Morgunblaðið - 09.07.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ1981
RLR upplýsti
fiársvikamál
KOMIST heíur upp um (jársvika-
mál í Reykjavík ok nemur upp-
ha rtin sem um er art ra da um 26
þúsund krónum. samkvæmt upp-
íýsinKum rannsóknarlöKreKÍunn-
ar. Málsatvik eru þau aö maöur i
borKÍnni íékk annan mann til að
skrifa upp á víxla „in blaneo"
sem útKefandi. en sá var ölvaður
þe^ar hann skrifaði upp á víxl-
ana. Talið er að vixlarnir hafi
verið um 25 talsins.
Þegar útgefandinn gerði sér
grein fyrir málinu fór hann til
RLR og kærði, enda kvaðst hann
ekki vera borgunarmaður fyrir
víxlunum. Þegar hafðist upp á
manninum sem með víxlana var,
kom í ljós að hann hafði látið
víxlana frá sér fara og kvaðst hafa
keypt vörur fyrir þá. Rannsókn-
arlögreglan fór fram á að maður-
inn yrði úrskurðaður í gæsluvarð-
hald, og var í fyrradag tekin
ákvörðun um að hann yrði í gæslu
til 15. júlí, enda hafði einn víxill-
inn fallið. Víxlarnir reyndust þá
niðurkomnir hjá þriðja manni,
sem aftur hafði notað þá í bíla-
viðskiptum, en þau kaup gengu til
baka. Reyndust ekki fleiri víxlar
hafa komist í umferð en þeir sem
notaðir voru í bílaviðskiptunum,
fjórir talsins, upp á 26000 krónur.
Tókst lögreglunni að ná öllum
hinum víxlunum, að einum undan-
skildum og er hans nú leitað.
Samningaviðræðum um
Blönduvirkjun miðar
„ÞAÐ VAR haldinn fundur á
mánudaginn á skrifstofu Blöndu-
ósshrepps á Blönduósi með samn-
inganefndum annars vcgar virkj-
unaraðila og hins vegar fuli-
trúum þeirra sex hreppa sem
þarna eiga hlut að máli. Samn-
ingaviðra'ðum miðaði nokkuð, en
erfitt að segja nokkuö nánar um
það á þessu stigi," sagði Kristján
Jónsson rafmagnsveitustjóri hjá
RARIK er Mhl. spurði hann um
gang viðræðna um Biönduvirkj-
un.
Kristján sagði, að rætt hefði
verið áfram um virkjanatilhögun
og hvernig bætur fyrir land það
sem færi undir vatn verða ákveðn-
ar. „Við höldum þessum viðræðum
áfram og reynum að leita lausnar.
Það verður unnið í málinu fram að
næsta samningafundi sem er
fyrirhugaður í næsta mánuði."
EBE-viðræðurnar:
í GÆR hófust viðræður íslend-
inga og nefndar Efnahagshanda-
lags Evrópu í Reykjavík. um
skiptingu fiskistofna og gerð
rammasamnings. Viðræðum
verður haldið áfram i dag, en þær
fara fram i Átthagasal Hótel
Sögu.
Af íslands hálfu taka þátt í
viðræðunum þeir Hannes Haf-
stein, Jón Arnalds, Már Elísson og
Jakob Jakobsson. I gær var farið
vítt og breitt yfir öll samn-
ingsatriði, og verður viðræðum
fram haldið í dag, en ekki er búist
við að samkomulag náist að þessu
sinni, samkvæmt upplýsingum er
Morgunblaðið fékk í gær frá
viðræðunum. — Meðfylgjandi
mynd, sem tekin var í gær, sýnir
hluta sendinefndar Efnahags-
bandalagsins.
Æðsti yfirmaður Hjálpræðishersins í heimsókn
Æðsti yfirmaður Hjálpræðishersins, general Arnold Brown, kom i heimsókn hingað til lands i gær. Er
þetta i fyrsta skipti, sem alheimsleiðtogi hersins kemur hingað i heimsókn. Brown yfirhershöfðingi
mun tala hér á nokkrum samkomum, m.a. i kvöld og annað kvöld i Neskirkju. Samkomurnar eru
öllum opnar meðan húsrúm leyfir.
Meðfylgjandi mynd var tekin á Hótel Sögu i gærkvöldi af Arnold Brown og fleiri yfirmönnum
Hjálprscðishersins. Hershöfðinginn er þriðji frá hægri á myndinni. Vegna heirosóknarinnar eru
staddir hér fleiri góðir gestir, m.a. umdæmisstjórarnir A.K. Solhaug og óskar Jónsson, William
Clark, alþjóðlegur ritstjóri Hjálpræðishersins, John Bate, einkaritari hershöfðingjans og brigader
Ruby Guðmundsson. 144™.Mbl.E-llU.
Guðríður Þorsteinsdóttir:
Einnig mjög mikil
óánægja hjá BHM
Ekki búist við samkomu-
lagi að þessu sinni
„ÞAÐ ER einnig mjog mikil
óánægja víða hjá okkur, eng-
inn vafi á því.“ sagði Guðríð-
ur Þorsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Bandalags há-
skólamanna, er Mhl. ræddi
við hana í tilefni af yfirlýs-
ingu Kristjáns Thorlaciusar í
Mbl. í gær um mjög mikla
óánægju innan aðiídarfclaga
BSRB vegna launamála.
Guðríður sagði einnig:
„Okkar samningar renna út í
lok febrúarmánaðar á næsta
ári og við munum auðvitað
segja upp samningum í haust
og leggja fram kröfur. Samn-
ingstíminn er lögbundinn og
hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um það enn þá að segja
þeim upp, áður en samnings-
tímabilið rennur út.“
Guðríður sagði, að unnið
væri að rannsóknum á stöðu
launamála, þó væru ekki nein-
ar víðtækar rannsóknir í
gangi, en fylgst væri vel með
því sem gerist annars staðar.
Aðildarfélög BHM eru 20 að
tölu að sögn Guðríðar og
sagðist hún hafa heyrt að
miklar umræður um kjaramál
ættu sér nú stað innan þeirra
og væri óánægja mikil.
Kvennaframboð á Akureyri:
150 tíl 200 manns á
fundi í gærkvöldi
Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins:
Landsfundur verður hald-
inn 29. okt. til 1. nóv.
Engar hugmyndir né tillögur um frestun
„ÞAÐ HAFA engar hugmyndir
eða tillögur heyrst hér innan-
húss né á öðrum vettvangi, sem
ég veit um. að landsfundi Sjálf-
sta-ðisflokksins verði frcstað.
Hann verður haldinn 29. októ-
ber til 1. nóvember," sagði
Kjartan Gunnarsson fram-
kva^mdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, er hann hafði sam-
band við Mbl. í gær vegna
fréttar sem birtist í Alþýðu-
hlaðinu og Kjartan sagði að
mætti misskilja þar sem blaða-
maður Alþýðublaðsins hefði
sleppt úr i skrifum sínum þætti
úr viðtalinu við sig.
„Mínar samræður við blaða-
mann Alþýðublaðsins fóru fram
á þá lund,“ sagði Kjartan, „að
hann spurði mig, hvort komið
hefðu fram tillögur eða hug-
myndir um að fresta landsfundi
og ég þvertók fyrir það, enda hef
ég engar fréttir haft um slíkt. Ég
sagði honum, hvenær fundurinn
ætti að vera, 29. október til 1.
nóvember, og aðspurður um það,
hvort það væri heimilt eða ekki
að fresta fundinum, sagði ég
honum hið rétta sem er, að engin
ákvæði eru í reglum flokksins
sem banna það. Þessu sleppti
blaðamaður í umfjöllun sinni og
mátti því skilja á fréttinni að ef
til vill lægi eitthvað slíkt í
loftinu, en það var alls ekki
aðalefni samtals okkar.“
Kjartan bætti því við, að
undirbúningi fyrir landsfund
miðaði vel og ekkert væri að
vanbúnaði að halda hann á
áðurgreindum tíma.
Akureyri. 8. júlí.
í KVÖLD var haldinn hér
fundur í Alþýðuhúsinu, þar
sem ræddur var möguleiki á
sérstöku kvennaframboði við
næstu bæjarstjórnarkosningar
á Akureyri. Fundinn sóttu á að
giska 150 til 200 manns. Þar
voru konur í miklum meiri-
hluta, en þó voru allmargir
karlar meðal fundarmanna.
Svava Aradóttir setti fundinn
og skipaði Nönnu Mjöll Atla-
dóttur og Elínu Antonsdóttur
fundarstjóra, en Sigfríði Þor-
steinsdóttur og Ingibjörgu Auð-
unsdóttur fundarritara.
Að því búnu voru fluttar
framsöguræður, og ræðumenn
voru Valgerður Magnúsdóttir,
Hólmfríður Jónsdóttir, Karólína
Stefánsdóttir, og Guðmundur
Sigvaldason. Að loknum fram-
söguræðum var boðið upp á
kaffiveitingar og þær Kristjana
Jónsdóttir og Sunna Borg fluttu
stuttan leikþátt. Að því loknu
áttu að hefjast hópumræður og
fundinum átti síðan að ljúka
með almennum umræðum. Þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun
var ekki ljóst hvort lögð yrði
fram tillaga um að stefna að
sérstöku kvennaframboði, eða
hvort stefnt skyldi að því að
efna til annars fundar með
auglýstu markmiði. Þessi fund-
ur var frekar kynningarfundur
hugmyndarinnar að sérstökum
framboðslista kvenna við næstu
bæjarstjórnarkosningar og boð-
að til hans af fimmtíu kjósend-
um á Akureyri.
- Sv.P.
Luther /. Rep-
logle látinn
HINN 3. júlí sl. andaðist í Handa-
ríkjunum Luther I. Replogle,
fyrrvcrandi sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, 79 ára að
aldri.
Replogle stofnsetti samnefnd
hnattlíkanafyrirtæki í Chicago og
rak um árabil. Árið 1969 var hann
skipaður sendiherra Bandaríkj-
anna á íslandi og gegndi hann því
embætti til ársins 1973. Eftir að
Replogle hvarf héðan af landi
brott gaf hann Reykvíkingum gos-
brunninn, sem settur var upp {
Tjörninni.