Morgunblaðið - 03.12.1980, Page 10

Morgunblaðið - 03.12.1980, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980 Ein ritvél, margar leturgerðir Þaö er ekki lengur spurning um hvaða rafritvél þú velur, heldur hvernig letur þú velur í IBM kúluritvélina. IBM kúluritvélin hefur marga kosti umfram aðrar rafritvélar. Einn er að geta skipt um letur. Með einu handtaki má skipta um leturkúlu og fá þannig annað letur, sem kemur að góðum notum við sérstakar bréfa- skriftir, skýrslugerðir og textaskrif. Nú bjóða SKRIFSTOFUVÉLAR h/f upp á fjórðu leturgerðina í IBM kúluritvélar. Sú nýja nefnist Courier 10 og bætist þar með í hóp Advocate, Courier 12 og Scribe, sem þegar eru til með íslenska stafrófinu. Biðjið um letursýnishorn. HVERFISGATA ■íG +Hverfisgötu 33 Smi 20560 Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns. Flytur fyrirlestur um störf og stefnu NATO t DAG kl. 17.15 verður haldinn i HHHHHHHHIH stofu 101 i Lögbergi, húsi laga- deildar Háskóla íslands, fyrir- lestur um NATO og stefnu þess í kjarnorkumálefnum. Fyrirlesar- inn er Paul Buteux, prófessor við Manitoba-háskúla í Kanada. og er hann kominn hingað á vegum félagsvisindadeildar Háskólans gagngert til þessa fyrirlestra- halds. Dr. Paul Buteux hefur starfað við Manitoba-háskóla i 15 ár, en aðalkennslugrein hans þar er stjórnmáiafræði. Er hann i leyfi um þessar mundir og dvelur i London við rannsóknastörf á starfi og stefnu NATO. — I fyrirlestrinum hér ræði ég einkum um stefnu NATO-ríkja varðandi kjarnorkumál og verður fjallað um þær breytingar sem hafa orðið á stefnu NATO síðustu árin með tilkomu kjarnorkuvopna, sagði Paul Buteux í samtali við Mbl. — Hjá langflestum þjóðum hefur verið til umræðu uppbygg- ing og stefna í varnarmálum og valdajafnvægið í Evrópu og reyndar í heiminum öllum er breytingum háð og snerta þessar breytingar margar þjóðir. Þær þurfa að ræða stefnu sína, sátt- Segulstál ,r 1 v Vigtar 1 kiló. Lyftir 60 kílóum. Stæró 8x9x3 sentimetrar. Gott til aö „fiska" upp járnhluti úr sjó, ám, vötnum, gjám, svelg, tönkum. Líka til að halda verkfærum og smíöahlutum. Sendum í póstkröfu. SöyifflgKLÍlgltUIF Vesturgötu 16, sími 13280 Paul Buteux prófessor. Ljósm. KÖE málar og samningar þurfa endur- skoðunar við og hugtök eins og gagnkvæmt traust og málamiðlun þurfa umfjöllunar við. Varnarmál snerta einnig efnahagsmál og hafa áhrif á stefnu stórra sem smárra þjóða í þeim og þannig mætti lengi telja og ræði ég m.a. þessa þætti í fyrirlestrinum. Prófessor Paul Buteux hefur ferðast viða um og flutt fyrir- lestra og auk þess skrifað bækur um þessi efni, en hann kemur nú í fyrsta sinn til íslands. Sem fyrr segir verður fyrirlestur hans kl. 17.15 í dag, en í gær heimsótti hann m.a. stöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Sjö hljómsveit- ir á kynningar- kvöldi SATT HALDIÐ verður kynningarkvöld á vegum Satt (Samband alþýðu- tónskálda og tónlistarmanna) i veitingahúsinu Klúbbnum mið- vikudagskvöldið þriðja desem- ber. Munu þar koma fram sjö hljómsveitir en svo margar hljómsveitir hafa ekki áður komið fram á Satt-kvöldi. Á fyrstu hæð verður leikin íslenzk hljómlist af plötum en á annarri og þriðju hæð munu hljómsveitirnar leika. Hljómleikarnir hefjast stundvís- lega kl. 21.00. Þumalína Jólakjólar, blúasur, skyrtur, vesti og buxur Mjög fallegir úti- og inni-trimmgallar, nærfatnaöur og náttföt í miklu úrvali, allt til sex ára aldurs, aó ógleymdu: Allt til SÆNGURGJAFA og TÆKIFÆRISBRJÓSTAHOLD fyrir mömmu. WELEDA jurta-snyrtivörurnar óviójafnanlegu fáat einnig fyrir alla fjölskylduna. NÆG BÍLASTÆÐI. Sendum í póstkröfu. Þumalína Leifsgata 32, S.12136. Atjan konur, fcrill þeirra og framtak í nútímahlutverkum Hin síðari ár hefur ört stækkandi hópur kvenna gengið lítt troðnar leiðir menntunar og sérhæfðra starfa, andlegra sem verklegra. Hér segja 18 konur sögu sína og sanna góðan árangur athafna, sem án efa hefur á stundum reynf á þolið og kostað erfiði. Afrek þeirra mun verða öðrum fyrirmynd og hvati á braut mennta og starfsvals. — Þetta er tímabær bók í þjóðfélagi, sem ört breytist, verður æ sérhæfðara og flóknara. Gísli Kristjánsson ritstýrði og bjó til prentunar. Fríða Á. Sigurðardóttir: ÞETTA ER EKKERT ALVARLEGT Hér er bók, sem enginn unnandi fagurs skáldskapar má láta framhjá sér fara ólesna. Hér fer saman skilríkt og fagurt mál, ótvíræð frásagnarlist, lífsskilningur og samúð með því fólki, sem frá er sagt. Hér tekst galdur góðrar sagnalistar. — Ahugaverðari höfundur en Fríða A. Sigurðardóttir hefur ekki sent frá sér frumverk um langt árabil. SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SEI HERER BOKIN!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.