Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 16
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1981 Þrengsli standa í vegi fyr- ir eðlilegri þróun skólans - segir Jón Nordal skólastjóri SKÓLASTJÓRI Tónlistarskólans í Reykjavík er Jón Nordal, en hann tók við stjórn skóians árið 1959 aí Arna Kristjánssyni. Skólinn var þá ti! húsa í Þrúðvanjíi við Laufásveg í Reykjavík. Jón Nordal er fyrst beðinn að segja frá hverjar breytingar urðu helstar á starfi skólans á þessum árum: — Það má segja, að þáttaskil hafi orðið í starfi skólans haustið 1959 þegar fyrsta kennaradeildin tók til starfa. Sú deild var kostuð af ríkinu og hafði það hlutverk, að mennta og þjálfa kennara í tónlist fyrir almenna skóla. Á næstu árum voru svo settar á stofn að frumkvæði skólans sjálfs hlið- stæðar deildir fyrir hljóðfæra- kennara, píanó-, fiðlu- og blásara- kennaradeildir. Einnig voru tekin upp kröfumeiri próf í hljóðfæra- leik, svokölluð einleikarapróf. Þannig þokaði námi í skólanum smátt og smátt nær því að vera sambærilegt við nám í tónlistar- háskólum erlendis. Svo var það árið 1963 að skólinn flytur úr Þrúðvangi í nýtt húsnæði við Skipholt, sem var mikil framför á þeim tíma, en eftir örfá ár var það húsrými orðið alltof lítið og þrengsli hafa raunverulega staðið í vegi fyrir eðlilegri þróun skólans síðustu árin. Vantar na*Kan fjárstuðning Síðan greinir Jón Nordal stutt- lega frá tilurð skólans: — Tónlistarskólinn var stofn- aður árið 1930 af félögum úr Hljómsveit Reykjavíkur, en tveimur árum síðar var Tón- Iistarfélagið sett á fót fyrst og fremst til þess að reka skólann og hefur gert það síðan með styrk frá ríki og borg. Skólinn er því enn einkaskóli, en þróunin bendir í þá átt, að hann verði ríkisskóli áður en lagt um líður, enda lagasetning í undirbúningi þar að lútandi. Rekstrarformið eins og það er nú hefur ýmsa kosti, en einnig sína galla, t.d. hefur reynst erfitt að fá stuðning yfirvalda við bygg- ingaráform okkar vegna óljósrar stöðu skólans í ríkiskerfinu. Við höfum tilbúnar teikningar að nýj- um skóla, mjög góðar að okkar mati og lóð á hentugum stað. Það sem á vantar er nægur fjárstuðn- ingur til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir. Vonandi þurfum við ekki að bíða of lengi, því komist þessi bygging upp eins og okkur dreymir um, myndi skólastarfið taka fjörkipp svo um munaði. Og finnst mér að saga skólans í hálfa öld hafi sýnt hve mikilvægu hlutverki hann hefur að gegna í íslensku tónlistarlífi og því verður að búa þannig að honum, að hann geti rækt það með fullum sóma. Þá ræðir Jón um tónlistarnámið sjálft, undirbúning og nám erlend- is: — Sá hópur, sem Tónlistarskól- inn hefur brautskráð á fimmtíu árum, er kannski ekki ýkja stór, Jón Nordal skólastjóri Tónlistarskólans. Liwa.: Emilia en þar er þó að finna flesta þá, sem nú bera hita og þunga dagsins í tónlistarlífi okkar. En síðasta áratuginn hefur þeim nemendum fjölgað mikið, sem taka burtfar- arpróf, bæði sem hljóðfæraleikar- ar og kennarar. En þeir verða eflaust fleiri þegar undirbún- ingsmenntun í tónlist verður kom- in í það horf sem nú er unnið að, bæði í almennum skólum og tón- listarskólum. Það sem okkur vantar aðallega nú, eru nógu vel undirbúnir nem- endur fyrir þær deildir skólans, sem þegar starfa á háskólastigi. Skapa þarí starfs- grundvöll Hvert fara nemendur frá ykkur, eru þeir fullnuma? — Nemendur eru sjálfsagt seint eða aldrei fullnuma í tónlist og því fara mjög margir í áfram- haldandi nám og auka þar við prófstig sín og menntun. Hins vegar höfum við kennaralið hér, sem er í flestum tilfellum jafn hæft og kennarar erlendis, svo menn þurfa kannski ekki utan af þeim sökum, en það eykur víðsýni að kynnast tónlistarlífi annars staðar þar sem það er fjölbreytt- ara og auðugra en hér og þá ekki síst á meðal stórþjóða. Einnig er mikils virði að kynn- ast nýjum viðhorfum og skoðun- um og að geta unnið við aðstæður, sem enn er ekki kostur á hér heima, m.a. hvað tónlistarsöfn snertir. Nú eru a.m.k. 50 nemend- ur við tónlistarnám erlendis og langflestir vilja snúa aftur heim. En það verður sífellt erfiðara fyrir vel menntað tónlistarfólk að fá hér störf við sitt hæfi. Nú er það brýnt að unnið verði að því að skapa starfsgrundvöll fyrir þetta fólk svo við fáum að njóta hæfi- leika þess hér heima. Auk hefðbundinnar kennslu hefur Tónlistarskólinn síðustu ár- in haldið ýmis konar námskeið. Segir skólastjórinn þau hafa verið vel sótt og tekist hafi að fá frábæra leiðbeinendur erlendis frá. Auk þess hafa nemendur komið að utan til að sitja nám- skeið hjá Tónlistarskólanum, t.d. Zukofsky-námskeiðið, sem haldið hefur verið hér í 4 ár, fyrst með 10 til 15 nemendum, en í fyrra voru þeir orðnir á annað hundrað. Þá eru oft styttri námskeið og lista- menn, sem hér eru á ferð, líta við í skólanum, halda fyrirlestra, spila og kenna. En Jón Nordal nefndi áðan aukin umsvif skólans og er spurður nánar um þau: Notum alla tónloikasali — Þau koma kannski einna bezt fram þegar við lítum á hið mikla tónleikahald, sem hér fer fram. Auk tónleika innan skólans eru haldnir 15 til 20 opinberir tónleikar á hverju skólaári og segja má að við notum öll nothæf tónleikahús og sali í Reykjavík. Við þurfum að halda einleikstón- leika, kammertónleika, kór- og hljómsveitartónleika og ýmsa blandaða tónleika, nemendur tón- menntakennaradeildar halda tón- leika og ekki má gleyma söngnum, þótt hann hafi orðið meira útund- an en aðrar greinar hingað til. Tónleikaröðin, sem við héldum nýlega á Kjarvalsstöðum gaf nokkuð góða mynd af þessari fjölbreytni, en þrátt fyrir það eigum við enn eftir að hálda 7 tónleika til vors. Að lokum er Jón Nordal spurður um starfið sjálft, hvort þetta hafi verið það sem hann ætlaði að leggja fyrir sig, en hann hefur menntað sig í píanóleik og tón- smíðum: — Nei, svo sannarlega ekki! Stjórnunarstörf og sá erill og þær áhyggur sem þeim fylgja eiga raunverulega ekki við mig. En að svo mörgu leyti er þetta heillandi starf. Fátt jafnast á við það, að kynnast og fylgjast með gáfuðu æskufólki, sem hefur fundið sína réttu hillu í lífinu, sjá það vaxa að þroska og getu, stundum ótrúlega hröðum skrefum. Það veitir manni djúpa gleði og fullnægju, sem bætir allt annað upp. Tónlistamám og strangt ef - segir Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari — Mér finn.st merkilegast að staldra við og hugsa um öll þau áhrif, sem Tónlistarskólinn hefur haft á þessum 50 árum og þar má t.d. nefna. að eftir stofnun hans hafa sprottið upp tónlistarskólar út um allt land og við hefðum ekki svo snemma eignast sinfóníuhljómsveit ef skólans hefði ekki notið við. Frá honum hafa líka komið flestir þeir tónlistarmenn sem í dag starfa i landinu. sagði Rögnvaldur Sigurjónsson pínaóleikari og kennari við Tónlistarskólann i Reykja- vik. er bæði langt ná á árangri Rögnvaldur Sigurjónsson situr hér með einum pianónemenda sinna. Ljósm.: Emilia Kennarar mjög sjálfstæðir Rögnvaldur er yfirkennari framhaldsdeildar í píanóieik: — Eg er nú svo sem ekkert yfir, kennarar eru mjög sjálfstæðir, kennslan fer fram í einkatíma með hverjum nemanda og þar ræður hver og einn kennari ferð- inni. Tónlistarnám er bæði langt og strangt ef ná á árangri, en þvi fyrr sem gáfaðir nemendur geta losað sig við kennara, því betra. En námi lýkur aldrei og það þarf mikinn sjálfsaga þegar menn eru farnir að vinna sjálfstætt og eitt aðalatriðið er að hlusta, hlusta á músík, sækja konserta og hlusta á plötur, með því lærir maður mest. Áfram er rætt um Tónlistar- skólann og þá kennslu sem þar er að fá. Margir hverfa utan til frekara náms og Rögnvaldur segir það aðeins af hinu góða, en hann vill einnig snúa þessu nokkuð við: Gætum tekið erlenda nemendur — Það gæti hæglega verið öfugt. Við getum tekið við fólki frá öðrum löndum og þroskað það hjá okkur. Því það sem fyrst og fremst er unnið við að fara í önnur lönd er að kynnast öðrum kennurum, viðhorfum og fjölbreyttari tónlist. En þessi munur er að mínu viti alltaf að minnka, því hér er nú þegar orðið allfjölbreytt tónlist- arlíf. í þessu sambandi mætti nefna, að franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat, sem er aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, og hefur stjórnað hljómsveitum og farið víða, sagði við mig nýlega, að hér í Reykjavík væri mun meira listalíf en í mörgum stórborgum Frakklands. Á öllum sviðum, myndlist, leiklist og tónlist og hann átti þar ekki síður við gæði en magn. En við skulum ekki ofmetnast, þetta er þróunin og útlendingar bera fulla virðingu fyrir okkur og listum hér. En Rögnvaldur sagði það ekki alltaf hafa verið svo. Þegar hann var fyrir rúmlega þrjátíu árum staddur á ráðstefnu ISCM, Al- þjóðasambandi nútímatónskálda, í Amsterdam var þar m.a. verið að ræða um þátttöku íslands í þessu alþjóðasamstarfi. Sagði hann við- brögð Norðmanns nokkurs hafa þá verið þau að það lægi ekkert á, enn væri of snemmt að íslend- ingar kæmu þar við sögu, íslensk- ar tónsmíðar væru enn á frum- stigi ! Vel menntað tónlistarfólk — En þetta er allt annað í dag, unga fólkið er vel menntað, við reynum að taka eins mikið inn af góðu fólki og hægt er, inntökuskil- yrðin verða sífellt strangari og skólinn færist æ meira yfir á háskólastig. Rögnvaldur er einnig spurður hvort hann haldi að ungt tón- listarfólk fái störf og tækifæri hérlendis við sitt hæfi á næstu árum: — Píanóið er að langmestu leyti notað sem einleikshljóðfæri, í fáum tilvikum er það notað sem venjulegt hljómsveitarhljóðfæri, en það er auðvitað notað í kamm- ermúsík og þar eru viss tækifæri. En píanóleikarar hljóta að verða að leita út fyrir landsteinana eftir tækifærum. Annars er verið að vinna að því að skipuleggja tón- leikaferðir um landið. En við skulum gera okkur grein fyrir því að við erum ekki bara Islendingar heldur einnig jarðarbúar og þess vegna finnst mér rétt að tón- listarfólk reyni að koma sér á framfæri erlendis að minnsta kosti um tíma. Ef þetta unga og efnilega fólk kæmi aftur, sem maður vonar sterklega, þá væri kannski hægt að hugsa sér að stofna aðra sinfóníuhljómsveit eða bæta við þá sem fyrir er, sem er æskilegra. Aftur er rætt um skólann og þá menntun, sem hann veitir, og nú um þroskann: — Það hefur oft verið bent á að góð tónlist hafi mjög þroskandi áhrif á fólk og geri lífið ríkara ad innihaldi. Þess vegna vorkenni ég þessu fólki, sem alltaf er að tala niðrandi um tónlist. Það veit ekki hversu mikils það fer á mis við í lífinu. Gömlu verkin liía Það er sem sagt að mínu viti auðugra líf að geta hlustað á klassíska tónlist, en ekki bara dægurlög, en auðvitað hafa þau einnig sinn fulla rétt og það er ekki hægt að segja að annað sé ómögulegt og hitt gott. Dægurlög- in eru allt annar hlutur, þau skemmta mönnum, en þau fara inn um annað eyrað og út um hitt og gleymast síðan. En af hverju hlusta menn enn í dag á Bach, ef hverju lifa 200 ára gömul verk enn í dag ? Á því hlýtur að vera einhver skýring. Við skulum líka muna, að til voru mörg tónskáld, sem sömdu ágæt verk, að mati samtíðar sinnar, en þessi tónskáld eru nú flestum gleymd. Það eru aðeins verk helstu meistaranna sem enn lifa. Og svo við höldum okkur við dægurlögin áfram eða poppið, þá er það ekki fyrir mig, ég þoli illa popp. Það er líka brot á mannrétt- indum og lögreglusamþykktum þegar þessi tónlist er látin öskra á móti manni eins og villidýr, hér niður í Austurstræti og víðar. Aldrei myndi mér detta í hug að versla í þessum búðum, sem taka þannig á móti manni og mér finnst það óskiljanlegt að nokkur skuli hætta sér innfyrir, en þetta er látið viðgangast. Að lokum er rætt um nútíma- tónlist og Rögnvaldur Sigurjóns- son er spurður álits á henni: — íslensku tónskáldin í dag eru mjög vel menntuð og hafa komið mörg athyglisverð verk frá þeim fram í dagsljósið, en eins og ég sagði áðan, tíminn einn mun ráða úrslitum um hvaða verk lifa og hvaða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.