Morgunblaðið - 03.12.1980, Side 29

Morgunblaðið - 03.12.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980 29 Fuglafræðingar, sport- veiðimenn og minkur Ingjaldur Tómasson skrifar: „Sigurjón Hallsteinsson, Skorholti, skrifar í Velvakanda Í4. nóv. Hann lýsir fyrst hinu stórgjöfula og dásamlega sumri sem nýliðið er. Síðan tekur hann fyrir hið gegndarlausa rjúpna- dráp þéttbýlisveiðimanna, sem einskis svífast í því að fullnægja drápsfýsn sinni, og afleiðing þessa ráðskapar sé sú, að varla hafi sést rjúpa í Borgarfirði nú í haust. Það er jafnvel einskis virt þótt bændur reyni að verja rjúpnastofninn gegn gereyð- ingu. Skotvargar vaði samt um löndin í algeru óleyfi, skjótandi upp þær fáu rjúpur sem eftir eru. Fegurð og hinn mikli yndis- auki sem blessuð rjúpan veitir, bæði sumar og vetur, sé þessum skotvörgum einskis virði. Með báli og brandi Eg hefi kynnst mörgum mönnum hér í Reykjavík, sem halda því fram í fullri alvöru, að bændur eigi ekki nokkurn um- ráðarétt á því landi, sem þeir eru þó fyllilega löglegir eigend- ur að. Þar megi hinn skotglaði sportveiðiher vaða um löndin „þvers og kruss", myrðandi þær fáu rjúpur (og fleiri fuglateg- undir) sem verða brátt aldauða, verði ekki snúist til varnar af fullum krafti gegn þessum ís- lenska byssuher, sem segja má að fari með báli og brandi hvert ' s I * } fc Ingjaldur Tómasson haust gegn þeim fugli sem er ein fegursta náttúruprýði okkar ekki síst að vetri til. Skotmenn eiga ekki einir sök En hvernig stendur á því að yfirvöld úti á landsbyggðinni hreyfa hvorki hönd né fót til að stöðva hinar árlegu sláturher- ferðir? Hvar eru öll hin rómuðu hagsmunasamtök bænda, allt hið hámenntaða fuglaverndar- lið, og ekki má gleyma Náttúru- verndarráði, sem, eins og nafnið bendir til, hefir verið falið það hlutverk að koma í veg fyrir skemmdarverk á lífríki lands- ins? Sigurjón bendir réttilega á, að skotmenn eigi ekki einir sök á því hvernig komið er. Fugla- fræðingar haldi því blákalt fram, að engin hætta sé á útrýmingu rjúpunnar né nokk- urra annarra fugla vegna of- veiði. Gerði bara ekkert til Ég hlustaði á útvarpserindið sem Sigurjón minnist á og varð mjög undrandi á þeim ummæl- um, að ekki skipti nokkru máli hve mikið væri skotið af rjúp- unni, hún dræpist bara hvort sem væri af ýmsum öðrum orsökum. Og ekki taldi útvarps- lesarinn neina hættu á ferðum þótt mergð villiminka væri nú orðin hin versta plága í lífríki fuglanna um landið allt. Og þessi maður sagðist vita dæmi þess, að þegar minkur kæmist í þétt æðarvarp, þá flýðu allar kollurnar sem undan kæmust — en það gerði bara ekkert til því þær dreifðu sér á stór svæði og legðu niður þann ósið að vera að drita úr sér eggjunum í þétt- býli... Þrír aðilar hafa valdið mestu um útrýmingu rjúpunnar og fjölmargra annarra fuglateg- unda: Fuglafræðingar með líku hugarfari og hér er getið, sportveiðimenn og minkurinn. Ekki svo óálitleg fylking ef allir væru komnir á einn stað.“ Þá auglýsi þeir ekki messu Kristófer Jónsson, Hátúni 29, skrifar: „Kæri Velvakandi! Ég vil biðja þig um að koma því á framfæri fyrir mig, að ef prestar treysta sér ekki til að lesa Guð- spjall þess dags sem þeir messa, þá auglýsi þeir ekki messu. Enn fremur að þeir hætti að biðja fólk að gefa eða kaupa við messugjörð. Með bestu þökk fyrir birting- una.“ fyrir 50 árum „ Múgur og margmenni safnaöist saman hjó nýja Barnaskólanum og Sundhöíl- inni og þar í grend í fyrra- kvöld kl. 7—8. Oafði einhver komið upp með það að hann hefði séð „grimumanni“ skjóta upp hjá Barnaskólan- um. Átti hann að hafa verið eltur, en hann hefði stungið sjer inn í Sundhöllina. Lög- regian kom á vcttvang þegar og rannsakaði Sundhöllina, en þar var auðvitað engan grimumann að finna. Samt stóð fólkið þarna i kös, liklega eitthvað á annað þúsund manns, i klukkustund eða lengur!“ — Og þessi auglýsing var á bls 4: „Ægteskab. En velsitueret islandsk 28 enligstillet Dame. for Tiden i Danmark önsker að Korrespondere með en is- landsk Herre, for vist gen- sidig Sympathi da indgaa Ægteskab. Brev mærket 20.000 modtager Annonse kontoret, Nansensgade 192, Köbenhavn." Illa farið með hunda og menn „Það er víst til lítils að vísa til þess að hundahald sé bannað í Reykjavík, lögreglan lætur sig það engu varða. Skörin er samt farin að færast upp í bekkinn þegar fólk veður inn í banka með hunda sína og lætur þá þvælast fyrir manna fótum meðan það bíður eftir afgreiðslu. Hvað segir banka- stjórnin við því? Eða hvað segir heilbrigðiseftirlitið við því þegar hundur er hafður bak við í verzlun meðan eigandi sinnir afgreiðslu- störfum? Ég segi fyrir mig að ég held helzt ekki áfram viðskiptum í slíkum banka eða slíkri búð. Hér er illa farið með viðskiptavini og illa farið með hundana." B2P SlGeA V/ÖGA í VLVtmi Fáksfélagar Smalaö veröur í hagbeitarlöndum Fáks um næstu helgi. Hestar veröa í rétt sem hér segir: Laugardaginn 6. desember í Saltvík kl. 10—11. Laugardaginn 6. desember í Dalsmynni kl. 13—14. Laugardaginn 6. desember í Arnarholti kl. 15—16. Sunnudaginn 7. desember á Ragnheiöarstöðum kl. 13. Bílar veröa á staönum til flutnings á hrossum. Hagbeitargjald og flutningsgjald greiöast á skrifstofu félagsins í þessari viku, eöa á staönum. Þeir, sem ætla aö hafa hesta sína á fóörum á Ragnheiðarstöðum í vetur eöa fram eftir vetri, þurfa nauösynlega aö tilkynna þaö skrifstofu félagsins og greiöa inn á fóöur. Nokkur pláss eru laus í hesthúsum félagsins í vetur. Hestamannafélagið Fákur. Tilvalin gjafabók Yngvi Jóhannesson: ■ / « ■ / « ■ Ljoöaþyðingar II meö frumtextum Þýöandi þessara Ijóöa er kunnur af Fástþýöingu sinni sem og fyrri Ijóöaþýðingum. Hér er umsögn okkar fremsta Ijóðaþýöanda um þessa bók: „Ég þakka þér hjartanlega tyrlr fallega og umfram allt ágæta b6k sem þú varst svo vænn að senda mér. Ég óska þér tll hamingju með útgáfu hennar og sendi þér um lelö beztu þakklr fyrlr allt sem þú hefur áður þrýðilega gert. Lifðu heill og gangi þér allt í haglnn. Helgi Hálfdanarson - Stafafell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.