Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAI 1981 67 SVD skolþurrkan athyglisverð nýjung I’annÍK lítur SVD skolþurrkan út. Á mvndinni sést hvernÍK slanKan frá vatnsdælunni tenKÍst þurrkubiaAinu en vatniA spýtist út úr hvoru mejfin þurrkublaðsins á víxl eftir þvi hvernÍK þurrkan hreyfist. NÝ TEGUND af rúðuþurrkum. svonefndar SVD skolþurrkur, eru nú komnar á markað hér- lendis ok er þetta athyKlisverð nýjunK. Árni SchevinK. heild- verzlun, hefur umboð fyrir SVD skolþurrkuna ok fæst hún nú á flestum benzínstöðvum. Fljótt á litið virðast skolþurrkurnar i enKu frábruKðnar venjuleKum rúðuþurrkum en ef betur er að Káð sést að Krönn KÚmmíslanKa er tenKd við neðri enda þurrku- blaðsins ok þaðan niður í rúðu- sprautudaluna. SVD skolþurrkan er útbúin þannig að vatn rennur í gegn um hana og út um göt sitt á hvorri hlið þurrkublaðsins. Þurrkublaðið sér síðan til þess að vatnið renni í, rétta átt með því að opna og loka götunum á víxl. Þegar vatni er dælt á rúðuna, rennur það fram gegn um þurrkublaðið og kemur á þann stað sem það gerir mest gagn þ.e. fyrir framan þurrku- blaðið — í stað þess að venjulegur útbúnaður gefur aðeins frá sér bunu er dreifist á rúðuna eða hittir hana alls ekki í hvassviðri. Því nýtist vatnið einnig betur með skolþurrkunni en ella og ekki er hætta á að frjósi í sjálfum þurrku- blöðunum þar sem gúmmíið press- ar allan vökva jafnóðum burt. Ásetning þurrkanna er einföld og tekur vart meira en nokkrar mínútur. SVD skolþurrkurnar eru seldar í settum sem í eru allir fylgihlutir. Skipt er um þurrku- blöð á hefðbundinn hátt og síðan er gúmmíslangan tengd við T-laga tengi sem síðan er tengt við leiðslu frá vatnsdælunni. I flestum tilvik- um er auðvelt að ganga mjög snyrtilega frá leiðslunum. I samtali við Mbl. sagði Árni Scheving heildsali að stór kostur við skolþurrkuna væri að hún skrapaði aldrei rúðuna þurra — það gerðist hinsvegar nær óhjá- kvæmilega ef venjulegur búnaður væri notaður þegar þurrkan fer af stað á þurri rúðunni. Það sýndi sig líka að skolþurrkan færi mikið betur með rúður. Þá venti hann á að skolþurrkan væri mikið öryggistæki — t.d. þegar aurgusa kæmi á rúðuna í akstri úti á landi, þá hverfa óhreinindin af rúðunni um leið og skolþurrkan fer af stað en það gengi ekki eins fljótt fyrir sig með venjulegum búnaði. Árni kvaðst hafa kynnt skolþurrkuna úti á landi í fyrrasumar og hefðu menn þar sýnt henni mikinn áhuga. SVD skolþurrkan hefur verið í notkun í Svíþjóð og víðar í nokkur ár og hefur reynst mjög vel. Skolþurrkan er framleidd af Safe- ty Vehicles Development AB í Stokkhólmi en einkaumboð á ís- landi hefur Árni Scheving, heild- verzlun. Ófrjósemisað- gerðir helzta getnaðarvörnin Baltimoro. AP. JOIIN Ilopkins-rannsóknastufti- unin i Baltimore skýrði frá því nýlega að nú orðið væru ófnjo- semisaðgerðir helzta getnaðnr- vörn sem beitt va“ri í heiminum og hefði fjöldi slíkra aðgenða fimmfaldazt á siðustu tíu árum. Er hér átt við aðgerðir sem einstaklingar af báðum kynjum ganKast undir af frjálsum ok fúsum vilja. en hlutfallsleya er þessi Kctnaðarvörn algengust í Kína. Niðurstöður Hopkins-rannsókn- arinnar gefa til kynna að þriðj- ungur allra einstaklinga sem geri einhverjar ráðstafanir til að hindra getnað hafi gengizt undir óf rj ósem i saðgerð. Á síðustu tíu árum hefur a.m.k. 21 ríki tekið upp rýmri löggjöf um ófrjósemisaðgerðir en áður var í gildi og í nokkrum ríkjum, t.d. Kína, Indlandi og Singapore, róa stjórnvöld að því öllum árum að þessari aðgerð sé beitt til að halda aftur af fólksfjölguninni, sem þar er gífurlegt vandamál. Aðeins fjögur ríki, íran, Saudi-Arabía, Chile og Perú, hafa sett strangari löggjöf um ófrjósemisaðgerðir. Noregur: Fangaverð- ir leggja niður vinnu Osló. 13. maí, írá Jan Krik Lauré. fréttaritara Morgunhlaðsins. FANGAVERÐIR um gjörvall- an NoreK hafa boðað að þeir muni leKKja niður vinnu i tvær klukkustundir í næstu viku til að mótmæla þvi að geðsjúklingar verði vistaðir i fangelsum. í stað þess að dveljast í sjúkrahúsum. Mál þetta á rót sína að rekja til þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja niður ReitKjerdet-sjúkrahúsið. en þar hafa til skamms tima verið hafðir KeðsjúklinKar. sem sérstaklega erfitt er að eÍKa við. Reitgjerdet-sjúkrahúsið hef- ur á sér óorð, ekki sízt eftir að upp komst að þar lágu margir sjúklingar fjötraðir í rúmum sínum mestallan sólarhring- inn. Þá kom í ljós að sjúkling- um var iðulega „refsað", bæði með barsmíðum og köldum steypiböðum. Reitgjerdet- sjúkrahúsið var komið til ára sinna og eftir því sem fleira misjafnt varðandi reksturinn kom á daginn varð erfiðara að fá hæft fólk til starfa þar. Fór svo að lokum að ríkisstjórnin sá sér ekki annað fært en að leggja sjúkrahúsið niður en það hafði um árabil verið miðstöð fyrir geðsjúklinga, sem ekki var talið fært að vista annars staðar. í mörgum til- vikum er um að ræða árásar- gjarna einstaklinga, sem eru hættulegir umhverfinu, en þrengsli og ónógt öryggi I venjulegum geðsjúkrahúsum hefur gert það að verkum að mörgum Reitgjerdet-sjúkling- um hefur verið komið fyrir í fangelsum. Bæði fangar og fangaverðir hafa látið í ljós megna andúð á þessari ráðstöf- un og benda á að í fangelsum sé ekki hægt að láta í té nauðsynlega læknishjálp. Fé- lagsmálaráðuneytið hefur heit- ið fylkjasjúkrahúsum í landinu auknum fjárframlögum svo hægt sé að bæta húsakost þeirra svo að unnt sé að veita Reitgjerdet-sjúklingum við- töku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.