Morgunblaðið - 21.01.1981, Page 18

Morgunblaðið - 21.01.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 Ali bjargar mannslífi Loh Angeles, 20. jan. — AP. „STÖKKTU“, hrópaði mann- fjöldinn á götunni að 21 árs Kömlum manni sem gerði sík liklcKan til að fremja sjálfs- morð með því að henda sér úr hrunastiga sem liggur utan á háhýsi. En Muhammad Ali, fyrrum heimsmeistari í hnefa- leikum, sá hvað verða vildi, lofaði manninum atvinnu og fór með hann heim til sin. „Ali bjargaði lífi þessa manns," sagði einn lögregluþjón- anna sem ásamt sálfræðingi, höfðu árangurslaust reynt að fá manninn ofan af því að stökkva úr stiganum. Hann var í þann mund að kasta sér niður er Ali kom á vettvang. Hann hafði verið staddur af tilviljun í húsi beint á móti. „Ert þetta raunverulega þú,“ sagði maðurinn er Ali birtisi. í glugga rétt hjá honum. „Lögreglan hélt að maðurinn hefði byssu og því hafði enginn þorað að nálgast hann,“ sagði AIi. „Ég sagði honum að ég ætlaði út til hans og bað hann að skjóta mig ekki. Hann kvaðst ekki ætla að gera það enda hefði hann enga byssu. Ég trúði hon- um og fór út.“ Þegar Ali stóð við hlið manns- ins sagði hann: „Þú ert bróðir minn. Ég eiska þig og myndi aldrei ljúga að þér. Hlustaðu nú á. Við skulum koma heim til mín, ég vil að þú hittir þar nokkra kunningja mína.“ Eftir hálftíma gengu þeir saman í burtu. Muhammad Ali Nýir kjarasamningar í Danmörku: 7—8% árleg kauphækkun næstu 2 árin Kaupmannahofn, 19. jan. AP. NÝIR kjarasamningar milli aðila danska vinnumarkaðarins, sem undirritaðir voru sl. sunnudag og ná til 200.000 manna, gera ráð fyrir 7—8% kauphækkun árlega næstu tvö árin og er það minnsta árlega kauphækkunin sem orðið hefur sl. áratug. Samkomulagið, sem enn bíður samþykkis félagsmanna verka- lýðsfélaganna, tekur til verka- manna í málmiðnaði og verslun- armanna, sem hvorir tveggja eru meðal stærstu verkalýðsfélaga í Danmörku. Alls hefur þá verið samið fyrir hönd 400.000 launþega og er talið, að þeir samningar, sem enn eru ógerðir, verði á líka Iund. Samstaða stendur f ast á kröfu um laugardagsfrí Walesa innan skamms til Bandaríkjanna Varsjá, 20. janúar. - AP. Á FUNDI Iandsnefndar Samstöðu, hins óháÖa verkalýðsfélaíjs í Póllandi, urðu harðlínumenn í daj? ofan á í atkvæðajíreiðslu um, að halda fast við kröfur um styttingu vinnuvikunnar. Mikill meirihluti nefndarmanna studdi tillögur um fimm daga vinnuviku. Ákvörðun landsnefndarinnar þýðir, að Lech Walesa og hófsam- ir leiðtoýfar samtakanna, hafa orðið undir í at- kvajðagreiðslunni en þeir höfðu lýst sig fylgjandi málamiðlun í samningum um styttingu vinnuvik- unnar. Þrátt fyrir þessa niður- stöðu, þá sögðu heimildir að verkamenn í Póllandi myndu taka áskorun yfir- valda um að vinna tvo laugardaga í mánuði. En þá því aðeins, að samþykkt yrðu lög um frí á laugar- dögum. Ef svo yrði gert, þá Breytingar á dönsku stjórninni: Ráðherrunmn fjölgað og ráðuneytum skipt Kaupmannahofn. 20. jan. Frá fréttaritara Mbl. ANKER Jörgensen. forsætisráó- herra Danmerkur, hreytti i dag skipan stjórnar sinnar og fjölg- aði ráóherrum jafnframt um tvo, úr 18 f 20. Lengi hefur verið búist við breytingum á stjórninni en það var fyrst nú að Anker fékk tækifæri til þess með fráfaili Finns Gundelachs, fulitrúa Dana hjá Efnahagsbandalagi Evrópu. Við starfi Gundelachs hjá EBE tekur Poul Dalsager, sem verið hefur landbúnaðar- og fiskimála- ráðherra í dönsku stjórninni. í hans stað hefur Anker skipað Karl Hjörtnæs sem fiskimálaráð- herra en hann gegndi áður emb- ætti skattamálaráðherra og þótti mjög umdeildur í því starfi. Þetta er í fyrsta sinn að sjávarútvegs- málin fá sitt eigið ráðuneyti og þykir til marks um mikilvægi atvinnugreinarinnar fyrir danskt efnahagslíf. Anker Jörgensen hefur skipað Mogens Lykketoft sem skatta- málaráðherra, en hann er ungur hagfræðingur, sem starfað hefur fyrir verkalýðshreyfinguna. Þriðja konan bætist nú í ráðherra- hópinn, Tove Lindbo, sem taka mun við kirkju- og Grænlands- málaráðuneytinu, en sá sem áður fór með þau mál, Jörgen Peder Hansen, verður aðalræðismaður í Flensborg að eigin ósk. Auk þeirra breytinga, sem hér hafa verið raktar, verður öðru ráðuneyti skipt milli tveggja ráð- herra, innanríkis- og dómsmála- ráðuneytinu. Henning Rasmussen verður áfram innanríkisráðherra en við dómsmálunum tekur Ole Espersen, formaður útvarpsráðs og talsmaður jafnaðarmanna á þingi. I>etta geröist Anker Jörgensen þykir hafa styrkt stjórn sína með þessum breytingum en hún hefur við þrjú meginverkefni að glíma: samninga og lagagerð vegna náttúruauðlind- anna í Norðursjó, efnahagserfið- leika í kjölfar nýrra kjarasamn- inga og nýjar leiðir til lausnar atvinnuleysinu. myndu samtökin ljá máls á laugardagsvinnu fyrst um sinn vegna hins alvarlega ástands efnahagsmála. Lech Walesa og ýmsir helstu leiðtogar Samstöðu áttu í gærkvöldi nokkuð óvænt fund með Josef Pinkowski, forsætisráð- herra landsins. Pinkowski átti frumkvæði að fundin- um. Þessi fundur var helsta forsíðuefni pólskra blaða í dag og þar var tekið undir þá staðhæfingu stjórn- valda, að, eins og málum væri háttað þá væri ekki svigrúm fyrir styttingu vinnuvikunnar. Stanislaw Walesa, faðir Lech Walesa tilkynnti í dag í New Jersey, að sonur hans myndi innan tíðar fara til Bandaríkjanna. Stanislaw starfar í Bandaríkjunum og hann hitti son sinn á Ítalíu í síðastliðinni viku. Að sögn hans mun Lech Walesa fara til Bandaríkjanna inn- an tveggja mánaða. 21. janúar 1606 — Enska þingið dæmir rómversk-kaþólska menn í þung- ar sektir. 1769 — Útgáfa „Bréfa Juniusar“ hefst. 1772 — Útgáfu „Bréfa Juniusar“ hætt. 1793 - Loðvík XVI Frakkakon- ungur hálshöggvinn. 1907 — Bretar viðurkenna í fyrsta sinn tilveru leigubifreiða. 1919 — Þing Sinn Fein í Dyfl- inni samþykkir sjálfstæðisyfir- lýsingu. 1924 — Fyrsta þing kínverskra kommúnista samþykkir þátt- töku kommúnista og fagnar sov- ézkum ráðunautum. 1936 — Játvarður VIII lýstur konungur Stóra Bretlands. 1942 — Afríkuher Rommels hefur nýja sókn í vestureyði- mörkinni. 1949 — Chiang Kai-shek forseti segir af sér í Kína eftir ófarir þjóðernissinna. 1954 — Fyrsta kjarnorkukaf- bátnum, „Nautilus", hleypt af stokkunum í Bandaríkjunum. 1962 — Búlgarskur herflugmað- ur brotiendir á Suður-Ítalíu og biður um hæli. 1970 — Sala á frönskum Mir- age-herþotum til Líbýu kunn- gerð — Byltingartilraun kæfð I fæðingu í Irak og 12 líflátnir. 1973 — Amiicar Cabral ráðinn af dögum í Guineu. 1976 — Bretar og Frakkar taka hljóðfráa Concorde-þotu í notk- un á leiðum frá London til Bahrain og frá Paris til Rio de Janeiro. Afmæli. John Charles Frémont, bandarískur landkönnuður (1813-1890) - „Stonewall* Jackson, bandarískur Suður- ríkjahermaður (1824—1863) — Oskar II Svíakonungur (1829— 1907) — Léo Delbes, franskt tónskáld (1836-1891) - Jack Nicklaus, bandarískur golfleik- ari (1940-). Andlát. 1872 Franz Grillparzer, skáld — 1924 Lenin, byltingar- leiðtogi — 1950 George Orwell. Innlent. 1231 d. Jón Snorrason murtur — 1320 d. Árni bp Helgason í Skálholti — 1828 Kambránsmenn dæmdir — 1886 d. Bergur Thorberg landshöfð- ingi — 1904 d. dr. Jón Þorkels- son — 1944 Bréf Sveins Björns- sonar til forseta Alþingis um kosningu þjóðfundar — 1895 f. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi - 1917 f. Jón úr Vör Orð dagsins. Mikil ógæfa er í því fólgin að vera ekki nógu hnytt- inn til að mælast vel eða vera ekki gæddur nógu mikilli dóm- greind til að þegja — La Bruy- ére, franskur leikritahöfundur (1645-1696). Með kjarasamningunum var á það fallist af hálfu vinnuveitenda að vísitala framfærslukostnaðar bætti launþegum áfram ýmsar verðlagshækkanir en verkalýðsfé- lögin hétu því á móti, að komið yrði í veg fyrir launaskrið næstu tíu mánuði, frá 1. mars að telja. Talsmenn stjórnarflokkanna hafa lýst ánægju sinni með kjara- samningana og Svend Jacobsen, fjármálaráðherra, sagði, að minni þörf væri á nýjum efnahagsráð- stöfunum á þessu ári ef önnur verkalýðsfélög fylgdu þessu for- dæmi. Veður víöa um heim Akureyri -5 snjóél Amttsrdam 5 rigning Aþsna 14 hsióskirt Bsriin -2 snjókoma BrUsssi 9 hoiðskirt Chícago 6 skýjaó Fsnsyjar 12 skýjaó Frankfurt 5 rigning Fnrsyjar 4 alskýjað Gsnf 5 rigning Hsisinki -2 snjókoma Jsrússlsm 13 hsiðskirt Jóhannssarb. 26 hsióskirt Kaupmannahöfn -3 skýjað Las Palmas 20 léttakýjað Lissabon 17 hsiðskírt London 7 skýjaö Los Angsles 21 hsidakirt Madrid 13 hsiðskírt Malaga 20 léttakýjað Mallorka 12 skýjað Miami 19 skýjað Moskva -5 skýjað Nsw York 7 skýjsð Osló -11 skýjað Psrfs 9 skýjsð Rsykjavík -2 úrkoma i grsnnd Rió ds Jansiro 37 skýjað Rómaborg 12 hsiðskirt Stokkhólmur -5 skýjað Tsl Aviv 19 hsiðskfrt Tókýó 8 hsiðskfrt Vancouvsr 3 skýjað Vlnsrborg 11 skýjsð Dollar styrkist Lundúnum. 20. janúar. — AP. BANDARÍSKI dollarinn hækk- aði i verði samanborið við fiesta gjaldmiðla i Evrópu en iækkaði þó samanborið við enska pundið og japanska ycnið. Nokkurs hiks gætti á gjaldeyrismörkuðum og þá vegna óvissu um hvaða stefnu yrði fylgt i vaxtamáium i Banda- rikjunum. Að sögn kauphallarhéðna hafði iausn gísladeilunnar fremur lítil áhrif á gjaldeyrismarkaði en hins vegar verður fylgst náið með hvað íranir munu gera við það mikla fé, sem þeir fengu úr bandarískum bðnkum í skiptum fyrir gíslana. Verð á gulli var 564,50 dollarar hver únsa í Zúrich þegar gjaldeyr- ismarkaðinum þar var lokað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.