Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 28
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981 tfcimnn „5AG&I ÚG EKKl AÐ MVMPIW VÆRI HUMDUEIO/MI.EG ?/" Ast er... ... að finna dásamleyan sælustraum, þegar hann kemur heim. TM Rto U.S. Pat rtgMs rawvad • 1981 Loc Angdas Tlms Syndtcate Viltu skipta á henni systur minni ok rúlluskautapari? Með morgunkaffinu seija klárinn. HÖGNI HREKKVÍSI Sigríður Guðmundsdóttir skrifar: „Hvað er að verða um Reykja- vík, þessa fallegu vel hirtu borg, þar sem maður gat andað og séð svolítið frá sér? Ég trúði varla mínum eigin augum, þegar ég las í blaðinu að eftir að hafa sam- þykkt að þrengja að Elliðaár- dalnum, þá ætli þeir sem nú ráða ferðinni að halda áfram og ganga á Laugardalinn. Þetta eru tvö mikilvægustu útivistarsvæði framtíðarinnar í Reykjavík. íþrottafólk og unnendur n, gróðurs ættu að rísa upp Annars vegar er Elliðaárdal- urinn, þar sem laxveiðimenn, hestamenn og almennt úti- vistarfólk á að geta unað sér, en það er viðkvæmt svæði og ágangur orðinn mikill, svo að hætt er við að fuglalífið hverfi og mikið álag verði á gróðurinn þegar svona er þrengt að daln- um. Hins vegar er Laugardalur- inn, þar sem íþróttamenn eru að byggja sér upp aðstöðu og hinum megin er gróðurinn í Laugar- dalnum með grasgarðinum, sem Sárt að svo umhverfisfjand- samleg öfl ráði ferðinni hann Hafliði Jónsson var að kynna í sjónvarpinu um daginn. Hvort tveggja þarf stækkunar- möguleika og hver veit hvaða íþróttaaðstöðu eða ræktunar- hugmyndum þarf að bæta við síðar, þegar næsta kynslóð Reykvíkinga tekur við. Ég get varla ímyndað mér að Reykvík- ingar taki þessu þegjandi, að gengið verði á Laugardalinn fremur en hestamenn gerðu um Elliðaárdalinn. Hvar voru laxveiðimennirnir þá eða úti- vistarfólkið? íþróttafólk og unn- endur gróðurs ættu að rísa upp. Það er greinilegt að menn hafa ekki ansað þessum 9000 borgur- um, sem mótmæltu því að hugs- að væri til að ganga á Laugar- dalinn . Til hvers er að rækta þegar allt er lagt í eyði Annað vakti athygli mína í fréttum nú í vikunni. Morgun- pósturinn var að tala við Sigurð Blöndal skógræktarstjóra, sem var hinn ánægðasti með „ár trésins" og sagði eitthvað á þá leið að einkum hefði verið lögð áhersla á að fá fólk í þéttbýli til að rækta í og í nánd við bæi sína. En sá góði maður, sem á að vera verndari gróðurs, minntist ekki á það að hér í Reykjavík er á því sama ári verið að ganga á trjáræktina, með því að undir- búa slátrun á 9000 plöntum í Ártúnsholti, sem unglingar hafa verið að gróðursetja. Og einnig að ákveða að taka undir byggð trjálundinn, sem krakkarnir í Melaskólanum voru látnir planta í tilefni af ári trésins og áttu að horfa á vaxa. Hvað er orðið af þessu hugsjónaskóg- ræktarfólki, að finnast þetta allt í lagi? Það er að mínum dómi beinlínis verkefni þessara aðila að verja ungskóg, sem búið er að planta, ekki bara hugsa um nytjaskóg. Ungur sonur minn, sem plantaði í Ártúnsholti, sagði: Til hvers er að rækta, þegar allt er eyðilagt? Ástandið versnar í stað þess að batna Þá las ég í frétt að fjörurnar séu orðnar svo mengaðar í Reykjavík að heilbrigðiseftirlitið mæiist til þess að hvorki börn á barnaheimilum né unglingar í vinnuskólanum séu látin vera þar. Löngum hafa fjörurnar ver- ið slæmar, en nú keyrir um þverbak. Ef satt er sem ég las í frétt fyrr í vor, að búið sé að loka leiðinni sem stórt ræsi gæti legið eftir yfir Seltjarnarnesið, til að koma skolpinu út í straum, þykir mér það mikil skammsýni. Og sjálf hefi ég séð hvernig Skúla- gatan er bara breikkuð án þess að stútarnir þar séu lengdir út. Svo ástandið versnar í stað þess að batna. Of seint að bjarga Það er því ekki að undra þótt manni finnist sárt að svo um- hverfisfjandsamleg öfl ráði ferð- inni hér í borginni. Og hvar sem menn eru í pólitík, þá vil ég nú mælast til þess að fólk komi til varnar sínum áhugamálum. Iþróttamenn til varnar Laugar- dalnum, ræktendur til varnar skógarplöntum og gegn þreng- ingu að gróðri og göngufólk til að herða á hreinsun á fjörunum. Einkum sýnist mér liggja á að íþróttamennirnir drífi sig í það strax að koma í veg fyrir ágang á þeirra svæði í Laugardalnum. Þegar þetta er allt búið og gert, sem áformað er og virðist rekið áfram meira af kappi en forsjá, er of seint að bjarga. Bay City Rollers: Óþarfi að sýna þátt- inn í þriðja sinn Senor Zýkúrta skrifar 8. maí: „Kæri Velvakandi. Hinn 8. maí sl. skrifaði súkku- laðidrengurinn „herra Flinkur" um það að hann vildi fá súkkulaði- hljómsveitina Bay City Rollers aftur í sjónvarpið. Þó er búið að sýna þáttinn tvisvar, svo að mér finnst, ásamt fleirum, óþarfi að sýna hann í þriðja sinn. Hins vegar mætti alveg endursýna þættina með Rory Gallagher og Jethro Tull (þeir voru sýndir hérna um árið), þar sem þunga rokkið er að verða vinsælt aftur. Nóg af skallapoppi í Evrópusöngvakeppninni Mikil jazz-vakning hefur orðið hér á landi síðustu árin og held ég að það hafi verið nokkuð margir félagar Jóns Múla Á. sem horfðu á Stan Getz og Barböru Thompson. í minningu Led Zeppelin mætti sýna þátt með þeim (ef hann er til), því að þeir eiga örugglega marga aðdáendur hér á landi. Ef „herra Flinkur" getur ekki hlustað á sinfóníur, lúðrasveitir og jazz, þá getur hann bara slökkt á sjónvarp- inu og sett Bay City Rollers á fóninn eða eitthvað svipað. Við fengum nóg af skallapoppi í Evrópusöngvakeppninni."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.