Morgunblaðið - 21.01.1981, Side 17

Morgunblaðið - 21.01.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 17 „Nú skulum við byrja nýjan tíma þjóðlegrar endurreisnar“ - sagði Ronald Reagan, 40. forseti Banda- ríkjanna, þegar hann tók við embætti Washington. 20. jan. — AP. í SETNINGARRÆÐU sinni sló Ronald Reagan Bandarikjafor- seti mjöíí á somu stren>?i og hann gerði í kosninKabaráttunni i sumar ok i haust. Ilann talaöi um efnahaKsmál ok saKÖi. að Banda- rikjamenn þyrftu ekki að fara í neinar KraÍKötur um það, að á þeim yrði tekið. ekki einhvern tíma, heldur „strax í dag“, en annars var meginstefið í ræðu hans þetta: „Nú skulum við byrja nýjan tíma þjóðlegrar endur- reisnar.“ Ronald Reagan, sem er 40. forseti Bandaríkjanna, sagðist ætla að vinna að því að minnka umfang og áhrif alríkisstjórnar- innar, ekki til að afnema hana, heldur til „að gera hana starfhæfa — svo að hún standi með okkur, ekki yfir okkur“. „Blásum nýju lífi í einbeitni þessarar þjóðar, hugrekki hennar og styrk," sagði hann. „Öðlumst nýja trú og nýja von. Við höfum fullan rétt á að láta okkur dreyma stóra drauma." Reagan hét því að efnahagsmál- in yrðu tekin föstum tökum en varaði þó við of mikilli bjartsýni á skjótan árangur. Hann sagði, að kominn væri tími til, að iðnveldið Ameríka vaknaði af værum blundi og að nauðsynlegt væri, að ríkis- valdið kynni sér hóf í stjórnsem- inni. Létta yrði skattbyrðina, sem væri eins og refsivöndur á fólki og fyrirtækjum, og við það „verður hafist handa strax, í þeim efnum gefst enginn kostur á málamiðl- un“. í ræðu sinni sagði hinn nýi Bandaríkjaforseti, að umheimur- inn myndi líta á þjóðlega endur- reisn í Bandaríkjunum sem vott um aukinn styrkleika og hét því að styðja og styrkja bandalagsþjóðir Bandaríkjanna. „Við munum gjalda traust með trúleika," sagði hann. „Við munum leita eftir góðum og gifturíkum samskiptum við aðrar þjóðir og ekki nota okkur vináttu þeirra okkur sjálf- um til framdráttar." Reagan sagði, að takmark bandarisku þjóðarinnar væri frið- ur, en varaði við því, að umburð- arlyndi hennar væri misskilið. Hann sagði, að þó að Bandaríkja- menn væru seinþreyttir til vand- ræða væri það ekki til marks um viljaleysi, og að þegar öryggi þjóðarinnar væri í húfi yrði gripið til nauðsynlegra ráðstafana. í ræðu sinni vék Reagan máli sínu til þjóðarinnar og sagði, að Bandaríkjamenn yrðu að skilja, að ekkert vopn væri máttugra en viljastyrkur frjálsra manna og kvenna. „Hann er vopn,“ sagði hann, „sem Bandaríkjamenn ráða yfir.“ Reagan forseti flytur ræðu sína á svölum þinghússins eftir embættistökuna upp úr kl. 17 í dag að islenzkum tíma. (AP simamynd) FORSETAKOSSINN. — Um leið og Reagan hafði svarið embættiseiðinn snéri hann sér að Nancy konu sinni og þrýsti kossi á Vanga henni. (AP-slmamynd) Mikið um dýrðir í Washington Frá önnu BJarnadóttur fréttaritara MorKunblaÓHÍnN í Wanhington. HÉR ER mikið um dýrðir vegna embættistöku Ronald Reagans og borgin er fánum prýdd. Þúsundir manna hafa verið við hátiðarhöldin, margir langt að komnir, og skóla- og herhljómsveitir hvaðanæva að af landinu hafa verið i fararbroddi i skrúðgöngum. bessa stundina, þegar fjórar stundir eru liðnar frá þvi að hinn nýi forseti sór embættiseið sinn, situr hann ásamt innlendu og erlendu stórmenni i stúku fyrir framan Hvita húsið, brosandi og veifandi. á meðan hann fylgist með aðalskrúðgöngunni streyma hjá. Við embættistökuna var Ronald Reagan klæddur ljósgráum morg- unbúningi, sem þykir hæfa öðrum klæðnaði betur við tækifæri sem þetta, og Nancy forsetafrú var í rauðum kjól, rauðri kápu og með rauðan hatt. Þess má geta að boðsgestir við athöfnina fengu skýr fyrirmæli um klæðnað við þetta hátíðlega tækifæri og áttu karlar að klæðast ofangreindum morgunbúningi, en við hann eru höfð hvít axlabönd og svartir sokkar. Fæstir áttu skrúðann í klæðaskáp sínum og hafa fataleig- ur í borginni því staðið í ströngu að undanförnu. Jimmy Carter, fráfarandi for- seti, var hinn hressasti við athöfn- ina. Hann sat með bros á vör og fylgdist með því sem fram fór, en Rosalynn var hins vegar heldur niðurdregin í ljósbrúnni drakt. Kkki eru menn á einu máli um ástæðuna fyrir fögnuði þeim, sem ríkir um gjörvallt landið. Stuðn- ingsmenn Reagans halda því fram að kætin eigi rót sína að rekja til almennrar ánægju með að fá Reagan á valdastól, en aðrir segja, að fögnuðurinn stafi ekki síður af því að gíslarnir séu nú lausir úr klóm hinna herskáu valdhafa í íran. Carter til Wiesbaden Washington. 20. janúar. — AP. JIMMY Carter. sem í dag lét af embætti forseta Bandaríkjanna. mun á morgun fara til Wiesbaden í V-Þýzkalandi og fagna gíslunum handarísku. Edmund Muskie. utanrikisráðherra í stjórn Carters, skýrði frá þessu í Washington í dag. Jimmy Carter hélt í dag til Plains í Georgíu eftir embætt- istöku Ronald Reagans. Við komuna til Plains sagðist Cart- er vera ákaflega ánægður með frelsi gíslanna, en þeir fóru frá Teheran aðeins 45 mínútum áður en Ronald Reagan tók við embætti forseta Bandaríkj- anna. Carter fer á morgun aftur til Washington og þaðan mun hann halda til Wiesbaden. í fylgd með honum verður Ed- mund Muskie. Ekki er búist við að Carter dveljist lengi í Wies- baden, í hæsta lagi tvo tíma, að haft var eftir einum aðstoðar- manna hans. Ráðherrar í stjórn Carters kvöddu hann þegar hann fór frá St. Andrews-flugvellinum í dag. Hann fór til flugvallarins strax eftir að Reagan hafði svarið embættiseið sinn. Leiðtogar í austri hóflega bjartsýnir WashinKton. 20. jnaúar. AP. TILBOÐ frá Brésneff um gifturíkt samstarf og gagnorð skýrsla um tilgang samskipta Bandaríkjamanna og Kínverja voru liður í kveðjum. sem hinum nýja forseta Bandaríkjanna bárust hvaðanæva að úr heiminum í tilefni embættistökunnar í dag. í skeyti frá Zhao Ziyang forsætisráðherra Kína. fólst áminning um að ágreiningur um Formósu yrði áfram látinn liggja í láginni. Leiðtogar austantjaldsríkj- anna virðast yfirleitt hyggja heldur gott til samskipta við stjórn Reagans, en einn helzti fréttaskýrandi Novosti- fréttastofunnar sovézku, Belov, telur yfirlýsingar Haigs, utan- ríkisráðherra Reagans, og fleiri nýrra ráðamanna í Washington, benda til þess að stjórnin þar hafi meiri áhuga á nýju vígbún- aðarkapphlaupi en nýjum SALT-viðræðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.