Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1981 71 Umsjón: Sérn Jóv Dulbú Hróbjaiisson Séra Kurl Siyvrbjörnsson Siyvrbvr Pdlsson A U DROTTINSDEGI Ríkisvaldið og réttarferið Samkvæmt boðskap Nýja testamentisins er til vald, sem á að standa gegn hinu illa. í þýðingu okkar er það kallað „yfirvöld“. Við getum einnig kallað það „ríkisvald". Nýja testamentið segir, að yfirvöldin séu sett af Guði. Það felur ekki í sér, að þau séu gallalaus og fylgi ávallt vilja Guðs, svo að við eigum að beygja okkur fyrir þeim án gagnrýni, heldur felur það í sér, að „ekki sé til nein valdstétt nema frá Guði“. Guð hefur falið henni ákveðið valdsvið. Guð vill, að til sé þjóðfélag og réttarfar. Þess vegna heldur hann stöðugt áfram að starfa gegnum þau góðu öfl, sem í sköpuninni voru lögð mannkyninu í brjóst. Þann- ig fær Guð mennina til þess að skipuleggja þjóðfélög og koma á fót réttarfari, sem setur ofbeld- inu og sjálfselskunni takmörk. Þetta er hluti af því starfi skaparans að halda öllu við, og þannig kemur hann í veg fyrir, að hinn skapaði heimur hrynji saman í upplausn og óskapnað. Yfirvöldin heyra til því, sem Nýja testamentið kallar „öld þessa", sem mun vara við enn um hríð, en mun um síðir líða undir lok. Yfirvöldin geta ekki komið á hinum nýju reglum Guðs ríkis. Ríki Krists er ríki fyrirgefningarinnar, þar sem við fáum fyrirgefningu og fyrirgef- um. En hlutverk yfirvaldanna er að halda uppi lögum og rétti með valdi með aðstoð lögmálsins. Yfirvöldin bera ekki sverðið „ófyrirsynju", heldur geta þau, ef þörf krefur, beitt vopnum og valdi til þess að vernda mannslíf og hindra að óréttlætið sigri. Þegar yfirvöldin gjöra þetta, eru þau þjónar Guðs. Þau að- stoða við það, sem á máli guðfræðinnar hefur verið nefnt „fyrsta notkun lögmálsins". Lög- mál Guðs er nefnilega í fyrsta lagi gefið til þess að setja ofbeldi og órétti skorður og viðhalda góðri reglu hér á jörð. Menn geta verið samverkamenn Guðs, þótt þeir trúi ekki. Það gildir um foreldra, kennara, dómara, löggjafaraðila og alla þá, sem taka þátt í því að halda við einföldum réttarfarshugmynd- um og leggja sitt af mörkum til að viðhalda réttlæti og öryggi á jörðunni. „Önnur notkun lögmálsins" er fólgin í allt öðru. Það er það starf lögmálsins, sem snertir samvisku okkar á þann hátt, að það knýr okkur til Krists til þess að öðlast fyrigefningu. Það verk vinnur Guð með orði sínu og til þess notar hann kirkjuna, en ekki yfirvöldin. begnar tveggja ríkja Það er einkenni kristins manns, að hann er þegn í ríki Krists, samtímis því sem hann lifi enn hér í hinum skapaða heimi. Hann hefur hlutverki og skyldum að gegna í báðum. Sem kristinn maður er hann „sendur í heiminn" til þess með lífi sínu að bera vitni nýju og betra réttlæti, sem kom með Kristi og fyrirgefningu hans. Samtímis er hann „enn í heimin- um“ og hefur þar skyldum að gegna sem þjóðfélagsþegn. Þetta er hinn tvöfarldi þegn- réttur, sem veldur því, að krist- inn maður getur haft tvöfaldar skyldur. Það getur verið skylda hans að rétta fram hina kinnina, jafnframt því sem það getur verið skylda hans að sjá um, að einhver sé handtekinn. Sem kristinn einstaklingur getur honum verið skylt að líða órétt- læti, en sem endurskoðanda eða réttargæslumanni leyfist honum að breyta. Almenna reglan er sú, að fulltrúi þjóðfélagsins og rétt- arins er settur til þess að gæta laga og réttar með valdi og getur því ekki breytt samkvæmt fjall- ræðu Krists, þótt honum sé það kleift sem kristnum einstaklingi. Önnur regla segir, að við getum aðeins slakað til á eigin rétti, en ekki rétti annarra. Ef ég tefli á tvær hættur sem einfeldningur í Kristi, má það aðeins ganga út yfir sjálfan mig og mína hags- muni. Fjölskyldufaðir fer t.d. ekki rétt með fjármuni sína, nema hann minnist þess, að Guð hefur falið honum ábyrgð á velferð fjölskyldu sinnar. En báðar þessar reglur eru of tak- markaðar til þess að ná yfir öll hugsanleg tilvik. Kristinn maður hegðar sér ekki fyrst og fremst eftir einhverri reglu, heldur sem þjónn lifandi Drottins. Vankantar þjóðfclaRsin.s Yfirvöldin eru því þjónar Guðs. En þau eru ekki kristin. Þau eru ekki byggð á fagnaðar- erindinu, heldur lögmálinu. Þau geta því alls ekki verið gallalaus. Það getur kristinn maður ekki heldur verið, þótt hann vilji breyta samkvæmt vilja Guðs. Við getum því enn síður vænst þess af yfirvöldunum, því að hjá þeim er fjöldi manna — einnig á æðstu stöðum — sem trúa ekki á Guð og spyrja ekki meðvitað um vilja hans. I þjóðfélagi á sér einnig stað stöðug barátta milli skaparans og þeirra afla, sem reyna að hindra vilja hans. Stundum get- ur litið út fyrir, að þessi niður- rifsöfl nái yfirhöndinni. En stundum sigrar réttlætið, oft fyrir starf manna, sem eiga ekki trúna. í þessari hólmgöngu milli hins góða vilja skaparans og niðurrifsaflanna er kristinn maður einnig þjófélagsþegn. Það markar skyldur hans og ábyrgð. í fyrsta lagi: Kristinn maður gjörir allt, sem í hans valdi stendur, til þess að þjóðfélagið starfi í samhljóðan við tilgang Guðs, þ.e.a.s. mönnunum til gagns. Hann er heiðvirður þjóð- félagsþegn, sem þekkir ábyrgð sína og gjörir sitt besta. Hann virðir lög og reglur, ekki aðeins til þess að komast hjá óþægind- um, heldur eins og Páll postuli orðar það „vegna samviskunn- ar“. Hann notar ekki vankanta þjóðfélagsins sem afsökun fyrir því að skjóta sér undan skyldum sínum. Hann er einnig heiðvirð- ur, þegar hann án refsingar gæti aflað sér einkaávinnings á kostnað almennings. Biblíulestur vikuna 17.— 23. maí Sunnudagur 17. mai Jóh. 16, 5 —15 Mánudagur 18. mai Efes. 5, 8 —14 t»riðjudaKrur 19. maí Jóh. 6, 66 — 69 Miðvikudagur 20. maiKól. 3, 16 — 24 Fimmtudagur 21. maí Matt. 21, 12—17 Föstudagur 22. mai II. Tím. 2. 8 —13 Laugardagur 23. maí I. Sam. 16, 14 — 23 Jesús er nálœg- ur í anda sínum U- sd. eftir páska Jóh. 16, Stundum er haft á ordi, að mikid ósamræmi ríki innan guöspjallanna og þau dragi um sumt upp ólíkar lýsingar á atburöum ævi Jesú og oft beri þeim ekki saman um orð hans. Aörir svara því til, að þetta innbyröis ósamræmi, sem ekki er nema hvað varöar smáatriöi, öllum aðalatriöum beri saman, það staðfesti að lýst er lifandi persónu af lifandi mönnum, og þar er ekkert samræmi á bak við, engar formúlur, sem per- sóna Jesú er síðan látin falla /'. Persónulýsing guðspjallanna er ákaflea heilsteypt og lifandi. Frásagnir þeirra afar blátt áfram og einfaldar. Kirkjan hlýtur aö ganga út frá því aö það sé engin tilviljum hvernig Nýja testamentið er til okkar komið, heldur sé þar að baki leiðsögn heilags anda, sann- leiksandans, sem leitt hefur lærisveina Jesú til þekkingar á sannleikanum. Jesús kenndi lærisveinum sínum fagnaöarer- indið og þeir færöu það í letur smám saman. En ýmislegt af því, sem þeir námu af honum í umgengni sinni viö hann var ekki unnt að tjá með orðum einum, þ.e. hin persónulegu, daglegu áhrif hins heilaga, hreina og sanna. Þó förum við ekki á mis við það nú, þótt aldir skilji á milli. Hvernig má það vera? Um það talar Jesús í orðum guöspjallsins sem tilheyrir þessum sunnudegi. Lærisvein- arnir skildu fátt af því, sem Jesú var að tala um er hann á skírdagskvöld talaði um burtför sína, dauöa sinn. Þeir voru gjörsamlega blindir á innsta leyndardóm guðsríkis, guö- spjallamaðurinn gerir ekkert til að draga fjöður yfir þaö. En orö Jesú leggja grundvöll að nýjum skilningi með hjálp heilags anda. Eftir páska og hvíta- sunnu vaknaöi allt þaö til lífs, sem Jesús hafði sáð í hjörtu þeirra og heimur hjálpræðis- sögunnar laukst upp fyrír þeim. í öðru lagi: Hann gjörir það, sem í hans valdi stendur til þess að bæta úr vanköntunum. Sér- hver þjóðfélagsþegn í lýðræðis- ríki hefur tækifæri og skyldur til þess. Kosningarétturinn felur ekki aðeins í sér rétt til þess að gæta eigin hagsmuna. Hann gefur mönnum færi á því að hafa áhrif á aðstöðu annarra. Okkur er því skylt að kynna okkur kjör annarra. Fagnaðarerindið ætti alltaf að knýja okkur til þess að sinna þeim sérstaklega, sem eru á einhvern hátt gleymdir eða lítilsmetnir. Kirkjan hefur sér- stökum skyldum að gegna í þjóðfélaginu. Og afskipti kirkj- unnar eru komin undir því, hvað meðlimir hennar vilja, að hún gjöri, og hvað þeim virðist vera ófrávíkjanleg kristileg skylda hennar. Á vissum sviðum hefur kirkjan í aldanna rás unnið brautryðjendastarf á sviði menntunar, hjúkrunar og þjóð- félagslegs hjálparstarfs og þannig skapað nýjar venjur fyrir mannúð og virðingu fyrir mann- legu lífi, sem yfirvöldin hafa síðan fylgt áfram á víðara sviði. Einnig er þörf á slíku brautryðj- endastarfi i velferðarríkjum, sem aldrei eru svo fullkomin, að ekki megi þar bæta um. Það er jafnvel einnig þörf slíks braut- ryðjendastarfs innan kirkjunnar sjálfrar, þar sem kristnir ein- staklingar hefja nýtt starf, sem mótar síðan starf kirkjunnar á ýmsum sviðum. 5—15 „ Það er yður til góðs aö ég fari burt,“ segir Jesús um dauða sinn. Af því að eftir krossinn kom páskadagsmorgun og síð- an uppstigningardagur og hvítasunna. Dauöi Jesú Krists hefur tilgang, eilífan tilgang. Krossinn var ekkert slys heldur þungamiöja verks Guös til aö opna leiöina milli Guðs og manna, afplána sektardóminn, greiða skuldina, gera lífið eilíft. „Það er yður til góðs að ég fari burt,“ segir Jesús, „því fari ég ekki burt, mun huggarinn ekki koma til yðar. “ Eftir burtför Jesú, kross og upprisu og himnaför, yrði hann nálægur þeim á nýjan hátt, í heilögum anda. Áöur var hann bundinn tíma og rúmi eins og þú og ég, í fjötrum mennskunn- ar, nú er hann þér viö hlið hvert sem þú ferö og hvar sem þú ert staddur. Með þér á helgri stund og í störfum og stríði daganna. Þú getur umgengist hann, kynnst honum betur í oröi hans, í lífi bænarinnar með honum og viö boröiö hans. Hann er þér hjá, og himinn Guös opinn þér yfir. í Guðspjöllunum kynnumst við Iffi Jesú, orðum og verkum. En það er heilagur andi, sem gerir þennan veruleik fortíöar að lifandi samtíð, lifandi veru- leik í söfnuðinum, miölar á jörðu lífi og veru frelsarans. Þessvegna getur allt það stór- kostlega, sem menn reyndu og sáu foröum viö þaö aö mæta Jesú frá Nasaret og umgangast hann, það getur þú eignast nú, upplifað eins og þeir Pétur, Jakob og Jóhannes forðum. Á sama hátt vill hann vinna verk sitt íþér og með þér, ósýnilegur í anda sínum, að líf þitt mætti verða mynd hans meöal með- bræðra þinna og þú limur á líkama hans. Guði sé lof fyrír fagnaðarerindið um Jesúm Krist, sannleikann, sem frelsar okkur úr viðjum lífslýginnar, veginn til hamingju og heilla, lífiö sanna, lýsandi bjarta. í þriðja lagi: Allri hollustu eru takmörk sett. Yfirvöldin geta orðið verkfæri hins illa. Nýja testamentið kennir okkur, að til séu ill yfirvöld. Páll leit jákvæð- um augum á rómverska ríkið í samtíð sinni, þótt það væri heiðið og á margan hátt ófull- komið. En Nýja testamentið talar einnig í framtíðarsýn um einræðisríki, sem setur sig í Guðs stað og krefst algjörrar hlýðni við kröfur sínar, einnig þegar þær eru ósamrýmanlegar hlýðninni við Guð. í þeirri að- stöðu á kristinn maður ekki um annað að velja en neita allri þátttöku í því, sem felur í sér afneitun á Guði. Hann verður að taka afleiðingum þess, jafnvel þótt það leiði til píslarvættis. Hitt er Nýja testamentinu al- gjörlega framandi hugsun, að menn beiti valdi til þess að tryggja rétt kirkjunnar til starfs og lífs. Ekki er unnt að taka upp hinar fjölmörgu brennandi sið- fræðilegu vandamál, sem eru tengd þjóðfélaginu. Við getum aðeins stuttlega svarað, hver er kristin grundvallarafstaða: Samkvæmt vilja Guðs eiga að vera yfirvöld, sem halda uppi lögum og rétti, og við erum skyld að sýna þeim hollustu. En þeirri hollustu eru takmörk sett, þar sem okkur ber framar að hlýða Guði en mönnum. (Fyrirmynd: Ágrip af kristinni trúfræði eftir Bo Giertz biskup.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.