Morgunblaðið - 03.12.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
WIKA
Þrýstimælar
Allar stærðir og gerðir.
JltxnigssoxRi <St (Gco>
Vesturgotu 16sími 13280
NY KYNSLOÐ
Snúnlngshraðamælar með raf-
eindaverkl engin snerting eöa
tenging (fotocellur). Mælisviö
1000—5000—25.000 á mín-
útu.
Einnig mælar fyrir allt aö
200.000 á mínútu. Rafhlööudrif
léttir og einfaldir í notkun.
SötuiiFöaicmgjtLair
<Jð»inMon
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
VÉLA-TENGI
Allar gerðir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í — flans.
Tenqið aldrei stál — í — stál,
hafið eitthvaö mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
tækja.
Allar stærðir fastar og frá-
tengjanlegar
SöaMmogjfLOir
tJðsmMon A (S®
v esturgötu 16,
sími 1 3280.
Lið Hauka í Evrópukeppni bikarhafa
HITACH:
HTTACH
Talið frá vinstri, aftari röð: Guðmundur Kr. Aðalsteinsson, form. handknattleiksdeildar, Viðar Símonarson, þjálfari, Stefán Jónsson. Hörður
Harðarson, Svavar Geirsson, Arni Hermannsson. Guðmundur Haraldsson, Árni Sverrisson, Sigurður Guðmundsson, vatnsmaður. Fremri röð
frá vinstri: Sigurgeir Marteinsson, Gunnar M. Gunnarsson, ólafur Guðjónsson, Gunnar Einarsson, Lárus Karl Ingason, Sigurður Sigurðsson.
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
Haukar leika nú í
fyrsta sinn
BIKARMEISTARAR Hauka
mæta Vestur-þýsku bikarmeist-
urunum í iþróttahúsinu i Hafnar-
firði i kvöld kl. 20.00. Þetta er
fyrri leikur liðanna í handknatt-
leik og eru leikmenn Iiðsins
ákveðnir i að standa sig vel i
keppninni. Það kom fram á
blaðamannafundi með forráða-
i keppninni
mönnum Hauka að þeir treysta
mjög á hina dyggu stuðnings-
menn handknattleiksins i Hafn-
arfirði til að koma á leikinn og
hvetja Hauka til sigurs i leikn-
um. Þá er rétt að benda fólki á að
mæta timanlega til þess að forð-
a8t þrengsli og raðir við miðasöl-
una.
Leikmenn TuS Nettelstedt
Nr. Nafn leikmanns fd./ár
1 Klaus Wöiler 23.04.1956
12 Peter Lipp 14.10.1958
3 Hartmut Kania 14.05.1956
5 Klaus Schibschid 06.10.1951
6 Harry Keller 01.02.1955
7 Zdravko Miljak 11.09.1950
8 Uwe Kölling 25.09.1957
9 Dieter Waltke 26.12.1953
10 Peter Pickel 05.11.1948
11 Klaus Waidheim 23.09.1951
13 Hans Júrgen Grund 22.07.1954
14 Milan Lazarevic 12.07.1948
Þjálfari: Martin Karcher 12.11.1946
Fjöldi landsleikja
11 A-land8leikir
13 UL-landsIeikir (Rúm.)
26 A-landsleikir
130 A-landsleikir (Júgósl.)
63 A-landsleikir
28 A-landsleikir
7 A-landsleikir
88 A-landsleikir (Júgósl.)
13 A-Iandsleikir
„Þýska liðið leikur mjög
harðan handknattleik“
- segir Axel Axelsson
„Nettelstedt er greinilega að ná
sér mjög á strik núna i haust
eftir hreint ótrúlega uppgangs-
tima á undanförnum áratug.“
sagði Axel Axelsson er hann var
beðinn að segja lítillega frá
andstæðingum Haukanna i Evr-
ópukeppni bikarhafa Axel hefur
margsinnis leikið gegn Nett-
elstedt og þekkir þvi vel til
leikmanna liðsins. „Það háði lið-
inu dálitið á fyrstu árum Bund-
esligunnar hve ósamstæðir leik-
mennirnir voru en nú virðist
hafa náðst góð blanda leik-
manna. Liðinu hefur gengið mjög
vel það sem af er keppnistimabil-
inu — reyndar ekki leikið við
neitt verulega sterkt lið ennþá.
Það er þvi augljóst að róðurinn
hjá Haukunum verður erfiður.“
Hvernig handbolta
leikur liðið?
„Liðið leikur ákaflega hraðan
handknattleik og byggir mjög á
hraðaupphlaupum. Wöller hefur
geysilega góð köst í markinu og
sendingar hans rata oftast beint í
hendur leikmanna liðsins, sem eru
eldsnöggir fram á völlinn. Liðið
leikur 3-2-1 vörn (pýramídi) og er
erfitt viðfangs — einkum og sér í
lagi á heimavelli sínum. Annars
leika öll þýsk lið gerólíkan hand-
knattleik heima og heiman og
Haukarnir mega búast við því að
mæta gerbreyttu liði er þeir koma
út.“
Hvernig er þá
best fyrir Hauka að
leika gegn þessu liði?
„Ég held að það þýði ekkert
fyrir Haukana nema að leika eins
yfirvegað og þeir frekast geta.
Reyna að halda hraðanum eins
mikið niðri og unnt er og bíða eftir
færum sem skapast. Þeir verða að
vera á varðbergi gagnvart hraða-
upphlaupum Nettelstedt og í al-
vöru talað held ég að það eigi að
vera möguleiki á að vinna þetta lið
hér heima ef vel er á spilunum
haldið," sagði Axel í lokin.
Milan Lazarevic hefur náð að komast i gegnum vðrn HUttenbrrg og
skorar. Til hægri er Harry Keller.
„Fáum engan skell í
kvöld gegn Nettelstedt“
- segir Lárus Karl Ingason
„Ég er alveg harður á því að að
við fáum engan skell gegn Nett-
elstedt en hins vegar verður þetta
erfið barátta hjá okkur sagði
Lárus Karl Ingason, sá leik-
manna Haukanna, sem mest allra
hefur komið á óvart í vetur er
hann var sprður um leikinn gegn
Nettelstedt. Lárus Karl, sem er
21 árs offsetljósmyndari, hefur
svo sannarlega skotist upp á
stjörnuhimininn i haust og vakið
geysilega athygli, sem linumaður
í Haukaliðinu. Er hann með
næstbestu skotanýtingu allra
leikmanna 1. deildarinnar skv.
upplýsingum Visis.
„Það ér staðreynd, sem við
getum ekki horft framhjá" sagði
Lárus Karl „að Haukarnir hafa
alltaf staðið sig langbest þegar við
litlu, sem engu hefur verið búist
við af þeim. Sem dæmi getum við
nefnt bikarleikina í fyrra gegn
Víking, Val og síðan KR í úrslitun-
um og svo við förum lengra aftur
— sigurinn á Gummersbach hér
um árið, sem frægt er orðið. Það
skapast einhvern veginn allt önn-
ur stemning í liðinu þegar allt er
að vinna og engu að tapa.“
Lárus Karl hefur verið viðloð-
andi mfl. Hauka undanfarin ár og
varð íslandsmeistari með 1. flokki
sl. tvö ár. Hann náði hins vegar
ekki að tryggja sér fast sæti í
liðinu fyrr en í haust. „Vendi-
punkturinn var vafalaust í leikn-
um gegn FH um Essó-bikarinn.
Mér tókst þá að pota 3 mörkum og
fékk talsvert að leika með þá.
Síðan hef ég meira eða minna
verið með í leikjunum og gengið
ágætlega. Auðvitað hjálpaði það
mér mjög í fyrstu leikjunum að
enginn vissi nein deili á mér, en ég
fékk ekki að vera lengi gæslulaus í
leikjunum og hef fundið greinilega
mun í siðustu leikjum."
Hvað um fall bar-
áttuna framundan?
„Við föllum ekki — liðið er
einfaldlega allt of gott til þess.
Hinu ber ekki að neita að árangur
okkar í deildinni hefur verið
ákaflega slakur til þessa. Leik-
menn ná einfaldlega ekki að sýna
það sem þeir geta — hverju sem
um er að kenna. Ég á ekki von á
öðru — og trúi ekki öðru — en að
við náum að rifa okkur upp. Góð
frammistaða gegn Nettelstedt
gæti hjálpað upp á sakirnar og ég
á von á því að við getum staðið í
þeim með troðfullt hús dyggra
áhangenda á bak við okkur“ sagði
Lárus Karl og var hinn bjartsýn-
asti.