Morgunblaðið - 21.01.1981, Page 2

Morgunblaðið - 21.01.1981, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 „Atvinnuleysi meira en skrár segja til um“ - segir Karl Steinar Guðnason um atvinnuástandið á Suðurnesjum ATVINNUÁSTAND er nú víða ræða og að nokkuð væri farið að slæmt suður með sjó og atvinnu- bera á því að fólk flyttist brott af leysi sumstaðar talsvert. Verst mun þessum stöðum og jafnvel til Vestur- ástandið vera i Kefiavík, Njarðvík, á Eyrarbakka og Stokkseyri. I samtölum. sem Morgunblaðið átti við ráðamenn nokkurra bæja, kom það fram meðal annars að fólk léti oft á tiðum ekki skrá sig á atvinnu- leysisskrár af ýmsum ástæðum og því gæfu þær ekki alveg rétta mynda af ástandinu. Tíminn á milli vertíða hefur oft verið erfiður á þessum stöðum, en nú virðist sem erfiðleikarnir fari vaxandi. Karl Steinar Guðnason formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur sagði að varlega reiknað væru á annað hundrað manns þar atvinnulausir, þó atvinnuleysisskrár sýndu lægri tölu, stafaði það mikið til af því að fólk léti af ýmsum ástæöum ekki skrá sig. Hann sagði einnig að þarna væri að vissu leyti um árstíðabundna erfiðleika að ræða, en þeir færu sívaxandi og á síðasta ári hefði atvinnuleysi þar verið 30% meira en 1979. Hann sagði einnig að þarna væri aðallega um starfsfólk úr fiskvinnslu og iðnaði að heims. Það kom ennfremur fram hjá Karli Steinari að hann teldi þetta enga tilviljun, atvinnuvegir á Suður- nesjum fengju alls ekki næga fyrir- greiðslu og af þeim sökum hefði meðal annars stórt fiskvinnslufyr- irtæki orðið að hætta störfum og hefði það sitt að segja. „I stefnuskrá ríkisstjórnarinnar er að vísu klásúla um það að atvinnuástand á Suður- nesjum skuli bætt, en sú klásúla er undir þættinum um utanríkismál og það eigum við erfitt með að skilja, enda hafa efndir þessa loforðs verið eftir þessu," sagði Karl Steinar að lokum. Á bæjarskrifstofum Keflavíkur fengust þær upplýsingar að 88 væru nú á atvinnuleysisskrá og væri það aðallega starfsfólk úr fiskvinnslunni og stafaði það mikið til af því að eitt frystihúsa staðarins hefði hætt starfsemi sinni, en þó stæði til að hefja þar saltfiskverkun innan tíðar. I Garði er nú aðeins 2 vörubíl- stjórar á atvinnuleysisskrá og þar Ríkisverksmiðjusamningarnir: Stefnir í verk- fall á miðnætti hefur enginn þar til nú verið skráður atvinnulaus síðan í júní. í Sandgerði er ekkert atvinnuleysi og þar telja menn útlit fyrir að svo verði áfram. Sömu sögu er að segja frá Þorláks- höfn, þar hafa allir vinnu. Á Eyrar- bakka er atvinnuástandið slæmt, nú eru 32 skráðir atvinnulausir og hefur verið lítið um atvinnu frá því í desember, en í þeim mánuði voru 559 atvinnuleysisdagar skráðir. Þetta mun að nokkru leyti stafa af því að togarinn þar, Bjarni Herjólfsson, hefur siglt með afla og var auk þess frá um tíma vegna bilana. Veður hefur einnig hamlað sjósókn minni báta. Á Stokkseyri er ástandiö svipað og hefur verið það frá miðjum desem- ber. Þar eru nú 40 skráðir atvinnu- lausir, en urðu flestir um mánaða- mótin eða 69 alls. „I Vestmannaeyjum eru nú á milli 10 og 15 manns atvinnulausir, en búast má við því að atvinnuleysi sé meira, þar sem nokkuð er um það að fólk skrái sig ekki og á það aðallega við húsmæður, sem eiga tekjuháa maka og fá þvi ekki atvinnuleysis- bætur,“ sagði Jón Kjartansson for- maður Verkalýðsfélags Vestmanna- eyja. Sagði hann að líklega stafaði þetta atvinnuleysi af ógæftum að undanförnu og vonuðust menn til að þarna væri aðeins um árstíðabundið millibilsástand að ræða, sem lagað- ist þegar vetrarvertíðin væri komin í fullan gang. Hugað að skemmdum. Ljósmynd Mbl. Jóhann D. Jónsson. Sídbúinn ók inn 1 Flugstödina Ein rúðan í anddyri flugstöðvarinnar á Egilsstöðum brast með miklum látum þegar einn farþeganna ók bifreið sinni svo gott sem inn í flugstöðina. Manninum lá svo mikið á að ná í flugvél að hann stöðvaði ekki bifreiðina fyrr en í óefni var komið. VINNUMÁLANEFND ríkisins af henti i fyrradag samninganefnd starfsfólks rikisverksmiðjanna og Kisiliðjunnar við Mývatn staðfærð- an Grundartangasamning við samn- ing rfkisverksmiðjanna að undan- skildum 15 atriðum, sem rikisvaldið hefur neitað að samræma. Kamninganefnd starfsfólksins fjall- aði i gær um þetta staðfærða samn- ingstilboð og sagði einn fulltrúa starfsfólksins f gær, að ýmis að- finnsluatriði væru í þvi. Kvað hann augljóst, að vinnumálanefndin hefði ekki ætlað sér að nota þann frest, sem starfsfólkið hafði gefið á verk- falli, til næstkomandi miðnættis, og með þessu tilboði hafi riksvaldið stofnað til margvfslegra ágreinings- efna, sem hann kvað lengri tima taka að leysa. en að aðilar semdu saman samning, sem þeir væru sammála um. Enn hefur engin lausn fundizt á niðurröðun í launaflokka, en þar er enn ágreiningur um stöðu vélstjóra og verkstjóra innan launaflokka- kerfisins. Þetta eru þeir aðilar, er fengið hefðu allt að 30% grunnkaups- hækkun, ef samræming hefði fengizt að fullu við Grundartangasamning. Þetta ágreiningsatriði hefur nú verið sett til hliðar á meðan önnur atriði kjarasamningsins eru til umfjöllunar. Samninganefnd ríkisins hafði áður lagt fram hugmynd til lausnar þess- um röðunarvanda, en aðilar hafa enn ekki svarað henni. Þessi staðfærði Grundartanga- samningur, sem ríkisvaldið hefur lagt fram fyrir ríkisverksmiðjurnar er 20 vélritaðar blaðsíður. Samninga- nefndarmaður starfsfólksins sagði Morgunblaðinu í gær, að slík stað- færsla væri mjög vandasöm, þar sem komið væri inn á margvísleg við- kvæm kjaraatriði, sem krefðust um- fjöllunar. Mun ætlunin að leita eftir viðræðum við vinnumálanefndina í dag, en sáttafundur er boðaður klukk- an 10 og verður þá farin lokayfirferð yfir uppkastið og óskað viðræðna um þau atriði, sem aðfinnsluverð eru. Þau 15 atriði, sem ríkið hefur undanþegið samræmingu, eru marg- vísleg, en þar má nefna atriði, sem eru mismunandi að eðli og efni. Til dæmis snertir það rétt til launa í veikinda- og slysatilfellum, rétt til launa í barnsburðarorlofi, sem hvorttveggja er skert frá eldri samn- ingi og jafnvel er álitamál, hvort ekki er um skerðingu að ræða miðað við almennar reglur samninga og laga. Þá má nefna atriði, er varða uppsagn- arákvæði, en þar mun ríkið vilja hafa frestinn skerta 3 mánuði í stað 3ja. Síðan er um að ræða orðalagsmun og kemur það atriði einkum við rétt manna til yfirvinnu, þar sem um er að ræða óreglulega vinnu bæði í dagvinnu og vaktavinnu, einkanlega þó vaktavinnu. í sumum tilfellum vill vinnumálanefndin, að heimilt sé að flytja yfirvinnu milli daga. Má ætla, að um þetta verði mikill ágreiningur og sagði samninganefndarmaðurinn, að þekkti hann rétt fulltrúa fjármála- ráðuneytisins, þá myndu þeir ekki gefa sig, fyrr en á 11. stundu og yrðu vísir til þess að haida mjög fast í þessi atriði. Formaður stjórnar veitustofnana: „Bjóðum hættunni meir og meir heim“ Dregur að því að fólk þurfi að sitja í kulda „VARNAÐARORÐ hitaveitustjóra nú og áður á sl. tveimur árum varðandi stöðu hitaveitunnar eiga fyllilega rétt á sér og við bjóðum hættunni meir og meir heim með þvi að skerða sífellt framkvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur,“ sagði Valdimar K. Jónsson prófessor og formaður stjórnar veitustofnana í samtali við Mbl. i gær um þau ummæli Jóhannesar Zoega hita- veitustjóra að hann óttaðist mjög kulda hjá notendum hitaveitunnar strax næsta vetur vegna skerð- ingar á rekstri og framkvæmdum Hitaveitu Reykjavikur. Valdimar sagði að eftir að stjórn veitustofnana hefði skorið niður af fjárhagsáætlun það sem mögulega hefði verið talið unnt að skera niður miðað við eðlilega uppbýggingu þó, þá hefði fjárþörfin samt sem áður verið 33% hækkun, en niðurskurður stjórnar veitustofnana af fjárhags- áætlun nam um 5—10%. „Það er því ennþá um 15—20% vöntun að ræða á hækkun miðað við fast verðlag í landinu og er þá ekki miðað við verðbólguna," sagði Valdimap," það sem háir Hitaveit- unni mest og hefur gert síðustu ár er að hafa ekki fengið að vinna framkvæmdir sem myndu skila af sér arði næstu 3—4 ár á eftir. Borunum hefur verið haldið niðri og einnig tankasmíði til þess að brúa bilið í mjklum frostum eins og verið hafa að undanförnu. Það hefur m.a. verið áætlað að tvöfalda kyndistöð í Ármúla, sem er bráðnauðsynleg framkvæmd, en því hefur verið haldið niðri og allt leiðir þetta til þess að við náum ekki toppafli þegar mest 'ríður á þótt grunnmagnið sé nægilegt. Með þessu er gengið á öryggið og það er hætt við því að fólk þurfi áður en langt um líður að sitja einhverja daga í kulda þegar mest herðir. Hitaveitustjóri var kallaður „kuldaboli" á árunum 67— ’68, en hann var margsinnis búinn að vara við stöðu Hitaveitunnar þá og nú er þetta svipað, því gallinn er sá að ríkisstjórnir þurfa ekki þegar þar að kemur að vera ábyrgar fyrir því að þrengja að eðlilegum við- gangi Hitaveitunnar, þær standa svo stutt við og eru því ábyrgðar- lausar í slíkum stórmálum." Borgarstjórnarmeirihlutinn: Gatnagerðargjöld hækka allt að 67% „Björgvin bregst hart við að- gerðum sem hann ráðlagði sjálfur“ — segir framkv.stj. Landssambands bakarameistara „ÞAÐ er mjög undarlegt að Björgvin Guðmundsson skuli bregðast hart við aðgerðum sem hann sjálfur ráðlagði bakara- meisturum að gripa til,“ sagði Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Landssamhands hakarameistara, þegar Mbl. ræddi við hann í gær. „Björgvin kallaði fulltrúa Landssambandsins á sinn fund síðasta sumar. Þar réð hann okkur frá því að hækka vísitölu- brauðin meira en Verðlagsráð hoimilaöi og spurði hvers vegna við hættum okki frekar fram- leiðslu á brauðunum, það væri a.m.k. ekki lögbrot. Nú eru bak- arameistarar í stórum stíl að hætta framleiðslu vísitölubrauð- anna og þá bregst Björgvin hart við og talar um að taka öll brauð og kökur undir verðlagsákvæði. Þetta er erfitt að skilja," sagði Hannes. Hannes sagði aðspurður að bakarar væru í nákvæmlega sömu aðstöðu og BÚR í fisksölu- málinu þótt Björgvin neitaði því. „Björgvin segir að bakarar hafi meira svigrúm en BÚR því þeir hafi frjálsa álagningu á annarri framleiðslu en vísitölubrauðun- um. Sem sagt, bakarar eiga að okra á öðrum vörum til þess að falsa vísitöluna. Þetta er í fyrsta skipti sem það er opinberlega viðurkennt af talsmanni verð- lagsyfirvalda að verði vísi- tölubrauðanna sé haldið niðri til þess að falsa vísitöluna, en þessu hafa bakarar einmitt tengi haldið frarn," sagði Hannes að lokum. BORGARSTJÓRN samþykkti á fimmtudagskvöldið tillögu meiri- hlutans að gjaldskrá um þátt- töku lóðarhafa i kostnaði við hoiræsa- og gatnagerð. Sam- þykkt þessi hefur það i för með sér að hækkun á gatnagerðar- gjöldunum verður allt að 67% á ibúðarhúsnæði, en heimild til hækkunar á gatnagerðargjöldum fyrir atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 16%, en borgarráð tekur ákvörðun um þá hækkun hverju sinni. Gjald þetta er fundið út frá byggingarkostnaði vísitöluhússins miðað við rúmmetra, eins og hann er á hverjum tíma, samkvæmt útreikningi Hagstofunnar. Gatnagerðargjald af einbýlis- húsi eða tvíbýlishúsi sem er allt að 550 rúmmetrar að stærð verður 8%, og er ekki um hækkun þar að ræða, en gjaldið af húsum sem stærri eru en 550 rúmmetrar verður 12%, en var áður 11%. Gatnagerðargjald af raðhúsum, tvíbýlishúsum og keðjuhúsum verður 6%, var áður 4% og er þar um 50% hækkun að ræða. Gjaldið af fjölbýlishúsum sem lægri eru en fjögurra hæða verður 2,5%, en var áður 2%. Gjald af fjölbýlis- húsum sem hærri eru en fjögurra hæða verður einnig 2,5%, en var áður 1,5%, og er þarna um 67% hækkun að ræða. í umræðum í borgarstjórn kom fram í máli meirihlutamanna að gjöld þessi væru hækkuð til sam- ræmis við gjöld í nágrannasveit- arfélögunum, en sjálfstæðismenn töldu að það væri ekki alls kostar rétt og sögðu að gjöld þessi væru lægri í sumum sveitarfélögum. Tillaga meirihlutans var sam- þykkt með 8 atkvæðum fulltrúa Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, gegn 7 at- kvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.