingar nýrra íbúða, meiri háttaf
viðbygginga eða til kaupa á nýj-
um íbúðum, en lán skal þó þvt
aðeins veita, að loforð um lánveib
ingu hafi verið gefið áður en hlut4
aðeigandi byggingarframkvæmd
hófst eða kaup á nýjum íbúðum
eru gerð. Lánin skulu greidd lán-
takendum í peningum og koma
til útborgunar vor og haust og þá
í hlutfalli við það, hversu langt
er komið byggingu húsnæðisins,
eftir því sem nánar verður ákveð-
ið í reglugerð“.
Með því að byggingarmeistarar
þeir, sem skrifstofa vor annast
sölu fyrir, og eru nú að hefja
byggingar nokkurra fjölbýlishúsa
í Árbæjarhverfinu nýja, höfðu
óskað að skrifstofan hæfi sölu á
íbúðum í húsunum um síðustu
mánaðamót, áleit skrifstofan nauð
synlegt, sbr. ofangreindar útlána-
reglur Húsnæðismálastjórnar, að
hvetja þá aðila, er hug höfðu á
íbúðarkaupum hjá byggingarmeist
urunum, að kanna lánsfjárhæfni
sína og fá loforð um væntanleg
lán í tæka tíð, enda hefur skrif-
stofan ávallt lagt á það áherzlu,
að væntanlegir kaupendur kynni
sér lánshorfur hjá Húsnæðismála-
stjórn, áður en kaup væru gerð.
2. Eins . og viðskiptavinir vorir
geta borið um, hefur skrifstofan
að sjálfsögðu aldrei gefið vilyrði
fyrir lánum Húsnæðismálastjórn-
ar.
Oss hefur ávallt verið ljóst, að
traustir og öryggir viðskiptahætt-
ir eru vænlegastir þegar til lengd
ar lætur og mun skrifstofa vor hér
eftir sem hingað til, gefa viðskipta
vinum réttar upplýsingar varðandi
fasteignir og lánsmöguleika.
Reykjavík, 5. júlí 1965.
Fasteignaskrifstofa
Haraldar Magnússonar,
Tjarnargötu 16.
Minningarhátíð um
sr. ÓlafSæmundsson
SG-Túni: — Sunnudaginn 27. júní
s. 1. var haldin í Hraungerðiskirkju
hátíð í tilefni aldarafmælis séra
Ólafs Sæmundssonar, sem var
prestur í Hraungerðisprestakalli
í 43 ár, þar af aðstoðarprestur í
9 ár. Séra Ólafur var fæddur í
Hraungerði 26. júní 1865. Hann
lét af embætti árið 1933 eftir
mikið og gott starf innan kirkju
og utan.
Á minningarhátíðinni flutti
sóknarpresturinn, séra Sigurður
Pálsson, minningarræðu. Kirkju-
kórinn söng, og Jón H. Jónsson,
skólastjóri í Hlíðardalsskóla, söng
einsöng. en eiginkona hans lék
undir.
Margt fólk var í kirkjunni, þar
á meðal dætur séra Ólafs heitins
og fósturdóttir hans. ásamt fjöl-
skyldum. Þá voru og ýmsir burt-
fluttir vinir og kunningjar. Marg
ar góðar gjafir bárust kirkjunni
til minningar um séra Ólaf. Dæt-
ur hans gáfu fagra altarisstjaka,
og börn Guðmundar Snorrasonar
frá Læk og konu hans, gáfu blóma
vasa á altarið. Áður höfðu sóknar
börnin gefið kirkjunni skímar-
font til minningar um séra Ólaf.
Þá barst mikið af blómum.
Athöfnin var öll hin hátíðleg-
asta og margmenni var í kirkjunni.
2. deild
2. deildar keppnin í handknatt-
leik heldur áfram á Melavellinum
í kvöld og leika þá Þróttur og
Haukar. Hefst leikurinn stundvís-
lega klukkan 20,30.