Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981 51 Rússar hafa lýst yfir aö ráðageröir Banda- ríkjamanna meö geimskutluna séu upphaf^^ vígbúnaðarkapphlaups úti í geimnum ... g fj OFSÓKNIR Yísindamönn- um aftur vært í Rauða-Kína — Það hefði verið okkur ollum fyrir beztu. eí Mao hefði dáið árið 1954 eða 1955, var nýlega haft eftir mikilsvirtum visindamanni við eina af heiztu vísindastofnunum í Pek- ing. — Þau ár sem hann átti þá ólifuð. bakaði hann þjóðinni KÍfurleKt tjón, bætti hann við. Sá sem svo mælti er eðlisfraeð- ingur, 74ra ára að aldri. Á sínum yngri árum var hann kennari við Chicago-háskóla en árið 1951 fór hann heim til Kína fullur af eldmóði og áhuga á að leggja sitt lóð á vogarskálina til uppbyggingar hins nýja kommúnistaríkis, sem stofnað hafði verið tveimur árum áður. Raunin varð hins vegar sú, að hann þurfti að bíða þess í þrjá áratugi að hæfileikar hans og menntun fengju notið sín, því að hann varð illa úti í menntamanna- ofsóknunum í Kína, sem hófust snemma á sjötta áratugnum og lauk ekki fyrr en við dauða Maos og endalok fjórmenningaklíkunnar. honum allar leiðir opnar: prófess- orsstaða, rannsóknaraðstaða, að- stoðarfólk og fjárhagslegur stuðn- ingur. í hans augum er þó þyngst á metunum sú hugarfarsbreyting í hans garð, sem hann hefur orðið var við hjá öðrum eðlisfræðingum. Hann mun þó til dauðadags bera menjar um þær viðtökur, sem hann hlaut hjá þjóð sinni áður fyrr. Hann er kalinn bæði á höndum og fótum og eru það afleiðingar pynd- inga, sem hann var látinn sæta á tímum menningarbyltingarinnar. Annar kínverskur vísindamaður, sem stendur hinum jafnvel framar, á enn sárari minningar frá fyrr- nefndri „byltingu", en í nokkur ár eftir 1969 var hann hafður í algerri einangrun. Þessi maður er stærð- fræðingur og er áttræður að aldri. Hann ber einnig merki um með- KJARNORKA Sakfelldir sýndir á götum úti á dögum menningarbyltingar- innar. ferðina, sem hann var látinn sæta í einangruninni, og er rúmfastur langtímum saman. Ástæðan er sú, að honum var skipað að beygja sig í auðmýkt með höfuðið á milli hnjánna og olli það honum alvar- legri sköddun á hrygg. Árið 1972 kom til Kina erlendur stærðfræðingur, sem hlotið hafði heimsfrægð. Hann var talinn Kín- verjum mjög vinveittur.í vináttu- skyni við hann var hinn aldni stærðfræðingur leystur úr einangr- un sinni um skeið, og látinn fylgja starfsbróður sínum í kádílják skrýddum rauðum fánum um stræti Peking, en slíkt er einn hinn mesti virðingarvottur sem yfirvöld sýna nokkrum manni. „Hinn erlendi starfsbróðir minn vildi fá að sjá stofnunina mína, en þar hafði ég ekki stigið fæti í fimm ár. Eg kynnti hann fyrir fólki, sem ég hafði aldrei séð, svokölluðum „hugverkamönnum" byltingarinn- ar, sem þá veittu stofnuninni forustu, og svo ræddi ég við hann um stærðfræði, eins og það væru mínar ær og kýr. Síðan fór hann til Evrópu og mælti gegn hverjum þeim, sem dirfðist að gagnrýna kínversk vísindi undir leiðsögn flokksins. En ég hvarf aftur til minnar fyrri iðju, sem var gólf- þvottur." JONATIIAN MIRSKY í árslok 1980 fékk hann bréf frá flokknum, þar sem frá því var skýrt, að árið 1952 hefði hann verið sakaður um að vera njósnari á snærum Bandaríkjamanna. Væri verkefni hans í því fólgið að komast með fingurna inn í kín- versk vísindi í því augnamiði að vinna þeim tjón. Eðlisfræðingurinn hafði aldrei fengið nokkurn pata af þessum ásökunum fyrr en í fyrr- greindu bréfi. Á hinn bóginn varð hann að sæta afleiðingum þeirra sem og hundruð annarra manna, sem til Kína höfðu komið á sömu forséndum. Honum var synjað um starfsaðstöðu og fé til að stunda rannsóknir. I bréfinu, sem honum var sent til uppreisnar æru, eru taldar upp ákærur á hendur honum lið fyrir lið og eru þær allar hraktar. Rannsóknaraðili á vegum flokksins hefur þar undirritað sérhverja ómerkingu. Þetta hefur skipt sköp- um í lífi eðlisfræðingsins. Nú eru Óhappið sem átti ekki að geta átt sér stað Japanir hyggja nú mjög að aukinni raforkuframleiðslu, en þegar eru 22 kjarnorkuver í landinu. Kjarnorkuframleiðslan sætir þó talsverðri gagnrýni og fullyrða menn m.a. að i einu veranna leki geislavirk úrgangs- efni í hverjum mánuði. Þeir sem andstæðir eru hagnýt- ingu kjarnorku hafa stofnað með sér samtök, sem njóta stuðnings sósíalista. Einn helzti forvígismað- ur þessara samtaka er Kuniaki Sakamoto. Hann segir, að til skamms tíma hafi öll mistök, sem átt hafi sér stað í kjarnorkuverun- Þrítugasta óhappið á tíu árum anda bókstafstrúarmanna. kyrrþey. Skýringin á því, hversu hart var tekið á máli hans kom fram í ræðu dómarans. Hann sagði, að ungi maðurinn, sem raunar var af palestínsku þjóðerni, hefði greinilega verið undir áhrifum af vestrænum kvikmyndum og að ofbeldisglæpir yrðu með engu móti umbornir í Sameinuðu arabisku furstadæmunum. Muhammad A1 Bakr, dómsmála- ráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, hefur skýrt frá því opinberlega að öll lög sam- bandsríkisins hafi verið endur- skráð í samræmi við Sharia-regl- urnar, en hafi þó enn ekki tekið gildi sem slík. Dómarar hafa einnig skýrt frá því í einkaviðræðum, að þeim hafi verið gert að sýna hörku. En á þessum slóðum hafa líka ýmsar breytingar verið gerðar í daglegu lífi, sem ekki snerta rétt- arfarið. Til að mynda mega karl- menn ekki lengur starfa á hár- greiðslustofum fyrir konur, hvort sem stofurnar eru í eigu Evrópu- manna eða annarra. I Dubai eru vestræn áhrif líklega meiri en í nokkurri annarri borg við Persaflóa, en þar er nú svo komið að kabarettsýningar, sem konur taka þátt í, eru ekki lengur leyfðar á hótelum. í Qatar og Bahrain eru og ýmis teikn um breytta tíma, t.d. hafa nú allar svínaafurðir verið teknar niður úr hillum verzlana. Og nú fyrir skemmstu var fyrir- skipuð kynskipting í öllum skólum sambandsríkisins. Ná reglur þessar einnig til barna frá Vesturlöndum. Sá sem þar tók af skarið er Saed Salman, menntamálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæm- anna, en hann hefur löngum verið talinn mikill harðlínumaður í Mú- hameðstrú. Ekki lét hann þar við sitja heldur fyrirskipaði einnig að konur mættu aðeins kenna stúlkum og karlar piltum. - ARNOLD DRUMMOND. um, verið þögguð niður, eða þar til ljóst var að geislavirk úrgangsefni komu frá kjarnorkuverinu í Tsur- uga í vesturhluta landsins. Hann segir: „Áður viðurkenndu stjórn- völd aðeins, að um minniháttar slys væri að ræða. Þau hafa gert sér allt far um, að japanska þjóðin standi í þeirri trú að eingöngu sé um ómerkileg mistök að ræða.“ Ekki reyndist yfirmönnum í Tsuruga unnt að draga fjöður yfir þau mistök, sem þar höfðu átt sér stað, eftir að sá orðrómur hafði breiðzt út um héraðið, að fólk vildi ekki snæða fisk úr vatni, þar sem reyndust vera geislavirk úrgangs- efni frá kjarnorkuverinu. Fiski- menn höfðu skýrt frá því, að fiskurinn úr vatninu væri vanskap- aður. Þegar japönsku þjóðinni var skýrt frá því, að geislavirk úrgangs- efni kæmu frá kjarnorkuverinu í Tsuruga urðu viðbrögð hennar mjög svipuð og viðbrögð Banda- ríkjamanna við óhappinu við Three Mile Island í Pennsylvaníu árið 1979. í japönsku kjarnorkuverunum er öryggisbúnaður, sem fræðilega séð útilokar að úrgangsefni streymi út. Þessi búnaður hefur bilað í Tsuruga ekki aðeins einu sinni heldur a.m.k. tvisvar. Shunichi Suzuki, forseti félags- ins, sem rekur kjarnorkuverið, þuldi tárvotur hina hefðbundnu afsökunarbeiðni til þjóðarinnar vegna framkomu félagsins og viður- kenndi jafnframt að 56 starfsmenn við kjarnorkuverið hefðu orðið fyrir geislavirkni, er þeir ösluðu um í vatni, er flætt hafði úr afrennslis- geymi. Þetta var í þrítugasta sinn, sem óhapp hafði orðið í verksmiðj- unni frá því hún tók til starfa árið 1970. Þrátt fyrir þessar uppljóstranir er ekki hinn minnsti möguleiki á því, að Japanir muni draga úr framleiðslu á kjarnorku og hnika til þeim áætlunum, sem hafa verið gerðar þar að lútandi. Hingað til hafa þeir verið mjög háðir innflutn- ingi á olíu, og eru staðráðnir í því, að nú skuli þar verða breyting á. - DONALD KIRK • • Onnur aukasýning á KONU ÁKVEÐIÐ hefur verið að hafa aðra aukasýningu á Konu eftir Dario Fd þriðjudag 19. maí kl. 20.30 en það verður jafnframt allra síðasta sýningin hér i Reykjavik. að sögn talsmanna Alþýðuleikhússins. Verður þetta 37. sýningin á verkinu. . „Kona“ hefur verið sýnd víða í nágrenni Reykjavíkur nú seinast í Hrauneyjarfossvirkjun, þar sem leikhópnum var vel fagnað. Fyrsta júlí leggur Kona af stað í leikferð austur og norður um land og verður fyrsta sýning í Vík og sú síðasta væntanlega í Grímsey, en þangað fór Alþýðuleikhúsið sl. sumar með „Við borgum ekki“ eftir sama höfund. Leikstjóri Konu er Guðrún Ásmundsdóttir, leikmynd er eftir Ivan Török en áhrifahljóð gerði Gunnar Reynir Sveinsson. Leikar- ar í syningunni eru Sólveig Hauksdóttir, Edda Hólm og Guð- rún Gísladóttir. Þjóðhátíðar- dagur Norðmanna í dag í TILEFNI þjóðhátíðardags Norð- manna, sem er í dag, 17. maí, hefur stjórn Nordmannslaget tek- ið saman dagskrá, er hefst með því að kl. 9.30 verður lagður blómsveigur á leiði fallinna Norð- manna, er hvíla í Fossvogskirkju- garðinum. Skólahljómsveit Kópavogs leik- ur. Kl. 10.30 er haldin samkoma fyrir norsk-íslensk börn, þar sem boðið verður uppá veitingar og fleira. Um kvöldið verða hátíðarhöld í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 19.30. Króatar dæmdir New York. 13. mai. AP. FJÓRIR Króatar ákærðir fyrir samsæri um hryðjuverk í New York-borg hafa verið dæmdir í 20 til 35 ára fang- elsi. Mennirnir voru félagar í samtökum króatískra þjóðern- issinna er kallast „Otpor". Þeir voru dæmdir fyrir áform um nokkur sprengjutilræði, m. a. i boði með júgóslavneskum stjórnarerindrekum, og sam- særi um að myrða pólitískan andstæðing, rithöfundinn Jos- eph Badurina. Fjörutíu ára dóm fékk Ivan Cale, sem yfirvöld segja yfir- mann New York-deildar „Otpor“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.