Morgunblaðið - 21.01.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
11
Leikgerð
Olivers
Þjóðleikhúsið:
OLIVER TWIST:
Höfundur: Charles Dickens.
Leikgerð: Árni Ibsen.
Lýsing: Kristinn Daníelsson.
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Leikgerð eftir skáldsögu Char-
les Dickens um Oliver Twist er að
mörgu leyti góð hugmynd, enda
munu fleiri en Árni Ibsen hafa
látið til skarar skríða eftir frétt-
um frá nágrannalöndum okkar að
dæma.
Á leikgerð sögu verður að líta
með sérstökum hætti. Hjá því
verður aftur á móti ekki komist að
samanburður milli leikgerðar og
sögu gerist áleitinn og oft er það
svo að leikgerðir eru ekki nema
svipur hjá sjón. Leikgerð Árna
Ibsens á Oliver Twist þykir mér
gjalda þess að hann er um of
háður sögunni. Þetta kemur ekki
síst fram í veigamiklum þætti
sögumanns sem á að vera Charles
Dickens sjálfur. Sögumaður er
sífellt að blanda sér í framvindu
leiksins eins og höfundur leikgerð-
arinnar hafi gefist upp á því að
láta leikarana sjálfa túlka það
sem máli skiptir. Að mínu mati
eru þetta mistök.
Leikmynd, en þó einkum bún-
ingar Messíönu Tómasdóttur,
draga fram hið afkáralega í per-
sónunum. Ekki hefur leikstjórinn,
Bríet Héðinsdóttir, heldur getað
stillt sig um að gera skrípi úr
einstaka persónum, eins og til að
mynda Bumble, frú Corney og
Fagin. Jafnvel reyndist erfitt að
skilja Baldvin Halldórsson á köfl-
um í hlutverki hins síðastnefnda.
Meðal hlutverka sem ná tökum
á áhorfendum er hlutverk Nancy í
höndum Þórunnar Magneu Magn-
úsdóttur. Það vekur athygli að
minni háttar hlutverkin, ef rétt er
að nota slíkt orðalag, komast
einna best til skila. Ég nefni Jón S.
Gunnarsson í hlutverki Snow-
berrys og önnu Guðmundsdóttur
sem leikur Sallý.
Krakkarnir standa sig vel. Sig-
urður Sverrir Stephensen komst
ágætlega frá hlutverki Olivers
sem er vandasamt fyrir svo ungan
leikara.
Því ber ekki að neita að ýmis-
legt heppnast í sýningunni, eink-
um það sem er af raunsæilegum
toga. Mörg atriði eru hins vegar of
ýkt og eiga þar leikstjóri og
leikarar hlut að máli. Þetta gildir
fyrst og fremst um vonda fólkið í
leiknum. Mætti ætla að höfundur
leikgerðar og leikstjóri telji það
enn bráðlifandi á meðal okkar
samanber Gæti sagan af Oliver
Twist gerst í dag? sem er innlegg
í leikskrá.
Þótt hér hafi verið orðaðar
aðfinnslur um Oliver Twist í
Þjóðleikhúsinu ætti enginn að
hafa verra af að sjá sýninguna.
Meðal þess sem jákvætt er um
leikgerðina er viðleitnin til að
gera fjölskylduskemmtun úr efn-
inu, verk sem brúar bilið milli
barnaleikrits og leikrits fyrir full-
orðna.
Þórunn Pálsdóttir, Evert Ingólfsson og Eyvindur Erlendsson i Plútusi
Aristófanesar.
Þegar Aristófanes gerðist gam-
all, fannst sonum hans karlinn
helsti laus á fé, og sóttu þeir það til
yfirvalda, að tekin yrðu fjárráð af
karlinum. Aristófanes kom fyrir
rétt, og til sannindamerkis um að
hann væri ekki elliær orðinn, las
hann síðasta verk sitt, Plútus, fyrir
réttinum, og mun þetta með
skemmtilegri réttarhöldum í sög-
unni, því Plútus er háðleikur góður.
Plútus — guð auðsins í grískum
sögnum — bjargaði semsé Aristó-
fanesi frá því að missa fjárræðið á
gamalsaldri.
Alls mun Aristófanes hafa skrif-
að fjörutíu leikrit — en aðeins
ellefu hafa varðveist. Leikrit hans
voru samtíðarádeilur, fyndnar og
naprar athugasemdir skáldsins um
samtíðina. Verk Aristófanesar
þykja mikilsverð, hvort heldur er
frá listrænu sjónarmiði eða sögu-
legu, því þau lýsa vel aldarhættin-
um í Aþenu í þrengingunum eftir
Pelopsskagastríðið. Frægasta verk
hans mun vera Riddararnir, þar
sem Kleón, leðursali og um skeið
áhrifamestur lýðforingi Aþeninga,
fékk hina háðulegustu útreið. Ar-
istófanes var líka mjög í nöp við þá
samtíðarmenn sína Evripídes og
Sókrates og skrifaði um þá háð.
Aristófanes var á sinni tíð sjaldan
nefndur annað en „kómikos". Eftir
daga hans hnignaði heimsósóma
Grikkja fljótt, hinn pólitíski áróður
hvarf og háðleikurinn breyttist í
almennan gamanleik.
Hilmar J. Hauksson hefur þýtt
Plútus úr ensku, Geir Rögnvaldsson
leikstýrir verkinu í Fellaskóla, og
Hjördís Bergsdóttir teiknaði bún-
inga. Þórunn Pálsdóttir fer með
aðalhlutverkið, en aðrir leikendur
eru Eyvindur Erlendsson, Kristín
S. Kristjánsdóttir, Evert Ingólfs-
son, Sigrún Björnsdóttir og Kristín
Bjarnadóttir. Framkvstj. Breið-
holtsleikhússins er Jakob S. Jóns-
son.
Það er semsé í kvöld kl. 20.30 sem
Breiðholtsleikhúsið frumsýnir í
fyrsta sinn. Framvegis verður sýnt
í Fellaskóla tvisvar í viku, miðviku-
dagskvöld og sunnudagskvöld.