Morgunblaðið - 03.12.1980, Page 32

Morgunblaðið - 03.12.1980, Page 32
//^-^Síminn á afgreiöslunni er 83033 BRoreunblntiift Síminn á afgreiðslunni er 83033 }Horjjtml>Intii& MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980 Lög á verkf all bankamanna? „ÞAÐ IIEFUR ekki komið beint fram. en það hefur spurzt út, að einkabankarnir ox sparisjóðirnir hafi viljað semja. En samninKa- nefnd bankanna tclur sík bundna af fyrirmælum frá stjórnvóldum,“ sagði Benedikt E. Guðhjartsson. formaður StarfsmannafélaKs Landsbankans á hlaðamannafundi SÍB í K*r. -Því er erfitt að spá um niðurstöður þessarar deilu. en stjórnvóld hafa haft slsem áhrif á Kanj{ mála.“ Frá 1977 hafa verið í gildi lög um Ungmennin í París: Kröfðust pólitísks hælis fyrir 450 manns FRÖNSKU unxmennin úr hópnum OP 20, sem tóku íslenzka sendiráðið í París í síðustu viku sojíðust vera fulltrúar 450 manna hóps andstæðinga herskvldulajja í Frakklandi og kröfðust póli- tísks hælis fyrir allan hópinn. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá dómsmála- ráðuneytinu í I tilkynn- inKunni er vísað til þessarar aðjterðar frönsku unjrmenn- anna og sagt „að það jfeti haft ófyrirsjáanlegar afleiðinj{ar ef látið er undan þrýstingi ofbeldisaðgerða". Hörður Helgason ráðuneyt- isstjóri í utanríkisráðuneytinu tjáði Mbl. í gærkvöldi að lögregluvörður væri nú dag og nótt um sendiráð Islands í París. Hann sagði að félagar úr hópnum OP 20 hefðu ekki aftur komið í sendiráðið. Hins vegar hefði borizt bréf frá hópnum, þar sem deilt væri á íslenzk yfirvöld fyrir meðferð þeirra á Gervasoni-málinu. kjarasamninga starfsmanna banka í eijpi ríkisins og urðu einkabankarn- ir, Verzlunarbankinn, Iðnaðarbank- inn, Samvinnubankinn og Alþýðu- bankinn, svo og sparisjóðirnir aðilar að þessum samningi. „Við lögðum áherzlu á að frestunartími sátta- semjara yrði nýttur til fullnustu til þess að freista þess að ná samning- um, þar sem við töldum sáttatillögu versta kostinn,“ sagði Sveinn Sveins- son, formaður samninganefndar Sambands íslenzkra bankamanna. Á blaðamannafundinum kom fram, að bankarnir hafa undanfarið verið með sérfræðinga í því verkefni að semja frumvarp til laga um kjaradeilu bankamanna og bank- anna. Samkvæmt því, sem banka- menn hafa komizt næst, er frumvarp þetta um bann við verkfallinu og að kjaradeilan verði sett í gerðardóm. Töldu þeir líklegt, að þess yrði síðan farið á leit við Tómas Árnason, bankamálaráðherra, að hann flytti frumvarpið á Alþingi. „Slík laga- breyting leysir engin mál, því að bankamenn munu grípa fyrsta tæki- færi til þess að taka málið upp að nýju,“ sögðu þeir félagar. Þá sögðu bankamennirnir að einn- ig væri í gerjun hugmynd um að breyta lögum um afsögn víxla. Lög um kjarasamning bankamanna kveða aðeins á um undanþágur er varða greiðslu á kröfum bankanna erlendis og landsins. Hins vegar vakna ýmis vandamál er varða afgreiðslu víxla og eins er varða gengisskráningu Seðlabankans í verkfalli. Spurningum er t.d. ósvar- að, hvort erlendar kröfur eigi að reiknast á gengi bankans við upphaf eða endi verkfalls. Efnt til samskota meðal stuðningsmanna Gervasonis á göngum Arnarhvols í gær, þegar ljóst var að hópurinn myndi dvelja næturlangt í sendiráðinu. Ljósm. Mbl. Emilía Nær 30 stuðningsmenn Gervasonis: Ætluðu að dvelja í ráðuneytinu í nótt NÆR 30 stuðningsmenn Frakkans Gervasonis höfðust enn við í biðsal dómsmálaráðuneytisins og á göngum stjórnarráðsins í Arnarhvoli þegar Morgunblaðið frétti síðast hjá lögreglunni í gærkvöldi og hafði hópurinn búið sig undir að dvelja þarna í nótt. Þessi seta hópsins er til að leggja áherslu á þá kröfu að Gervasoni verði ekki vísað úr landi heldur verði honum veitt hæli hér sem pólitískum flóttamanni. Hópur ungmenna, 40—50 manns, mættu í dómsmálaráðu- neytið klukkan 9.30 í gærmorgun. Var hópur fólks þar allan daginn, flestir um fimmleytið, líklega nær 100 manns. Hópurinn hafði ákveð- ið að hlýða ekki skipunum um að yfirgefa staðinn ef til þess kæmi, heldur láta lögregluna bera sig út. Yfirmenn dómsmálaráðuneytisins tóku hins vegar þá ákvörðun í samráði við lögregluna að leyfa fólkinu að vera áfram og þegar það var ljóst fór hópurinn að búa sig til næturdvalar. Efnt var til samskota fyrir vistum og áformað var að sækja kaffivélar o.fl. Lögreglumenn voru á vakt í dómsmálaráðuneytinu í nótt og víðar í húsinu og enn fleiri lögreglumenn voru á verði í lög- reglubílum nálægt Arnarhvoli. Ekki liggur ljóst fyrir hve lengi hópurinn ætlar að verða í ráðu- neytinu en samkvæmt upplýsing- um Mbl. voru gerðar ráðstafanir til þess að nýr hópur stuðnings- manna Gervasonis leysi hinn af hólmi strax í morgun. Fjallað var um mál Gervasonis á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og ennfremur gengu Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Björn „Hógvær skoðanamun- ur í ríkisstjórninni“ — segir dómsmálaráðherra „MÁLIÐ var rætt almennt og ekki gerðar neinar ályktanir um það, og ég tel, að hógvær skoðanamunur sé um málið innan rikisstjórnarinn- ar,“ sagði Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkvoldi, er hann var spurður um umræður um Gervasoni-málið á rfkisstjórnarfundi f gærmorgun. „Menn telja þetta fyrst og fremst mál dómsmálaráðuneytis- ins, sem það er,“ sagði Friðjón ennfremur. Dómsmálaráðherra sagðist lítið vilja segja um atburði gærdagsins, er hópur fólks settist upp í ráðuneytinu, og kvaðst hann ekki telja neina ástæðu til að tjá sig neitt sérstaklega um það mál. Þá kvaðst Friðjón hafa rætt við forseta ASÍ á fundi hjá forsætis- ráðherra, þar sem þeir hefðu gert grein fyrir samþykkt Alþýðusam- bandsþings um málið. Ráðherra sagðist hafa fullan skilning á því að þeir kæmu samþykktum síns fjölmenna þings á framfæri, „en þær eru nú margar samþykktirnar sem gerðar eru á svona þingum, og stundum finnst sumum lítið eftir þeim farið. Eg nefni sem dæmi bunaðarþing, kirkjuþing og fiski- þing,“ sagði ráðherrann að lokum, „allar þessar viðræður hafa farið fram í vinsemd og það er allt í lagi að ræða við hvern sem er um þetta mál, ef það er gert af sæmilegri hógværð.“ Guðrún Helgadóttir sagði í sam- tali við blaðamann Morgunblaðs- ins í gær, að hún teldi sig ekki til stuðningsmanna ríkisstjórnarinn- ar ef Gervasoni yrði vísað úr landi. Guðrún var þá spurð hvort hún myndi ekki styðja ríkisstjórnina í neinu máli, og svaraði hún: „Nei, að sjálfsögðu ekki, ég er ekki stuðningsmaður ríkisstjórnarinn- ar eftir þetta.“ — Ekki einu sinni til „góðra mála“ eins og stundum Friöjúón Þórðnraon Gnórún Helgndóttir dómHmilaráðherra •|W'i«to~«ur er sagt? „Ja, þú veist hvernig þingið fungerar, það skiptist ekki alltaf nákvæmlega. En ríkisstjórn- in byggir á ákveðinni tölu stuðn- ingsmanna, og þeim fækkar þá um einn. „Þú myndir styðja vantraust á ríkisstjórnina? „Já, að sjálf- sögðu." — Þú myndir ef til vill flytja slíka tillögu sjálf? „Ég hef nú ekki hugsað svo langt, því satt best að segja treysti ég því, að þetta mál verði leyst, ég trúi því ekki, að það endi svona. Ég bendi á, að ég, sem og aðrir þingmenn og ríkisstjórnin, á eftir að fá rök dómsmálaráðherra fyrir þessari niðurstöðu. Við vitum ekki ennþá á hverju þessi niðurstaða byggist. Það er því ef til vill ekki ástæða til að skerpa hnífana alveg strax, og dómsmálaráðherra segir, að málið sé enn í ráðuneytinu, og ég hef enn von um skynsamlega lausn máls- ins,“ sagði Guðrún að lokum. „Styð vantraust á stjórnina“ — segir Guðrún Helgadóttir, verði Gervasoni sendur úr landi Þórhallsson varaforseti á fund Gunnars Thoroddsens forsætis- ráðherra og Friðjóns Þórðarsonar dómsmálaráðherra í gær til að ítreka samþykktir ASI-þings um að Gervasoni fengi að dvelja á Islandi. I fréttatilkynningu í gær frá dómsmáláráðuneytinu er ítrekað að Gervasoni hverfi úr landinu á næstu 14 dögum. Segir þar að ekkert bendi til þess að hann verði framseldur til Frakklands frá Danmörku, eins og stuðningsmenn hans hafa sagt. Sjá nánar uih Gervasoni- málið á miðopnu Ráðherranefnd um búvöruverð „MÁLIÐ varð ekki útrætt á ríkisstjórnarfundinum i morgun. en eins og svo oft hefur verið gert áður var sérstakri ráðherranefnd falið að athuga málið,“ sagði Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð- herra, er Mbl. spurði hann um búvöruverðsmálið í gær. Pálmi sagðist ekkert fleira viljk um málið segja á þessu stigi. I ráðherranefndinni eru auk Pálma: Ragnar Arnalds, fjármála- ráðherra, og Tómas Árnason, viðskiptaráðherra. Mbl. spurði Tómas Árnason um búvöruverðs- málið í gærkvöldi, en hann kvaðst ekki vilja segja nokkurn skapaðan hlut um það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.