Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
5
John Travolta og Debra Winger
Uran Cowboy frum-
sýnd með viðhöfn
HáKÓLABÍÓ frumsýnir í kvöld
bandarísku myndina Urban
Cowboy (Borgarkúreki). Mynd
þessi var frumsýnd í Bandaríkj-
unum i sumar og vakti þá mikla
athygli.
Með aðalhlutverkin í Urban
Cowboy fara John Travolta (Sat-
urday Night Fever og Grease) og
Debra Winger.
Myndin greinir frá Bud (John
Travolta) sem vinnur í olíuhreins-
unarstöð í Texas. Á kvöldin heldur
hann sig á bar. Helsta aðdráttar-
afl barsins er vélknúið naut sem
gestirnir ríða.
Kvöld nokkurt hittir Bud Sissý
(Debra Winger) og verður strax
ástfanginn. Þau skötuhjú eru gift
innan viku.
Nokkru síðar ásakar Bud Sissý
um að vera í tygjum við annan
karlmann og hún yfirgefur hann.
Áður en frumsýning myndar-
innar hefst standa Háskólabíó og
veitingahúsið Óðal fyrir ýmsum
uppákomum við bíóið. Hljómsveit-
in Bræðrabandið leikur „country
og western“-lög á hestvagni, Gra-
ham Smith leikur á fiðlu, skátar
sjá um flugeldasýningu og tísku-
sýning verður á sviðinu í Háskóla-
bíói bæði fyrir sýninguna og í hléi.
Einnig halda Óðal og Háskólabíó
sérstökum gestum sínum boð áður
en sýning hefst.
Nýr yfirflug-
stjóri Flugleiða
FLUGLEIÐIR hafa ráðið Jón R.
Steindórsson yfirflugstjóra fé-
lagsins. Hann tekur við af Jó-
hannesi R. Snorrasyni sem lét af
starfi yfirflugstjóra í gær. Jón R.
Steindórsson er 47 ára gamall og
hefur starfað sem flugmaður hjá
Flugleiðum og Flugfélagi íslands
í samtals 27 ár. Þar af sem
flugstjóri í 25 ár. Jón var eftir-
litsflugmaður á DC-3 frá 1962. á
Friendship frá 1%5 og Boeing
727 frá 1977. Hann hefur starfað
í ýmsum nefndum á vegum fé-
lagsins er önnuðust tæknilegar
Þrjú skip
lönduðu ís-
fiski ytra
ÞIIJÚ fiskiskip lönduðu isfiski i
Englandi og V-Þýzkalandi í gær.
Sigurbjörg ÓF seldi 144,5 tonn í
Hull fyrir 121,3 milljónir króna,
meðalverð á kíló var 839 krónur.
Aflinn fór i 1. flokk. en það
lækkar meðalverðið að talsvert
var um grálúðu i aflanum.
Ingólfur GK seldi 110,9 tonn í
Cuxhaven fyrir 62,9 milljónir
króna, meðalverð á kíló 567 krón-
ur. Hrungnir GK seldi 66,6 tonn í
Cuxhaven fyrir 39,5 milljónir
króna, meðalverð á kíló 594 krón-
ur.
Jón R. Steindórsson yfirflug-
stjóri
ákvarðanir fyrir Friendship-
flugvélar og fyrir Boeing 727-
200.
Þá hefur Jóhannes Markússon
einnig frá og með deginum í dag
verið ráðinn yfirflugstjóri Air
Bahama. Jóhannes Markússon
hefur starfað sem flugmaður og
flugstjóri hjá Flugleiðum og Loft-
leiðum frá 1946. Hann var um
árabil yfirflugstjóri Loftleiða og
hafði umsjón með þjálfun flug-
manna félagsins. Jóhannes Mark-
ússon tekur við af Mr. Swartz sem
nú hefur látið af störfum hjá Air
Bahama. Nú eru eingöngu starf-
andi hjá Air Bahama íslenskir og
bahamískir flugmenn.