Morgunblaðið - 21.01.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1981
15
efnahagsráðstafana, er talið, að
kaupmáttur launafólks hefði
lækkað um allt að 5% á árinu
1981. Ennfremur má það öllum
ljóst vera, að launafólk og þjóðfé-
lagið í heild nýtur þess að við
þessar ráðstafanir verður verð-
bólguþróunin hægari en ella hefði
orðið, sem nemur a.m.k. 20—30
prósentustigum.
I efnahagsáætluninni eru
ákvæði um lánamál og vaxtamál
bæði að því er snertir atvinnuveg-
ina og húsbyggjendur. Þar er m.a.
ákvæði um að lækka vexti af
gengistryggðum afurðalánum úr
8 lÁ% í 4% og er þess full þörf, því
vextir og gengistrygging af þess-
um lánum hafa verið sligandi
fyrir ýmsar greinar atvinnulífsins
og numið samanlagt á síðustu
misserum um og yfir 60%. Enn-
fremur er stefnt að almennri
lækkun vaxta 1. mars, sem hlýtur
þó að markast nokkuð af almennri
efnahagsþróun. Gert er ráð fyrir
að halda áfram ströngu aðhaldi í
fjármálum ríkisins og einnig eftir-
liti með útlánum banka og spari-
sjóða, svo sem gert var á síðari
hluta síðasta árs og skilaði góðum
árangri.
Það hefur verið gagnrýnt
harkalega að kveðið er á um það,
að verðjöfnunarsjóði sjávarút-
vegsins verði útvegað fjármagn til
að tryggja eðlilega afkomu fisk-
vinnslunnar ef þörf krefur vegna
stöðvunar gengissigs og á hlið-
stæðan hátt verði útvegað fjár-
magn til að tryggja afkomu sam-
keppnisiðnaðar og útflutningsiðn-
aðar. Um þetta hefur verið sagt,
að ríkisstjórnin sé að koma upp
flóknu og margbrotnu millifærslu-
kerfi og að hún sé að stíga 20—30
ár aftur í tímann. Þessi gagnrýni
er auðvitað ekki á rökum reist.
Ríkisstjórnin hefur engar fyrir-
ætlanir um að taka upp líkt kerfi
og gilti hér fyrir 1960. Hér er
aðeins verið að gefa fyrirheit um
það að verja nokkru fé, og hafa
verið nefndir 10 milljarðar gam-
alla króna í því sambandi, til þess
að hlaupa undir bagga með út-
flutningsatvinnuvegunum þann
tíma, sem gengið er fast, en þvi
miður eru horfur á, að þar verði
um tímabundið ástand að ræða, en
það getur þó verið mikilvægt að
geta lengt það skeið nokkuð með
þessum hætti. Rétt er að minna á
að margsinnis hefur verið úthlut-
að fé til útflutningsatvinnuveg-
anna á undanförnum árum af
ýmsum ríkisstjórnum með svipuð-
um hætti, til að mynda í kjölfar
gengisbreytinga af gengismuna-
sjóði. Stundum hefur það verið
kallað til hagræðingar. Einnig má
minna á, að verðjöfnunarsjóður
sjávarútvegsins hefur bæði veitt
lán og ábyrgðir í þessu skyni.
Tengsl við gjaldmið-
ilsbreytinguna
Ég vil leggja þunga áherslu á
það, að þessar efnahagsaðgerðir
eru gerðar í eins nánum tengslum
við gjaldmiðilsbreytinguna og
unnt er. Þetta er gert til að
styrkja hinn nýja gjaldmiðil,
skapa honum traust, auka trú
fólksins á, að þessi kerfisbréyting
komi að notum í baráttu okkar við
verðbólguna. Þáttur í því er að
hverfa frá svikamyllu gengissigs-
ins, sem hefur læðst áfram með
þungum straumi á undanförnum
árum. Gengissig er vafalaust þæg-
ari aðferð fyrir stjórnvöld heldur
en að grípa til gengisbreytinga
með einhverju millibili. En það
eru auðvitað engin vandamál ef
þau sjást hvergi og ef hvergi þarf
að taka á og spyrna við fótum. Það
hefur verið gagnrýnt, að ríkis-
stjórnin skyldi setja bráðabirgða-
lög á gamlársdag en ekki kalla
saman þing. Þessari gagnrýni vísa
ég gersamlega á bug. Það hefur
magsinnis gerst, að ríkisstjórnin
hafi sett bráðabirgðalög í þinghléi
um áramót, en að þessu sinni var
það algjör nauðsyn. Það var nauð-
synleg og óhjákvæmileg aðferð til
þess að aðgerðirnar yrðu nákvæm-
lega samferða gjaldmiðilsbreyt-
ingunni. Þýðingu þess hef ég áður
vikið að.
í vetur var það gagnrýnt, að
ríkisstjórnin skyldi ekki fresta
gjaldmiðilsbreytingunni vegna
þess að hún myndi ekki verða
tilbúin með neinar efnahagsráð-
stafanir í tengslum við hana.
Ríkisstjórnin sagðist hafa efna-
hagsráðstafanir í undirbúningi, en
hafði þá gagnrýni að öðru leyti að
engu. Nú, þegar ráðstafanir hafa
verið birtar, stendur ekki á gagn-
rýni og tilraunum til þess að
skapa um þær tortryggni á marga
lund. Einhverjum kynni að detta í
hug að kalla þá sem þannig standa
að málum, án þess að hafa tillögur
fram að færa sjálfir, niðurrifs-
menn.
Áhrif á
verðlagsþróun
Margir aðilar í þjóðfélaginu
hafa orðið til þess að spá um áhrif
þessara aðgerða á verðlagsþróun-
ina. Þeir, sem áður spáðu 70—80%
verðbólgu á árinu 1981 og jafnvel
meira, spá nú flestir 50—53%.
Þjóðhagsstofnun spáir 48—50%
verðbólgu. Flestir eru því sam-
mála um, að við þessar aðgerðir
dragi úr hraða verðbólgunnar á
árinu um 20—30%. Ljóst er að
þessi árangur, sem náðst hefur
undir forystu sjálfstæðismanna í
ríkisstjórninni, er ákaflega þýð-
ingarmikill. Mér er til efs að í
annan tíma hafi náðst meiri og
betri áfangi í baráttunni við
verðbólgu síðan kerfisbreytingin
var gerð 1960.
Eins og áður sagði, stefnir
ríkisstjórnin að því að ná verð-
bólgunni niður í 40% eða rúmlega
það á árinu. Ljóst er að ekki
kemur það heim við spár Þjóð-
hagsstofnunar. Rétt er því að
vekja á því athygli að inn í spá
Þjóðhagsstofnunar og í hennar
áætlunum munu ekki nema að
mjög takmörkuðu leyti vera metin
áhrif verðstöðvunar til 1. maí,
ekki áhrif af ákvæðum efnahags-
áætlunarinnar í 4. tl., þar sem
kveðið er á um það að á næstu
mánuðum verði sett ákveðin tíma-
sett mörk fyrir hámark verðhækk-
ana. Þar eru ekki me'tin áhrif
vegna hugsanlegrar aukningar á
niðurgreiðslum, en minna má á í
því sambandi og einnig vegna
fyrirhugaðra breytinga á skatta-
lögum, að í fjárlögum er gert ráð
fyrir 11 milljörðum gamalla króna
til efnahagsaðgerða, þannig að
fjárlögin veita nokkurt svigrúm í
þeim efnum. Að sjálfsögðu ber að
virða það, að opinber stofnun eins
og Þjóðhagsstofnun gerir varlegar
spár um þetta efni og er það síst
aðfinnsluvert. Allar slíkar spár
eru vandasamar, fjölmargir þætt-
ir efnahagsmála eru mikilli óvissu
háðir. Sumir þeirra eru okkur
íslendingum sjálfum óviðráðan-
legir. Á öðrum þeirra ættum við
að geta haft nokkuð mikil tök
sjálfir. Enginn veit með neinni
vissu hver framvindan verður í
þeim efnum. Verði hún okkur
hagstæð, ásamt festu í fram-
kvæmd þessara mála, getur ár-
angur orðið betri en nú er spáð.
Gerist það ekki, verður þörf frek-
ari aögerða síðar á árinu, til að við
náum markmiði okkar.
Þýðing víð-
tækrar samstöðu
Ég legg mikla áherslu á þýðingu
víðtækrar samstöðu um þessi mál.
Sú samstaða á að hafa að mark-
miði að skapa traust á efnahags-
aðgerðunum, að styrkja hinn nýja
gjaldmiðil okkar, nýja krónu, að
treysta íslenskt atvinnu- og efna-
hagslíf. Ef þessi samstaða næst,
höfum við náð öruggum áfanga í
viðureign okkar við verðbólgu og
við höfum fengið góða viðspyrnu
til nýrra átaka við að vega okkur
út úr efnahagsþrengingum síðustu
ára. Erfiðleikar eiga ekki að kalla
á sundrungu, heldur þurfum við á
samstöðu að halda til að sigrast á
þeim.
Við þessar aðstæður er ábyrgð
stjórnarandstöðu mikil. Víst er
það hlutverk stjórnarandstöðu að
veita stjórnvöldum aðhald, en það
er skylda hennar að taka málefna-
lega afstöðu til hinna þýðingar-
mestu mála, ef hún vill láta taka
sig alvarlega. Að þessu leyti beini
ég sérstaklega máli mínu til fé-
laga minna í stjórnarandstöðu
Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir
neikvæð viðbrögð og tilraunir til
að skapa tortryggni í garð þessara
ráðstafana er ekkert sem liggur
beint fyrir um andstöðu þeirra,
þegar málin koma til afgreiðslu.
Mér er líka ekki ljóst, hvernig
stjórnarandstæðingar í Sjálfstæð-
isflokknum fara að því að vera á
móti þessum ráðstöfunum. Getur
það verið, að þeir verði á móti því
að grípa til ráðstafana, sem draga
úr hraða verðbólgunnar um 20—
30% ? Getur það verið, að þeir séu
á móti því að fella við þessar
aðstæður niður 7 vísitölustig? Eru
þeir á móti því að grípa nú til
raunverulegrar verðstöðvunar til
1. maí? Eru þeir á móti stöðugu
gengi? Getur það verið, að þeir séu
á móti aðgerðum í vaxtamálum,
sem komu í veg fyrir, að vextir
hækkuðu um 10% um síðustu
áramót? Getur það verið, að þeir
séu á móti því að taka upp
verðtryggða sparireikninga, sem
bundnir eru til 6 mánaða? Margt
fleira og raunar efnahagsaðgerð-
irnar í heild eru með þeim hætti,
að mér er ekki ljóst á hvern hátt
stjórnarandstaða Sjálfstæðis-
flokksins getur snúist gegn þeim.
En ef hún gerir það, er eitthvað
annað haft að leiðarljósi en hags-
munir þjóðfélagsins.
Mín ráð hafa ekki alltaf verið
mikils metin í Sjálfstæðisflokkn-
um. Þrátt fyrir það ætla ég nú og
enn að ráða stjórnarandstöðu
flokksins heilt. Leggið til hliðar
skæklatog og deilur um fram-
kvæmdaatriði, karp um keisarans
skegg. Leyfið skynseminni að
komast að og takið ábyrga afstöðu
með hagsmuni alþjóðar fyrir aug-
um. Ef Sjálfstæðisflokkurinn í
heild hefur þetta að leiðarljósi,
mun hann eflast að trausti og
virðingu og þá mun stórt skref
stigið fram á veginn í þá átt að ná
flokknum saman til samstilltra
átaka.
Sérstök línu- og netasvæði fyrir
Suðvesturlandi og út af Faxaflóa
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um sérstök
línu- og netasvæði út af Suðvest-
urlandi og Faxaflóa, sem gildi
tekur 1. febrúar 1981.
Samkvæmt reglugerð þessari
eru allar veiðar með botn- og
flotvörpu bannaðar á þremur
tilgreindum svæðum fyrir Suð-
vesturlandi. Er hér um að ræða
tvö ný svæði og ennfremur stækk-
un á þvi linu- og netasvæði út af
Faxafióa, sem sett var i október
1980.
Verður hér gerð grein fyrir
svæðum þessum:
Á tímabilinu frá 1. febrúar til
31. mars 1981, eru allar veiðar með
botn- og flotvörpu bannaðar á 7
sjómílna breiðu svæði utan við
línu, sem dregin er úr punkti
63°33’7 N, 23°03’0 V, vestur og
norður um í 5 sjómílna fjarlægð
frá Geirfugladrangi í punkt 64°
04’9 N, 23°45’0 V og þaðan í 270°
réttvísandi. Að austan markast
svæðið af línu, sem dregin er 213°
réttvísandi úr punkti 63°33’7 N,
23°03’0 V.
Á tímabilinu frá 1. febrúar til
15. maí 1981, eru allar veiðar með
botn- og flotvörpu bannaðar á
svæði, sem að sunnan markast af
línu, sem dregin er réttvísandi
270° frá Stafnesvita í punkt
63°58’3 N, 23°40’5 V og þaðan
síðan um eftirgreinda punkta:
A. 64°04’9 N, 23°45’0 V
B. 64°04’9 N, 23°42’0 V
C. 64°20’0 N, 23°42’0 V og þaðan
í 90° réttvísandi.
Á tímabilinu 20. mars til 15. maí
1981, eru allar veiðar með botn- og
flotvörpu bannaðar á svæði, sem
markast af línum, sem dregnar
eru á milli eftirgreindra punkta:
A. 63°10’0 N, 22°00’0 V
B. 63°25’3 N, 22°00’0 V
C. 63°33’7 N, 23°03’0 V.
Reglugerð þessi er sett að beiðni Grindavík og að fenginni umsögn
sjómanna og útgerðarmanna, Fiskifélags Islands.
einkum frá Suðurnesjum og (Fréttatilkynning)
Loðnulöndun á
Austfjörðum
SÍÐUSTU daga hefur talsvert af
loðnu borizt á hafnir austan-
lands. einkum Neskaupstað,
Eskifjörð og Seyðisf jörð.
Skipin hafa fengið afla NNA af
Langanesi, en loðnan mjakast nú
suður með Austfjörðum. 25 bátar
eru nú byrjaðir á loðnuveiðunum
eftir áramót og eftirtalin skjp
hafa tilkynnt Loðnunefnd um afla
síðan á föstudag:
Föstudagur: Hilmir II 500,
Hrafn 400. Laugardagur: Gull-
berg 550, Albert 480, Þórshamar
500, Seley 200, Jón Kjartansson
700. Sunnudagur: Hákon 550.
Mánudagur: Súlan 320, Borkur
550, Hafrún 370, Skarðsvík 180,
Hilmir II 120, Kap II 160, Sigur-
fari 500, Pétur Jónsson 600, Berg-
ur 100, Víkurberg 100. Þriðjudag-
ur: 530.
Frá bilasýningu Heklu um helgina. Á myndinni má sjá nýja
Lancerinn.
Bílasýning Heklu:
Langmest pantað af
sparneytninn bílum
UM HELGINA kynnti Hekla hf.
1981 árgerðirnar af Volkswag-
en og Mitsubishi, sem fyrirtæk-
ið hefur umhoð fyrir. Að sögn
Sigfúsar Sigfússonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins,
voru 14 mismunandi tegundir á
sýningunni, sem tókst að hans
mati mjög vel, en áætlað er að
um 5 þúsund manns hafi sótt
hana.
„Það má reyndar segja, að
þetta hafi verið meira heldur en
bílasýning, því við gáfum fólki
kost á að skoða bílaverkstæði
fyrirtækisins og varahlutalag-
er,“ sagði Sigfús ennfremur.
Sigfús sagði aðspurður, að þeir
hefðu fengið nokkrar pantanir á
sýningunni, í raun mun fleiri
heldur en þeir höfðu átt von á,
því reyndin í sambandi við
bílasýningar undanfarinna ára
væri sú, að fólk fengi upplýs-
ingar og bæklinga á sýningunum
og kæmi síðar eftir að hafa
athugað málið og pantaði bíl. —
„Við fengum langflestar pantan-
ir í sparneytnu bílunum, þ.e.
Coltinn og Lancerinn, enda
hugsar fólk mest um hversu
miklu bílarnir eyða, auk þess
sem þeir verða að vera á hag-
stæðu verði," sagði Sigfús.
Á síðasta ári flutti Hekla inn
706 Mitsubishi-bíla og liðlega 80
þýzka bíla, Volkswagen og Áudi.