Morgunblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
31
„Sigurður er leikmaður
á heimsmælikvarða“
- sagði Stenzel eftir leikinn
„SIGURÐUR SveinsNon er leik-
maður á heimsmælikvarða þegar
honum tekst vel upp,“ sagði hinn
fræifi Stenzel eftir leikinn í gær-
kvoldi. Stenzel sagði að islenska
liðið hefði komið sér verulega á
óvart með góðum leik. Mbl. ræddi
við Sigurð Sveinsson og innti
hann eftir því hvort hann hefði
áhuga á að leika handknattleik í
Vestur-Þýskalandi en fullvist má
telja að hann fái tilboð frá liðum
þar eftir frammistöðuna i gær-
kvöldi. Þá hefur áður spurst út
um hina miklu hæfileika hans.
„Já ég hef mikinn áhuga á að
leika erlendis og þá sérstakiega
hér i Þýskalandi. Það væri lær-
dómsrikt að leika hér i eitt ár. Ég
er í góðri æfingu um þessar
mundir. Ég tel að við höfum verið
óheppnir að vinna ekki í kvöld.
Við eigum að geta unnið þá i
leiknum á fimmtudag er liðin
mætast aftur." sagði Sigurður og
bætti við, „og svo tökum við
vonandi Danina i karphúsið um
helgina.“ — ÞR.
^ lHorpnuMnþi^
QMna
Skíðagönguskóli Morgunblaðsins
malmvr
TonKIN
© Bull’s
Stefán Halldórsson braust inn úr horninu og skoraði jöfnunarmark
tslands.
• Það mikilvægasta við stafina er rétt lengd. Þið getið valið úr mörgum ágætum tegundum.
• Veljið ykkur létta stafi, sem eru sveigjanlegir þannig að arm-átakið verði léttara.
Jafntefli gegn heimsmeisturunum
- með smáheppni hefði sigur getað unnist
ÍSLENSKA landsliðið í
handknattleik gerði sér
lítið fyrir og náði jafntefli
15—15 gegn heimsmeist-
urunum i íþróttinni,
Vestur-Þjóðverjum, í Ham-
borg í gærkvöldi. Að sögn
Hilmars Björnssonar var
íslenska liðið óheppið að
sigra ekki í leiknum því að
mörg góð tækifæri fóru
forgörðum og þá sérstak-
lega síðari hluta leiksins. í
hálfleik hafði íslenska lið-
ið forystu 9—7.
Hilmar sagði í viðtali við Mbl.
að hann hefði lagt upp fyrir
leikinn að leika rólegan og yfir-
vegaðan bolta. Það hefði tekist
mjög vel í fyrri hálfleiknum.
Varnarleikurinn var mjög sterkur
og Jens Einarsson sem var í
markinu allan leikinn varði eins
og berserkur. Ajls varði Jens 18
skot í leiknum. íslenska liðið tók
forystuna í leiknum og eftir 12.
mínútna leik var staðan 3—2 þeim
í vil. Lengst af skildu tvö mörk
liðin en mesti munur voru þrjú
mörk. Lögð var áhersla á að
stöðva hraðaupphlaup Þjóðverja
og tókst það vel.
Liðið sem hóf leikinn var skipað
þessum leikmönnum: í markinu
V-Þýskaland—ísland
15—15
var Jens Einarsson, Stefán Hall-
dórsson í hægra horni, Brynjar
Harðarson í vinstra horni, Sigurð-
ur Sveinsson, Ólafur H. Jónsson,
og Þorbjörn Guðmundsson á miðj-
unni og Steindór Gunnarsson tók
hinn fræga leikmann Wunderlich
úr umferð, Þorbjörn Guðmunds-
son lék aðeins í vörninni en skipti
í sókninni við þá Atla Hilmarsson
og Axel Axelsson, Bjarni Guð-
mundsson og Gunnar Einarsson
eru báðir veikir og gátu því ekki
leikið með.
Þýska landsliðið kom mjög
ákveðið til leiks í síðari hálfleik og
ætlaði sér greinilega ekki að fara
að tapa leiknum fyrir framan 4000
áhorfendur sem á leikinn horfðu.
Þrátt fyrir það hafði íslenska liðið
forystuna alveg þar til á 55.
mínútu þá jafna Þjóðverjar 13—
13. Komast síðan yfir 14—13. Axel
misnotaði vítakast í næstu sókn
og skömmu síðar fer hraðaupp-
hlaup forgörðum eftir sendinga-
mistök hjá Þjóðverjunum. Það er
svo Sigurður Sveinsson sem jafnar
leikinn 14—14. En Sigurður var
tekinn úr umferð af Þjóðverjum
allan síðari hálfleikinn. Hann
hafði skorað 5 mörk í fyrri
hálfleik og gert Þjóðverjum lífið
leitt með þrumuskotum sem ýmist
höfnuðu í netinu eða í markstöng-
unum. Þegar 2 mín. og 20 sek. voru
eftir af leiknum náði Wunderlich
forystu fyrir þýska liðið. í næstu
sókn braust Stefán Halldórsson
laglega inn úr hægra horninu og
skoraði glæsilega og jafnaði met-
in. Jens varði svo meistaralega
gott skot úr horninu þegar 25 sek.
voru eftir af leiknum. Þessar
síðustu sekúndur var lögð áhersla
á að halda boltanum og tryggja
jafnteflið og það tókst.
Að sögn Hilmars var það fyrst
og fremst sterk liðsheild sem vann
þennan sigur. En Sigurður
Sveinsson átti stórleik og skoraði
sjö mörk. Jens var mjög góður í
markinu og þeir Ólafur H. Jóns-
son og Þorbjörn Guðmundsson í
vörninni. Nýliðinn Brynjar Harð-
arson lék allan leikinn og stóð sig
eins og hetja, skoraði fallegt mark
og fiskaði eitt vítakast.
MÖRK ÍSLANDS: Sigurður
Sveinsson 7 2v, Axel Axelsson 3
lv, ólafur H. Jónsson 2, Steindór
Gunnarsson 1, Stefán Halldórssota
1, og Brynjar Harðarson 1. — ÞR
Hópferó á Evrópuleik
Víkings og Lugi
SAMVINNUFERÐIR-LANDSÝN hí. hafa ákveðið að efna til hópferð-
ar á ieik Víkings og Lugi, sem fram fer i Lundi nk. sunnudag.
Tilhögun ferðarinnar er á þann veg, að flogið verður til Kaupmanna-
hafnar laugardaginn 24. janúar kl. 08.15. Dvalið verður á hóteli i
miðborg Kaupmannahafnar í tvær nætur. Farið verður heim
mánudaginn 26. janúar kl. 14.25. Verð ferðarinnar er aðeins 1.890.- en
í verðinu er innifalið: Flug til og frá Kaupmannahöfn, gisting í 2
nætur ásamt morgunverði, ferðir til og frá leik í Lundi og
aðgöngumiði á ieikinn. íslenskur fararstjóri verður með i förinni.
Vegna mikiilar eftirspurnar er fóiki ráðlagt að panta sem fyrst þvi
, sætafjöldi er takmarkaður. Aliar nánari upplýsingar gefur sölufólk
Stenzel þjálfari Þjóðverja. Samvinnuferða-Landsýnar í simum 27077/28899.